Morgunblaðið - 09.11.2002, Qupperneq 54
UMRÆÐAN
54 LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
NÆSTKOMANDI laugardag
mun prófkjör Samfylkingarinnar
fara fram. Margt gott fólk býður þar
fram krafta sína og meðal þeirra er
Sigrún Grendal Jó-
hannesdóttir. Sigrún
er hörkuduglegur
eldhugi sem á skil-
yrðislaust erindi inn
á Alþingi. Hún býr
yfir mikilli staðfestu
og ákveðni sem mun
reynast henni vel í baráttu stjórn-
málanna. Á síðasta ári var hún, sem
formaður félags tónlistarkennara, í
fararbroddi í kjarabaráttu þeirra og
þar sýndi hún og sannaði að hún er
ötul baráttukona sem stendur með
sannfæringu sinni og er óhrædd við
að axla ábyrgð. Við þurfum fjöl-
breyttan og sterkan hóp fólks til að
leiða Samfylkinguna í komandi Al-
þingiskosningum. Sigrún Grendal er
32 ára kona með víðtæka reynslu úr
heimi tónlistarinnar, sem kennari,
meðleikari og stjórnandi, að
ógleymdum félagsmálunum. Ég tel
að nærvera hennar í þingflokki Sam-
fylkingar muni auka fjölbreytni og
styrk flokksins og því hvet ég alla til
að kjósa Sigrúnu í 5.–6. sæti.
Sigrún Grendal
í 5.–6. sæti
Ragna Bjarnadóttir háskólanemi skrifar:
GUÐRÚN Ögmundsdóttir er nú
að ljúka sínu fyrsta kjörtímabili á
Alþingi Íslendinga. Þar hefur hún
unnið ötullega að
framgangi ýmissa
þjóðþrifamála, og
einkum beitt sér fyr-
ir úrbótum í málum
ýmissa þeirra sem
annars eiga sér fáa
málsvara á opinber-
um vettvangi. Hún hefur haft kjark
og þor til að taka til umræðu ýmis
vandamál sem legið hafa í þagn-
argildi í íslenskri þjóðfélagsumræðu,
s.s. kynþáttafordóma, vændi og
mansal. Þá er hún öflugur talsmaður
jafnréttis í víðasta skilningi þess
orðs. Þannig hefur hún ekki einungis
margra áratuga reynslu af jafnrétt-
isbaráttu kynjanna í gegnum störf
sín fyrir Rauðsokkahreyfinguna,
Kvennalistann, Reykjavíkurlistann
og Samfylkinguna, heldur hefur hún
einnig beitt sér af krafti í jafnrétt-
ismálum ýmissa minnihlutahópa, s.s.
samkynhneigðra og innflytjenda.
Þessa rödd má ekki vanta á Al-
þingi. Kjósum Guðrúnu Ögmunds-
dóttur í 4. sæti í prófkjöri samfylk-
ingarinnar.
Guðrúnu
Ögmundsdóttur
í 4. sæti
Birna Daníelsdóttir, nemi í HÍ, skrifar:
FLOKKSVAL Samfylking-
arinnar í Suðurkjördæmi fer fram
næstkomandi laug-
ardag. Átta ein-
staklingar sækjast
eftir þeim fjórum
sætum sem kosið
er um.
Margrét Frí-
mannsdóttir, vara-
formaður Samfylkingarinnar, býð-
ur sig fram til forystu í hinu nýja
kjördæmi. Margrét hefur áralanga
reynslu af stjórnmálum og þing-
störfum og hefur í starfi sínu sýnt
áræði í baráttu fyrir bættum kjör-
um þeirra sem minna mega sín.
Hún hefur og verið ötull bar-
áttumaður fyrir eflingu lands-
byggðarinnar og síðast en ekki
síst haft kjark til þess að segja
valdhöfum til syndanna þegar það
á við. Margrét var í fararbroddi
þeirra sem unnu að því að draum-
sýn félagshyggjufólks rættist með
sameinuðum flokki þess og hefur
ótrauð unnið að því að þjappa fólki
saman um flokksstarfið og önnur
málefni.
