Morgunblaðið - 09.11.2002, Qupperneq 31
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002 31
BYGGINGAFYRIRTÆKIÐ Fjöln-
ir á Akureyri hefur þurft að grípa til
uppsagna starfsfólks vegna erfiðrar
verkefnastöðu framundan. Magnús
Guðjónsson framkvæmdastjóri
sagðist þurfa segja upp tíu manns að
minnsta kosti, eða um helmingi
starfsmanna fyrirtækisns. Fyrir-
tækið varð af lóðum sem það sóttist
eftir á dögunum og því er útlit fyrir
erfiða verkefnastöðu. Magnús sagði
að starfsmennirnir hefðu allt að sex-
mánaða uppsagnarfrest og hann
vonaði að úr rættist áður en upp-
sagnirnar kæmu til framkvæmda.
Fjölnir sótti nýlega um lóðir við
Grenilund og Bjarkarlund á móti
fyrirtækinu Gullströnd og sam-
þykkti meirihluti umhverfisráðs að
veita Gullströnd lóðirnar. Eins og
fram kom í Morgunblaðinu í vikunni
urðu harðar umræður um afgreiðslu
umhverfisráðs á lóðarumsóknunum
og vildi minnihluti bæjarstjórnar út-
hluta Fjölni lóðunum. Samþykkt um-
hverfisráðs var hins vegar staðfest í
bæjarstjórn og Gullströnd fékk lóð-
irnar.
Magnús sagðist þurfa lóðir til að
geta byggt og á meðan hann fengi
þær ekki yrði hann að segja upp
fólki. „Við höfum verkefni fram á vor
en það er ekkert í spilunum eftir
þann tíma. Það eru engar lausar lóð-
ir hér í bæ lengur og ég sé fram á að
þurfa að fara sækja um lóðir í
Reykjavík.“ Magnús sagðist frekar
óhress með að hafa ekki fengið þær
lóðir sem hann sótti um á dögunum,
þar sem byggja á fjölbýlis-, par- og
einbýlishús. „Stefna bæjarins virðist
vera að fá ný fyriræki í staðinn fyrir
þau gömlu. Það kom fram í um-
ræðum í bæjarstjórn að samkvæmt
nýrri reglu ættu þau fyrirtæki sem
aldrei hafa fengið lóðir að sitja fyrir.
Það gerir öðrum fyrirtækjum erfitt
fyrir og okkur finnst við hafa verið
frekar afskiptir varðandi lóðaúthlut-
anir. Maður er kannski búinn að vera
of lengi í þessu.“
Fjölnir hefur eina lóð í Nausta-
hverfi undir fimm íbúðir. Magnús
sagði að minna væri nú að gera í út-
boðsverkum og því fleiri að berjast á
íbúðamarkaðnum.
Fjölnir segir
upp starfsfólki
TVÆR akureyrskar stúlkur, Heið-
rún Sigurðardóttir og Anna Mar-
grét Ólafsdóttir, keppa á heims-
meistaramóti unglinga í hreysti
(Fitness) í dag en mótið er haldið í
Portúgal. Þær kepptu báðar á HM
fullorðina fyrir þremur vikum og
höfnuðu í 12. sæti í sínum flokk-
um. Anna Margrét er núverandi
Íslandsmeistari í hreysti, þar sem
Heiðrún hafnaði í öðru sæti. Þær
stöllur eru báðar á síðasta ári í
unglingaflokki og eftir góðan ár-
angur þeirra á HM á dögunum
eru bundnar miklar vonir við að
þær geri enn betur á mótinu í
dag. Það er alþjóðlega líkams-
ræktarsambandið IFBB sem
stendur fyrir mótinu en að því
standa 174 lönd.
Stúlkurnar fá ekki langan tíma
til afslöppunar eftir ferðina til
Portúgals, því þær mæta báðar til
leiks á Bikarmóti Íslands í hreysti
sem fram fer í Austurbæjarbíói
laugardaginn 16. nóvember. Þar
munu allir sterkustu keppendur
landsins mæta til leiks. Það er
Norðurmjólk á Akureyri sem kost-
ar för stúlknanna til Portúgals.
Á myndinni eru þær Heiðrún
Sigurðardóttir og Anna Margrét
Ólafsdóttir.Morgunblaðið/Rúnar Þór
Keppa á
HM ung-
linga í
hreysti
í dag
Sirra Sigrún Sigurðardóttir,
opnar í dag, laugardaginn 9. nóv-
ember kl. 19, sýninguna „Skyn-
færi jafnvægis,“ í Kompunni við
Kaupvangsstræti.
Á sýningunni púslar hún saman
hinum ýmsu hlutum þess skyn-
færis sem liggur jafnt utan sem
innan einstaklingsins, líkamlega
sem andlega, segir í frétt um
opnunina.
Sýningin stendur til 28. nóv-
ember. Kompan er opin alla daga
frá kl. 14 til 17.
Í DAG
AUÐHUMLA, félag mjólkurfram-
leiðenda í Eyjafirði og Þingeyjar-
sýslum, keypti í sumar tæplega 67%
hlut fjárfestingarfélagsins Kaldbaks
í Norðurmjólk og var skrifað undir
samning þessa efnis í lok júní. Auð-
humla seldi í kjölfarið 60% af eign-
arhlut sínum í félaginu til Kaup-
félags Eyfirðinga, Kaupfélags
Skagfirðinga, Osta- og smjörsölunn-
ar, Mjólkurbús Flóamanna og
Mjólkursamsölunnar í Reykjavík.
