Morgunblaðið - 16.10.2002, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 16.10.2002, Blaðsíða 46
MEÐ forvitnilegri tónlist sem kemur út fyrir þessi jól er plata með Orgel- kvartettinum Apparati, fyrsta breið- skífa kvartettsins sem er með þá óvenjulegu hljóðfæraskipan að hreyfiafl hennar eru fjögur orgel í bland við alls kyns hljóðgervla og ámóta hljómborðstól. Ekki þekkja allir hina miklu þversögn sem felst í orgelkvartettnum Apparati – kvartettinn er kvintett, því til viðbótar við orgelleikarana fjóra sem stofnuðu sveitina í árdaga, Úlf Eld- járn, Hörð Bragason, Sighvat Ómar Kristinsson og Jóhann Jóhannsson, er fimmti maðurinn, Arnar Geir Ómarsson, sem lemur trommur með þeim félögum og hefur verið meðlimur í tæp tvö ár. Ekki finnst þeim Úlfi og Jóhanni neitt at- hugavert við það að kvartettinn sé kvintett; „all- ir góðir kvartettar eru fimm manna“, segir Jó- hann ákveðinn. „Við höfðum áður spilað með trommara en segja má að þegar Arnar slóst í hópinn hafi tónlistin orðið mótaðri,“ heldur hann áfram og Úlfur skýtur inn í: „Með honum styrktist rokkþátturinn í tónlistinni.“ Hljómsveitin hefur starfað alllengi en lítið gefið út, þó átt lög á safnskífum, dreift kynningardiski og einnig gaf hún út smáskífu á merki Davids Holmes í Bretlandi fyrir skemmstu, en á breið- skífunni eru upptökur frá fyrstu mánuðum hljómsveitarinnar 1999. Aðspurðir um hvers vegna það hafi tekið þá svo langan tíma að ljúka við skífuna segja þeir að margt spili þar inn í, „en kannski er nærtækast að segja að við vild- um vanda okkur“, segir Úlfur og kímir. „Við er- um líka í þeirri stöðu að vera brautryðjendur, höfðum engar fyrirmyndir, þekkjum ekki til annarra orgelkvartetta og þurftum því að gera fleiri tilraunir,“ skýtur Jóhann inn í. Eiginlegar upptökur hófust um verslunar- mannahelgina 2001 og stóð til að taka upp grunna að allri plötunni yfir helgina. Síðan ætl- uðu menn að gefa sér tvær vikur eða svo til að ljúka við lögin, bæta hljóðfærum við og hljóð- blanda. Það tók þó nokkru lengri tíma; níu mánuðir liðu frá því grunnarnir voru teknir upp og platan var loks tilbúin. Þetta var ekki síst vegna þess að menn hafa verið uppteknir við annað, verið að gefa út plötur og semja tónlist fyrir ým- is hliðarverkefni hver í sínu lagi. „Við vorum því ekkert að vandræðast með þetta,“ segir Jóhann, „og lágum ekki yfir upp- tökunum mánuðum saman.“ „Samt er það svo,“ segir Úlfur, „að nokkur laganna höfðu býsna gott af því að fá að hvílast um stund áður en við lukum við þau, þau sprungu út rétt fyrir loka- hljóðblöndun.“ „Lögin breyttust líka talsvert við að vera leikin á tónleikum,“ segir Jóhann, en kvartettinn hefur einmitt verið iðinn við tón- leikahald undanfarin ár, hér á landi sem og er- lendis. Útgáfutónleikar Apparats voru á fimmtu hæð Apóteks sl. sunnudag, en næst á dagskrá eru tónleikar þeirra félaga á Airwaves- tónlistarhátíðinni í Reykjavík næst- komandi laugardag þar sem þeir deila sviðinu í Laugardalshöll með Black- alicious, Hives, Gus Gus og Fatboy Slim. Þeir eru og með meira í bígerð, þar á meðal upphitun fyrir Stereolab í Grandrokk helgina á eftir. Dagskráin