Morgunblaðið - 09.11.2002, Side 58
UMRÆÐAN
58 LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VALDIMAR Leó Friðriksson,
stjórnarmaður SFR og fram-
kvæmdastjóri Aftureldingar, býður
sig fram í fjórða sæti á lista Sam-
fylkingarinnar í Suð-
vesturkjördæmi í
prófkjörinu á laug-
ardaginn kemur.
Fjórða sætið verður
baráttusæti í kom-
andi kosningum í vor
og í það sæti þarf
baráttumann. Valdimar er bar-
áttumaður. Innan SFR hefur Valdi-
mar barist fyrir hækkunum lægstu
launa svo um munar og hafa orðið
miklar hækkanir á lægstu launum
þar á bæ. Valdimar hefur unnið að
málefnum fatlaðra og sjálfur er hann
stuðningsfulltrúi á sambýli. Valdi-
mar hefur barist fyrir styrkjum til
íþróttahreyfingarinnar, hvort heldur
frá ríkinu eða sveitarfélögum og er
hann formaður UMSK. En betur má
ef duga skal og því þurfum við svona
baráttumann inn á þing. Hann getur
náð fjórða sætinu inn fyrir Samfylk-
inguna í vor. Því miður get ég ekki
kosið Valdimar þar sem ég bý í
Reykjavík en ég skora á allt Sam-
fylkingarfólk í Suðvesturkjördæmi
að setja Valdimar í 4. sætið.
Valdimar
í baráttusæti
Friðrik Atlason stuðningsfulltrúi skrifar:
NÚ í upphafi nýrrar aldar sem
flestir vilja kenna við upplýsingu og
menntun leikur ekki
á tveim tungum að
hafi áður verið þörf á
öflugum málsvara
jafnréttis til náms og
til stuðnings við
námsmenn er hann
nú nauðsyn. Slíkur
málsvari er Sigríður Jóhannesdóttir.
Sigríður hefur setið í mennta-
málanefnd lengst allra nefnd-
armanna og hefur með eljusemi og
aðdáunarverðri þolinmæði þokað
fram ýmsum réttlætismálum á sviði
menntamála þótt óneitanlega hafi
oft verið þungt fyrir fæti.
Sigríður hefur ekki aðeins ára-
tuga reynslu sem kennari heldur
hefur hún einnig um margra ára
skeið setið í stjórn Kennarasam-
bands Íslands. Við sem viljum að
menntun verði öllum aðgengileg vilj-
um að Sigríður sitji áfram á þingi.
Sigríður hefur einnig reynst, þau
tæp sjö ár sem hún hefur setið á
þingi, einlægur og öflugur talsmaður
þess að þeir sem þurfa stuðning
samfélagsins s.s. bótaþegar og aldr-
aðir séu ekki lokaðir inni í tillits-
lausri fátæktargildru. Við sem vilj-
um mannúðlegt samfélag sem ekki
níðist á þeim sem minna mega sín
viljum að Sigríður sitji áfram á
þingi.
Nú þegar að henni sækir mikið
mannval félaga okkar skora ég á
ykkur að tryggja henni þingsæti.
Við þurfum á hennar líkum að halda.
Sigríður Jóhann-
esdóttir þing-
maður góður
valkostur
Sólveig Þórðardóttir, ljósmóðir og hjúkr-
unarforstjóri, skrifar:
EÐA það 6., Sigrún Grendal Jó-
hannesdóttir gefur kost á sér í ann-
aðhvort 5. eða 6. sæti í prófkjöri
Samfylkingarinnar,
enda talsmaður þess
að fólk hafi raun-
verulegt val um
hvernig það vill haga
hlutunum. Ég mæli
með Sigrúnu af því
hún er fersk og
kraftmikil kona sem kom berlega í
ljós í verkfalli tónlistarskólakennara
á síðasta ári þar sem hún fór í broddi
fylkingar sem eftir á stóð uppi öflug-
ari en nokkru sinni. Sigrún hefur
sterka réttlætiskennd, hún er heið-
arleg og fylgin sér og þorir að hafa
skoðanir á hlutunum. Sem formaður
Félags tónlistarskólakennara hefur
hún unnið gífurlega gott starf í því
að vekja athygli á stéttinni og er ég
þess fullviss að kraftar hennar muni
koma að góðum notum í Samfylking-
unni. Hennar aðalmál snúa að
menntun og skólakerfi okkar, menn-
ingar- og umhverfismálum og hvet
ég alla til að kynna sér skoðanir
hennar á heimasíðu hennar
www.sigrungrendal.is. Kjósum Sig-
rúnu í 5.–6. sæti, það er okkar hagur.
