Morgunblaðið - 09.11.2002, Page 80
80 LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FYRIRTÆKIÐ 1001 nótt var stofn-
að í vor og hefur vaxið von úr viti
síðan. Á heimasíðu fyrirtækisins
kemur fram: „Markmið fyrirtæk-
isins er að bjóða upp á úrvalsþjón-
ustu á öllum sviðum markaðsmála;
vettvang þar sem fjölbreytni í starfi
skilar framúrskarandi árangri í
allri markaðsvinnu, hvort sem er í
markaðssetningu fyrirtækja, stofn-
ana eða einstakra verkefna, hönnun
auglýsinga og markaðsefnis eða á
sviði afþreyingar og lista.“
Enga ríkisstyrki
„Ég sá um að setja upp Wake Me
Up ... fyrir verslunarskólann,“ segir
Samúel. „Ég stofnaði svo fyrirtækið
og fékk Sigurð, Vilhjálm og Jóhann-
es mér til aðstoðar og urðu þeir
starfsmenn fyrirtækisins. Villi er á
leiðinni utan núna og hefur því
kvatt okkur, í bili að minnsta kosti.
Jói er núna að klára Versló og er rit-
stjóri Verslunarskólablaðsins. Hann
vinnur hjá okkur í hlutastarfi með
skóla. Aðrir starfsmenn í fullu starfi
fyrir utan mig og Sigga eru Halla
Kristjánsdóttir og Bjarni Helgason.
Eftir Wake Me Up ... var alltaf verið
að biðja mann um að taka önnur
verkefni en svarið var alltaf nei. Svo
fóru verkefnin að verða æ áhuga-
verðari þannig að maður fór að sjá
spennandi tækifæri í þessu.“
Verkefnin eru þegar orðin ærin
en m.a. mun fyrirtækið gefa út fimm
geisladiska fyrir jólin; órafmagnaða
afmælisplötu með Nýdanskri, sálar-
tónlistardiskinn Higher Ground eða
„Svörtu plötuna“ eins og hún er
gjarnan kölluð, safnplötu Valgeirs
Guðjónssonar Skelli og smelli,
fyrstu plötu Þórunnar Antoníu og
svo jólaplötu með Íslensku dívunum.
Þeir félagar staðhæfa að það sé
alltaf pláss á útgáfumarkaðinum
fyrir þá sem hafa eitthvað bitastætt
fram að færa. „Það hefur tekið ótrú-
lega skamman tíma að byggja þetta
upp og við höfum stækkað alltof
hratt ef eitthvað er,“ segir Samúel.
„Við erum löngu búnir að sprengja
utan af okkur húsnæðið og höfum
engan tíma til að flytja. Það er alls
ekki eins mikið mál og margir halda
að stofna fyrirtæki.“
Hann segir það þó vera hark að
standa í þessum málum.
„Ég sagði þegar við skipulögðum
Quarashi-tónleikana í sumar að það
væri samfélagsþjónusta að standa
fyrir tónleikum á Ís-
landi. Við höfum aldrei
sótt styrki til ríkisins og
það ætlum við aldrei að
gera – erum gersamlega
á móti slíku. Ef fólk hef-
ur ekki áhuga á að
kaupa menningu þá á
hún ekki rétt á sér.
Markaðurinn hér gæti
vel borið sig ef það væri
ekki verið að gera svona
mikið. Það á ekki að
gefa út 120 plötur fyrir
jól, þær ættu að vera
svona um 40. Það er allt-
of mikið af fyrirtækjum sem eru að
gefa út og eru ekki að hugsa um að
lifa af þessu.“
Fáir titlar en góðir
Samúel segir að fyrirtækinu verði
skipt upp í þrjár sjálfstæðar ein-
ingar eftir áramót; markaðs-
fyrirtæki, hönnunarfyrirtæki og
framleiðslu- og útgáfufyrirtæki
(fyrirtæki sem mun starfa á flestum
sviðum skemmtunar, menningar og
lista).