Undirritaður hvetur Samfylk-
ingarfólk til þess að veita Mar-
gréti Frímannsdóttur glæsilega
kosningu í fyrsta sæti Samfylking-
arinnar í Suðurkjördæmi.
Veljum Margréti
til forystu
Gísli Sverrir Árnason, forstöðumaður
Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar,
skrifar:
Í PRÓFKJÖRI sjálfstæð-
ismanna í Reykjavík ræðst hvern-
ig framboðslisti
Sjálfstæðisflokksins
verður skipaður.
Mikilvægt er að
listinn endurspegli
þá fjölbreytni sem
einkennir öflugt
starf flokksins.
Stefanía Óskarsdóttir gefur kost á
sér í 6. sæti listans og er það eðli-
leg afleiðing þróttmikils starfs
hennar innan flokksins og þess
trausts sem hún hefur aflað sér
með störfum sínum. Stefanía tók
sæti á lista flokksins fyrir síðustu
þingkosningar og hefur setið á Al-
þingi sem varaþingmaður Reyk-
víkinga. Þar hefur hún getið sér
gott orð fyrir öflugan málflutning.
Í flokksstarfinu hefur Stefanía
víða komið við, síðast sem formað-
ur Sjálfstæðiskvennafélagsins
Hvatar. Stefanía, sem hefur lokið
doktorsnámi í stjórnmálafræði,
hefur yfirgripsmikla þekkingu á
stjórnkerfinu og alþjóðastjórn-
málum. Síðast en ekki síst þekkir
hún vel til þess fjölbreytileika,
sem einkennir íslenskt samfélag,
og hefur með málflutningi sínum
sýnt að hún er öflugur málsvari
sjálfstæðisstefnunnar, frelsis og
framfara.
Stefaníu
Óskarsdóttur
í öruggt sæti
Guðný Björk Eydal, lektor við fé-
lagsvísindadeild Háskóla Íslands, skrifar:
Á KOMANDI kosningavetri tel
ég það nauðsynlegt að í fram-
varðasveit jafn-
aðarmanna komi til
nýtt fólk við hlið
reyndra þingmanna.
Ég hvet alla þá sem
hafa til þess kjör-
gengi að koma og
kjósa á laugardag og
hafa áhrif á það hvernig listi Sam-
fylkingarinnar muni líta út fyrir
næstu kosningar. Kjósum Jakob
Frímann í þriðja sæti listans. Fáum
þannig nýja mynd og áherslur á
listann. Styðjum einnig Ágúst Ólaf í
þessu prófkjöri, verðugan fulltrúa
ungu kynslóðarinnar.
Að ógleymdum Birgi Dýrfjörð,
gömlum baráttumanni fyrir fram-
gangi jafnaðarstefnunnar til ára-
tuga. Það fer vel á því að einn eldri-
borgari bjóði sig fram í þessu
prófkjöri. Birgir Dýrfjörð er öllum
jafnaðarmönnum kunnur fyrir störf
sín. Kjósum þann yngsta, kjósum
þann elsta með þeim sem standa
vörð um hagsmuni almennings og
neytenda í þessu landi. Í anda jafn-
aðarstefnunnar.
Jakob Frímann
í 3. sæti
Rúnar Geirmundsson, fyrrv. formaður Al-
þýðuflokksfélags Reykjavíkur, skrifar:
HÉR á landi er vöntun á stjórn-
málamönnum sem þora að yfirstíga
heimóttarskap íslenskrar þjóðmála-
umræðu og ræða af
hreinskilni um þau
yfirþjóðlegu og
hnattvæddu öfl sem
nú leika æ ríkara
hlutverk í samfélagi
okkar.
