Morgunblaðið - 09.11.2002, Side 71
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002 71
STÚLKURNAR í 5. bekk grunn-
skóla Húnaþings vestra stóðu fyrir
Smásölu, sem þær kölluð svo, til
styrktar fjölskyldunni á Syðri-Kára-
stöðum, en hún missti heimili sitt í
bruna í haust. Þær höfðu ætlað að
safna fyrir Rauðakrossinn, en
ákváðu að breyta um styrkþega.
Þær fóru í hús og söfnuðu munum
og fengu síðan aðstöðu í anddyri
Kaupfélagsins á Hvammstanga fyrir
söluna.
Framtak þeirra vakti mikla at-
hygli og vonandi varð salan eftir því.
Morgunblaðið/Karl
F.v. Kristrún Pétursdóttir, Elísabet Eir Steinbjörnsdóttir, Ólöf Rún Skúla-
dóttir, Guðrún Ósk Aðalsteinsdóttir, Júlía Skúladóttir, Sigríður María Lár-
usdóttir og Theodóra Dröfn Skarphéðinsdóttir.
Söfnun fyrir nágranna
JÓRUNN Elídóttir varði dokt-
orsritgerð sína í sumar, í sér-
kennslufræðum við uppeldis- og
menntunardeild University College
Worcester á Eng-
landi í samvinnu
við Coventry
University.
Leiðbeinendur
voru dr. Kevin
Jones, þáverandi
dósent við sér-
kennsludeild Há-
skólans; prófess-
or Tony Ghaye, fyrrverandi
umsjónarmaður The Policy and
Practice rannsóknarsetursins við
UCW, núverandi framkvæmdastjóri
The Institute of Reflective Practice í
Bretlandi; Dr. Jean Webb dósent við
University College Worcester og
forstöðumaður rannsóknarnáms-
deildar Háskólans og dr. Phil
Chambers dósent við uppeldis- og
menntunardeild Háskólans.
Andmælendur voru prófessor
Gary Thomas, Oxford Brookes Uni-
versity, dr. Catherine McDonalds
dósent við UCW og dr. Nanette
Smith, fræðimaður við UCW.
Ritgerðin ber yfirskriftina „How
can we empower children to improve
the quality of their learning exper-
iences through interaction with a
CD-ROM?“
Rannsókn Jórunnar, sem er þrí-
þætt, beinist að því að skoða og þróa
námsleiðir fyrir 5–8 ára gömul börn
sem þurfa sérkennslu. Þetta var
gert með sérunnu tölvuverkefni sem
Jórunn hannaði og mat síðan í sam-
starfi við börn og kennara í Hamra-
skóla í Reykjavík.
Í fyrsta hluta rannsóknarinnar
var skoðað hvernig bækur og upp-
lýsingatæknin voru notuð við sér-
kennslu yngri barna í tveimur skól-
um í Reykjavík.
Annar hlutinn beindist að því að
skoða uppbyggingu og framsetningu
tölvuverkefna fyrir börn og fræði-
legt kennslu- og námsgildi þeirra.
Þriðji hlutinn tók fyrir hönnun
sérstaks tölvuverkefnis sem hefur
það að markmiði að virkja og hvetja
börn til að læra m.a. með því að nota
„hugskoðandi samtöl“. Út frá þess-
ari hugmyndfræði setti Jórunn fram
líkan fyrir „nemendavirkni“ sem
námsleið í kennslu nemenda er
þurfa sérkennslu.
Jórunn er leikskólakennari frá
Fóstruskóla Íslands frá árinu 1980.
Hún starfaði síðan í þrjú ár við leik-
skóla og við Lyngás í Reykjavík.
Jórunn lauk sérkennaranámi við
Statens Special Lærehögskolen
Noregi (núverandi Institute for
special pedagogikk Universitet i
Oslo)1983, námi í sérkennslu fyrir
mál- og heyrnarskert börn og ung-
menni 1984, námi í aðferðafræði og
rannsóknum 1986 og í desember
1987 lauk hún kandidatsprófi í sér-
kennslufræðum, allt við sama há-
skóla.
Eftir námið bjó Jórunn í rúmt ár í
Cambridge og stundaði m.a. nám í
ensku ásamt því að vinna með börn-
um og ungmennum frá félagslega
illa stöddum heimilum.
Jórunn vann þar eftir um tíma á
leikskólanum Ösp; hún var sérkenn-
ari og sérkennsluráðgjafi við Öskju-
hlíðarskóla frá 1989–1995; sérkenn-
ari, deildarstjóri og ráðgjafi við
Hamraskóla og Selásskóla í Reykja-
vík 1995–1999. Jórunn kenndi einnig
við tölvuskólann Framtíðarbörn í
Reykjavík 1998–1999. Þá hefur Jór-
unn m.a. skrifað fræðigreinar og
flutt fyrirlestra um málefni barna.
Meðfram náminu við University
College Worcester tók Jórunn þátt í
rannsóknarverkefni um götubörn á
Indlandi, og mun hún halda áfram
þeirri vinnu.
