Morgunblaðið - 09.11.2002, Qupperneq 75
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002 75
DAGBÓK
LJÓÐABROT
VOR Í SKAFLI
Sá dagur var ei draumsjón köld og ber
sem dyra knúði og spurði eftir mér,
hann var mín gæfa, veröld fersk og ný
sem vor í skafli, moldin dökk og hlý.
Þú varst sá dagur, ung með augu brún
og yl sem fari sunnangola um tún,
og grasið var mín unga ást til þín.
Ég er þitt ljóð og þú ert stúlkan mín.
Úr þvalri jörð mun þiðna krapamor
og þá mun aftur koma túngrænt vor
með sumarbros og sólskinslokk um kinn.
Mín sól ert þú og ég er skuggi þinn.
Matthías Johannessen
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
SPORÐDREKI
Afmælisbörn dagsins:
Þú hefur líkamlegt viðhorf
til lífsins. Þú hellir þér út í
það sem vekur áhuga þinn,
þar á meðal holdlegar nautn-
ir, og nýtur þess einnig að
taka áhættu. Hjónaband og
sambönd verða þér ofarlega
í huga á næsta ári.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Varaðu þig á fjárfestingum í
dag því þú gætir ofmetið
heppni þína. Vertu jafnframt
varkár og eyddu ekki of
miklu fé í skemmtanir og
rómantík.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Ef þú lofar fjölskyldunni öllu
fögru í dag gætir þú þurft að
standa við loforðið síðar.
Ekki gera tilboð sem þú get-
ur ekki staðið við.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Glaðlegt viðhorf þitt til vinn-
unnar smitar út frá sér. Þú
getur haft áhrif á fólk og örv-
að það til dáða.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú hefur venjulega sparnað í
fyrirrúmi en í dag langar þig
til að eyða peningum. Þér
finnst að allir í kringum þig
eigi að skemmta sér.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú sýnir fjölskyldunni alltaf
örlæti. Vertu varkár í dag því
þú kynnir ella að þurfa að
greiða háan reikning. Gættu
þess að þú hafi efni á slíku.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú átt gott með að tjá þig í
dag. Þú getur selt, kennt,
skrifað og sannfært aðra um
hvað sem þú vilt.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú fylgist með tískunni og
nýtur þess að skemmta þér.
Njóttu samvista við aðra í
dag en gættu þess að eyða
ekki um efni fram.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú átt auðvelt með að vekja
hrifningu annarra í dag. Yf-
irmenn og annað mikilvægt
fólk verður undrandi á góðum
hugmyndum og vinnusemi
þinni.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú vilt geta trúað á betri
framtíð. Heimspekikenning-
ar og góðar hugmyndir hafa
mikil áhrif á þig í dag.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Í dag er heppilegt að tryggja
eigin hag. Þú færð þann
stuðning, t.d. fjárhagslegan
stuðning frá bönkum, sem þú
þarft í dag.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Í dag er heppilegt að blanda
geði við aðra. Þótt samræður
þínar við aðra tengist
vinnunni eða einkalífinu þyk-
ir þér gaman að skiptast á
skoðunum við aðra.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Allt sem tengist útgáfu, út-
löndum, ferðalögum, lög-
fræðilegum málum og háskól-
um, gengur vel í dag. Gættu
þess þó að semja ekki um
tímafrest sem þú getur ekki
staðið við.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Alvin Roth er kunnur „kerf-
isspekingur“ í Bandaríkjun-
um. Hann er hugsuðurinn að
baki Roth-Stone-kerfinu
sem margir spiluðu fyrir 2–3
áratugum, en nú hafa bestu
hugmyndir þess kerfis verið
innlimaðar í Standard. Roth
heldur úti þætti um sagnir í
tímaritinu Bridge Today.
Hann leggur fyrir spilara
sagnvandamál sem komið
hafa upp við borðið, gefur
stig, og birtir svo í lok um-
ræðunnar spilið í heild. Hér
er ein af þratuum Roths.
Suður er með eftirfarandi
spil og vekur á Standard-
tígli. Það eru allir á hættu.
Suður
♠ K3
♥ KD4
♦ Á1075
♣ÁD62
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 tígull
2 spaðar Pass Pass ?
Innákoma vesturs er veik.
Hvað á suður að segja?
Þrjár sagnir koma til
greina: pass, dobl eða tvö
grönd. Allar sagnirnar hafa
eitthvað til síns ágætis, en
Roth er hrifnastur af tveim-
ur gröndum. Margir eru þó
á öðru máli:
Woolsey: Dobl. Gæti mis-
heppnast, en ég á of góð spil
til að passa og ef ég segi tvö
grönd missi ég af mögu-
leikanum á góðri refsingu,
auk þess sem laufliturinn er
út úr myndinni.
Svar Roths: Dobl ætti að
sýna skiptingarspil og vilja
til að spila lit á þriðja þrepi,
einkum hjarta. Suðri mun
ekki líða vel ef makker tekur
út í þrjú hjörtu.
Roth er ennfremur hrif-
inn af þessu svari: Yechiel
Yochai (Tel Aviv): Tvö
grönd. Hef ekki áhuga á
hjartasamningi og tel mik-
ilvægt að verja spaðakóng-
inn gegn útspili.
