Morgunblaðið - 16.10.2002, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 16.10.2002, Qupperneq 42
DAGBÓK 42 MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Taiko Maru no 7, kemur í dag, Selfoss og Dettifoss koma og fara í dag. Vík- ingur fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Rán fór í gær, Selfoss fer frá Straumsvík í dag. Vilson Leith kom í gær. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Sól- vallagötu 48. Skrifstofa s. 551 4349, opin miðvi- kud. kl. 14–17. Flóa- markaður, fataútlutun og fatamóttaka opin annan og fjórða hvern miðvikud. í mánuði kl. 14–17, s. 552 5277. Mannamót Árskógar 4. Kl. 9–12 baðþjónusta og opin handavinnustofa, kl. 13– 16.30 opin smíða- og handavinnustofa, kl. 13 spilað, kl. 10–16 pútt. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9– 12 glerlist, kl. 9–16 handavinna, kl. 9–17 fótaaðgerð, kl. 10–10.30 Búnaðarbankinn, kl. 13– 16.30 spiladagur, bridge/ vist, kl. 13–16 glerlist. Haustfagnaður verður fimmtud. 17. okt. Hlað- borð, salurinn opnaður kl. 16.30. Dagskráin hefst með borðhaldi kl. 17. Strætókórinn syngur undir stjórn Guðmundar Ómars Óskarssonar, Ragnar Leví og félagar leika fyrir dansi. Happ- drætti. Skráning á skrif- stofu fyrir kl. 12 mið- vikud. 16. okt. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið opið mánu- og fimmtudaga. Fimmtud.: kl. 13 tré- skurður, kl. 14 bóka- safnið, kl. 15–16 bóka- spjall, kl. 17–19 æfing kór eldri borgara í Dam- os. Laugard: kl. 10–12 bókband, línudans kl. 11. Námskeið í postu- línsmálun byrjar 18. nóv. Uppl. og skrán- ingar s. 586 8014 e.h. Félagsstarfið, Dalbraut 18–20. Kl. 9–14 aðstoð við böðun, kl. 10–10.45 leikfimi, kl. 14.30–15 bankaþjónusta, kl. 14.40 ferð í Bónus, hár- greiðslustofan opin kl. 9–16.45 nema mánu- daga. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 8–16 opin handa- vinnustofan, kl. 9 silki- málun, kl. 13–16 körfu- gerð, kl. 10–13 opin verslunin, kl. 11–11.30 leikfimi, kl. kl. 13.30 bankaþjónusta Bún- aðarbanka. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 opin vinnustofa, mosaík, gifs og íslenskir steinar og postulínsmálun, hár- greiðslustofan opin 9– 14. Í tilefni af 10 ára af- mæli félagsmiðstöðv- arinnar verður afmælis- fagnaður 18. október kvöldverður, skemmti- atriði og fluttur annáll stöðvarinnar í léttum dúr. Námskeið í postu- línsmálun byrjar 16. október. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 9.30 hjúkrunarfræð- ingur á staðnum, kl. 10 hársnyrting, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13 föndur og handavinna, kl 13.30 enska, byrj- endur. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ. Fimmtud. 17. okt. leikhúsferð – Veisl- an í Þjóðleikhúsinu kl. 20. Skráning hafin. Nám- skeið í skyndihjálp í 2 daga. Skráning í s. 820 8571 kl. 14–15 virka daga. Félag eldri borgara, Kópavogi. Viðtalstími í Gjábakka í dag kl. 15– 16. Skrifstofan í Gull- smára 9 opin í dag kl. 16.30–18. Félagar úr Akranesfélaginu koma í heimsókn í Lionshúsið, Auðbrekku 25–27, laug- ard. 26. okt. Kvöldverð- ur og skemmtiatriði. Veislustjóri sr. Gunnar Sigurjónsson, Ásgeir Jó- hannesson segir frá, Vinabandið, Happ- drætti, dans o.fl. Húsið opnað kl. 19. Þátttakendur skrái sig sem fyrst á þátttökulista sem eru í félagsheimil- unum. Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Tré- skurður kl. 9. Myndlist kl. 10–16, línudans kl. 11, glerskurður kl 13, pílukast kl. 13.30. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofan er lokuð vegna breytinga í Glæsibæ. Miðvikud.: Göngu-Hrólfar ganga frá Hlemmi kl. 9.45. Söngfélag FEB kóræf- ing kl. 17. Línudans- kennsla kl. 19.15. Fræðslu- og kynning- arferð á Reykjalund í dag farið frá Ásgarði, Glæsibæ, kl. 13. Þátt- taka tilkynnist skrif- stofu FEB. s. 588 2111. Félag eldri borgara, Suðurnesjum Selið, Vallarbraut 4, Njarðvík. Kl. 14 félagsvist alla miðvikudaga. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar kl. 10.30, gamlir leikir og dansar, frá há- degi spilasalur opinn, kl. 13.30 kóræfing. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan opin, leiðbeinandi á staðnum frá kl. 10–17, kl. 9.30 boccia, kl. 10.45 hæg leikfimi, kl. 13 fé- lagsvist, kl. 15.15 söngur Guðrún Lilja leikur und- ir á gítar. kl. 15–16 við- talstími FEBK, kl. 16 hringdansar, kl. 17 bobb. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 vefnaður, kl. 10 ganga, kl. 9.05 leikfimi kl. 9.55 stólaleikfimi, kl. 13 keramikmálun. Hraunbær 105. Kl. 9 handavinna, útskurður, hárgreiðsla og fótaað- gerð, kl. 13 brids, búta- saumur, harðangur og klaustur, danskennsla framhaldshópur, kl. 14 danskennsla, byrjendur, kl. 15 frjáls dans. Hvassaleiti 58–60. Kl. 9 og kl. 10 jóga, kl. 9 böð- un og föndur, kl. 13 danskennsla, framhald, kl. 14 danskennsla, byrj- endur, kl. 15 teikning og málun og frjáls dans. Fótaaðgerð, hársnyrt- ing. Allir velkomnir. Korpúlfarnir, eldri borgarar í Grafarvogi. Fimmud.: Kl. 10, aðra hverja viku púttað á Korpúlfsstöðum, hina vikuna keila í Keilu í Mjódd. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa, kl. 9–12 tréskurður, kl. 10– 11 samverustund, kl. 9– 16 fótaaðgerðir, kl. 13– 13.30 banki, kl. 14 fé- lagsvist, kaffi, verðlaun. Messa verður fimmtud. 17. okt. kl. 10.30 prestur sr. Kristín Pálsdóttir. Vesturgata 7. Kl. 8.25– 10.30 sund, kl. 9.15–16 myndmennt, kl. 10.30– 11.30 jóga, kl. 12.15 verslunarferð í Bónus, kl. 13–14 spurt og spjall- að, kl. 13–16 tréskurður. Kennsla í þrívíddar- myndum á miðvikud. kl. 9.15–12, kennsla í postu- línsmálun byrjar þriðjud. 22. okt. skrán- ing í s. 562 7077. Haust- bingó verður miðvikud. 16. okt. kl. 13.15. Fyrsta fyrirbænastund vetr- arins verður fimmtud. 17. okt. kl. 10.30 í um- sjón sr. Hjálmars Jóns- sonar dómkirkjuprests. Opið hús föstud. 25. okt. Dagskráin kynnt kl. 14.30, m.a. sýnd brot úr dönsum, og unnið að handverki. Frá kl. 13 verður handverkssala. Allir velkomnir. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hárgreiðsla, kl. 10 fótaaðgerðir, morg- unstund, bókband og bútasaumur, kl. 13 handmennt og kóræfing, kl. 13.30 bókband, kl. 14.10 verslunarferð. Sjálfsbjörg félag fatl- aðra, Hátúni 12, kl. 19.30 félagsvist. Vinahjálp, brids spilað á Hótel Sögu í dag kl. 13.30. Bústaðakirkja, starf aldraðra, kl. 13–16.30 föndur, gáta, spil og helgistund. Óvæntur gestur með gamanmál, veitingar. Umsjón Sig- rún Sturludóttir. Bíla- þjónusta hjá Sigrúnu í s. 553 0048 og 864 1448 eða hjá kirkjuvörðum í síma 553 8500. Hana-nú Kópavogi. Fundur í Bókmennta- klúbbi Hana-nú í Kórn- um á Bókasafni Kópa- vogs í kvöld kl. 20.Verið er að lesa verk skáld- anna frá Sandi. Allir vel- komnir! Háteigskirkja eldri borgara, kl. 11 samvera, fyrirbænastund og stutt messa í kirkjunni, allir velkomnir, súpa í Setr- inu kl. 12, brids kl. 13. Í dag er miðvikudagur 16. október, 289. dagur ársins 2002. Gallus- messa. Orð dagsins: Drottinn er ljós mitt og fulltingi, hvern ætti ég að óttast? Drottinn er vígi lífs míns, hvern ætti ég að hræðast? (Sálm. 27, 1.) Víkverji skrifar... ALMANAK Hins íslenska þjóð-vinafélags er aldeilis ótrúlegt samsafn af alls konar upplýsingum og fróðleik. Nýlega er komið út almanak fyrir næsta ár og kom það fyrir sjónir Víkverja sem tók það til nánari skoðunar. Ekki þarf að glugga lengi í ritið til að verða þess áskynja að þar kennir magra grasa. Fyrir utan dagatalið sjálft (eða