Foreldrar Jórunnar eru Elí Auð-
unsson húsasmíðameistari og Guð-
rún Magdalena Birnir, húsmóðir og
leikskólakennari.
Jórunn hefur verið ráðin lektor í
sérkennslufræðum við Karlstad-
háskóla í Svíþjóð.
Doktor í
sérkennslu-
fræðum
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG Íslendinga
stendur fyrir Þjóðræknisþingi í dag
og verður boðið upp á fjölbreytta
dagskrá en þingið er öllum opið.
Þjóðræknisþing var síðast haldið
fyrir þremur árum. Markús Örn
Antonsson, stjórnarformaður Þjóð-
ræknisfélags Íslendinga, segir að
markmið félagsins sé meðal annars
að efna til viðamikilla samkoma af
þessu tagi annað slagið. Að þessu
sinni séu Sigrid Johnson, forseti
Þjóðræknisfélags Íslendinga í Vest-
urheimi, og David Gislason, einn af
forvígismönnum Vestur-Íslendinga,
sérstakir gestir og sé það sérstakt
fagnaðarefni. Mjög mikilsvert sé að
fá þetta góða fólk í heimsókn til að
innsigla tengslin og hið góða sam-
band, sem ríki milli félagsins hér og
félaganna í Vesturheimi.
Þingsetning verður klukkan 13.30
og er áætlað að þingslit verði um kl.
17, en þingið fer fram í Borgartúni
6 í Reykjavík. Að loknu hátíðará-
varpi Sigrid Johnsons syngur Ingv-
eldur Ýr Jónsdóttir við undirleik
Guðríðar Sigurðardóttur og síðan
segja þær frá nýafstaðinni tónleika-
ferð sinni í Vesturheimi. Eiður
Guðnason sendiherra, aðalræðis-
maður Íslands í Winnipeg, flytur
ávarp,
sýnd verður heimildarmynd um
líf afkomenda íslenskra innflytjenda
vestra um 1940, Vesturfarasetrið á
Hofsósi kynnir margmiðlunarverk-
efni og á dagskrá verður myndræn
kynning á ungmennaskiptum
Snorraverkefnisins auk þess sem
Viðar Hreinsson, bókmenntafræð-
ingur, kynnir ritverk sitt um Kletta-
fjallaskáldið Stephan G. Stephans-
son. Markús Örn Antonsson segir
að ennfremur verði greint frá
ákveðnum þáttum í starfinu, eins og
vaxtarbroddum sem hafi verið
hvatning og tilstuðlan að heimsókn-
um vestur á bóginn. Námskeið hér-
lendis hafi leitt til ferðalaga vestur
og vart hafi orðið við vaxandi áhuga
ýmissa félagasamtaka á slíkum
ferðum. „Við viljum gjarnan stuðla
að slíkum ferðum og þarna verður
kynning á ýmsum möguleikum og
því sem vænta má í slíkum heim-
sóknum.“
Möguleikar í Vesturheimi
kynntir á Þjóðræknisþingi
STURLA Böðvarsson samgöngu-
ráðherra opnaði í gær kortasýn-
ingu í Þjóðmenningarhúsinu.
Sýningin ber heitið Íslands-
mynd í mótun – áfangar í korta-
gerð. Á myndinni má sjá Emilíu
Sigmarsdóttur verkefnisstjóra,
Ólaf Engilbertsson hönnuð, Guð-
ríði Sigurðardóttur, settan for-
stöðumann Þjóðmenningarhúss-
ins, og Sturlu Böðvarsson
samgönguráðherra virða Íslands-
kortin fyrir sér.
Sýningin er opin frá 11–17 alla
daga vikunnar og stendur fram á
næsta haust.
Morgunblaðið/Þorkell
Kortasýn-
ing í Þjóð-
menningar-
húsinu
NÆSTUM helmingur íslenskra
kvenna telur að þær fengju hærri
laun í því starfi sem þær gegna ef
þær væru karlar. Konum sem eru
þessarar skoðunar hefur fjölgað á
tveimur árum, þær voru 35% árið
2000 en eru 45% í dag. Þetta er nið-
urstaða símakönnunar Þjóðarpúls
Gallups sem gerð var dagana 9.–23.
október sl. Tæplega 53% kvenna
segja nú að það skipti ekki máli
launalega hvort kynið gegni starfi
þeirra á móti um 64% árið 2000.
Meirihluti karla, eða 70%, telja
það engu skipta launalega séð hvort
kynið gegndi starfi þeirra. Tæplega
28% segja að þeir myndu fá lægri
laun fyrir sama starf ef þeir væru
konur. Hafa skoðanir karla hvað
þetta varðar ekkert breyst frá því
samskonar könnun varð gerð fyrir
tveimur árum.
Munur á viðhorfum
eftir búsetu
Samkvæmt könnun Gallups er
munur á viðhorfum kvenna eftir bú-
setu. Um helmingur kvenna á höf-
uðborgarsvæðinu taldi að þær
fengju hærri laun fyrir starf sitt ef
þær væru karlar en tæplega 39%
kvenna á landsbyggðinni.
Úrtak könnunarinnar var valið til-
viljanakennt úr þjóðskrá og voru
þeir sem spurðir voru á aldrinum 18–
75 ára. Svarhlutfall var um 70%.
