Morgunblaðið - 09.11.2002, Qupperneq 34
Morgunblaðið/Alfons
Hörður Torfa.
FYRSTI liðurinn í dagskrá tileink-
aðri 100 ára afmælis gamla félags-
heimilisins fór fram nýlega. Hörður
Torfason hélt tónleika í Klifi og
voru tónleikarnir hluti af tónleika-
ferð Harðar um landið. Tæplega
sjötíu gestir komu á tónleikana og
fylgdust með Herði flytja lög frá
ferli sínum sem hann hóf í Ólafsvík.
Í byrjun nóvember var Karlakór
Reykjavíkur með skemmtun í Klifi
og munu um 150 gestir hafa hlust-
að á kórinn. Bubbi Morthens og
Hera Hjartardóttir héldu tónleika
og mættu yfir eitt hundrað manns á
þá skemmtun. Í dag, laugardag,
kemur 10 manna hljómsveit með
hvorki meira né minna en 18 söngv-
ara og heldur mikla salsa-gleði.
Einhvern næstu daga verður
skrifað undir samning milli Lions-
klúbbs Ólafsvíkur og Snæfells-
bæjar um bíósýningar í Klifi en þær
hafa legið niðri um nokkurt skeið.
Stefnt er að því að hefja sýningar
fimmtudaginn 14. nóvember og
fyrsta myndin sem sýnd verður er
íslenska myndin Hafið.
Tónleikar
og bíó
Ólafsvík
LANDIÐ
34 LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HÆFILEIKARÍKIR tónlistarmenn
og konur úr Fjölbrautaskóla Vest-
urlands, FVA, stigu á stokk 1. nóv-
ember s.l. í Bíóhöllinni á Akranesi
þar sem keppni átta hljómsveita
fór fram á tónlistarkeppninni
„hetjurokki.“ Skemmst er frá því
að segja að hljómsveitin Fóður bar
sigur úr býtum og skartaði jafn-
framt besta söngvara kvöldsins, að
mati dómnefndar, en það er Sturla
Birgisson sem þenur raddböndin.
Á gítar í sigursveitinni leikur
Ólafur Pétur Pétursson, á bassa
Samúel Þorsteinsson og Valgeir
Sigurðsson lemur húðirnar. Tveir
þeir síðastnefndu eru reyndar gít-
arleikarar og hafa aðeins æft á
bassa og trommur í um sjö vikur.
Sturla sagði að lögin þrjú sem
Fóður hefði flutt væru öll frum-
samin, tvö þeirra væru sungin á
ensku og eitt á ylhýrri íslensku.
„Umgjörð keppninnar er alltaf að
verða betri með hverju árinu sem
líður, hljóð og ljósakerfi í hæsta
gæðaflokki, auk þess sem keppnin
er hörð. Það var undankeppni þar
sem 13 hljómsveitir tóku þátt og
átta bestu fengu tækifæri á úr-
slitakvöldinu,“ sagði Valgeir sem
reyndar er fyrrverandi nemandi
við FVA. „Það mega vera tveir
„lánsmenn“ í hverri sveit,“ bætti
Ólafur Pétur við.
„Þær voru flottar“
Samúel sagði að flestar sveit-
irnar á lokakvöldinu hefðu leikið
gítarrokk, rokk eða dauðarokk,
eða hvað þetta nú nefnist allt sam-
an. „Það var aðeins einn með tölvu-
tónlist, en það var nú samt sem áð-
ur þungt rokk. Það var einnig
kvennaband, þær voru flottar,“
sagði Samúel sem vildi taka það
fram að félagar hans í Fóðri hefðu
ekki fengið mikla athygli frá hinu
kyninu þrátt fyrir sigurinn. „Það
er kalt á toppnum,“ svaraði Sturla
sem jafnframt fékk viðurkenningu
fyrir líflega sviðsframkomu.
Allt efni keppninnar var tekið
upp og verður gefið út myndband
og geisladiskur í nánustu framtíð.
Fjórmenningarnir sögðu að mikil
gróska væri í tónlistinni í knatt-
spyrnubænum en skortur væri á
húsnæði undir æfingar fyrir hljóm-
sveitir. „Við leigjum bílskúr sjálfir
og höfum gert það í rúmt ár, en það
eru fleiri hljómsveitir sem ætla að
leigja með okkur í framtíðinni. En
við vildum samt sem áður sjá meira
frumkvæði frá bæjaryfirvöldum í
þessum málum,“ sögðu þeir í einum
kór og töldu að Hafnarfjörður væri
„gósenland“ ungra hljómsveita.
„Þar er mikið gert fyrir ungar
hljómsveitir,“ bætti Sturla við.