Enn liggur þó ekki fyrir mat á heild-
arverðmæti Norðurmjólkur og því
heldur ekki söluverðmætið á eignar-
hlut Kaldbaks í félaginu.
Eiríkur S. Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Kaldbaks, sagði stefnt
að því að endanlegt mat á verðmæti
Norðurmjólkur lægi fyrir um næstu
áramót. Skipaður hefur verið gerð-
ardómur til að meta verðmæti fé-
lagsins og sagði Eiríkur að niður-
staða gerðardóms yrði bindandi
fyrir bæði Kaldbak og Auðhumlu.
Söluverð á hlut Auðhumlu til áður-
nefndra aðila í mjólkuriðnaði ræðst
einnig af mati gerðardóms á verð-
mæti fyrirtækisins.
Dómkvaddir matsmenn höfðu áð-
ur metið að heildarverðmæti Norð-
urmjólkur væri um 940 milljónir
króna og tæplega 67% hlutur Kald-
baks því um 625 milljónir króna. Ei-
ríkur sagði að Kaldbakur hefði ekki
fallist á þá niðurstöðu og talið verð-
mæti félagsins metið of lágt. Auð-
humla féllst hins vegar á niðurstöðu
matsmannanna en Stefán Magnús-
son, formaður stjórnar Auðhumlu,
sagði þó að þar á bæ hefði mönnum
þótt félagið nokkuð hátt metið.
Eignarhlutur Auðhumlu í Norður-
mjólk er 40%, Mjólkursamsalan á
16%, Mjólkurbú Flóamanna 16%,
KEA 13%, Osta- og smjörsalan 12%
og KS 3%. Hjá Norðurmjólk starfa
um 70 manns og var velta félagsins á
síðasta ári um 2,5 milljarðar króna.
Auðhumla keypti eignarhlut
Kaldbaks í Norðurmjólk í sumar
Viðunandi
verðmæti ligg-
ur ekki fyrir
LÖGREGLAN á Akureyri hefur nú
til rannsóknar tvö fíkniefnamál þar
sem lagt hefur verið hald á samtals
334 grömm af kannabisefnum, 65 e-
pillur, nokkurn magn af e-pillu muln-
ingi, 12 grömm af amfetamíni og
nokkurt magn sveppa. Fyrra málið
kom upp 25. október sl. er kona á fer-
tugsaldri var handtekin í heimahúsi.
Rannsókn þess máls er að mestu lok-
ið. Seinna málið kom upp sl. miðviku-
dagskvöld er lögreglan handtók þrjá
unga menn í miðbæ Akureyrar.
Tveir þeirra eru 16 ára en sá þriðji á
þrítugsaldri. Þeir yngri hafa ekki
komið við sögu fíkniefnamála áður,
en það hefur eldri maðurinn hins
vegar gert. Hann var í gær úrskurð-
aður í viku gæsluvarðhald. Málið er
enn í rannsókn og er hugsanlegt að
önnur brot tengist því máli.
Auk þessa hefur lögreglan lagt
hald á nokkurt magn sveppa í tveim-
ur öðrum málum sem komu upp ný-
verið. Þeir sveppir sem hér um ræðir
eru litlir og vaxa m.a. á umferðareyj-
um í bænum og valda ofskynjunar-
áhrifum, að sögn Daníels Snorrason-
ar, lögreglufulltrúa.
Tvö fíkniefnamál til
rannsóknar á Akureyri
Karlmaður
úrskurðaður
í gæslu-
varðhald
Blaðbera
vantar
• Skerjafjörður
Upplýsingar fást í síma
569 1122
Hjá Morgunblaðinu starfa um 600 blaðberar á
höfuðborgarsvæðinu
Skólastígur/Eyrarlandsvegur
Oddeyrargata/Brekkugata
ⓦ
Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið
kemur í bæinn. Góður göngutúr sem borgar sig.
Morgunblaðið,
Kau vangsstræti 1, Akureyri,
sími 461 1600.
Reykjadalsá til leigu
Veiðifélag Reykjadalsár og Eyvindarlækjar í Suður-Þingeyjarsýslu auglýsir
hér með eftir tilboðum í vatnahverfi félagsins, sem er frá ármótum
Eyvindarlækjar og Laxár í Aðaldal, gegnum Vestmannsvatn og uppúr.
Tilboðum skal skila til formannsins, Haraldar Bóassonar, Pálmholti,
650 Laugar, í síðasta lagi 25. nóvember 2002 merktum: „Reykjadalsá“.
Tilboð verða opnuð á Breiðumýri 27. nóvember kl. 13.00.
Félagið áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Nánari upplýsingar veitir formaður
í síma 464 3128/898 3328.
Sími:
462 7400
Fax:
462 7401
Opnunartími
mán. fim. frá kl. 10-16
fös. frá kl. 10-14
annagudny@logmennak.is
ingibjorg @logmennak.is
Ingibjörg Elíasdóttir,
héraðsdómslögmaður.
Anna Guðný Júlíusdóttir,
héraðsdómslögmaður.
Höfum opnað lögmannsstofu
í Hafnarstræti 88, Akureyri
Bjóðum nýja viðskiptavini hjartanlega velkoma.
Alhliða lögfræðiþjónusta fyrir fyrirtæki og einstaklinga.