„Skemmtistofan byrjaði sem hálf-
gert grín en nú er hún að stækka
mest. Við ætlum okkur ekki að
verða ný Skífa enda ber íslenski
markaðurinn ekki svona margar
plötur. Okkar metnaður liggur í að
gefa út fáa en góða titla.“
Í kvöld verða útgáfutónleikar
vegna áðunefndrar sálartónlistar-
plötu, Svörtu plötunnar. Þar flytja
m.a. Páll Rósinkranz, Stefán Hilm-
arsson og Margrét Eir sálarlög úr
ýmsum áttum ásamt stórsveit, sem
er undir styrkri stjórn Jóns Ólafs-
sonar. Fara tónleikarnir fram í
Loftkastalanum.
Markaðsfyrirtækið 1001 nótt lætur að sér kveða
Höfum stækkað allt of hratt
Samúel Kristjánsson,
eigandi og fram-
kvæmdastjóri, og
Sigurður Hjaltason
starfsmaður eru ný-
skriðnir yfir tvítugt.
Þeir uppfræddu Arn-
ar Eggert Thorodd-
sen um ört vaxandi
starfsemi 1001 nætur
sem m.a. gefur út 5
plötur fyrir jólin.
Sigurður Hrannar Hjaltason og
Samúel Kristjánsson í góðum gír.
arnart@mbl.is
TENGLAR
.....................................................
www.1001nott.is
Morgunblaðið/Kristinn
Alltaf á þriðjudögum
Það verður skorað
af krafti.
Besta breska gamanmyndin
síðan „Bridget Jones’s Diary.“
Gamanmynd sem sólar þig
upp úr skónum.
Sýnd kl. 3, 5 og 7. Vit 460
SK RadíóX
Sýnd kl. 1.40, 3.40, 5.50, 8, 9 og 10.10. Vit 461
Sýnd kl. 5.50, 8, 10.10 og 11.15. B. i. 16. Vit 471
Yfir 43.000
Bráðskemmtileg rómantísk gamanmynd sem hefur fengið frábærar viðtökur og er
nú þegar orðin vinsælasta mynd Reese Witherspoon frá upphafi vestanhafs.
Sýnd kl. 1.30. Vit 441.
Kvikmyndir.is
Stundum
er það
sem að þú
leitar að..
þar sem
þú skildir
það eftir.
1/2
Kvikmyndir.is
MBL
E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I PClint Eastwood,
Jeff Daniels og
Anjelica Huston
í mögnuðum
spennutrylli sem
skilur áhorfandann
eftir agndofa.
AUK
ASÝ
NING
kl.
9
AUK
ASÝ
NING
kl.
11.1
5
Sýnd kl. 2 og 4. Ísl tal. Vit 429
Sýnd kl. 3.50 og 8. B.i. 14.
Sýnd kl. 4.
Sýnd kl. 2 og 4.
Yfir 45.000 áhorfendur
12 Tilnefningar til Eddu verðlaunanna.
Tilnefnd í öllum flokkum12
WITH
ENGLISHSUBTITLESAT 5.45
FYRSTI OG SKELFILEGASTI KAFLINN
Í SÖGU HANNIBAL LECTER.
Kvikmyndir.com
HK DV
SV Mbl
SK RadíóX
1/2
Kvikmyndir.is
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. Bi. 16.
anthony
HOPKINS
edward
NORTON
ralph
FIENNES
1/2
HJ. MBL
"Frábær heimildarmynd, tvímælalaust í hópi þess
áhugaverðasta sem gert hefur verið á þessu
sviðI á Íslandi"
SG DV
„Vel gerð og
bráðskemmtileg“
Sýnd kl. 6 og 8.
1 Tilnefning til Eddu
verðlaunanna.
Tilnefnd sem besta
heildarmyndin
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 16.
Sýnd kl. 2 og 6. B.i. 12.
Clint Eastwood,
Jeff Daniels og
Anjelica Huston
í mögnuðum
spennutrylli sem
skilur áhorfandann
eftir agndofa.
Sýnd kl. 3, 5.45 með enskum texta,
8 og 10.10. B.i. 12.
Sýnd kl. 10.10. B.i. 16.
Mbl Kvikmyndir.com