Svar Roths: Rétt – við
getum hæglega átt þrjú
grönd í spilinu og besta leið-
in er að lýsa yfir 18–19
punktum hér og nú.
Roth hefur þá reglu að
gefa stig eftir árangrinum
við borðið. Og í þessu tilfelli
hefði doblið reynst best:
Norður
♠ DG954
♥ G76
♦ D62
♣G3
Vestur Austur
♠ Á108762 ♠ –
♥ Á3 ♥ 109852
♦ 3 ♦ KG984
♣10984 ♣K75
Suður
♠ K3
♥ KD4
♦ Á1074
♣ÁD62
Tveir spaðar fara þrjá
niður. En ef suður velur að
segja tvö grönd mun norður
hækka í þrjú, sem fara einn
niður með bestu vörn.
Stigagjöf Roths er þessi:
Dobl=10, Pass=8, 2G=5.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Árnað heilla
1. e4 e5 2. Bc4 Rf6 3. De2
Bc5 4. Rf3 0–0 5. d3 He8 6.
Bg5 d6 7. Rbd2 Rbd7 8.
Bb3 Rf8 9. c3 h6 10. Be3
Rg6 11. h3 a5 12. a3 b5 13.
g4 Be6 14. Bxe6 Hxe6 15.
Hg1 Bxe3 16. fxe3 Rh7 17.
Df2 d5 18. h4 b4 19. axb4
axb4 20. Ke2 Hxa1 21. Hxa1
bxc3 22. bxc3 Rf6
23. exd5 Rxd5 24.
Hc1 Ha6 25. c4
Rb4 26. Hc3 Hd6
27. h5 Rf8 28. Re1
Re6 29. Re4 Ha6
30. Df5 Ha2+ 31.
Kf1 Dh4 32. Df3
Ha1 33. Dg3
Staðan kom
upp í fyrri hluta
Íslandsmóts
Skákfélaga sem
fór fram í húsa-
kynnum B&L. Iv-
an Sokolov
(2.684) hafði svart
gegn Jóni
Garðari Viðarssyni (2.392).
33... Dh1+! 34. Ke2 Rxd3!
35. Rf6+ gxf6 36. Hxd3
De4 og hvítur gafst upp
enda staðan slæm.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
80 ÁRA afmæli. HelgiHafliðason, fyrrver-
andi málarameistari og
fiskkaupmaður, Hátúni 23,
Reykjavík, verður áttræður
á morgun sunnudaginn 10.
nóvember. Helgi býður vini
og vandamenn velkomna í
Borgartún 6 (Rúgbrauðs-
gerðin, 4. hæð) kl. 15–17 á
afmælisdaginn, en afþakkar
vinsamlegast allar gjafir og
blóm.
50 ÁRA afmæli. Dr.Guðmundur S.
Böðvarsson, deildarstjóri
jarðvísindadeildar Lawr-
ence Berkeley Laboratory,
Kaliforníu, verður 50 ára
mánudaginn 11. nóv. Í tilefni
af því tekur hann á móti
gestum í félagsheimili
starfsmanna Orkuveitu
Reykjavíkur, Elliðaárdal í
dag, laugardaginn 9. nóv.,
frá kl. 18–21.
BRÚÐKAUP Gefin voru
saman í borginni Tema í
Ghana 25. desember sl. af
séra Godwin Prince Ayivor
þau Innocentia Fiati og
Sævar Friðgeirsson.
80 ÁRA afmæli. Ámorgun, sunnudag-
inn 10. nóvember verður átt-
ræður Karl Elías Karlsson,
skipstjóri, Heinabergi 24,
Þorlákshöfn. Eiginkona
hans er Sigríður Jónsdóttir.
Í tilefni afmælisins taka þau
hjón á móti gestum að heim-
ili sínu á afmælisdaginn, frá
kl. 14–18.
70 ÁRA afmæli. Í dag,Laugardaginn 9.
nóvember, er sjötugur Finn-
bogi Kr. Arndal, Stórholti
21, Reykjavík Hann verður
með fjölskyldunni í sumar-
húsi í Borgarfirði um
helgina.
Peysur og pils
Bankastræti 11 • sími 551 3930
Til sölu á Selfossi
Til sölu nýbygging 125 fm parhús með innbyggðum bílskúr.
Fokhelt, einangrað og klætt að utan. Um er að ræða 2 hús.
Hægt að afhenda lengra komin.
Upplýsingar í símum 893 2348 og 564 3052
Námskeið í orkuheilun
Karina Becker frá hinum viðurkennda Barbara Brennan
School of Healing er komin aftur til landsins
Hún býður upp á tvö námskeið í orkuheilun
lau.-sun. 23.-24. nóv.: „Orkusvið mannsins“ og
lau.-sun. 30. nóv.-1. des.: „Hara-víddin“
frá kl. 10-17 í Heilsusetri Þórgunnu í Skipholti 50c, 4. hæð.
Hún býður einnig upp á einkatíma
Pantanir í síma 552 6625 og 861 3174.
Afmælisþakkir
Mínar innilegustu þakkir færi ég öllum þeim
sem glöddust með mér og sendu mér kveðjur á
80 ára afmæli mínu þann 26. september sl.
Guð blessi ykkur öll.
Ólöf Jóhannsdóttir, ljósmóðir,
Ljósheimum 6, Reykjavík.