Morgunblaðið - 09.11.2002, Qupperneq 22
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
22 LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FYRIRTÆKIÐ Kortaþjónustan
hf. boðar samkeppni í kreditkorta-
viðskiptum fyrir söluaðila, í sam-
starfi við danskt greiðslumiðlunar-
fyrirtækið. Gunnar R. Bæringsson,
stjórnarformaður Kortaþjónust-
unnar, segir að þjónustan verði allt
að 20–40% ódýrari en sambærileg
þjónusta þeirra tveggja fyrirtækja
sem fyrir eru á þessum markaði,
þ.e. Vísa Ísland og Europay Ísland.
Sigurður Jónsson, framkvæmda-
stjóri Samtaka verslunar og þjón-
ustu, segir það vera bæði tímabært
og ánægjulegt að fá samkeppni í
kreditkortaþjónustu er snúi að
söluaðilum. Samkeppni hafi ekki
verið mikil á þessum vettvangi.
Heppilegt sé að fá samkeppni á
þessu sviði nú og hann fagni henni
því.
Hraðari afgreiðsla
Gunnar, sem var stofnandi og
framkvæmdastjóri Kreditkorta/
Europay Ísland, sagði á kynning-
arfundi í fyrradag, þar sem þjón-
usta Kortaþjónustunnar var kynnt,
að íslenskum söluaðilum verði boð-
ið upp á hraðari uppgjör á kred-
itkortaviðskiptum en söluaðilum
standi nú til boða. Söluaðilar muni
fá greiðslukortaviðskipti sín upp-
gerð og endurgreidd tveimur virk-
um dögum eftir að viðskptin eiga
sér stað. Í dag gerist þetta hins
vegar 15 til 45 dögum eftir við-
skipti. Fyrirtæki geti í dag hins
vegar selt færslurnar til fjármála-
stofnana gegn aukalegri þóknun.
Hann sagði að markhópur þjón-
ustunnar sé fyrst og fremst lítil og
meðalstór fyrirtæki. Ekkert muni
hins vegar breytast gagnvart kort-
höfunum. Breytingin snúi eingöngu
að söluaðilum.
Engin samkeppni í dag
Jóhannes I. Kolbeinsson, fram-
kvæmdastjóri Kortaþjónustunnar,
sagði að þau fyrirtæki sem séu fyr-
ir á þessum markaði hér á landi séu
í fullri og sameiginlegri eign bank-
anna. Engin raunveruleg sam-
keppni sé því á milli þeirra og eng-
in ástæða sé fyrir þau að bjóða
söluaðilum betri kjör en þau gera.
Hann segði að breytingar hafi
verið að eiga sér stað í umhverfinu.
Ný þjónusta Kortaþjónustunnar
byggist á ákvörðun Evrópusam-
bandsins, sem nái yfir EES-svæð-
ið, og gangi út á að opna fyrir sam-
keppni á þessum markaði,
sérstaklega milliríkjasamkeppni.
Búið sé að heimila uppgjör korta-
viðskipta milli landa sem geri
bönkum og kreditkortafyrirtækj-
um kleift að þjónusta kreditkort á
milli landa. Þetta þýði að hægt sé
að fara með íslenskar kreditkorta-
færslur til erlendra bankastofnana
og fá þær greiddar þar. Í öðrum
Evrópulöndum tíðkist að kredit-
kortafærslur séu greiddar allt að
því daginn eftir að þær berast
kortafyrirtækjum. Venjur í Evrópu
séu því allt aðrar en söluaðilar á Ís-
landi séu vanir.
Jóhannes sagði að Kortaþjónust-
an hefði hafið samstarf við danska
greiðslumiðlunarfyrirtækið PBS
um uppgjör á íslenskum kredit-
kortafærslum, en fyrirtækið sé
mjög öflugt. Þjónustan geri kaup-
mönnum kleift að nýta fjármagnið í
annað, t.d. til að efla reksturinn.
Þessi þjónusta muni því stórbæta
kjör söluaðila, sérstaklega lítilla og
meðalstórra fyrirtækja.
Samkeppni í kreditkorta-
þjónustu fyrir söluaðila
VART hefur farið framhjá neinum
sem les fréttir að fjölmiðla- og af-
þreyingarrisinn AOL-Time Warner
á við fjárhagsvanda að stríða. Fyr-
irtækið hefur verið mikið í sviðs-
ljósinu á undanförnum mánuðum
enda afkoma þess ekki staðist
væntingar. Slök afkoma nethluta
fyrirtækisins hefur helst valdið
áhyggjum en yfirmenn fyrirtæk-
isins segja ekki ástæðu til að ör-
vænta, þrátt fyrir hrakspár. Haft er
eftir Wayne Pace, fjármálastjóra
AOL-Time Warner, á Forbes.com
að hann sé þess fullviss að þegar ár-
ið verði gert upp hafi tekjur fyr-
irtækisins aukist um 5–8% á árinu
2002. „Við búumst við góðri afkomu
á fjórða ársfjórðungi í öllum deild-
um nema hjá America Online.“
Á þriðja ársfjórðungi skilaði fyr-
irtækið hagnaði auk þess sem
tekjur þess jukust um 6%, þrátt fyr-
ir dræmt gengi America Online.
