Morgunblaðið - 09.11.2002, Síða 10
FRÉTTIR
10 LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Þeir sem fylgjast giska vel með
stjórnmálum hafa sagt að spennandi
verði að fylgjast með störfum Al-
þingis í vetur; í málflutningi þing-
manna muni m.a. koma fram
áherslumál þeirra í komandi alþing-
iskosningum. Í þingsalnum verði
kosningabaráttan háð að einhverju
leyti; þar muni þingmenn; stjórn-
arliðar sem og stjórnarandstæð-
ingar vekja athygli á þeim málefnum
sem þeir standa fyrir.
Vissulega komu þessi áherslumál
flokkanna og einstakra þingmanna
þeirra fram í umræðum um stefnu-
ræðu forsætisráðherra, Davíðs
Oddssonar, í upphafi þessa löggjaf-
arþings, eins og undirrituð hefur áð-
ur vikið að á þessum vettvangi, en
eftir því sem nær dregur kosningum
er líklegt að þingmenn muni skerpa
þessi áherslumál sín enn frekar og
draga fram einstaka þætti þeirra.
Ef farið er yfir nýliðna þingviku,
má m.a. sjá að stjórnarandstæðingar
hyggjast draga fram skattamálin í
komandi baráttu, en Jóhanna Sig-
urðardóttir, þingmaður Samfylking-
arinnar, gerði skattastefnu rík-
isstjórnarinnar að umtalsefni í
utandagskrárumræðu í upphafi vik-
unnar. Ekki er ætlunin að fara ná-
kvæmlega út í þá umræðu hér, enda
var gerð grein fyrir henni á þingsíðu
Morgunblaðsins í vikunni. Sitt sýnd-
is þó hverjum, eins og von var, og
skiptust stjórnarliðar og stjórn-
arandstæðingar í tvær fylkingar;
stjórnarliðar töldu skattastefnuna
góða en stjórnarandstæðingar
slæma – ef mér leyfist að draga upp
svo einfalda mynd af umræðunni.
***
Af öðrum málum sem dregin voru
fram í vikunni má nefna fyrirætlanir
ráðherra ríkisstjórnarinnar, sem
kynntar voru fyrir síðustu alþing-
iskosningar, um uppbyggingu menn-
ingarhúsa á landsbyggðinni. Stein-
grímur J. Sigfússon, formaður
Vinstrihreyfingarinnar–græns
framboðs, vakti máls á þessu í fyr-
irspurnartíma á Alþingi á miðviku-
dag, og má af henni sjá að nú eru
þingmenn, aðallega stjórnarand-
stæðingar, farnir að grafa upp kosn-
ingaloforð stjórnarflokkanna frá síð-
ustu kosningum.
Ég segi „aðallega stjórnarand-
stæðingar“, því a.m.k. einn stjórn-
arþingmaður hefur dregið fram í
þessari viku kosningaloforð eða
markmið ríkisstjórnarinnar sem
fram komu í stefnuyfirlýsingu henn-
ar í upphafi kjörtímabilsins. Þarna
er ég að vísa til Páls Magnússonar,
varaþingmanns Framsóknarflokks-
ins, en hann situr nú tímabundið á
þingi í fjarveru Sivjar Friðleifs-
dóttur. Páll lagði í vikunni fram
skriflega fyrirspurn til fjár-
málaráðherra, Geirs H. Haarde, um
svokölluð barnakort. Í fyrirspurn-
inni minnir varaþingmaðurinn á að í
stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar
hafi m.a. komið fram það markmið
að draga úr tekjutengingu í barna-
bótakefinu, t.d. með útgáfu sér-
stakra barnakorta eða öðrum sam-
bærilegum aðgerðum.
Þess má reyndar geta að það var
Framsóknarflokkurinn sem kom
fram með hugmyndir um barnakort
fyrir síðustu alþingiskosningar, svo
varaþingmaðurinn er sennilega með
fyrirspurninni að minna sinn eigin
flokk á sín eigin kosningaloforð.
