Morgunblaðið - 09.11.2002, Page 73
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002 73
Mörkinni 3, sími 588 0640
Opið mán.-fös. kl. 11-18,
lau. kl. 11-15
Húsgögn
Sérpantanir
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Stökktu til
Kanarí
24. nóvember
í 3 vikur
frá kr. 49.962
Verð kr. 49.962
Verð fyrir manninn, m.v. hjón með 2
börn, 2–11 ára, flug, gisting og
skattar. 24. nóvember, 23 nætur.
Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800.
Almennt verð kr. 52.460.
Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina í
nóvember til Kanaríeyja á hreint ótrúlegu verði. Beint flug til Kanarí
þann 24. nóvember í 23 nætur, þar sem þú nýtur 25 stiga hita og
veðurblíðu og getur kvatt veturinn í bili á þessum vinsælasta vetrar-
áfangastað Evrópu við frábærar aðstæður. Þú bókar ferðina núna og
tryggir þér síðustu sætin og 4 dögum fyrir brottför, hringjum við í þig
og látum þig vita hvar þú gistir, og á meðan á dvölinni stendur nýtur þú
þjónustu reyndra fararstjóra okkar allan tímann.
Síðustu 18 sætin
Verð kr. 59.950
Verð fyrir manninn,
m.v. 2 í íbúð, gisting, skattar.
24. nóvember, 23 nætur.
Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800.
Almennt verð kr. 62.950
NÝVERIÐ fór fram sveinspróf í
skrúðgarðyrkju við Garðyrkjuskóla
ríkisins, Reykjum í Ölfusi, en alls
tóku 15 nemendur prófið. Það fór
fram á nokkrum stöðum á svæði
skólans, þó einna mest í verknáms-
húsi skrúðgarðyrkjunnar.
Nemendur þurftu að leysa 8 mis-
munandi verkefni á tveimur dög-
um. Sveinspróf hefur aldrei áður
verið jafnfjölmennt og nú. Sex próf-
dómarar höfðu yfirumsjón með
prófinu en það voru þeir Oddur
Hermannsson, Þorkell Einarsson,
Ólafur Hilmarsson, Hjörtur Jó-
hannsson, Baldur Gunnlaugsson og
Ólafur Melsted, segir í frétt frá
Garðyrkjuskólanum.
Hópurinn sem tók sveinspróf í skrúðgarðyrkju við Garðyrkjuskóla ríkisins.
Luku sveins-
prófi í skrúð-
garðyrkju
Kosningaskrifstofa Björns
Bjarnasonar opnuð. Björn Bjarna-
son opnar kosningaskrifstofu vegna
prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík að Sætúni 8 í dag klukkan
16.
Kosningaskrifstofa Sigurðar
Kára opnuð. Sigurður Kári Krist-
jánsson opnar kosningaskrifstofu
vegna prófkjörs Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík í Bankastræti 5 klukkan
14 í dag. Boðið verður upp á kaffi,
skemmtiatriði og meðlæti.
Kosningavaka Samfylking-
arinnar. Kosningavaka Samfylking-
arinnar í Reykjavík vegna prófkjörs
flokksins í Reykjavík verður á Hótel
Borg í kvöld og hefst klukkan 21.
Í DAG STJÓRNMÁL
Málstofa hagfræðisviðs verður
haldin mánudaginn 11. nóvember
2002 kl. 15:30 í Sölvhóli.
Frummælandi er Ásgeir Jónsson og
ræðir peningamálastefnu á mið-
stýrðum vinnumarkaði. Aðgangur er
öllum heimill og er ókeypis. Næstu
málstofur verða haldnar 25. nóv-
ember n.k. á sama tíma og stað.
Frummælendur þá verða Magnús
Harðarsson og Páll Harðarson og
fjalla þeir um aðferðafræði við þjóð-
hagslegt mat á áhrifum stór-
iðjuframkvæmda. Þann 9. desember
talar Tryggvi Þór Herbertsson um
aldurssamsetningu og atvinnuleysi.
Á NÆSTUNNI
Minningarathöfn. Stutt minning-
arathöfn um hermenn frá Bretlandi
og bresku samveldislöndunum verð-
ur haldin í hermannagrafreitnum í
Fossvogskirkjugarði, sunnudaginn
10. nóvember 2002, klukkan 10.45.
