Morgunblaðið - 09.11.2002, Page 55
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002 55
Úr • Skart • Silfurborðbúnaður
www.erna.is
Ársskeið
sterling silfur
Tilvalin gjöf
við öll tækifæri
Sif gullsmíðaverkstæði
Laugavegi 20b
s. 551 4444
Gull- og silfursmiðjan Erna
Skipholti 3 s. 552 0775
Verð 5.900
Síðumúla 24 • Sími 568 0606
Tauáklæði
52.900,-
Amerískur Hvíldarstóll
ÞESSAR línur eru til þess skrif-
aðar að skora á kjósendur Samfylk-
ingarinnar í Suðvesturkjördæminu
að tryggja Jónasi
Sigurðssyni öruggt
sæti nú við flokks-
valið 9. nóvember.
Jónas Sigurðsson
hefur verið oddviti
G-listans í Mos-
fellsbæ og unnið af
framúrskarandi dugnaði að heill
bæjarins og framförum í þeim stað.
Ég hef þekkt Jónas árum saman
og veit að þar fer maður sem gædd-
ur er þeim eiginleikum sem leiðtoga
prýða. Hann hefur áratuga reynslu
af pólitísku starfi; hann er maður
sem ævinlega nálgast hvert við-
fangsefni af nákvæmni og athygli og
tekur til þess afstöðu á vits-
munalegum forsendum. Hann er
með öðrum orðum maður sem við
getum treyst til þess að rasa hvergi
um ráð fram og íhuga hvert mál
vandlega.
Ég hef langa reynslu af því að þar
sem hann fer, fer ráðhollur maður
en þó umfram allt góður félagi.
Ég skora á þá sem vilja trausta
vinstristefnu að slá skjaldborg um
menn eins og Jónas Sigurðsson.
Styðjum Jónas
Sigurðsson
Sigríður Jóhannesdóttir alþingismaður
skrifar:
SAMFYLKINGIN er ekki gömul
stjórnmálasamtök en hefur samt
náð miklu fylgi. Flestum ber saman
um að Sighvatur Björgvinsson úr
Alþýðuflokki og
Margrét Frímanns-
dóttir úr Alþýðu-
bandalagi hafi borið
hitann og þungann
af sameiningunni.
Sighvatur hefur nú
dregið sig í hlé eftir
gott starf en Margrét er enn að,
enda varaformaður samtakanna. Nú
bregður svo við að ungur tiltölulega
óreyndur þingmaður fer með miklu
offorsi gegn Margréti og hyggst
greinilega fella hana úr forystu. Ég
skora á alla góða flokksmenn í kjör-
dæminu að slá skjaldborg um Mar-
gréti og hrinda þar með þessari
ódrengilegu og ómaklegu árás. Vit-
urlegt tel ég að kjósa Jón Gunn-
arsson úr Vogum í annað sæti.
Margréti í fyrsta
sæti
Hilmar Jónsson rithöfundur skrifar:
VIÐ þurfum ungt og áræðið
fólk á Alþingi. Ég get fullyrt af
kynnum mínum af henni að Katrín
Júlíusdóttir hefur alla þá kosti
sem þarf til að vera
verðugur fulltrúi
nýrrar kynslóðar.
Hún hefur þekk-
ingu og reynslu af
félagsstörfum og
atvinnulífinu sem
myndi nýtast henni
vel á nýjum vettvangi. Katrín hef-
ur kraft til að fylgja sannfæringu
sinni eftir og er tilbúin að leggja á
sig þá vinnu sem þarf til að koma
stefnumálum sínum í höfn.
Það er mín skoðun að brúa þurfi
kynslóðabilið á Alþingi. Fulltrúi
þeirrar kynslóðar sem hefur völd-
in er miðaldra karlmaður í gráum
jakkafötum. Það væri hollt að
hrista upp í þessu með því að
kjósa glæsilegan fulltrúa nýrrar
kynslóðar inn á þing. Katrín Júl-
íusdóttir er traustsins verð. Kjós-
um Katrínu í 2.–3. sæti í flokksvali
Samfylkingarinnar í Suðvest-
urkjördæmi næsta laugardag.
