Morgunblaðið - 16.10.2002, Page 48
48 MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MIKILL fjöldi barna og unglinga
lagði leið sína í reiðhöll Gusts í vik-
unni til að njóta leiðsagnar Pernillu
Wistad, sérfræðings í hundasýning-
um. Á liðnum árum hefur unglinga-
starf Hundaræktarfélags Íslands
dafnað vel og á nýafstaðinni sýningu
félagsins kepptu 40 ungmenni um
besta unga sýnandann.
„Í keppni ungra sýnenda skiptir
meginmáli að samband milli hunds og
barns sé gott og að farið sé eftir
ákveðnum reglum. Þegar hundur er
sýndur þarf að draga fram helstu
kosti hans og auðvelda dómara að
meta hundinn,“ útskýrir Pernilla.
Hún kom frá Svíþjóð gagngert til
að dæma unga sýnendur á alþjóðlegri
sýningu Hundaræktarfélagsins um
síðustu helgi og til að halda námskeið
fyrir áhugasama unga sýnendur.
Hún er fyrrverandi heimsmeistari á
þessu sviði og hefur á liðnum árum
ferðast víða, bæði til að dæma á sýn-
ingum og þjálfa sýnendur. „Ef tveir
jafnfallegir hundar eru í dómhring
getur skipt sköpum að sýna hundinn
vel. Með því að þjálfa upp góða unga
sýnendur er verið að leggja grunn að
því að eigendur, ræktendur og sýn-
endur framtíðarinnar hafi haldgóða
þekkingu og verði bæði faglegir og
metnaðargjarnir.“
Ekki var annað að sjá en börn og
hundar hefðu bæði gagn og gaman af
námskeiðinu enda leggur Pernilla
áherslu á ánægjuna sem felst í sam-
skiptum barna og hunda. „Ég kom
hingað síðast fyrir þremur árum og
sé miklar framfarir, sérstaklega í
tæknilegum æfingum. Ég er mjög
hrifin af góðu andrúmslofti sem ríkir
meðal barna og unglinga í unglinga-
deild Hundaræktarfélagsins og ég
vona innilega að þeim auðnist að við-
halda þessum góða anda.“
Lærðu
að sýna
hunda
Áhugi á hundarækt og
hundasýningum er mik-
ill, ef marka má aðsókn
á hundasýningu um þar-
síðustu helgi. Brynja
Tomer kíkti á námskeið
í vikunni, þar sem
sænskur kennari leið-
beindi börnum og ung-
lingum í tækni við að
sýna hunda.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Pernilla Wistad leiðbeinir á nám-
skeiði fyrir unga sýnendur. Við hlið
hennar stendur Auður Sigurgeirs-
dóttir úr stjórn unglingadeildar
HRFÍ. Hún náði undraverðum ár-
angri sem ungur sýnandi fyrir
nokkrum árum.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Yngismeyjar með enskan Cocker Spaniel, Cavalier King Charles Spaniel,
Bichon Frise og Shih Tzu.
EIN helsta erlenda sveitin sem kemur hingað
og leikur á Iceland Airwaves-tónlistarhátíðinni
er rappdúettinn Blackalicious frá Bandaríkjun-
um en hann spilar næsta
laugardag í Höllinni. Sveitin
hefur verið starfandi í meira
en áratug og hefur sótt í sig
veðrið með hverri útgáfu.
Hún þykir ein eftirtektar-
verðasta hipphoppsveitin
sem starfar í dag; en tök
hennar á hipphoppinu þykja í senn frumleg og
fersk um leið og hún sækir í brunna framsæk-
inna rappsveita eins og Gang Starr, Jungle
Brothers, De La Soul og Digital Underground.
Nýverið kom fjórða breiðskífan, Blazing Arr-
ow út þar sem þeir félagar, Chief Xcel og Gift of
Gab, njóta aðstoðar hetja eins og Zach De La
Rocha, Ben Harper, Hi-Tek, Gil Scott-Heron,
Money Mark og DJ Shadow. Þetta er fyrsta
platan þeirra kemur út á „stóru“ merki (MCA).
Blaðamaður Morgunblaðsins sló á þráðinn til
Xcel, þar sem hann var að þeysa til San Diego,
en félagarnir eru að túra vesturströnd Banda-
ríkjanna eins og stendur. Hann var spurður
hvernig honum litist á að vera að koma til Ís-
lands.
„Frábærlega. Ég get ekki beðið … “
– Hvernig stendur nú á því að þið eruð að
koma á Airwaves?
„Tja … það var bara haft samband við okkur
og við beðnir um að spila. Okkur þótti þetta
spennandi.“
– Nýja platan er ykkar fjórða er það ekki?
„Rétt.“
– Og sú fyrsta á stóru merki?
„Einmitt.“
– Er það eitthvað sem þið stefnduð alltaf á?