***
En talandi um varaþingmenn, þá
náðu níu varaþingmenn að sitja á
sama tíma á Alþingi síðustu vik-
urnar vegna tímabundinnar fjarveru
aðalmanna. Ég neita því ekki að það
var gaman að fylgjast með störfum
margra þeirra; þ.e. þeir voru vel-
flestir afskaplega duglegir og að því
er virtist áhugasamir. Margir lögðu
þeir fram þingmál; fleiri en eitt og
fleiri en tvö og flestir tóku þeir þátt í
öllum þeim umræðum sem fram fóru
á þingi í vikunni. Ég er heldur ekki
frá því að þeir hafi margir hverjir
verið með eindæmum iðnir við að
sitja undir öllum þingræðunum. Þá
var þingmálum þeirra skotið fram
fyrir þingmál annarra þingmanna á
dagskrá þingsins svo þeir hefðu tíma
til að mæla fyrir sínum málum áður
en þeir hyrfu aftur af þingi.
Að öðru leyti var nýliðin þingvika
nokkuð róleg, róleg eins og vikurnar
á undan. Og þó. Þegar betur er að
gáð sáust kannski einstaka óveð-
ursský myndast, óveðursský sem
gefa áhugasömum þingfréttara fyr-
irheit um storminn á eftir logninu.
Kannski það sé bara stormur á leið-
inni!
Kannski stormurinn sé á leiðinni
EFTIR ÖRNU SCHRAM
ÞINGFRÉTTAMANN
arna@mbl.is
ÞÓTT Björn Bjarnason, fyrrverandi menntamálaráð-
herra, og Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylk-
ingarinnar, séu andstæðingar í pólitík og takist oft hart
á geta þeir eftir sem áður gert að gamni sínu og brosað.
Björn er að brosa að tilburðum Össurar sem þóttist slá
hann leiftursnöggt í höfuðið með ímyndaðri reglustiku.
Össur er þar að vísa til ummæla sem forsætisráðherra
lét falla í blaðaviðtali en þau vöktu talsverða athygli.
Morgunblaðið/Kristinn
Össur og Björn slá á létta strengi
ÞINGMENN ræddu utan dagskrár
á Alþingi á fimmtudag tillögur sér-
staks stýrihóps sem sjávarútvegs-
ráðherra, Árni M. Mathiesen skipaði
snemma á þessu ári til að kanna með
hvaða hætti mætti á skiplegan hátt
hafa áhrif á verðmætaaukningu sjáv-
arfangs samhliða nýsköpun í grein-
inni á næstu árum. Árni Steinar Jó-
hannsson, þingmaður Vinstrihreyf-
ingarinnar – græns framboðs, var
málshefjandi umræðunnar en Árni
M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra
var til andsvara.
Umrædd skýrsla var kynnt á
blaðamannafundi í lok október sl.
„Með því að auka verðmæti sjávar-
fangs eins og fram kemur í skýrsl-
unni um 5 til 6% á ári, næstu fimm til
tíu árin, má auka verðmætin úr 130
milljörðum árið 2001 í 240 milljarða
árið 2012,“ sagði Árni Steinar m.a. er
hann fór yfir niðurstöður skýrslunn-
ar. Þá sagði Árni Steinar að nefndin
hefði bent á að sáralítil eða engin
verðmætaaukning hefði orðið á sjáv-
arfangi á síðustu tíu árum. Spurði
hann sjávarútvegsráðherra að því
hvort hann teldi ekki augljóst að nú-
verandi stjórnkerfi fisvkeiða hefði
hamlað framþróun til verðmæta-
aukningar á fyrrgreindu tímabili.
Árni Steinar sagði að síðustu að
stýring á notkun auðlindarinnar
væri grunnur að þeirri verðmæta-
aukningu sem sögð er möguleg í
skýrslunni. „Þess vegna er hér um
hápólitískt stjórnunarlegt mál að
ræða, sem á heima á hinu háa Al-
þingi.“
Árni M. Mathiesen sagðist í upp-
hafi máls sínst telja mikla möguleika
á því að þau markmið sem sett væru
fram í skýrslunni næðu fram að
ganga. „En hversu fljótt er hægt að
ná því marki sem menn þar setja og
hvenær einstakir þættir geta orðið
að veruleika er erfiðara um að
segja,“ sagði hann.