Þann árangur mátti að miklu leyti
þakka sölu á myndbandinu „The
Lord of the Rings: The Fellowship
of the Ring“ auk sjónvarpsþátta í
eigu fyrirtækisins, eins og Will og
Grace, sem nýtur mikilla vinsælda
og er mikilvæg tekjulind. Hið sama
má segja um þættina „Sex and the
City“ sem einnig eru framleiddir af
fyrirtækinu.
Svo virðist sem treyst sé á svip-
aðar uppsprettur til að tryggja
tekjuaukningu á fjórða ársfjórð-
ungi. Þótt tímaritin Time magazine
og People hafi styrkt stöðu sína á
þriðja ársfjórðungi hyggst AOL-
Time Warner halda áfram að skera
niður kostnað við rekstur þeirra en
einbeita sér að því að hala inn
tekjur fyrir sjónvarpsefni, mynd-
bönd og kvikmyndir. Búist er við að
önnur kvikmyndin um galdrastrák-
inn knáa, „Harry Potter og leyni-
klefinn“, hali inn dágóðan skilding
fyrir AOL-Time Warner. Einnig er
vonast eftir mikilli sölu á mynd-
böndunum „Austin Powers in Gold-
member“ og „Harry Potter og visk-
usteinninn“ til að standa á bak við
áætlað gott gengi fyrirtækisins.
Að sögn forstjórans, Richards
Parsons, verður niðurgreiðsla
skulda og endurlífgun America On-
line þó forgangsverkefni hjá fyr-
irtækinu á næsta ári.
Reuters
Daniel Radcliffe leikur Harry Potter en myndirnar um hann eru gullnáma
fyrir hið umtalaða AOL-Time Warner.
Harry Potter
til hjálpar AOL
BAUGUR hefur gert samning við
Fleet Bank of Boston um lánveit-
ingu til dótturfélagsins Bonus Stor-
es Inc. í Bandaríkjunum. Samkomu-
lagið felur í sér að bankinn er
reiðubúinn að veita fyrirtækinu allt
að 40 milljón dollara lán; lánalínan
er m.ö.o. 40 milljónir dala, eða sem
samsvarar 3.480 milljónum króna.
Þá hefur verið tilkynnt að eigendur
Baugs Group hafi samþykkt að
leggja Bonus Stores til 9 milljónir
dollara í nýju hlutafé. Í tilkynningu
frá Baugi segir að þessir samningar
styrki jafnt innkaupa- og samnings-
stöðu félagsins.
Þá hefur Jack Koegel verið ráð-
inn forstjóri Bonus Stores Inc.
Hann hefur áratugareynslu af smá-
sölurekstri og var m.a yfirmaður
Target verslunarkeðjunnar í
Bandaríkjunum.
Jafnframt mun Bill Fields taka
við stjórnarformennsku félagsins af
Tryggva Jónssyni.
Jón Ásgeir Jóhannesson stjórn-
arformaður Baugs Group segist
vera ánægður með að þessum
tveimur veigamiklu þáttum í end-
urskipulagningu Bonus Stores sé
lokið. „Þetta styrkir vonir okkar um
að sá viðsnúningur sem stefnt er að
verði að veruleika,“ segir hann.
Í tilkynningu frá Baugi 31. októ-
ber síðastliðinn var greint frá
ákvörðun fyrirtækisins um að auka
hlut þess í Bonus Stores um 9 millj-
ónir dollara, eða sem samsvarar um
800 milljónum íslenskra króna. Mik-
ið tap hefur verið á rekstri Bonus
Stores en áætlanir félagsins gera
ráð fyrir að það muni skila hagnaði
á næsta ári.
Samið um fjármögn-
un Bonus Stores
Nýr forstjóri
tekur við
TEPPI Á
STIGAHÚS
- got t verð -
komum og gerum verðtilboð
ÍS
LE
NS
KA
A
UG
LÝ
SI
NG
AS
TO
FA
N/
SI
A.
IS
T
O
Y
19
32
4
1
1/
20
02
Nýbýlavegi 2 • 200 Kópavogi • S. 570 5300 • www.arctictrucks.is
markaður jeppamannsins
RX-1 er kominn, ert þú tilbúinn?
YAMAHA er komið í Arctic Trucks
MEIRA TOG
65% meira tog en
800cc tvígengisvél
Á LAUGARDAG FRÁ 12-16 OG SUNNUDAG
FRÁ 13-16 Í ARCTIC TRUCKS
KOMDU OG SJÁÐU RX-1
VÉLSLEÐA ÁRSINS 2003