Skammhlaup í skólanum
Á undanförnum árum hafa
margir tónlistarmenn og konur
stigið sín fyrstu skref í hæfi-
leikakeppni FVA og má þar nefna
nokkra af liðsmönnum Jagúar,
Orra Harðarson, Ólaf Pál Gunn-
arsson útvarpsmann og Önnu Hall-
dórsdóttur söngkonu svo ein-
hverjir séu nefndir. Hið árlega
skammhlaup FVA var haldið með
tilheyrandi ærslum og gauragangi
sama dag og tónlistarkeppnin
„hetjurokk.“
Öll venjuleg kennsla samkvæmt
stundaskrá var felld niður og nem-
endum skipt í 9 lið sem kepptu í
reikningi, reiptogi, dönsku og
„dragshow-i“ og öllu þar á milli.
Seinna um daginn var svo tónlist-
arkeppnin og um kvöldið var slegið
upp balli með hljómsveitinni Jet
Black Joe.
Morgunblaðið/Sigurður Elvar
Samúel Þorsteinsson, Valgeir Sigurðsson, Ólafur Pétur Pétursson og
Sturla Birgisson sátu sem límdir og skoðuðu upptöku frá sigurkvöldinu.
„Kalt á toppnum“ segja
sigurvegararnir í Fóðri
Akranes
FJARLÆKNINGAR og fjarfundir
eru eitt af þróunarverkefnum Ís-
lenska heilbrigðisnetsins og fjallar
annars vegar um fjarlækningaverk-
efni þar sem gerðar eru tilraunir með
sendingu gagna og gagnvirk sam-
skipti vegna sérfræðiráðgjafar en
hins vegar um fræðslustarfsemi með
fjarfundum og öðrum gagnvirkum
leiðum.
Heilbrigðismálahópur Eyþings,
þ.e. samband sveitarfélaga í Eyjafirði
og Þingeyjarsýslum, hefur gert
samning um verkefnið við heilbrigð-
is- og tryggingamálaráðuneytið en
markmið hópsins er m.a. að efla og
bæta starfsumhverfi og styrkja starf-
semi heilbrigðisstofnana á Norður-
landi eystra og skapa aðstöðu og um-
hverfi fyrir þróunarverkefni á sviði
heilbrigðismála á svæðinu.
Að þessu verkefni vinna Heilbrigð-
isstofnun Þingeyinga, sem þjónar
Þingeyjarsýslum allt frá Ljósavatns-
skarði til Þórshafnar, svo og Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri. Áform-
að er að byrja með að þróa samskipti
milli heilsugæslustöðvarinnar á Þórs-
höfn, Heilbrigðisstofnunarinnar á
Húsavík og Fjórðungssjúkrahússins
á Akureyri en stefnt að því að síðar
komi fleiri heilsugæslustöðvar að
þessari þróun. Á Þórshöfn er nauð-
synlegur tæknibúnaður að mestum
hluta til staðar, s.s. fjarfundatæki og
annar nauðsynlegur tölvu- og mynda-
vélabúnaður.
Verkefnið verður unnið skref fyrir
skref til að finna á hvaða sviði lækn-
inga þykir gefast best að beita að-
ferðum fjarlækninga og þróa fjar-
skipti þar að lútandi en til greina
kemur ýmislegt, s.s. röntgenrann-
sóknir, bráðalækningar, geðlækning-
ar, ómskoðanir vegna fósturgrein-
inga, húðsjúkdómar og önnur
göngudeildarþjónusta sérfræðinga
o.s.frv., einnig ýmis gögn, hjartalínu-
rit og fleira.
Þróunarumhverfi á Norðurlandi
eystra er talið ákjósanlegt fyrir fjar-
lækningaverkefni og æskilegt að geta
reynt og þróað verkefnið á stöðum
eins og í Norður-Þingeyjarsýslu sem
hefur átt undir högg að sækja varð-
andi heilbrigðisþjónustu.
Styrkur fyrir
heilsugæslustöðvar
Tilgangur verkefnisins er fyrst og
fremst að styrkja heilbrigðisþjón-
ustuna með auknu öryggi og bættu
aðgengi íbúa dreifbýlisins að þjónust-
unni og styrkja fagleg samskipti heil-
brigðisstarfsfólks milli stöðva. Einnig
verður þeim beitt til að auka aðgengi
heilbrigðisstarfsfólks að sérhæfðri
þjónustu og til að miðla gögnum og
ráðgjöf milli heilsugæslustöðva og
sjúkrahúss, svo fátt eitt sé talið.
Það er styrkur fyrir hverja heilsu-
gæslustöð á landsbyggðinni þegar
hægt er að rjúfa þá faglegu einangr-
un sem starfsfólk þar býr við og á
Þórshöfn er mikill áhugi fyrir verk-
efninu. Fyrir skömmu fundaði heil-
brigðismálahópur Eyþings á Þórs-
höfn og var farið yfir verkefnið með
starfsfólki heilsugæslustöðvarinnar.
Reynslan mun síðan leiða í ljós
hvernig framhald verkefnisins verð-
ur.