Karlar telja
kyn engu
skipta
VEGAGERÐIN, lögreglan,
slökkviliðið, starfsmenn sjúkra-
hússins, almannavarnanefnd Ísa-
fjarðarbæjar og björgunarsveit-
irnar á Ísafirði standa fyrir
slysaæfingu í jarðgöngunum und-
ir Breiðadals- og Botnsheiðar,
laugardag.
Þessi jarðgöng eru sérstök að
því leyti að þau eru þrískipt, þ.e.
með gatnamótum og svo að þau
eru í heild sinn mjög löng, eða
tæpir 10 kílómetrar að meðtöld-
um vegskálum. Æfð verða við-
brögð og vinna við „stórt slys“.
Sett verður á svið slys, þ.e.a.s
árekstur, inni í göngunum, á þeim
stað þar sem reynir á sem flesta
þætti við björgun mannslífa úr
háska.
Margvísleg hætta er samfara
slysum í þröngu rými, eins og í
jarðgöngum. Eldur er og verður
alversti óvinurinn og verða allir
að vera viðbúnir að kviknað geti í
bifreiðum og farmi þeirra. Því er
mjög brýnt að æfa björgunaraðila
sem best við þær aðstæður, segir
í fréttatilkynningu.
Truflun á umferð
Umferð björgunarbifreiða, með
forgangsljósum, verður talsverð,
en ákveðið er að hraða þessara
bifreiða verði stillt í hóf, þó ekið
verði með forgangi.
Ekki verður hjá því komist að
umferð truflist rétt meðan á æf-
ingunni stendur og þann tíma
sem það tekur að setja „slysið“ á
svið og taka til eftir það. Göng-
unum verður því lokað frá klukk-
an 11:30 fram til klukkan 13:30.
Suðureyrarleggurinn verður hins
vegar opinn að mestu leyti. Þar
verða menn mest fyrir truflunum
vegna umferðarstjórnar lögreglu.
Breiðadalsleggurinn verður
lokaður þennan tíma. Lögreglan
hvetur ökumenn til að sýna tillits-
semi og þolinmæði.
Slys sviðsett í Vestfjarðagöngum
SÍÐUSTU misseri hefur mikið verið
um alls kyns orma og veirur í tölvu-
póstskerfum um heim allan. Algeng-
astir eru svonefndir ormar sem
senda sjálfa sig áfram til allra sem
þeir finna í netfangaskrá viðkom-
andi notanda, stundum með veiru
meðferðis sem spillir gögnum á tölv-
unni, en nýr af nálinni er ormur sem
er eiginlega ekki ormur þótt hann
hagi sér svo.
Þekktustu tölvupóstsormar síð-
ustu missera eru Melissa og I Love
You, en ef þannig tölvupóstur var
opnaður fór í gang forrit sem sendi
eintak af orminum til allra sem það
fann í netfangaskrá viðkomandi. Nú
er aftur á móti kominn á kreik orm-
ur sem er ekki ormur, þ.e. hann er
lítið forrit sem notendur samþykkja
að sé sett inn á tölvuna hjá sér og
hagar sér síðan eins og ormur.
Síðustu daga hafa fjölmargir
fengið póst með skilaboðunum
„xxxxx you have a greeting card
from xx@xxx.xx“, en þar sem x-in
eru birtist nafn sendanda og viðtak-
anda eins og um hefðbundinn tölvu-
póst sé að ræða. Í póstinum kemur
fram að viðkomandi hafi fengið
kveðju á vefnum Friend-Greet-
ings.com og hann hvattur til að líta á
kveðjuna með því að smella á tengil í
bréfinu. Sé það gert kemur upp vef-
síða í vafra viðkomandi og síðan til-
mælagluggi þar sem hann er spurð-
ur hvort hann vilji setja upp á
tölvunni hugbúnað til að skoða
kveðjuna. Ef rýnt er í notendaskil-
málana sem fylgja hugbúnaðinum,
sem kallast Friend Greeting frá
Permissoned Media Inc., kemur í
ljós að ef smellt er á yes er viðkom-
andi að samþykkja að taka við aug-
lýsingapósti á netfang sitt og aug-
lýsingaglugga reglulega þegar
hann notar vafra sinn.
Einnig fellst hann á að Perm-
issoned Media Inc. breyti hugbúnaði
sínum á tölvu hans þegar því sýnist
svo án þess að láta hann vita sér-
staklega og að auki megi fyrirtækið
bæta við hugbúnaði á tölvuna að
vild. Í samþykkinu felst einnig að
Permission Media megi senda sams-
konar skilaboð til allra netfanga
sem er að finna í netfangaskrá við-
komandi og að auki að honum sé
óheimilt að trufla eða hindra for-
ritið í að gera það sem það vill.
Neðar í skjalinu kemur svo fram
að viðkomandi fyrirtæki, Perm-
issoned Media, sé með starfsemi sína
í Panama og öll mál sem upp kunna
að koma vegna fyrirtækisins verði
að reka fyrir dómstólum þar í landi.
Ormur í dulargervi