Styðjum Katrínu
Júlíusdóttur
Hjalti Már Þórisson læknir skrifar:
LJÓST er að næstu kosningar
verða okkur Samfylkingarfólki
gríðarlega mikilvægar. Samfylk-
ingin er nýr flokkur sem er
byggður upp á
traustum grunni
jafnaðar, fé-
lagshyggju og rétt-
lætis. Öflugt mál-
efnastarf hefur
skilað Samfylking-
unni skýrri stefnu-
skrá, sem við Samfylkingarfólk er-
um stolt af. Hinn 9. nóvember
næstkomandi verður valið á lista
innan Samfylkingarinnar í flokks-
vali. Í Suðvesturkjördæmi höfum
við í Samfylkingunni sannarlega
sóknarfærin sem við verðum að
nýta; styrkinn og málefnin höfum
við. Það sýndi sig í Hafnarfirði í
bæjarstjórnarkosningunum síðast-
liðið vor. Til þess að sigur vinnist
þurfum við samhent og öflugt lið
sterkra einstaklinga í forystusveit
á lista flokksins.
Guðmundur Árni Stefánsson
hefur sýnt það í gegnum störf sín
sem stjórnmálamaður að hann er
maður orða sinna. Þess sjást víða
merki. Hann hefur áður leitt jafn-
aðarmenn til sigurs. Þess vegna
hvet ég allt Samfylkingarfólk í
Suðvesturkjördæmi til að kjósa
Guðmund Árna í fyrsta sæti 9.
nóvember næstkomandi.
Öflugan leiðtoga
Ingimar Ingimarsson, varabæjarfulltúi í
Hafnarfirði og formaður Ungra jafn-
aðarmanna í Suðvesturkjördæmi, skrifar:
VÍSINDADAGAR 1. – 11. nóvember 2002
– kíktu á dagskrá Vísindadaga á www.visindadagar.is
VÍSINDI UM BORG OG BÝ
– dagskrá Vísindadaga laugardaginn 9. og sunnudaginn 10. nóvember
P
R
[p
je
e
rr
]
Sunnudagur 10. nóvember
Háskóli Íslands
Kl. 13–15 Verkfræðideild og
Barnasmiðjan. Hönnunar-
samkeppni í Háskólabíói, sal 1.
Hópar af mið- og efsta stigi ólíkra
grunnskóla keppa. Samkeppnin og
hönnun þrautar er undir stjórn
Tómasar Rasmus kennara en Barna-
smiðjan leggur til allan efnivið úr
Lego Dacta tæknikubbum.
Kennarar og nemendur í verk-
fræðideild aðstoða við undirbúning
keppninnar. Allir velkomnir.
Heimasíða hönnunarkeppninnar er
http://www.rasmus.is/tec/tec031_mn.htm
Kl. 13–15 Opið hús hjá
viðskipta- og hagfræðideild í
Odda. Þrautir, leikir og fróðleikur.
Nemar í viðskiptafræði leggja
þrautir fyrir börn og unglinga í
tölvuveri og kennarar deildarinnar
svara spurningum á borð við „Af
hverju eru verkföll?“ og „Er
algjört rugl að kaupa lottó-
miða?“ auk annarra spurninga um
viðskipta- og hagfræði sem brenna
á gestum.
Allir velkomnir.
Unglinganámskeiðið Þurrís og ham-
skipti efna er fullbókað.
Laugardagur 9. nóvember
Háskóli Íslands
Kl. 14–16 Málstofa í Hátíðasal,
Aðalbyggingu. Umræður um
stofnun samtaka um „Íslenska erfða-
mengið“; samtök fulltrúa þeirra er
tengjast rannsókna- og þróunarstarfi
í líftækni og erfðavísindum á Íslandi.
Samtökin yrðu vettvangur samráðs
og fjármögnunar grunnrannsókna
og nýsköpunar í líftækni og erfða-
vísindum. Gísli Pálsson, prófessor í
mannfræði, flytur framsögu. Stefán
Jökulsson félagsfræðingur stjórnar
pallborðsumræðum. Þátttakendur:
Ari Skúlason, framkvæmdastjóri
Aflvaka, Kári Stefánsson, forstjóri ÍE,
Magnús Karl Magnússon læknir og
Salvör Nordal, forstöðumaður
Siðfræðistofnunar HÍ.