Ferskan Grendal
í 5. sæti
Arndís Björk Ásgeirsdóttir píanókennari
skrifar:
LAUGARDAGINN 9. nóvember
nk. verður opið prófkjör sjálfstæð-
ismanna í hinu nýju Norðvest-
urkjördæmi. Ég hef ákveðið að
styðja dyggilega við bakið á Ein-
ari Kristni Guð-
finnssyni, 1. þing-
manni Vestfjarða.
Ástæður þess að ég
mun styðja Einar
Kristin eru margar
en ein sú helsta er
að dugmeiri þing-
mann er vart hægt að finna. Hann
hefur sinnt hagsmunamálum
landsbyggðarinnar í heild af mik-
illi festu og dugnaði allt frá því að
hann tók sæti á þingi árið 1991.
Einar Kristinn hefur sýnt það og
sannað, með þeim fjölmörgu þing-
málum sem hann hefur lagt fram
á Alþingi, að hann lætur verkin
tala. Hægt er að kynna sér þessi
fjölmörgu þingmál á heimasíðu Al-
þingis. Einar Kristinn er maður
sem ég treysti til að vinna að
hagsmunum okkar allra. Því hvet
ég þig til þess að styðja Einar
Kristin í komandi prófkjöri sjálf-
stæðismanna í Norðvesturkjör-
dæmi.
Á laugardaginn verður opið
prófkjör Sjálfstæðismanna í hinu
nýja Norðvesturkjördæmi. Ég hef
ákveðið að styðja dyggilega við
bakið á Einari Kristni Guðfinns-
syni, 1. þingmanni Vestfjarða.
Ástæður þess að ég mun styðja
Einar Kristin eru margar, en ein
sú helsta er sú, að dugmeiri þing-
mann er vart hægt að finna. Hann
hefur sinnt hagsmunamálum
landsbyggðarinnar í heild af mik-
illi festu og dugnaði allt frá því að
hann tók sæti á þingi árið 1991.
Einar Kristinn hefur sýnt og
sannað með þeim fjölmörgu mál-
um sem hann hefur lagt fram á
Alþingi, að hann lætur verkin tala.
Auðvelt er að kynna sér þessi
fjölmörgu þingmál á heimasíðu Al-
þingis. Einar Kristinn er maður
sem ég treysti til að vinna að
hagsmunum okkar allra. Því hvet
é! g þig til þess að styðja Einar
Kristin í prófkjöri Sjálfstæðis-
manna í Norðvesturkjördæmi.
Tryggjum 1. þing-
manni Vestfjarða
öflugan stuðning
í nýju Norðvest-
urkjördæmi
Ingi Þór Ágústsson, hjúkrunarfræðingur og
bæjarfulltrúi á Ísafirði, skrifar:
ÞÓRUNN Sveinbjarnardóttir
gefur kost á sér í annað sæti í flokks-
vali Samfylkingarinnar í Suðvest-
urkjördæmi. Þórunn
er baráttukona. Það
vita þeir sem hafa
fylgst með störfum
hennar á und-
anförnum árum.
Hún hefur sér-
staklega beitt sér í
utanríkis- og mannúðarmálum og
ekki síst í umhverfismálum, þar sem
einörð afstaða hennar hefur vakið
athygli. Það er afar brýnt fyrir Sam-
fylkinguna að eiga áfram öflugan
málsvara á Alþingi í þessum mála-
flokkum. Þórunn hefur sýnt og sann-
að að hún er slíkur málsvari.
Það er mér mikið fagnaðarefni að
fá tækifæri til að styðja Þórunni í
þessu flokksvali. Ég hef átt þess
kost að fylgjast með störfum hennar
og kynnast henni persónulega. Þau
kynni hafa sannfært mig um að þar
fer kona sem þekkir kjör íslensks al-
þýðufólks. Það er afar mikilvægt í
því félagslega uppbyggingarstarfi
sem fer í hönd þegar við losnum við
þá fjölskyldufjandsamlegu hægri-
stjórn sem nú situr.
Ég hvet allt Samfylkingarfólk í
kjördæminu til að taka þátt í flokks-
valinu og veita Þórunni braut-
argengi.