Athöfnin er haldin til að minnast
þeirra sem létu lífið í fyrstu og ann-
arri heimstyrjöld. Séra Arngrímur
Jónsson stjórnar athöfninni og eru
allir velkomnir. Allar nánari upplýs-
ingar veitir Alda Sigmundsdóttir,
Breska sendiráðinu, netfang: Alda-
.Sigmundsdottir@fco.gov.uk.
Þýska sendiráðið mun í tilefni af
minningu látinna hermanna, „Volks-
trauertag“, sem er sunnudaginn 10.
nóvember, minnast dagsins með
breska sendiráðinu vegna
„remembrance day“ og er ákveðið
að hittast á bifreiðastæðinu við
Fossvogskirkju þann dag kl. 10.40.
Athöfnina annast séra Arngrímur
Jónsson.
Upplýsingafundur um virkjana-
mál. Vinstrihreyfingin – grænt
framboð efnir til opins fundar um
virkjunarmál á Hótel Héraði, sunnu-
daginn 10. nóvember kl 14:00. Til-
gangur fundarins er að leita svara
við ýmsum spurningum sem snerta
fyrirhugaða virkjun við Kárahnjúka.
Framsögumenn á þessum fundi
verða Sigurður Jóhannesson, hag-
fræðingur hjá Hagfræðistofnun Há-
skóla Íslands og Skarphéðinn Þóris-
son, líffræðingur hjá Náttúrustofu
Austurlands.
Lokasprettur Vísindadaga. Á
sunnudag lýkur umfangsmikilli dag-
skrá Háskóla Íslands á vísinda-
dögum með opnu húsi í viðskipta- og
hagfræðideild, unglinganámskeiði
og hönnunarsamkeppni unglinga í
Háskólabíói.
Klukkan 13 - 15 verður opið hús fyr-
ir alla fjölskylduna hjá viðskipta- og
hagfræðideild í Odda. Þar verður
ýmislegt skemmtilegt að gerast,
leikir og fróðleikur í bland. Nemar í
viðskiptafræði leggja þrautir fyrir
börn og unglinga í tölvuveri og
kennarar deildarinnar svara spurn-
ingum á borð við „Af hverju eru
verkföll?“ og „Er algjört rugl að
kaupa lottómiða?“ auk annarra
spurninga um viðskipta- og hag-
fræði sem brenna á gestum. Allir
velkomnir.
Unglinganámskeið í eðlisfræði,
Þurrís og hamskipti efna, er hið síð-
asta í röð fjölbreyttra námskeiða
fyrir 14-16 ára, sem hafa verið á dag-
skrá í Vísindaviku. Fullbókað er á
námskeiðið.
Á sama tíma standa Verkfræðideild
Háskóla Íslands og Barnasmiðjan
fyrir hönnunarsamkeppni. Hópar af
mið- og efsta stigi ólíkra grunnskóla
keppa. Samkeppnin og hönnun
þrautar er undir stjórn Tómasar
Rasmus kennara en Barnasmiðjan
leggur til allan efnivið úr Legó
Dacta tæknikubbum. Kennarar og
nemendur í verkfræðideild aðstoða
við undirbúning keppninnar. Rektor
Háskóla Íslands, Páll Skúlason, af-
hendir vinningshöfum verðlaun fyrir
afrekið. Keppnin fer fram í Sal 1 í
Háskólabíói, klukkan 13-15. Allir
velkomnir.
Allar nánari upplýsingar um dag-
skrána er að finna á heimasíðu Há-
skólans, hi.is.
Fyrirlestur um tungumál
Donald Davidson, prófessor í heim-
speki við Kaliforníu-háskólann í
Berkeley mun flytja opinberan fyr-
irlestur á vegum heimspekideildar
n.k. sunnudag 10. nóvember kl.
16:00 í hátíðasal Háskóla Íslands.
Davidson er fremstur í röð núlifandi
bandarískra heimspekinga.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
ensku og nefnist „What is Special
about Language and Language-
Related Thought?“
Fyrirlestur Davidson er öllum op-
inn.
Málfundur um íslensku fyrir út-
lendinga.