Mörður Árnason
er Íslendingum að góðu kunnur úr
fjölmiðlum fyrir skelegga frammi-
stöðu sína í umræðum um þjóð-
félagsmál. Af eigin reynslu veit ég
að Mörður hefur mun dýpri og víð-
tækari áhuga á að skilja og hafa
áhrif á samtíð sína en margir slíkir
fjölmiðlaspekúlantar. Styrkur Marð-
ar liggur öðru fremur í því að hann
er djúphugull maður, maður sem
mætir til leiks í stjórnmálaumræðu
með víðtæka þekkingu og skarpa
dómgreind.
Mörður Árnason er sá þenkjandi
og heimsborgaralegi stjórn-
málamaður sem framtíðin krefst.
Það er tímabært að íslenskt þjóð-
félag fái að njóta krafta hans á Al-
þingi – því Mörður Árnason hefur
það til málanna að leggja sem varðar
helst framtíð Íslands í samfélagi
þjóðanna.
Mörður Árnason –
þenkjandi
stjórnmálamaður
Viðar Þorsteinsson háskólanemi skrifar:
VALDIMAR Leó Friðriksson,
framkvæmdastjóri Aftureldingar
og stjórnarmaður,
býður sig fram í
prófkjöri Samfylk-
ingarinnar í Suð-
vesturkjördæmi
næstkomandi laug-
ardag. Hann stefnir
á 4. sætið sem
verður baráttusæti í kosningunum
í vor og í baráttusæti þarf bar-
áttumann eins og Valdimar. Valdi-
mar hefur barist ötullega fyrir
hækkunum lægstu launa innan
SFR og hefur sú barátta skilað
miklum árangri. Valdimar hefur
barist fyrir styrkjum til íþrótta-
hreyfingarinnar frá bæði ríki og
bæ. Valdimar hefur barist í mál-
efnum öryrkja og fatlaðra enda er
Valdimar stuðningsfulltrúi á sam-
býli. En meira þarf til, þennan
mann þarf á þing. Og þótt ég geti
ekki kosið Valdimar vegna búsetu
minnar, skora ég allt Samfylking-
arfólk í Suðvesturkjördæmi að
tryggja Valdimar 4. sætið. Valdi-
mar er sá baráttumaður sem get-
ur unnið fjórða sætið fyrir Sam-
fylkinguna í kjördæminu í
kosningunum í vor.
Valdimar í
baráttusæti
Friðrik Atlason, stuðningsfulltrúi, skrifar:
VÍÐA úti í Evrópu eru sterk
tengsl milli verkalýðshreyfing-
arinnar og flokka jafnaðarmanna. Í
hópi þingmanna jafnaðarmanna er
algengt að séu ein-
staklingar sem hafa
bein tengsl við
verkalýðshreyf-
inguna. Á alþingi Ís-
lendinga eru fáir ein-
staklingar sem hafa
rætur í hreyfingunni
og þekkja til innviða hennar. Bryn-
dís er fyrrverandi starfsmaður ASÍ
og þekkir því vel innviði sambands-
ins og hefur myndað sterk persónu-
leg tengsl við forystu þess.
Samfylkingin stefnir á aðild að
næstu ríkisstjórn og nýrrar rík-
isstjórnar bíða vandasöm úrlausn-
arefni t.d. í velferðarmálum.
Bryndís hefur tamið sér fagmann-
leg vinnubrögð í stað upphrópana.
Bryndís hefur allt til að bera til að
verða framtíðarleiðtogi flokksins en
til að svo geti orðið verðum við að
tryggja henni annað sætið í Reykja-
vík 9. nóvember.
Tryggjum Bryn-
dísi annað sætið
Þorbjörn Guðmundsson skrifar:
ÁSTA Ragnheiður Jóhannesdóttir
hefur lengi verið þekkt fyrir ein-
stakan drifkraft og
atorkusemi. Hún er
hugsjónamanneskja
sem vinnur starf sitt
af innri sannfæringu,
dugnaði og einurð.