mánaðardaginn eins og þeir segja fyrir norðan) með alls konar upplýsingum má leita þarna eftir upplýsingum um sjávarföll og sólargang á nokkrum stöðum á landinu. Það er aldrei að vita hve- nær hægt er að hafa gagn af því að lesa sér til um slíkt – og ef ekki til gagns þá bara til gamans. Varðandi árið 2003 sakar ekki að vera minntur á að þetta er þriðja ár eftir hlaupár, sem þýðir væntanlega að árið 2004 verður hlaupár. Enda ganga fjórir upp í ártalið sem er líka nokkur viðmiðun þegar finna skal út hlaupár ef minnið brestur. En þetta er líka annað ár eftir sumarauka. Þeir sem hafa gaman af stjörnu- fræði geta gengið að miklum fróð- leik vísum sem Þorsteinn Sæmunds- son stjarnfræðingur hefur tekið saman en hann hefur reiknað almanakið og búið það til prentunar. Víkverji hefur hins vegar ekki náð þeim þroska ennþá að vera mikið fyrir stjörnufræði en hann ber mikla virðingu fyrir þeim sem hafa getað sett sig inn í þau fræði. Ekki síst ef þeir kunna heitin á stjörnum og merkjum sem sjá má á himinhvolf- inu. En þarna má líka finna fleira. Ýmislegt um veðurmet, svo sem mesta hita á Íslandi sem mældist á Teigarhorni í Berufirði 22. júní árið 1939, 30 gráður, og tilgreindur er mestur hiti og kuldi hérlendis og er- lendis. Síðan bendir Þorsteinn á að hafi menn ekki fengið nægan fróð- leik í ritinu megi skella sér á vefsíð- una almanak.hi.is og leita þar uppi enn fleira sem ekki er rúm fyrir í ritinu. Hver veit nema Víkverji geri það næst þegar hann veit ekki hvað hann á að gera. x x x SÍÐARI hluti Almanaks Þjóð-vinafélagsins hefur að geyma árbók Íslands 2001 sem Heimir Þor- leifsson hefur tekið saman. Þar er fjallað um hin ólíkustu efni eins og árferði, bruna og búnað, þ.e. land- búnað. Kemur fram í þeim kafla að við höfum slátrað yfir 545 þúsund kindum og að kýr landsmanna gáfu okkur 106 milljónir mjólkurlítra. Og það sem við ekki drukkum varð að 1.195 tonnum af smjöri svo eitthvað væri nú að hafa ofan á brauð. Þarna er einnig kafli um íþróttir sem Vík- verji hljóp yfir og sömuleiðis listi yf- ir nokkra látna Íslendinga sem hann botnar ekki alveg í af hverju er þarna en það er ekki alveg að marka þar sem hann botnar ekki alltaf í öllu. Og svo enn sé gripið á tölum má nefna að Norröna flutti 2.571 vélknúið ökutæki til landsins í fyrra, 52 voru skráðir í Sjónarhæðarsöfn- uðinn, 39 bjuggu í Þingvallahreppi, við fluttum inn pappír fyrir rúma 5 milljarða króna og út kísiljárn fyrir svipaða upphæð og dráttarvélar í landinu voru 11.108. Allt þetta og miklu fleira má lesa í Almanakinu góða fyrir næsta ár. Þarna kennir því svo sannarlega margra grasa. FÁTÆKT er rót alls ills, sagði kona sem hringdi í útvarp Sögu um daginn. Hún hefur mikið til síns máls, því að þurfa að lifa við mikla fátækt hefur brotið marga manneskjuna niður. Það er ekki svo sælt að vera svo fátækur að maður eigi ekki fyrir mat eða reikningum. Fólk spól- ar bókstaflega í fátækrar- gildrum sem engin leið er útúr. Þetta er oft vel gefið fólk sem ekki á kost á að mennta sig né njóta sinna hæfileika á nokkurn hátt. Þegar svo er komið get- ur andleg og líkamleg heilsa versnað og fólk verður biturt og ofan á allt annað hefur fólk ekki efni á að leita til læknis. Sífellt fleiri bætast í hóp hinna fá- tæku meðan gullið streym- ir til hinna ofurríku. Er það svona sem við viljum sjá samfélag okkar verða? Fátæktin er dýr þegar til lengri tíma er lit- ið. Getum við, lesandi góð- ur, horft fram hjá því leng- ur að fólk verði hungur- vofunni að bráð? Þjáningar þessa fólks verða aldrei mælanlegar. Núverandi ríkisstjórn hef- ur ekki sýnt þann vilja að lagfæra þetta ástand neitt. Við ættum að hugsa okkur vel um næsta vor hvort við