Hvernig tekið er á móti innflytj-
endum og börnum þeirra hefur mikil
áhrif á afdrif þeirra í samfélaginu.
Tungumálakunnátta er lykillinn að
menningu hverrar þjóðar og vegur
tungumálakennsla því einna þyngst í
vel heppnaðri móttöku innflytjenda.
Hvernig skyldi málum háttað hér á
landi? Er ábyrgðin öxluð?
Sunnudaginn 10. nóvember næst-
komandi stendur Heimsþorp – sam-
tök gegn kynþáttafordómum á Ís-
landi fyrir málfundi um stöðu
íslenskukennslu fyrir útlendinga.
Meðal frummælenda er Ingibjörg
Hafstað og er öllum velkomið að
taka þátt í umræðum. Fundurinn
verður á efri hæð Sólon í Banka-
strætinu kl. 15:00 sunnudaginn 10.
nóvember.
Á MORGUN
Hljómsveitin Helgi og hljóðfæra-
leikararnir leikur í Stúdentakjall-
aranum í kvöld, laugardagskvöldið 9.
nóvember, kl. 22.30.
„Hljómsveitin leikur rokk og ról eft-
ir bestu getu,“ segir í tilkynningu
um tónleikana og einnig að hún sé
undir áhrifum víða að, en að textarn-
ir séu sóttir í daglegt líf. Miðaverð er
500 krónur.
Í DAG
NORRÆNA vísindaakademían,
NORFA, hefur ákveðið að styðja al-
þjóðlegan sumarskóla í vetnistækni
sem haldinn verður á Íslandi í júní
2003. Að sögn Þorsteins I. Sigfús-
sonar prófessors er búist við um 40
stúdentum víða að frá Norðurlönd-
unum og öðrum löndum í tengslum
við sumarskólann. Íslenskir og er-
lendir sérfræðingar á sviði vetnis-
tækni munu kenna við sumarskólann
en skólinn er einkum ætlaður nem-
endum í meistara- og doktorsnámi.
Vetnisfræði eru nú kennd við Há-
skóla Íslands og myndar sextán
manna hópur innsta kjarnann í þeim
fræðum. Hann má sjá hér á mynd-
inni en frá vinstri talið eru það þau
Hjalti Páll Ingólfsson meistaranemi,
Þorsteinn I. Sigfússon, prófessor og
stjórnarformaður Íslenskrar Ný-
Orku, Þorsteinn Þorsteinsson dós-
ent, Jón Björn Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Íslenskrar NýOrku,
Sveinn Ólafsson fræðimaður, Árni
Ingason meistaranemi, Helgi Þór
Ingason dósent, Hannes Jónsson
prófessor, María Maack, verkefnis-
stjóri Íslenskrar NýOrku, Fanney
Frisbæk meistaranemi, Finnbogi
Óskarsson meistaranemi, Michael
Cummings, Fulbright-styrkþegi frá
Bandaríkjunum, Ingvar Hlynsson
meistaranemi, Gabríel Camargo,
meistaranemi frá Brasilíu, Bragi
Árnason prófessor og Rene Riasone
frá Ítalíu.
Innsti kjarni
vetnisfræða
ATVINNUMENNIRNIR í sam-
kvæmisdönsum; Karen Björk Björg-
vinsdóttir og Adam Reeve sem
keppa fyrir Íslands hönd, náðu þeim
góða árangri að komast í undanúrslit
í Evrópumeistarakeppninni í stand-
ard dönsum, sem fram fór í borginni
Assen í Hollandi í gærkvöldi. Alls
tóku þátt um 50 pör frá öllum Evr-
ópuþjóðum og var keppnin mjög
hörð og spennandi. Par frá Englandi
lenti í 1. sæti. Óhætt er að segja, að
þau Karen og Adam hafi náð ótrú-
lega góðum árangri í sinni grein á
stuttum tíma.. Framundan hjá þeim
er Heimsmeistarakeppnin í stand-
ardönsum sem fer fram í Englandi
24. nóvember og Heimsmeistara-
keppnin í 10 dönsum en hún verður
haldin í Þýskalandi 29. og 30. nóv-
ember.
Karen og Adam
í undanúrslit