Ásta hefur lengi ver-
ið sjálfskipaður hags-
munavörður þeirra sem átt hafa und-
ir högg að sækja í þjóðfélaginu og
hefur lagt fram yfir 200 þingmál sem
þann hóp snerta. Innan þess hóps
standa stúdentar og aðrir nemendur
ríkisháskólanna sem þurfa að líða
skort og mismunun í aðstöðu, gæðum
og aðbúnaði sökum þess rangláta
fjármögnunarkerfis sem snýr að há-
skólastiginu.
Málefni ríkisháskólanna þarf að
taka föstum tökum til að tryggja sam-
keppnisstöðu þeirra gagnvart einka-
skólum og um leið hagsmuni nemend-
anna. Okkur, sem krefjumst að
samkeppni í menntamálum sé háð á
jafnréttisgrundvelli, gefst nú tæki-
færi á að kjósa okkur öflugan mál-
svarsmann á vettvangi fram-
kvæmdavaldsins. Tryggjum rödd
okkar á Alþingi næstkomandi laug-
ardag og kjósum Ástu Ragnheiði í 3.
sæti samfylkingarinnar.
Stúdentar! Kjós-
um Ástu Ragn-
heiði í 3. sætið
Ingi B. Harðarson, laganemi við HÍ,
skrifar:
JÓHANNA Sigurðardóttir stend-
ur fyrir allt það besta sem hreyf-
ingar launafólks og
jafnaðarmanna hafa
barist fyrir í heila
öld á Íslandi.
Barátta hennar
fyrir jafnrétti og fé-
lagslegu réttlæti
hefur þegar skipað
henni sess meðal helstu leiðtoga ís-
lenskrar jafnréttisbaráttu.
Það má ef til vill minna á nokkrar
tölfræðilegar staðreyndir. Vissir þú
að Jóhanna Sigurðardóttir hefur á
undanförnum 8 árum flutt 280 mál á
Alþingi? Á yfirstandandi þingi hefur
hún ekki einungis flutt um 30 mál
sem snerta hagsmuni flestra þjóð-
félagshópa, heldur hefur hún og ver-
ið leiðandi í málstofu þingsins.
Kannast einhver við jafnafkastamik-
inn og heiðarlegan þingmann? Höf-
um við efni á því að veikja Samfylk-
inguna, með því að velja ekki
Jóhönnu til að leiða listann í öðru
Reykjavíkurkjördæmanna?
Ég svara því neitandi og skora því
á alla að ganga til liðs við Samfylk-
inguna, sýna vilja sinn í verki, og
kjósa Jóhönnu Sigurðardóttur í ann-
að sætið í væntanlegu prófkjöri 9.
nóvember næstkomandi.
Hún vinnur að
jafnrétti á öllum
sviðum
Ásta Þórðardóttir, félagsráðgjafi og
eftirlaunaþegi, skrifar:
GUÐRÚN Ögmundsdóttir hefur
starfað á Alþingi í rúm þrjú ár og
býður sig nú fram að nýju. Hún hefur
á þessu kjörtímabili
barist fyrir mál-
efnum samkyn-
hneigðra, fólks af er-
lendum uppruna og
fyrir réttindum
þeirra hópa sem eiga
fáa málsvara á þingi.
Þá hefur Guðrún ekki látið sitt eftir
liggja í jafnréttisbaráttu kynjanna og
í því sambandi vil ég nefna hvernig
hún hefur stuðlað að vitundarvakn-
ingu Alþingis og almennings á mál-
efnum vændis á Íslandi og mansals.
Guðrún Ögmunds er ekki þessi
venjulegi þingmaður, hún er kona
sem gengur til verkefnanna og slepp-
ir öllu kjaftæði! Það er því nauðsyn-
legt að hafa manneskju eins og Guð-
rúnu á þingi okkar Íslendinga. Hún
hefur sýnt það og sannað að rödd
hennar er ómissandi. Kjósum Guð-
rúnu Ögmundsdóttur í fjórða sætið í
prófkjöri Samfylkingarinnar hinn ní-
unda nóvember næstkomandi.