Kl. 10–16 Opið hús hjá heim-
spekideild í Nýja Garði.
Tungumálamiðstöðin verður opin
þar sem gestir geta hjálpað sér
áfram með sjálfsnám í tungu-
málum og kynnt verður svokallað
IGLO-verkefni sem er alþjóðlegt
netverkefni í tungumálanámi.
Gestum býðst að taka próf í
Íslandssögu, mannkynssögu, staf-
setningu og íslensku máli og fá
dúxarnir verðlaun. Vefsetur HÍ um
íslenskt mál og menningu verður
opið og Gauti Kristmannsson
rabbar um kvikmyndaþýðingar
með mynddæmum.
Kl. 13–15 Opið unglinga-
námskeið í viðskipta- og
hagfræði. Þar verður leikjafræði
Johns Nash (söguhetjan í kvik-
myndinni A Beautiful Mind)
kynnt til sögunnar. Auk þess
verða útskýrð helstu hugtök og
stærðir þjóðhagfræðinnar sem við
heyrum daglega í fjölmiðlum.
Stofa 101 í Odda. Allir unglingar
velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Kl. 9–12 og 13–16 Unglinga-
námskeið á vegum læknadeildar:
Hvað gerist við hreyfingu?
Leiðbeinandi er Stefán B. Sigurðs-
son, prófessor í sjúkraþjálfun.
Haldið í húsnæði Sjúkraþjálfunar
HÍ að Skógarhlíð 10. Örfá laus sæti
eftir hádegi. Uppl. í síma 699 0413.
Unglinganámskeiðið Tilraunir með
ljós er fullbókað.
Laugardagur 9. nóvember
Háskólinn á Akureyri
Kl. 13–17 Vísindadagur.
Háskólinn á Akureyri, samstarfsstofn-
anir og samstarfsfyrirtæki kynna
rannsóknir sínar. Vísindadagur er
ætlaður fólki á öllum aldri.
Dagskrá á Sólborg
Fyrirlestrar fræðimanna
í stofu K202:
Kl. 13:00 Setning Vísindadags.
Kl. 13:05 Tengsl taugastarf-
semi við daglega iðju.
Guðrún Árnadóttir.
Kl. 13:30 Að kenna drengjum
og stúlkum. Reynsla og viðhorf
kennslukvenna.
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson.
Kl. 14:00 Rannsóknarsamfélag
fyrir börn.
Guðrún Alda Harðardóttir.
Kl. 14:30 Þróun og breytingar á
vinnumarkaði.
Ingi Rúnar Eðvarðsson.
Kl. 15:00 Rannsóknir á tilfinn-
ingum. Kristján Kristjánsson.
Kl. 15:30 Samgöngubætur:
Forsenda byggðar eða sóun á
almannafé?
Kjartan Ólafsson.
Kl. 16:00 Viðhorf og reynsla
bráðahjúkrunarfræðinga af
hjúkrun fjölskyldna.
Elín M. Hallgrímsdóttir.
Kl. 16:30 Samanburður á út-
gerðarmynstri fiskiskipa miðað
við mismunandi fiskveiðistjórn-
unarkerfi.
Eyjólfur Guðmundsson.
Vísindaveisla um allt hús
Niðurstöður sýna…! Starfsfólk
deilda og samstarfsstofnana kynnir
rannsóknir sínar í máli og myndum.
Hvernig má það vera? Börnum
og fullorðnum gefst tækifæri til að
fylgjast með og vera þátttakendur í
jarðvísinda-, efnafræði- og eðlis-
fræðitilraunum.
Börn eru líka vísindamenn.
Vísindasmiðja fyrir börnin.
Mikilvægasta auðlindin. Gestum
gefst kostur á að skoða ýmsar for-
vitnilegar sjávarlífverur úr fiskeldi í
Eyjafirði.
Komdu og kíktu! Varðveittar líf-
verur í smásjá og víðsjá.
Veitingar á Sólborg fyrir gesti
allan daginn.