Morgunblaðið - 20.11.2002, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 20.11.2002, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 272. TBL. 90. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2002 mbl.is Meiri djass frá Jóel Framúrstefnudjass á daginn, sinfónían á kvöldin Fólk 57 Rómeó og Júlía frumsýnd í kvöld Listir 26 Ljóðið er eilíft Sextánda ljóðabók Þorsteins frá Hamri Bækur 4 Nýtt bílablað Lækkandi vextir og meiri bjart- sýni á framtíðina hefur komið bílasölunni á hreyfingu og fer salan jafnt og þétt vaxandi. Nýtt bílablað fylgir blaðinu í dag og bílaáhugamenn binda miklar vonir við. Í þessu fyrsta tölublaði er athyglisverð auglýsing frá einu bílaumboði en vegna ótrúlegrar sölu á nýjum bílum Brimborgar undanfarið hefur umboðið úrval notaðra bíla á sérstöku jólaverði til 1. des. Fólk vill góða bíla fyrir jólahátíðina. Til að auðvelda kaupin er fjölskyldubíllinn tekinn upp í og fólki hjálpað við að fjár- magna mismuninn á lækkuðu verði jólabílsins. auglýsing HAGNAÐUR Flugleiða á fyrstu níu mánuðum ársins nam 3,3 milljörðum króna eftir skatta. Það er 2,9 milljörðum króna betri afkoma en á sama tímabili í fyrra, þegar hagnaðurinn nam 385 millj- ónum króna. Aðspurður hvort þessi rekstrarbati valdi því ekki að erlend flugfélög sjái sér ef til vill aukinn hag í að fljúga til og frá landinu, segir Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, að félagið sé ávallt viðbúið aukinni samkeppni. „Millilandaflug er reyndar aðeins ein eining innan Flugleiða, stærsta einingin þó, með 55–60% starfseminnar. Afkoma millilandaflugsins var mjög góð. Við er- um stöðugt að búast við því að hingað komi erlend flugfélög; reyndar höfum við heyrt tilkynningar þess efnis. Markaðurinn er algjörlega opinn og við erum tilbúin í slaginn hvenær sem er,“ segir hann, „jafnvel enn reiðubúnari en áður, þar sem við höfum náð að lækka kostnað umtalsvert.“ Rekstrarkostnaður lækkar mikið Sigurður segir að rekstrarkostnaður Flugleiða sé nú með því lægsta sem þekkist í áætlunarflug- rekstri í Evrópu. „Við teljum okkur hafa staðið okkur mjög vel í samkeppninni. 75% af tekjum í millilandaflugi Flugleiða koma erlendis frá, en 25% myndast á íslenska markaðinum,“ segir hann. Auk þess sem kostnaður lækkaði um 9,2% á milli ára hækkuðu tekjur um 2,8%. Rekstrartekj- urnar námu 31,6 milljörðum króna, en voru tæp- lega 30,7 milljarðar í fyrra. Rekstrargjöldin lækk- uðu úr 29,9 milljörðum fyrstu níu mánuði ársins 2001, í 27,1 fyrstu níu mánuði ársins 2002. Segir Flugleiðir ávallt vera viðbúnar meiri samkeppni  Tekjur hækka/14 Afkomubati Flugleiða 2,9 milljarðar króna fyrstu níu mánuði ársins AÐ MINNSTA kosti 6.000 tonn af olíu fóru í hafið undan norðvestur- strönd Spánar í gær þegar olíuskipið Prestige sökk þar eftir að hafa liðast í sundur. Nær 70.000 tonn af olíu eru enn í Prestige og leki hún öll úr skipinu verður mengunin tvöfalt meiri en frá olíuskipinu Exxon Valdez úti fyrir strönd Alaska árið 1989 í einu mesta umhverfisslysi sögunnar. Hætta talin á miklu um- hverfisslysi La Coruna. AP.  70.000 tonn af olíu/18 Reuters Stafn olíuskipsins Prestige sekkur. FULLTRÚAR ríkisins og Lands- samband eldri borgara undirrituðu í gær samkomulag sem felur í sér hækkanir á almannatryggingum og breytingar á skipulagi öldrunar- þjónustu. Þessar breytingar koma til framkvæmda á næstu tveimur til þremur árum. Á næsta ári munu útgjöld ríkisins vegna greiðslna í lífeyristrygginga- kerfið aukast um 1,6 milljarða króna og um einn milljarð 2004, en innifaldar í útgjöldunum eru breyt- ingar á bótum öryrkja sem taka sömu breytingum og samið var