er sniðin að umhverfi og aðstæðum hverju sinni, á Apóteki var leikin hátíðardag- skrá, í Höllinni verður leikvangsrokk og svo subburokk í Grandrokk. Þeir félagar eru gefnir fyrir tilrauna- mennsku, eins og mátti til að mynda heyra á tónleikum þar sem kvartettinn lék með radíó- amatörum. Þeir segja og að þeir séu líka með mörg stór plön í bígerð: „Þannig erum við með í smíðum geimruslóperu sem við erum að vinna að, síðan erum við með stílófóníu, verk fyrir fjóra stílófóna, örsmá orgel sem spilað er með á penna, sem við höfum flutt einu sinni á tón- leikum en langar til að gefa út á nótum fyrir aðra stílófónkvartetta og svo má telja. Þess má geta að sú stílófónía verður flutt á blaðamanna- fundi sem við höldum í tilefni af Airwaves.“ Morgunblaðið/Sverrir Kvartettinn er kvintett 46 MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Miðasala opnar kl. 15.30 Sýnd kl. 4 og 6. með ísl. tali. Frá John Woo leikstjóra Face Off og MI:2 Sannsöguleg stórmynd um mögnuð stríðsátök. Missið ekki af þessari! Nicholas Cage hefur aldrei verið betri! Sýnd kl. 4 með ísl. tali. Sýnd kl. 8 og 10.50. B.i. 16. HUGSAÐU STÓRT EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS 5.30, 8 og 10.30. 1/2Kvikmyndir.is Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. „DREPFYNDIN“ ÞÞ. FBL Yfir 16.000 manns! Maðurinn sem getur ekki lifað án hennar leyfir henni ekki að lifa án hans. Hvernig flýrðu þann sem þekkir þig best? Magnaður spennutryllir í anda Sleeping With the Enemy. Einn óvæntasti spennutryllir ársins! Sýnd 5.15, 8 og 10.40. B.i. 14.  HK DV „ARFTAKI BOND ER FUNDINN!“ Ný Tegund Töffara Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B. i. 16. . 1/2Kvikmyndir.is Sýnd 5.50. B.i. 14.Sýnd kl. 8. 1/2Kvikmyndir.is „DREP FYNDIN“ ÞÞ. FBL Yfir 15.000 manns! Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B. i. 16. Sýnd kl. 10. B.i. 16 ára. Maðurinn sem getur ekki lifað án hennar leyfir henni ekki að lifa án hans. Hvernig flýrðu þann sem þekkir þig best? Magnaður spennutryllir í anda Sleeping With the Enemy. Einn óvæntasti spennutryllir ársins!  HK DV „ARFTAKI BOND ER FUNDINN!“ Ný Tegund Töffara 1/2Kvikmyndir.is PLÖTUBÚÐIN Hljómalind stendur fyrir færeyskri tónlist- arhátíð dagana 16.–26. október í samvinnu við færeysku útgáfuna Tutl. Í kvöld verða opnunartón- leikar hátíðarinnar og verða það jafnframt vígslutónleikar gamla Austurbæjarbíós, sem er komið í gagnið á nýjan leik sem vettvang- ur menningarstarfsemi. Um þrjú atriði er að ræða og sverja þau sig öll í ætt ljúfsárrar og ómfagurrar vísna- og þjóð- lagatónlistar, forms sem Færeyingar eru einkar lagnir við. Eivör Pálsdóttir, sem Íslendingar hafa kynnst í nokkrum mæli mun leika ásamt íslenskum meðspilurum og Kári Sverrisson, aðal- liðsmaður helstu þjóðlagasveitar Færeyja, Enekk, mun jafnframt troða upp ásamt Mikael Blak. Þá mun Hanus G. Jóhansen, eitt athyglisverðasta söngvaskáld eyjanna, spila. Hanus þessi er um margt merkilegur og hefur gert nokkuð af því að hljómsetja ljóð færeyskra þjóðskálda. Fyrir rétt- um tveimur árum kom út platan Bouquet, þar sem heyra má tón- leikaupptökur með honum, og er hann