Sjávarútvegsráðherra tók fram að
hann teldi það vera kolranga ályktun
hjá Árna Steinari að halda því fram
að það væri fiskveiðistjórnunar-
kerfinu að kenna að lítil sem engin
verðmætaaukning hefði orðið síð-
ustu tíu árin. Ráðherra taldi ástæð-
una fyrir lítilli verðmætaaukningu
m.a. vera miklar deilur um stjórn-
kerfi fiskveiða. Taldi hann að um-
ræðan um stjórnkerfið, um fyrning-
ar og um það að leggja gjald á
atvinnugreinina hefði verið mjög
neikvæð fyrir sjávarútveginn og
hrakið greinina í ákveðna vörn. Jafn-
vel orðið til þess að áhugi ungs fólks
og annarra á greininni hefði verið
minni heldur en ella hefði getað orð-
ið. Í öðru lagi hefði greinin þurft að
eyða miklum tíma í að bregðast við
breytingum á m.a. aflaheimildum og
í þriðja lagi hefði sjávarútveginum
ekki verið skipaður sá sess í mennta-
kerfinu sem honum bæri, þótt vissu-
lega hefðu orðið breytingar til batn-
aðar í þeim efnum á síðustu árum.
„Ennfremur höfum við ekki lagt
nægilega mikið í rannsóknir,“ sagði
ráðherra, „en það tekur tíma fyrir
þær að skila sér í einhverju sem
verulega skiptir máli.“
Engin verðmætaaukn-
ing á síðustu tíu árum
Umræður á Alþingi um verðmæti sjávarfangs
LÖGÐ hefur verið fram á Alþingi til-
laga til þingsályktunar um úttekt á
aðstöðu til hestamennsku. Meginefni
tillögunnar er að Alþingi álykti að
fela landbúnaðarráðherra að skipa
nefnd sem geri úttekt á aðstöðu til
hestamennsku á landsbyggðinni og
leggi fram tillögur um stuðning rík-
issjóðs við uppbyggingu aðstöðunn-
ar. Nefndin skili áliti fyrir 1. október
2003. Jónas Hallgrímsson, varaþing-
maður Framsóknarflokksins á Aust-
urlandi, er fyrsti flutningsmaður til-
lögunnar, en hann situr á þingi í
fjarveru Halldórs Ásgrímssonar.
Meðflutningsmenn eru þingmenn úr
Samfylkingu, Sjálfstæðisflokki og
Vinstrihreyfingunni–grænu fram-
boði. Tillagan gengur út á að nýta
hestamennsku sem nýtt sóknarfæri
fyrir hinar dreifðu byggðir landsins,
að því er fram kemur í greinargerð
tillögunnar.
Í upphafi greinargerðarinnar seg-
ir m.a. að einstaklingar, félög og hið
opinbera hafi á undanförnum árum
sameinast um að auka kynningu og
sölu á íslenska hestinum bæði innan
lands og utan. Samhliða því átaki
hafi verið byggðar nútímalegar reið-
hallir sem jafnframt þjóni víða sem
félagsmiðstöðvar hestamanna. „Á
þetta einkum við um suðvestanvert
landið og Norðvesturland,“ segir í
tillögunni. „Landsvæði sem eru
fjarri höfuðborgarsvæðinu, frá Eyja-
firði norður og austur um land, allt
til Hellu á Rangárvöllum, auk Vest-
fjarða, virðast eiga erfiðara upp-
dráttar hvað sölu- og markaðsmál
áhrærir og er þá ekki alltaf lélegum
hrossum um að kenna, nema síður
væri. Frekar má nefna fjarlægð frá
aðalkomustað erlendra ferðamanna
til landsins ásamt aðstöðuleysi
þeirra sem hlut eiga að máli.“
Undir lok greinargerðarinnar seg-
ir að af byggðaástæðum sé orðið
tímabært að leita leiða til úrbóta fyr-
ir þau landsvæði sem fjærst liggja
markaðnum. „Eðlilegt er að móta
stuðning ríkisvaldsins við uppbygg-
ingu í greininni og gengur þings-
ályktunartillagan út á að hesta-
mennskan verði nýtt sem sóknarfæri
fyrir dreifðar byggðir landsins.“
Sóknarfæri í hesta-
mennsku verði nýtt
STEINGRÍMUR J. Sigfússon, for-
maður Vinstrihreyfingarinnar-
græns framboðs, kallaði eftir upp-
lýsingum um það á Alþingi í vikunni
hvað liði áformum ráðherra ríkis-
stjórnarinnar um uppbyggingu
menningarhúsa á landsbyggðinni.