Fjarlækningar
framtíðarsýn
Þórshöfn
Þróunarverkefni í heilbrigðismálum
HALDIÐ var upp á 25 ára afmæli
hjúkrunar- og dvalarheimilisins
Lundar á Hellu laugardaginn 26.
október sl. Var það gert með veg-
legum hætti og fjölmargir glöddu
íbúa og starfsmenn með nærveru
sinni þennan dag.
Byggingarframkvæmdir við
heimilið hófust í ágúst 1974 en
arkitekt hússins er Haukur Vikt-
orsson.
Fyrsti íbúinn flutti inn í nóv-
ember 1977 en þar voru rými fyrir
sextán manns. Fljótlega varð ljóst
að þörf var fyrir stækkun og hóf-
ust framkvæmdir við nýja tólf
rúma hjúkrunardeild 1987 sem
opnuð var 1994 ásamt matsal og
fullbúnu eldhúsi. Innréttingu jarð-
hæðar hússins er enn ólokið en
1997 var þar opnuð sjúkraþjálfun
og árið eftir aðstaða til iðjuþjálf-
unar.
Í dag hefur hjúkrunarrýmum á
Lundi verið fjölgað í 23, dvalar-
rýmin eru átta og dagvistarrými
eru tvö. Í desember á þessu ári er
svo ætlunin að vígja kapellu sem
einnig er á jarðhæð.
Dagskrá afmælisins var fjöl-
breytt, m.a. komu fram kvenna-
kórinn Ljósbrá og stúlknakórinn
Hekla undir stjórn Nínu Maríu
Morávek, Írena Steindórsdóttir
lék á þverflautu við undirleik Nínu
og Arndís Fannberg og Guðfinna
Júlíusdóttir sungu dúetta við und-
irleik Hannesar Hannessonar.
Heimilinu voru færðar höfðing-
legar gjafir við þetta tækifæri.
Bára Jónsdóttir, sem búið hefur á
Lundi í ellefu ár, færði heimilinu
að gjöf kr. 500.000. Rausnarlegar
peningagjafir voru afhentar fyrir
hönd Rangárþings ytra, Ása-
hrepps, kvenfélagsins Sigurvonar í
Þykkvabæ og Rauðakrossdeildar
Rangárvallasýslu. Kvenfélagið
Unnur á Rangárvöllum gaf stól
ætlaðan til notkunar við fótsnyrt-
ingu og frá minningarsjóði Ólafs
Björnssonar og kvenfélaginu Lóu í
Holta- og Landsveit voru heim-
ilinu færðir listmunir eftir Guð-
finnu Þorvaldsdóttur frá Saurbæ
sem ætlaðir eru til prýði í líkn-
arherbergi.
Gjafir gefnar af einstakri
umhyggju og örlæti
Fyrr á árinu hlaut Lundur arf
eftir Jón Jónsson frá Lækjarbotn-
um í Landsveit sem dvaldi á heim-
ilinu síðasta æviár sitt en hann lést
1. nóvember 2001. Um var að ræða
tæplega 12 milljónir króna auk
fjórðungs eignarhlutar í húseign
Jóns á Hellu. Formaður stjórnar
Lundar, Drífa Hjartardóttir, færði
eftirlifandi systkinum hans, Þór-
unni og Brynjólfi, viðurkenning-
arskjal sem þakklætisvott. Mun
fjármununum verða varið til inn-
réttingar kapellu á jarðhæð heim-
ilisins.
Hjúkrunarforstjóri Lundar, Jó-
hanna Friðriksdóttir, veitti verð-
laun fyrir merki Lundar sem efnt
var til samkeppni um. Sautján
hugmyndir bárust en merki Ómars
Diðrikssonar var valið af stjórn
Lundar og mun hafa verið ein-
hugur um valið.
Við þetta tækifæri var líka
heimasíða Lundar opnuð formlega.
Ljóst var að starfsmenn stofnun-
arinnar voru afar ánægðir með síð-
una og stoltir af vinnustað sínum
þennan dag.
Drífu Hjartardóttur, formanni
stjórnar Lundar, var efst í huga
þakklæti til starfsfólks heimilisins
fyrir trúmennsku þess. „Það er
sérstaklega ánægjulegt að sjá
hvað sumt af starfsfólkinu hefur
unnið lengi hér og þeir sem eru
hættir halda áfram að koma til að
líta eftir og hlúa að.“
Einnig vildi hún koma á fram-
færi þakklæti til allra sem fært
hafa heimilinu gjafir í gegnum tíð-
ina, gefnar af einstakri umhyggju
og örlæti.
Morgunblaðið/Anna Ólafsdóttir
Stúlknakórinn Hekla söng við undirleik stjórnanda síns, Nínu Maríu Morávek, og sést hluti kórsins á myndinni til
vinstri. Til hægri afhendir Drífa Hjartardóttir eftirlifandi systkinum Jóns Jónssonar frá Lækjarbotnum, Þórunni
og Brynjólfi, þakkarskjal vegna arfs sem hann ánafnaði Lundi.
Morgunblaðið/Anna Ólafsdóttir
Margir heimsóttu
Lund á tímamótum
Hella