Morgunblaðið - 20.11.2002, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 20.11.2002, Qupperneq 25
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2002 25 www.ef.is Skoðaðu þessa frábæru pönnu! Fást grunnar eða djúpar og sem grillpönnur. 24-26-28-30 sm. Feitislaus steiking. Hagstætt verð! 3 viðurk enningar „Frábær“ hjá þýskum neytenda samtöku m Besta steikarpannan í Evrópu.... samkvæmt dómi þýskra neytendasamtaka NÝLEGA fór fram úthlutun menn- ingarstyrkja til ungs fólks á Austur- landi. Á Fosshóteli á Reyðarfirði voru mætt menntamálaráðherra Tómas Ingi Olrich, menningarfulltrúi Aust- urlands Signý Ormarsdóttir og fulltrúar ungs fólks í fjórðungnum. Þessi styrkveiting Menningarráðs Austurlands er hluti af samstarfs- verkefni menntamálráðuneytis og Sambands austfirskra sveitarfélaga. Veittir voru 17 styrkir, samtals að upphæð 1,5 milljónir króna, til mis- munandi verkefna bæði á vegum ein- staklinga og félagasamtaka. Hæstu styrki fengu LungA-Grobb Seyðis- firði, listahátíð ungs fólks „Grobb kvöld“ í framhaldsskólum á Austur- landi 200.000 kr. og áhugafólk um menningar og listviðburði í Fjarða- byggð, vinna með ungmennum í óhefðbundnum hljóðfæraleik og tón- listarsköpun með Gunnari Franssyni fékk 150.000 kr. Einnig fengu styrki Minjastofnun Austurlands, Gunnars- stofnun, leikfélög, skólar, útgáfufélög bóka og geisladiska, skáld o.fl. Ekki voru allir mættir sem tilnefn- ingar fengu, m.a. mætti Grýla ekki til að sækja sínar 50.000 kr. Hefur henni ekki litist á þennan glæsilega hóp ungs fólks og ekki talið sig eiga erindi sem erfiði á þessa samkomu og var það gestunum mikill léttir. En ræningjarnir Kasper, Jesper og Jónatan ruddust fram og hrifsuðu til sín 100.000 kr. án þess að nokkur gæti stoppað þá. Síðan sungu þeir eins og þeim einum er lagið um þá al- þekktu óreiðu sem ríkir á þeirra heimili og ekki virðist hægt að laga. Allt fór þetta vel og lauk samkom- unni með súkkulaði og kökum sem gestir gerðu góð skil. Menningarráð út- hlutar styrkjum Reyðarfjörður Morgunblaðið/Hallfríður Bjarnadóttir Inga Mekkin tekur við styrki tónlistarfólks í Fjarðabyggð. Á myndinni eru einnig Signý Ormarsdóttir menningarfulltrúi og Tómas Ingi Olrich. Á DÖGUNUM voru sett upp gangbrautarljós við Inn- nesveg á Akranesi og er markmiðið að auka öryggi nemenda úr Grundaskóla sem fara yfir götuna margoft á hverjum degi á leið sinni í sund eða íþróttir. Undanfarin ár hafa eldri nemendur skólans tekið að sér gangbrautavörslu við skólann á álagstímum en nú hefur tæknin og rauði og græni kallinn tekið við hlut- verki þeirra við Innnesveg. Ekki er laust við að ferðum nemenda yfir götuna hafi fjölgað eftir að umferðarljósin voru sett upp en Marvin Þrastarson, Maren Leósdóttir, Elísa Svala Elvarsdóttir og Kristrún Skúladóttir úr 3. bekk biðu spennt eftir græna kallinum á dögunum er þau voru á leið yfir göt- una eftir íþróttatíma. Morgunblaðið/Sigurður Elvar Beðið eftir græna kallinum Akranes ÞINGEYINGAKÓRINN var með tvenna tónleika á dögunum, þá fyrstu í sögu kórsins á heimaslóðum. Fyrri tónleikarnir voru í Þorgeirskirkju við Ljósavatn og þeir síðari í Húsavík- urkirkju. Það var vel var mætt í kirkj- una á Húsavík og hlýddu gestir á létta og skemmtilega efnisskrá kórsins þar sem þingeyskir laga- og textahöfund- ar voru í fyrirrúmi. Ekki var annað að sjá og heyra af undirtektum við- staddra en að þeim líkaði vel það sem kórinn hafði upp á að bjóða. Stjórnandi kórsins er Kári Frið- riksson, tónmenntakennari frá Helgastöðum í Reykjadal, og undir- leikari Arngerður María Árnadóttir, frá Öndólfsstöðum í sömu sveit. Þor- bergur Skagfjörð Jósefsson söng ein- söng með kórnum auk þess sem hann og Kári sungu tvísöng. Kári stofnaði kórinn árið 1999 og samanstóð hann þá af 12–15 manns en hefur nær þrefaldast að stærð síð- an þá. Kórinn er blandaður kór brott- fluttra Þingeyinga og annars söng- fólks sem býr á höfuðborgarsvæðinu. Kórinn hefur haldið vortónleika í Reykjavík á hverju ári frá stofnun, sungið á þorrablótum, jólatónleikum og fleiri samkomum á höfuðborgar- svæðinu. Morgunblaðið/Hafþór Þingeyingakórinn á heimaslóðum Húsavík NÍTJÁNDA Bónusverslunin opnaði á Egilsstöðum um helgina. Jóhann- es Jónsson stofnandi verslunar- innar opnaði hana formlega og gaf við það tækifæri hálfa milljón króna til Sjúkrahússins á Egils- stöðum. Sagði Jóhannes peningana ætl- aða til þess að bæta aðbúnað og vel- líðan aldraðra á sjúkrahúsinu. Halla Eiríksdóttir hjúkrunarfor- stjóri tók við gjöfinni fyrir hönd Sjúkrahússins. Forsvarsmenn Bónuss segja að vöruverðið á Egilsstöðum sé hið sama og í öðrum Bónusverslunum landsins og vonast til að Austfirð- ingar nýti sér verslunina. Lofa sama vöruverði og í Reykjavík Egilsstaðir Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Það var handagangur í öskjunni þegar Bónus var opnað á Egils- stöðum um helgina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.