dyggilega studdur af hinni níu manna sveit Aldubáran. Platan sú þykir mikil listasmíð og hef- ur vakið athygli langt út fyrir færeyska landsteina. Tónleikarnir hefjast kl. 21 og er forsala í Hljómalind. Miðaverð er 1.500 kr. Opnunartón- leikar Fair- waves 2002 arnart@mbl.is Hanus er grallaraspói. BÍÓFÉLAGIÐ 101 frum- sýnir nýja, íslenska heim- ildamynd um Magnús Páls- son listamann í kvöld. Leikstjóri myndarinnar, sem kallast Hljóðlát sprenging, er Þór Elís Páls- son en hann á jafnframt heiðurinn af handriti myndarinnar ásamt Gunnari J. Árnasyni listheimspekingi. Myndin fjallar um líf og starf Magn- úsar Pálssonar með höfuðáherslu á list- feril hans. Þór Elís segir að honum hafi verið fylgt eftir í um áratug og þannig komi fram í myndinni hvernig list hans hafi breyst og maðurinn sjálfur um leið. Myndin er þó ekki sett upp í tímaröð. „Það kannski teygðist aðeins á þessu,“ segir Þór Elís um tímann, sem það tók að gera myndina. „Ég er ákaflega feginn því í dag vegna þess að síðustu tvö árin hefur Magnús aldrei verið betri. Þrátt fyrir að vera kominn yfir sjötugt er hann eins og venjulega sífellt að koma manni á óvart með mjög ferskum og skemmti- legum verkum,“ segir hann en Magnús hélt sína fyrstu sýningu í Ásmundarsal árið 1967. Þór Elís bætir því við að Magnús hafi verið lærimeistari sinn í Myndlista- og handíðaskólanum, MHÍ. Hann segir að Magnús hafi verið brautryðjandi í nýj- um kennsluháttum við listkennslu og átt stóran þátt í þeim umskiptum er áttu sér stað innan skólans á sjöunda og átt- unda áratugnum. Þrátt fyrir að vera áhrifamikill innan listheimsins segir Þór Elís að Magnús sé ekki jafnþekktur meðal al- mennings. „Ég hef orðið áþreifanlega var við það að það eru fáir sem vita hver Magnús Pálsson er. Hann ber ekki bumbur á torgum,“ segir hann. Magnús fæst að mestu leyti við inn- setningar og hafa verk hans oft og tíðum verið umdeild. Hann leitar gjarnan í menningararfinn, norræna goðafræði, Íslendingasögurnar og aðra þjóðlega arfleifð. Í myndinni skýrir Magnús frá hug- myndum sínum og varpar ljósi á hvað liggur að baki ýmissa verka er hann hef- ur látið frá sér. Nokkrir samferðamenn Magnúsar eru einnig teknir tali og má nefna Birgi Andrésson myndistarmann, Eyvind Erlendsson leikstjóra, Guðmund Odd Magnússon, prófessor við Listahá- skóla Íslands, og Hildi Hákonardóttur, myndlistarkonu og fyrrverandi skóla- stjóra MHÍ. „Þar að auki fann ég ýmislegt spenn- andi í safnadeild Sjónvarpsins, gömul viðtöl og annað,“ segir Þór Elís. Hljóðlát sprenging verður sýnd næstu vikuna á hefðbundnum sýningartímum Bíófélagsins 101 í Regnboganum. Mynd- in verður jafnframt sýnd í Sjónvarpinu en ekki er enn ljóst hvenær hún verður á dagskrá. Þess má geta að næsta mynd Bíó- félagsins er gamanmyndin Kung fu- knattspyrna frá Hong Kong. Verkið „Í minningu Njálsbrennu“ var flutt á Bergþórshvoli í tilefni af gerð myndarinnar. Hver ritvél stendur fyrir þá einstaklinga, sem taldir eru hafa farist í brennunni árið 1010. ingarun@mbl.is Ber ekki bumb- ur á torgum Heimildamynd um Magnús Pálsson listamann frumsýnd

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.