Morgunblaðið - 20.11.2002, Síða 27

Morgunblaðið - 20.11.2002, Síða 27
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2002 27 SYSTURNAR Signý Sæmunds- dóttir sópransöngkona og Þóra Fríða Sæmundsdóttir píanóleikari koma fram á 2. áskriftartónleikum Tónlistarfélags Ísafjarðar í Hömr- um annað kvöld. Tónleikarnir hefj- ast kl. 20.30 og flytja þær ljóða- söngva eftir Franz Liszt, Hugo Wolf, E. Chausson og Tryggva Baldvinsson auk nokkurra enskra gamansöngva. Áskriftarkort félaga í Tónlistar- félaginu gilda á tónleikana, en einn- ig verða seldir miðar við innganginn á kr.1.500, en ókeypis er fyrir skóla- nema, 20 ára og yngri. Signý hefur verið áberandi í ís- lensku tónlistarlífi undanfarinn ára- tug og tekið þátt í óperuupp- færslum Íslensku óperunnar og Þjóðleikhússins og leikið með Sin- fóníuhljómsveit Íslands. Ennfremur hefur hún verið gestur á fjölmörg- um tónlistarhátíðum, hérlendis og erlendis. Þóra Fríða hefur starfað sem pí- anóleikari og kennari í Reykjavík. Hún hefur tekið þátt í ýmiss konar tónleikum og leikið í útvarp og sjón- varp. Ljóðasöngv- ar í Hömrum Þóra Fríða Sæmundsdóttir Signý Sæmundsdóttir Á HÁSKÓLATÓNLEIKUM í Nor- ræna húsinu í hádeginu í dag kl. 12.30 leika Lín Wei á fiðlu og Anna Guðný Guðmundsdóttir á píanó fiðlusónötu nr. 1 í A-dúr eftir Gabr- iel Fauré. Aðgangseyrir er 500 kr. en ókeypis er fyrir handhafa stúd- entaskírteina. Lín Wei og Anna Guðný. Fauré leikinn í hádeginu STÚDENTALEIKHÚSIÐ frum- sýndi leikritið Íbúð Soju eftir Mikhaíl Búlgakov sl. fimmtudag í Vesturporti. Önnur sýning er í kvöld kl. 21. Leikritið var skrifað á árunum 1927 til 1935 en hefur aldrei fyrr verið sett upp á Íslandi. Það gerist á seinni hluta þriðja áratugarins en er þó tímalaust og hefur samfélags- lega skírskotun enn þann dag í dag. Leikstjóri er Bergur Þór Ingólfsson og þýðandi verksins er Þórarinn Kristjánsson sem þýddi það beint úr frummálinu. Vann til verðlauna á síðasta ári Stúdentaleikhúsið er áhugaleik- félag ungs fólks. Vorið 2001 vann það til verðlauna með leikritinu Ungir menn á uppleið sem þá var valin besta áhugaleiksýningin. Leikstjóri þá var einnig Bergur Þór Ingólfsson. Verkið fjallar um Soju sem ákveður að stofna saumastofu en hin svokallaða saumastofa hefur þann vafasama tilgang á kvöldin að sýna „flegna undirkjóla“ við tónlist- arspil. Á saumastofunni verður mikið líf, fjör og koma við sögu ást- ir, afbrýðisemi, peningar og dauði. Næstu sýningar eru á fimmtu- dagskvöld, sunnudagskvöld og mið- vikudagskvöld kl. 21. Leikritið Íbúð Soju í Stúdenta- leikhúsinu Hannes Óli Ágústsson í hlutverki sínu í leikritinu Íbúð Soju. ÞEIR hafa það fyrir satt tónlist- arsagnfræðingar, að Mozart hafi sótt ýmislegt til J. Chr. Bachs, jafn- vel einstaka stef en einnig ýmislegt úr píanókonsertum Johanns. Þenn- an skyldleika í „stile galante“ rit- hætti mátti heyra í fyrsta viðfangs- efni Camerartica-hópsins á Tíbrár- tónleikum Salarins sl. sunnudags- kvöld, sem var kvartett fyrir flautu og strengi, op. 19, nr. 3, eftir J. Chr. Bach. Þessir kvartettar, sem voru gefnir út eftir lát Johanns, eru frek- ar af léttari gerðinni, ætlaðir til heimabrúks en leikandi og lagræn tónlist, er var sérlega vel flutt og þá helst að nefna Hallfríði Ólafsdóttur, er fór fyrir hópnum, en með henni léku Hildigunnur Halldórsdóttir, Guðmundur Kristmundsson og Sig- urður Halldórsson. Annað viðfangsefni tónleikanna var klarinettukvartett op. 7, eftir Bernhard Crusell, finnsk-sænskan klarinettusnilling, sem svo mikið orð fór af að hann var „lánaður“ í fimm mánuði til óperunnar í París. Tímann notaði hann til að læra tón- smíði hjá Berton og Gossec. Klarin- ettukvartettinn er lipurlega samið verk, þar sem klarinettið er leið- andi í nær öllum köflunum og var verkið sérlega léttilega leikið af Camerartica-hópnum og þá ekki síst af „einleikaranum“ Ármanni Helgasyni. Lokaverkið á tónleikunum var G- dúr strengjakvintettinn op. 111, eftir Brahms og þá bættust í hópinn Sigurlaug Eðvaldsdóttir og gestur hópsins, Guðrún Þorsteinsdóttir á lágfiðlu. Þetta er stórbrotið verk og er fyrsti kaflinn sérlega erfiður en einmitt í þessum kafla var ýmislegt ekki fullunnið, enda þar í margt þungt fyrir hendi. Verkið hefst á sérkennilegum tremólum en stefið birtist í sellóinu. Annar kaflinn er tregafullur en vefur sig upp í sárs- aukafulla sorg. Um síðir hjaðnar þessi sársauki og þá birtist aftur upphafsstef kaflans, er var í heild einstaklega fallega fluttur. Skersó- ið, þriðji kaflinn, hefst á vals-stefi og í tríóinu gat að heyra fallegan víxlleik á milli fiðlnanna og lágfiðln- anna en einmitt lágfiðlan opnar lokakaflann með eins konar ung- verskri tataratónhugmynd. Þegar til alls er litið, var þetta glæsilega tónverk, sem sveiflast á milli sorg- legra tóntilþrifa og allt að því upp- gerðarglaðværðar, mjög vel flutt, sérstaklega þrír seinni kaflarnir og þar var best leikinn hægi þátturinn. Glaðværð og sorg TÓNLIST Salurinn Camerartica flutti verk eftir J, Chr. Bach, Bernhard Crusell og Johannes Brahms. Sunnudagurinn 17. nóvember, 2002. KAMMERTÓNLEIKAR Jón Ásgeirsson Húsi verslunarinnar og Glæsibæ Símar: 568 7305 - 568 5305

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.