Þórunn er
framtíðarkona
Guðmundur Rúnar Árnason,
bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, skrifar:
ÚRSLIT í prófkjöri Samfylking-
arinnar í Suðurkjördæmi eru afar
þýðingarmikil, því þar takast á um
forystu gamli og nýi
tíminn. Lúðvík
Bergvinsson er einn
öflugasti maðurinn á
Alþingi og hefur,
þótt ungur sé, þegar
öðlast þar mikla
reynslu. Lúðvík hef-
ur þessi tvö kjörtímabil, sem hann
hefur setið á þingi, flutt fjölda mála
og verið mjög atkvæðamikill. Hann
er fljótur að setja sig inn í mál og
það er fylgst með því sem hann seg-
ir. Lúðvík er að mínu mati framtíð-
arforystumaður innan Samfylking-
arinnar og þess vegna skora ég á allt
Samfylkingarfólk í Suðurkjördæmi
að kjósa hann í 1. sæti.
Kjósum Lúðvík
í 1. sæti
Ólafur Thordersen, bæjarfulltrúi Samfylk-
ingarinnar í Reykjanesbæ, skrifar:
ÉG vil hvetja Samfylkingarfólk í
Suðvesturkjördæmi til að styðja Jón-
as Sigurðsson, bæjarfulltrúa úr Mos-
fellsbæ, í 2.–4. sæti í flokksvalinu 9.
nóvember. Jónas hef-
ur m.a. verið bæj-
arfulltrúi síðan 1994,
var forseti bæj-
arstjórnar, formaður
bæjarráðs, formaður
fræðslunefndar svo
fátt eitt sé upptalið.
Hann á stóran þátt í þeirri uppbygg-
ingu sem átt hefur sér stað í Mosfells-
bænum á liðnum árum. Jónas hefur
áunnið sér traust og virðingu, ekki
bara meðal samstarfsfólks, heldur
einnig meðal pólitískra andstæðinga.
Jónas hefur sýnt það með störfum
sínum að sveitarstjórnarmálum að
reynsla hans og þekking muni nýtast
vel á Alþingi.
Jónas Sigurðsson
á Alþingi
Guðbjörn Sigvaldason skrifar:
VETURINN er
mættur, rétt eina
ferðina hefur hann
óvænt knúið dyra
og glatt okkur
Frónbúa með sval-
andi nærveru sinni.
Tré og runnar hafa
búist í vetrarbún-
ing, fallegu haustlit-
irnir foknir út í veð-
ur og vind með
haustlægðunum og
framundan er
skammdegið, dular-
fullt og spennandi.
Garðeigendur eru
einnig komnir í
vetrarástand, löngu
hættir að reyta arfa
og vökva sumar-
blómin, þess í stað
þarf að fara að huga
að vetrarskýlingu
sígrænna trjáa og
runna, svona rétt
eftir að síðustu
haustlaukunum
hefur verið potað
niður.
Sígrænar plöntur eru afar við-
kvæmar fyrir íslenskri vetrar-
veðráttu, sérstaklega snemma
vors. Á tímabilinu febrúar til
mars fáum við oft ákaflega fal-
lega sólríka daga með bítandi
frosti. Slíkt veður
gleður okkur mann-
fólkið meira en orð
fá lýst, okkur hrein-
lega þyrstir í sól
eftir dimma vetrar-
mánuðina en sí-
grænu plönturnar
eru hreint ekki svo
kátar með þetta
ástand. Þær halda
laufblöðum sínum
allt árið og þegar
vetrarsólin skín á
blöðin hitna þau
heilmikið. Til þess
að kæla sig niður
opna plönturnar
varaop sín og við
það gufar vatn út
um opin en vegna þess að jörð er
frosin ná plönturnar ekki að taka
upp vatn í stað þess sem gufar út.
Afleiðingarnar eru þær að ystu
endar blaðanna visna og ef þetta
ástand varir lengi geta plönturn-
ar orðið brúnar og ljótar yfirlit-
um. Frostskaðar af þessu tagi
koma oft ekki fram fyrr en plönt-
urnar hefja vöxt að vori til. Ung-
ar plöntur með óþroskað róta-
kerfi eru í sérstakri hættu á því
að sólbrenna. Það er því þjóðráð
að skyggja ungar plöntur fyrstu
veturna eftir að þær eru gróð-
ursettar. Skyggingin getur verið
í formi strigabyrgis sem er byggt
umhverfis plönturnar, ef um
uppréttar plöntur er að ræða. Ef
plönturnar eru jarðlægar dugir
oft að leggja grenigreinar yfir
þær en þá þarf að gæta þess að
festa grenigreinarnar niður í
jarðveginn með járnlykkju eða
hreinlega binda þær við plöntuna
sem á að skýla til að greinarnar
fjúki ekki burt í hressilegu roki.