Steingrímur minnti á að liðin væru
u.þ.b. þrjú ár og tíu mánuðir frá því
Björn Bjarnason, þáverandi
menntamálaráðherra, Davíð Odds-
son forsætisráherra, Halldór Ás-
grímsson utanríkisráðherra og Páll
Pétursson félagsmálaráðherra
kynntu fyrirætlanir sínar um menn-
ingarhús á landsbyggðinni.
„Ríkisstjórnin, sem er sú sama
og þarna var við völd, fyrir kosning-
arnar 1999, hefur haft þrjú ár og tíu
mánuði mínus einn dag, sem sagt
tæplega heilt kjörtímabil til að láta
eitthvað gerast í málinu. En enn er
þetta bara í athugun,“ sagði Stein-
grímur. Minnti hann á að þeir stað-
ir sem nefndir hefðu verið til sög-
unnar í þessu sambandi hefðu verið
Ísafjörður, Sauðárkrókur, Akur-
eyri, Egilsstaðir og Vestmannaeyj-
ar.
Tómas Ingi Olrich menntamála-
ráðherra var til andsvara og sagði
m.a. að það væri brýnt að hvergi
yrði ráðist í uppbyggingu menning-
arhúsa nema fyrir lægju allar for-
sendur, s.s. um skiptingu kostnaðar
milli ríkis og sveitarfélaga. Hann
fór jafnframt yfir stöðu mála á þeim
stöðum sem Steingrímur nefndi.
Ráðherra sagði að viðræður
stæðu yfir við bæjaryfirvöld á Ísa-
firði um að ríkið stæði m.a. að því
með heimamönnum að ljúka við
endurgerð Edinborgarhússins.
Hann sagði að á Sauðárkróki hefði
verið tekin ákvörðun um að reisa
ekki menningarhús að svo stöddu
en rætt væri um að ríkið og bæj-
aryfirvöld ættu samstarf um menn-
ingarmál á öðrum forsendum. Á
Akureyri stæðu viðræður yfir milli
bæjaryfirvalda og ríkisins og stefnt
væri að því að niðurstaða fengist
fyrir lok þessa árs. M.a. væri til
skoðunar að reisa tónlistarhús, fyr-
irlestrasal og ráðstefnusal á lóð Há-
skólans á Akureyri. „Í þessu tilfelli
yrði reist 350 manna leikhús í
miðbæ Akureyrar,“ sagði ráðherra.
Þá minnti ráðherra á samstarfs-
samning milli ríkisins og 16 sveitar-
félaga á Austurlandi, sem gerður
hefði verið í fyrra. Samkvæmt hon-
um væri unnið að þátttöku ríkisins í
uppbyggingu fjögurra menningar-
miðstöðva á Austurlandi. Um 17
milljónum hefði t.d. verið varið til
þessa verkefnis á fjárlögum þessa
árs. Að lokum sagði ráðherra að
verið væri að ræða við nýja bæj-
arstjórn í Vestmannaeyjum um
hugmyndir um menningarhús í
Eyjum.
Kallað eftir upplýsing-
um um menningarhús