Morgunblaðið - 20.11.2002, Síða 15
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2002 15
LÍF hf., sem áður hét Lyfjaverslun
Íslands, hefur keypt 51,64% eignar-
hlut í lyfjafyrirtækinu Ilsanta UAB í
Litháen. Fyrir átti Líf 26,06% eign-
arhlut í fyrirtækinu þannig að heild-
areignarhlutur Lífs í Ilsanta er nú
77,70%. Kaupverðið miðast við að
heildarverðmæti Ilsanta sé 2 millj-
ónir evra og er kaupverð hlutanna
því um 89 milljónir króna. Líf gerði
öðrum hluthöfum Ilsanta sambæri-
legt tilboð í þeirra hluti sem þeir
höfnuðu.
Ilsanta var stofnað árið 1993, m.a.
af Lyfjaverslun Íslands, sem þá var í
eigu íslenska ríkisins. Ilsanta hefur
framleitt dreypilyf frá árinu 1995. Í
tilkynningu frá Líf segir að sú fram-
leiðsla hafi ekki staðið undir sér og
verði verksmiðju fyrirtækisins lokað
um næstu áramót og hún seld ásamt
2.400 fermetra fasteign þess. Eftir
lokun verksmiðjunnar mun Ilsanta
stunda svipaða starfsemi og dóttur-
félög Lífs á Íslandi, en Ilsanta er
tólfta dótturfélag samstæðunnar.
Ilsanta hefur gert samning við
dreypilyfjaframleiðandann Fresen-
ius Kabi um einkarétt á að markaðs-
setja og dreifa vörum framleiðand-
ans í Eystrasaltslöndunum. Svipaðir
samningar hafa verið gerðir við
nokkur minni lyfjafyrirtæki. Jafn-
framt lyfjum mun Ilsanta einbeita
sér að sölu hjúkrunarvara, tækja-
búnaðar fyrir sjúkrahús og heilsu-
tengdra neytendavara.
Áætluð velta Ilsanta á næsta ári
er um 500 milljónir króna og segir í
tilkynningunni að nú þegar sé farin
af stað vinna hjá Líf sem miði að því
að auka þessa veltu enn frekar.
Vanmat vegur upp ofmat
Heildarverðmæti eignarhluta Lífs
í öðrum félögum er eignfært í bók-
um félagsins á tæpar 295 milljónir
króna fyrir framangreind kaup. Þar
af er sá 26,06% eignarhluti sem Líf
átti í Ilsanta fyrir kaupin eignfærður
á ríflega 150 milljónir króna. Miðað
við það verðmat sem framangreind
viðskipti miðast við væri verðmat
hlutarins um 45 milljóna króna virði.
Í tilkynningunni segir að þrátt fyrir
að markaðsvirði einstakra eignar-
hluta í öðrum félögum, eins og Ils-
anta í þessu tilviki, sé lægra en bók-
fært virði þeirra telji félagið að
vanmat eignarhluta í öðrum fé-
lögum, einkum Lyfjaþróunar hf. sé
meira en ofmat annarra eignarhluta.
Reiknað er með því að í ársreikn-
ingi fyrir árið 2002 verði bókfært
virði eignarhlutar Lífs hf. í Ilsanta
UAB endurskoðað í samræmi við
fyrirliggjandi verðmat.
Hagnaður Lífs 205 milljónir
Hagnaður Lífs var 205 milljónir
króna fyrstu níu mánuði þessa árs. Á
sama tímabili í fyrra nam tap af
rekstri félagsins um 21 milljón.
Meginskýringin á bættri afkomu fé-
lagsins er að fjármunatekjur um-
fram fjármagnsgjöld á fyrstu níu
mánuðum þessa árs námu 154 millj-
ónum króna en þessi liður var nei-
kvæður um 179 milljónir á síðasta
ári.
Rekstrartekjur og rekstrargjöld
jukust um 7% milli ára. Tekjur tíma-
bilsins námu 4.973 milljónum króna
og rekstrarkostnaður 4.885 milljón-
um. Hagnaður fyrir afskriftir og
fjármagnsgjöld, EBITDA, var 235
milljónir á tímabilinu. Afskriftir juk-
ust úr 103 milljónum fyrstu níu mán-
uði 2001 í 137 milljónir árið 2002, og
segir í tilkynningu félagsins frá því í
gær að þetta stafi aðallega af aukn-
um afskriftum á viðskiptavild vegna
kaupa félagsins á A. Karlssyni hf. og
Thorarensen Lyfjum hf. Rekstrar-
hagnaður fyrir fjármagnsliði nam 99
milljónum króna. Hagnaður fyrir
skatta nam 252 milljónum króna.
Líf með 78% hlut í
Ilsanta í Litháen
alltaf á föstudögum
OLGEIR Kristjónsson stjórnarfor-
maður EJS og forstjóri þess frá
1991–2002 hefur látið af störfum hjá
félaginu að eigin ósk.
Kemur þessi ákvörðun hans í kjöl-
far skipulagsbreytinga sem gerðar
voru í maí síðastliðnum, þegar hann
lét af starfi forstjóra og tók við
stjórnarformennsku.
Við stjórnarformennsku af Olgeiri
tekur Örn Andrésson, en hann hefur
setið í stjórn EJS frá árinu 1991.
EJS rekur upphaf sitt til ársins 1939,
en lengi vel starfaði félagið undir
nafni stofnandans, Einars J. Skúla-
sonar.
Hjá EJS starfa nú 220 manns.
Olgeir Krist-
jónsson hættir
sem stjórnarfor-
maður EJS
Útgefandi Lífís trygginga er Líftryggingafélag Íslands hf.
www.lifis.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
4
5
2
4
Ł
Líftryggingar á yfir 100 þjónustustöðum
Ráðgjöf og sala á líftryggingum frá Lífís í útibúum VÍS og Landsbankans um allt land
Í næsta Landsbanka eða skrifstofu VÍS
getur þú nú hitt tryggingaráðgjafa og
gengið frá tryggingamálum þínum.
Þér stendur til boða hefðbundin líftrygging, sjúk-
dómatrygging og/eða söfnunarlíftrygging — sem
sameinar reglubundinn sparnað og líftryggingu. Það
er stutt í eitthvert hinna rúmlega 50 útibúa Lands-
bankans eða 60 afgreiðslustaða VÍS um land allt þar
sem tryggingaráðgjafi Lífís fer yfir með
þér hvernig þú færir þér og þínum tryggari
framtíð. Hikaðu ekki við að
hafa hlutina í lagi! Nánari upplýs-
ingar í síma 560 5000 eða á
www.lifis.is.
Tryggðu fjárhagslegt öryggi þitt og
þinna nánustu.
Þjónustuver sími 560 5000Þjónustuver sími 560 6000