um við Landssamband eldri borgara. Árlegur kostnaður ríkissjóðs vegna aðgerðanna er áætlaður fimm millj- arðar þegar þær verða að fullu komnar til framkvæmda árið 2005. Geir H. Haarde fjármálaráðherra segist telja að með þessu sé veru- lega komið til móts við aldraða og þá sem lægstar hafa tekjur. Fyrir hvern og einn sem njóti trygginga- bóta muni tekjur hækka um 8–14 þúsund krónur á mánuði. Starfshópi, sem skipaður var til að fjalla um málefni aldraðra, var einnig ætlað að fjalla um uppbygg- ingu hjúkrunarheimila og þjónustu við aldraða með það að markmiði að stytta biðlista og bæta þjónustu. Heimaþjónusta verði efld Ríkisstjórnin hefur þegar fjallað um tillögurnar og samþykkt að beita sér fyrir því að þær nái fram að ganga. Í álitsgerð starfshópsins er lagt til að tryggðar tekjur bótaþega verði hækkaðar og að dregið verði úr jaðaráhrifum tekjutenginga. Hækkun bótanna verði umfram hækkun á greiðslum Trygginga- stofnunar ríkisins sem svarar al- mennum umsömdum launahækkun- um í upphafi næsta árs og getið er um í fjárlagafrumvarpi. Starfshópurinn leggur til að heimaþjónusta við aldraða verði efld verulega frá því sem nú er með það að markmiði að aldraðir geti dvalið sem lengst utan stofnana. Þá er lagt til að húsnæði Vífilsstaða- spítala verði tekið í notkun hið allra fyrsta til að tryggja að hjúkrunar- sjúklingar komist af sjúkrahúsum í aðstæður sem henta þörfum þeirra betur. Benedikt Davíðsson, formaður Landssambands eldri borgara, seg- ir að með samkomulaginu hafi náðst viðunandi áfangi í baráttu eldri borgara fyrir bættari kjörum og hann fagnar því að Landssamband- ið hafi fengið að koma að tillögu- gerðinni frá upphafi. Ólafur Ólafsson, formaður Félags eldri borgara í Reykjavík, segir að verulega sé komið til móts við aldr- aða með því að draga úr bili milli ellilauna og launaþróunar og sér sýnist sem hægt verði að brúa það bil á næstu tveimur árum. Tekjur ellilífeyrisþega hækka um 8–14 þúsund GARÐAR Sverrisson, formaður Öryrkjabandalags Ís- lands, segist ánægður með samkomulag um hækkanir á greiðslum almannatrygginga sem muni gagnast ör- yrkjum talsvert betur en öldruðum, einkum þeim sem ekkert hafa nema bætur almannatrygginga. Þá sé liðkað fyrir um möguleika til að afla viðbótar- tekna með því að falla frá 67% skerðingu tekjutrygg- ingarauka. „Þetta er virðingarvert og sterk vísbending um að það hafi myndast gagnkvæmur skilningur á þeim vanda sem við er að glíma. Það er ekki lengur sá gríðarlegi ágreiningur sem var milli Öryrkjabanda- lagsins og ríkisstjórnarinnar um að þetta væri yfir höf- uð vandamál,“ segir hann. Hann segir um samkomu- lagið að hann hafi vitað hvað var í vændum þótt formlegur fundur milli Öryrkjabandalagsins og full- trúa ríkisins hafi ekki átt sér stað. Morgunblaðið/Þorkell Fagnar skilningi á vanda öryrkja AMRAM Mitzna, borgarstjóri Haifa, sigraði í leiðtoga- kjöri Verkamanna- flokksins í Ísrael í gær. Mitzna er hlynntur því að Ísraelar hefji frið- arviðræður við Palestínumenn án skilyrða. Mitzna fékk 54% atkvæðanna og núverandi leiðtogi flokksins, Bin- yamin Ben-Eliezer, 37%, samkvæmt síðustu tölum í gærkvöldi. Miðju- maðurinn Haim Ramon fékk aðeins 7% atkvæðanna. Amram Mitzna Jerúsalem. AFP.  Vill að Ísraelar/18 Friðarsinni sigurvegari ♦ ♦ ♦ Ástarsaga allra tíma Öryrkjar fá sömu hækkun og ellilífeyr- isþegar  Mun kosta/11 Davíð Oddsson forsætisráðherra og Ólafur Ólafsson, formaður Félags eldri borgara, handsala samkomulagið í Ráðherrabústaðnum. Að baki þeim standa ráðherrarnir Geir Haarde, Guðni Ágústsson og Jón Kristjánsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.