Garðeigendur leggja allt ofur-
kapp á að garðurinn líti huggu-
lega út á sumrin. Blómlitir trjáa,
runna, fjölærra plantna og sum-
arblóma verða að tóna saman,
græni liturinn í grasinu verður
að vera í sama tón og græni lit-
urinn í limgerðinu, sólpallurinn á
helst að vera ívið stærri en sól-
pallur nágrannans og auðvitað
voga engin óboðin kvikindi sér að
hreiðra um sig í íslenskum garði,
þau fá svo sannarlega að kenna
leiftursnöggt á því hvar Davíð
keypti ölið. Oft vill það gleymast
að garðurinn er ekki í sumarbún-
ingi nema nokkra mánuði á ári,
hina mánuðina eru plönturnar í
dvala. Það skiptir því verulegu
máli að velja í garða tegundir
plantna sem eru fallegar að vetr-
arlagi. Sígrænar plöntur eru auð-
vitað ómetanlegar hvað þetta
varðar, græni liturinn er einkar
hlýlegur þegar snjórinn þekur
jörðina. Skemmtileg vaxtarform
plantna lífga einnig upp á til-
veruna á veturna. Til eru ýmsar
tegundir runna sem eru með
langar, bogsveigðar greinar, til
dæmis sunnukvistur, bogkvistur
og loðkvistur. Runnar þessir
halda gjarnan blóm-
skipunum sínum
fram eftir hausti,
jafnvel eftir að lauf-
blöðin eru löngu
fallin og eykur það
enn á vetrarfegurð
þeirra. Kræklótt
birkitré eru hin
mesta prýði að vetr-
arlagi enda hefur
maður það á tilfinn-
ingunni að það séu
tré með reynslu; tré
með sál. Fallegur
barkarlitur gleður
augað í grámollu
vetrarins. Næfur-
heggur hefur ákaf-
lega fallegan kan-
elbrúnan og gljáandi börk og
eins eru sveighyrnir og mjallar-
hyrnir glæsilegir á veturna með
eldrauða árssprota.
Ef fjölbreytni náttúrunnar
dugir ekki til að kalla fram falleg
vaxtarform í plöntum má alltaf
grípa til tækninnar. Ýmiss konar
hengiplöntur eins og hengibau-
natré og hengigullregn hafa ver-
ið að auka vinsældir sínar síðustu
ár. Í þeim tilfellum hafa greinar
af skriðulum runnum verið
ágræddar á talsvert háan trjá-
stofn og fæst við það mjög
óvenjulegt vaxtarform sem gríp-
ur augað hvenær ársins sem er.
Eins hafa margir garðeigendur
verið duglegir við það að klippa
runnana í görðum sínum í kúlur
eða kassa eða einhverjar undar-
legar fígúrur og ná þannig fram
þeirri fjölbreytni sem þeim finnst
æskileg.
Það er því ekki einungis mann-
fólkið sem á að vera í fínu formi
fyrir veturinn, garðar okkar ættu
auðvitað að skarta sínu fegursta
allt árið. Við þurfum kannski
ekki að hafa áhyggjur af vaxt-
arformi plantnanna okkar svona
rétt yfir jólahátíðina, þá virðist
ekki skipta neinu máli hvernig
planta er í laginu svo framarlega
sem hægt er að hengja á hana
eina eða fleiri jólaseríur. Því mið-
ur vara jólin ekki að eilífu, það
kemur að því að jólaseríurnar
ljúka hlutverki sínu og þá er það
hið fína form plantnanna sem
blasir við fram á vorið. Notum
því veturinn til þess að skyggn-
ast inn í garða nágranna okkar
(svo lítið beri á, auðvitað) og finn-
um út hvaða plöntur okkur hugn-
ast best í vetrarbúningi. Við get-
um þá notað næsta sumar í það
að undirbúa vetrargarðinn okkar
og komið garðinum og okkur í
leiðinni í fínt form fyrir veturinn.
Guðríður Helgadóttir,
garðyrkjufræðingur
Hengibaunatré
VIKUNNAR
BLÓM
Um s j ó n S i g r í ð u r
H j a r t a r
486. þáttur
Í FÍNU FORMI
FYRIR VETURINN
ATVINNA
mbl.is