Guðrún Ögmunds,
ómissandi rödd á
Alþingi!
Hólmfríður Anna Baldursdóttir skrifar:
Þjóðarsáttarsamningarnir svo-
kölluðu fyrir rúmum áratug lögðu
grundvöll að þeim efnahagslega
stöðugleika sem við Íslendingar bú-
um við í dag. Stöð-
ugleika, sem er
frumforsenda fram-
fara og hagsældar
meðal íslenskrar
þjóðar. Að öllum
öðrum ólöstuðum
sem að þessu þjóð-
arsáttarborði komu verður nafn
Einars Odds Kristjánssonar, alþing-
ismanns og þáverandi stjórnarfor-
manns Vinnuveitendasambands Ís-
lands, lengi minnst. Frumkvæði og
barátta Einars Odds í þjóðþrifamáli
þessu ætti því eitt og sér að tryggja
honum öruggt sæti á Alþingi Íslend-
inga. – Með virðingu fyrir þjóðlegum
gildum, og þeim mannkostum að
vera málafylgjumaður og tala tæpi-
tungulaust um hlutina, óska ég Ein-
ari Oddi velfarnaðar í komandi próf-
kjöri. Íslensk þjóð þarfnast slíks
stjórnmálamanns.
Oddur og
þjóðarsáttin
Guðmundur Jónas Kristjánsson
bókhaldari skrifar:
ÁGÚST Ólafur Ágústsson er
yngsti frambjóðandinn sem á raun-
hæfa möguleika á að ná þingsæti út
úr prófkjörum stjórnmálaflokkanna
sem framundan eru.
Áhersla hans er lögð
á menntamál og auk-
in fjárframlög til
þess málaflokks er
nokkuð sem ég hef
tekið eftir. Þar er á
ferðinni mál sem
skiptir framtíð þjóðarinnar miklu og
þarf svo sannarlega að vera ofarlega
á blaði hjá þingmönnum. Því miður
hefur forgangsröðun stjórnvalda á
undanförnum árum verið á þann veg
að Ísland hefur dregist verulega aft-
ur úr öðrum vestrænum þjóðum í
þessum málaflokki. Ungir vel
menntaðir menn, eins og Ágúst Ólaf-
ur, koma frekar auga á það sem bet-
ur mætti fara í menntamálum en
margir hinna sem eldri eru. Alþingi
þarf betur að endurspegla ólíka
þjóðfélagshópa og þar með talið ald-
urshópa. Við þurfum þingmenn á
aldrinum 20-70 ára, ekki bara 45-59
ára, en 80% þingmanna eru á þeim
aldri. Ágúst Ólafur hefur sýnt og
sannað með skeleggum málflutningi
að hann á erindi á þing.
Sameinumst
um Ágúst Ólaf
Þyrí Steingrímsdóttir, laganemi, skrifar:
MARGRÉT Frímannsdóttir er
sterkur, heiðarlegur þingmaður.
Hún er málsvari alþýðunnar og talar
mál sem allir skilja,
tæpitungulaust og
ákveðið.
Hún ver hagsmuni
launafólks og er sér-
staklega einbeitt í
málflutningi sínum.
Ég tel að hún
muni standa vel að sterkri fjár-
málastjórn samfara nýjum stjórn-
arháttum.
Hún einfaldlega vill réttláta tekju-
skiptingu í þjóðfélaginu.
Það er líka það sem málin snúast
um núna því það er rangt gefið í ís-
lensku samfélagi. Margrét var einn
af frumkvöðlum að sameiningu jafn-
aðarmanna á Íslandi.
Ég kýs hana í 1. sætið í flokksvali
Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi
nk. laugardag og skora á annað sam-
fylkingarfólk að gera hið sama.
Margréti til
forystu áfram
Sigurbjörg Eiríksdóttir, bæjarfulltrúi
Sandgerði, skrifar:
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050