„Ekkert endilega. Við erum búnir að vera
starfandi í meira en tíu ár og við erum komnir
með mjög fastmótaðar hugmyndir um hvað við
viljum gera. Okkur fannst við einfaldlega vera
búnir að prófa að gera það sem hægt væri að
gera neðanjarðar og langaði að koma tónlistinni
til fleira fólks.“
– En listrænt frelsi var aldrei í hættu við
þetta?
„Aldrei. Við erum búnir að vera það lengi í
þessu að það kom auðvitað ekkert til greina að
fara að breyta eitthvað út af okkar stefnu. Menn
fá þetta nákvæmlega eins og við viljum hafa
þetta.“
– Þið hafið kannski heyrt af því að hipphopp
senan hérlendis blómstrar um þessar mundir?
„Já, eitthvað heyrðum við af því. Við hlökkum
til að fá að kanna þá flóru … “
– Að lokum fyrir þá sem ekki vita: Hvernig
myndir þú lýsa tónlist Blackalicious?
„Þetta er hipphopp sem er vel sálarskotið. Við
leggjum okkur líka fram við að gæða tónlist okk-
ar lífi; þannig að það heyrist að við leggjum
hjartað í þetta.“
Eins og áður segir spilar Blackalicious á laug-
ardagskvöldið í Höllinni með Hives, Gus Gus,
Orgelkvartettinum Apparat og Fatboy Slim.
Orða-örvar
Brosandi Blackalicious.
Blackalicious leikur á Iceland Airwaves
arnart@mbl.is
FÓTBOLTASTÚLKUR af öllum
stærðum og gerðum fjölmenntu á
forsýningu bresku kvikmyndarinnar
Bend It Like Beckham í leikstjórn
Gurinder Chadha á dögunum en
myndin verður tekin til almennra
sýninga um helgina. Myndin er grín-
mynd þar sem fótbolti spilar stórt
hlutverk en sögusviðið er Hounslow í
Vestur-London og Hamborg og er
stúlka af indverskum ættum í aðal-
hlutverki.
Bend It Like Beckham veitir inn-
sýn í heim kvennafótboltans og er í
myndinni fylgst með tveimur átján
ára stúlkum sem hafa áhuga á at-
vinnumennsku í boltanum. Þær
lenda ýmsum ævintýrum og svo virð-
ist sem það sé ekki nóg að hafa hæfi-
leika í fótbolta þegar foreldrarnir
vilja að þú leggir skóna á hilluna,
eignist góðan kærasta og lærir að
elda hið fullkomna chapatti.
Með helstu hlutverk fara Parm-
inder K. Nagra, Keira Knightley og
Jonathan Rhys-Meyers auk þess
sem söngkonunni Shaznay Lewis úr
All Saints bregður fyrir.
Morgunblaðið/Jim Smart
Rósa Júlía Stefánsdóttir, Dóra Stefánsdóttir og Ásthildur Helgadóttir
mættu galvaskar til leiks á sýningu myndar um fótboltastúlkuna bresku.
Myndin Bend It Like Beckham forsýnd
Stelpur geta
líka sparkað
Tímamótaverk í
íslenskri
kvikmyndasögu
HJ Mbl
Gunnar og Herdís
leiða eftirminnilegan leikarahóp sem á þátt í að gera Hafið að einni
bestu íslensku kvikmyndinni 1/2 HK DV
„Íslenskt meistaraverk..“ SFS Kvikmyndir.is
36.000 áhorfendur
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 12.
Frábær rómantísk gamanmynd
FRÁ FRAMLEIÐENDUM „Bridget
Jones’s Diary“ og „About A Boy“.
SV Mbl
SG. DV
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 6.
MBL
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14.
HL. MBL
SG. DV
Kvikmyndir.is
„Þetta er fyrsta
flokks
hasarmynd.“ Þ.B.
Fréttablaðið.
GH Kvikmyndir.com
AL PACINO • ROBIN WILLIAMS •
HILARY SWANK
1/2
Kvikmyndir.is
1/2
SV. MBL
1/2
HK. DV
1/2
Kvikmyndir.com
Ó.H.T. Rás2
Sala árskorta
er hafin í
miðasölu.
Frumsýnum
næsta föstudag
nýja íslenska
heimildarmynd
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12. Sýnd kl. 6, 8 og 10.05. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 12.
34.000 áhorfendurSýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
B.i. 16 ára. Vit 453
E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P
Kvikmyndir.com
HJ Mb
1/2 HK DV
SFSKvikmyndir.is
Sýnd kl. 10.15. Vit 435 Sýnd kl. 4. Ísl tal. Vit 429
Frábær fjölskyldumynd
frá Disney um
grallarann Max
Keeblesem gerir
allt vitlaust í
skólanum sínum!
Sýnd kl. 4, 5 og 6. Vit 441.
Sýnd kl. 6.50 og 9. Vit 433