viljum áfram vaxandi fá- tækt eða greiða þeim at- kvæði sem vilja gera eitt- hvað í málunum, að snúa þessari óheillaþróun við og fá fjölskylduvænt velferð- arkerfi svo ekki komi til að heimilin leysist upp í stórum stíl. Sigrún Lovísa Sigur- jónsdóttir, í stjórn Samtaka gegn fátækt. Góðar trönuberjatöflur MIG langar að vekja at- hygli á nýjum trönuberja- töflum, Ultra Cranberry 1000, sem fást í Heilsuhús- inu. Í mörg ár hef ég þjáðst af þrálátri þvag- færasýkingu og gengið lækna á milli, verið á ótal pensilínkúrum, án árang- urs. Var þetta orðinn víta- hringur endurtekinna sveppa- og þvagfærasýk- inga. Í dag er ég búin að taka inn töflurnar í 2 mán- uði og finn þvílíkan mun á mér. Ég veit að margar konur þjást af þessum kvilla og vil ég eindregið mæla með þessum töflum. Halldóra. Síhækkandi fasteignagjöld Í ALLRI umræðunni um fátækt nú til dags er ég hissa á að ekkert er kvart- að undan síhækkandi fast- eignagjöldum. Á tímabili ævi minnar missti ég heils- una og þurfti að sækja mér sjúkrapeninga. Þá var mér sagt að ef ég sækti um ör- orkubætur fengi ég meira út úr kerfinu. En ég þrjóskaðist við og nú veit ég að hefði ég farið á ör- orku fengi ég nú afslátt af fasteignagjöldum og RÚV og sömuleiðis frítt eða ódýrara í strætó. Talandi um strætis- vagna, þá eru sætin í þeim svo skítug að þar er varla hægt að setjast niður. Von- andi verður ráðin bót á þessu. Eldri borgari. Sammála ÉG ER sammála og ánægður með grein Al- berts Jensens, Ný tegund af rasista, sem birtist í Morgunblaðinu sl. föstu- dag og hvet fólk með sömu skoðanir til að láta í sér heyra. Davíð Samúelsson. Tapað/fundið Hjól í óskilum SAKNAR ekki einhver ung stúlka (innan við 10 ára) hjólsins síns sem er rautt telpnareiðhjól, ný- legt. Hjólið er búið að standa við grindverk við Boðagranda í Reykjavík í um hálfan mánuð. Fyrir um þremur vikum var rautt Weeler-kvenreið- hjól tekið ófrjálsri hendi við gervigrasvöllinn við íþróttahús KR. Hafi ein- hver orðið var við hjólið – eða saknar rauðs telpu- reiðhjóls – vinsamlega hringið í síma 868 3394. Dýrahald Músli er týndur KISINN Músli fór frá heimili sínu Deildarási 4 miðvikud. 9 okt. sl. og er hans sárt saknað. Hann er svartur, með hvíta bringu og hvítan háls og með hvíta sokka. Hann er eyrna- merktur 1188 og með vín- rauða hálsól með bláu nafnspjaldi. Hann er mjög gæfur, kelinn og mikil fé- lagsvera, þ.e. honum líður ekki vel ef hann er of lengi aleinn. Hann gæti hafa lokast inni í bílskúr eða geymslu. Ef einhver hefur orðið hans var vinsaml. hringið í s. 587 0789 eða gsm 897 1716, Baldur. Lítil læða í óskilum AÐFARANÓTT föstud. 11. okt. sl. kom lítil læða inn um glugga í Grafar- vogi. Hún er brún og svört bröndótt með hvítar lopp- ur. Á annarri loppunni er svartur depill. Hún er með rauða ól, en ómerkt. Uppl. í s. 567-6834. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Fjölskylduvænt velferðarkerfi K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 gæta, 4 drekkur, 7 gleð- ur, 8 væskillinn, 9 vatna- gróður, 11 vitlaus, 13 vaxi, 14 bál, 15 heitur, 17 spil, 20 hryggur, 22 hæð, 23 fjandskapur, 24 rás, 25 vesæll. LÓÐRÉTT: 1 árar, 2 stólarnir, 3 for- ar, 4 strítt hár, 5 stritar, 6 efa, 10 hugleysingi, 12 mergð, 13 illgjörn, 15 lof- ar, 16 ágengur, 18 róum, 19 stjórnar, 20 ganga úr lagi, 21 liggja í hnipri. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 kindarleg, 8 gomma, 9 ósatt, 10 góð, 11 tunna, 13 aftur, 15 glers, 18 sterk, 21 lok, 22 angra, 23 aldin, 24 makalaust. Lóðrétt: 2 ilman, 3 draga, 4 rjóða, 5 efast, 6 ógát, 7 stór, 12 nýr, 14 fet, 15 gras, 16 eigra, 17 slaka, 18 skata, 19 eldis, 20 kænn. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.