Morgunblaðið - 20.11.2002, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 20.11.2002, Blaðsíða 30
                  '$("& ()* "& !     "    #    + "" "&  $ !, ( )* - " #. - /"00  " !,   2. 4" "    " MEÐAL þingfestra mála erkæra Geirs H. Haarde fjár-málaráðherra, fyrir höndríkisins, á hendur 21 eiganda 15 jarða í Bláskógabyggð til ógildingar á úrskurði óbyggðanefndar varðandi þjóð- lendumörk í Biskupstungnaafrétti og efstu löndum í Biskupstungnahreppi, nú Bláskógabyggð, eftir sameiningu við Laugardalshrepp og Þingvallahrepp. Einnig krefjast ógildingar á vissum hlut- um úrskurðanna sveitarfélagið Blá- skógabyggð, Skeiða- og Gnjúpverja- hreppur, Prestsetrasjóður og Afréttarmálafélag Flóa- og Skeiða- manna. Þar er Davíð Oddssyni forsætis- ráðherra og Geir H. Haarde stefnt fyrir hönd ríkisins. Þegar hefur verið þingfest í Héraðsdómi Suðurlands ein stefna Grímsnes- og Grafningshrepps á hendur ríkinu um eignarrétt á Skjaldbreið og landsvæði vestur og suðvestur af fjallinu. Óánægja meðal landeigenda Nokkurrar óánægja hefur gætt meðal bænda og annarra landeigenda í garð ríkisins fyrir að hafa krafist ógildingar á úrskurðum óbyggðanefndar. Á fjölmenn- um fundi Bændasamtakanna og landeig- anda sl. föstudag var samþykkt að skora á fjármálaráðherra að draga til baka all- ar kröfur ríkisins á hendur þinglýstum eigendum jarða, jafnt fyrir dómstólum sem óbyggðanefnd, og beita sér þess í stað fyrir sátt milli ríkis og landeigenda. Fjármálaráðherra var spurður um það á Alþingi á mánudag af Hjálmari Árna- syni þingmanni hvort hann teldi ástæðu til að breyta þjóðlendulögum þannig að vilji Alþingis kæmi þar betur fram. Hjálmar sagði að við setningu þjóðlendu- laga hefði vilji komið fram til þess að virða þinglýstar eignir landeigenda. Geir H. Haarde fjármálaráðherra svaraði því til að ekki þyrfti að breyta þjóðlendulögunum. Uppi væru ýmis þýð- ingarmikil lögfræðileg álitaefni sem vörðuðu m.a. gildi þinglýstra heimilda inn til hálendisins. Með þjóðlendulögum væri gerð tilraun til að leysa öll deilumál í eitt skipti fyrir öll. Besta leiðin til þess yrði að fá dómsniðurstöðu í Hæstarétti sem yrði fordæmisgefandi um næstu mál. Óbyggðanefnd hefur nú til meðferð- ar annars vegar A-Skaftafellssýslu og hins vegar V-Skaftafellssýslu og Rang- árvallasýslu. Öll þau sveitarfélög sem úrskurðir óbyggðanefndar frá marsl sl. náðu til stefna einnig ríkinu til greiðslu viðbót- armálskostnaðar fyrir nefndinni. Auk þeirra sveitarfélaga sem þegar hafa verið nefnd, gerir Hrunamannahreppur slíkt hið sama. Alls nema viðbótarkröfurnar tæpum 11 milljónum króna, en þegar hafa sveitarfélögin fengið greiddar 8,6 milljónir í málskostnað. Í svari Davíðs Oddssonar forsætisráðherra við skrif- legri fyrirspurn á Alþingi frá Gísla S. Einarssyni þingmanni kemur fram að tæpum 152 milljónum króna hefur verið varið úr ríkissjóði vegna þjóðlendumála frá árinu 1998. Dómstólar endurskoði mat nefnd- arinnar á sönnunarbyrði ríkisins Ríkið stefnir þinglýstum eigendum eftirtaldra jarða í Bláskógabyggð: Út- hlíðar I og II, Stekkholts, Hrauntúns, Austurhlíðar, Neðri-dals, Hellulands I og II, Tunguheiðar, Haukadals I-III, Tortu, Bryggju og Hóla. Þá er sveitarfélaginu Bláskógabyggð stefnt vegna afréttar í Biskupstungum. Ríkið telur að í „veiga- miklum atriðum“ hafi óbyggðanefnd ekki verið rétt að telja landsvæði til eignar- lands. Í stefnu á hendur landeigendum segir m.a.: „Einn megintilgangur málsóknar stefnanda [ríkisins] er að endurskoðað verði af dómstólum það mat óbyggða- nefndar að leggja alla sönnunarbyrði á stefnanda um að lönd innan merkja jarða séu ekki eignarlönd. Stefnandi fellst ekki á hvernig lýsingar úr Landnámu eru metnar í úrskurðinum með tilliti til þess, hvort þrætuland var numið eða ekki. Þá er ekki fallist á af hálfu stefnanda að veik- ar líkur á námi geti ráðið úrslitum. Stefn- andi fellst ekki á að gildi landamerkja- bréfa sé svo mikið sem úrskurðurinn ber með sér og hvernig hugtakið heimaland er skilgreint í úrskurði nefndarinnar, öndvert við annað land jarðar. Þá er ekki fallist á þann skilning óbyggðanefndar, að hefð geti verið frumstofnun landrétt- ar, þar sem stefnandi viðurkennir ein- ungis nám og lög.“ Ríkið er með sömu kröfulýsingarlínu í Bláskógabyggð og lögð var fyrir óbyggðanefnd, og sést á meðfylgjandi korti. Stefnuna byggir ríkið að nokkru leyti á Landnámu og Hæstiréttur er sagður margsinnis hafa stuðst við heim- ildir þaðan þegar skera hafi þurft úr um inntak eignarréttar. Í kröfulýsingu fjár- málaráðherra fyrir hönd ríkisins vegna Biskupstungnahrepps, nú Bláskóga- byggðar, er vísað í Landnámu og umfjöll- un fræðimanns um heimildir þaðan varð- andi landnámsmörk í hreppnum. Tveir landnámsmenn eru einkum sagðir hafa numið Biskupstungur, Eyfröður inn gamli og Ketilbjörn gamli. Einnig eru nefndir feðgarnir Þorbrandur Þorbjarn- arson inn óargi og Ásbrandur í Hauka- dal, sonur hans. Í stefnu ríkisins segir m.a.: „Því er haldið fram að ráða megi þá reglu af heimildum um landnám og því sem þekkt er um nýtingu sem fylgdi í kjölfarið, að hálendi, fjöll og öræfi hafi ekki verið numin til eignar og því virðast dómstólar hafa gert ríkari sönnunarkröfur um bein- an eignarrétt að slíku landi, en öðru landi á mörkum byggðar. Í þessu tilliti hefur Hæstiréttur litið til atriða eins og stað- hátta, víðáttu og gróðurfars. Stefnandi byggir á því að af löggjöf og dómum Hæstaréttar meg skipti miklu þeg jarða gagnvart óby Ríkið bendir ein riði skilji á milli lendna, en það er bókar hafi eig eignarland sitt en nefnist nú, hafi v lega af fjallskilastj „Svo skulu a sem að for Stefna Bláskóga inu snýst um þ óbyggðanefndar u varðar land sem s kirkjunum í Bisk frá árinu 1851. V fremur að „óskora að umræddu land en um er að ræða , Biskupstungnaafr lagið að á þeim úrs efnislegir ágallar. haldið fram að l standist ekki stjó dóms Hæstarétta sem kröfu ríkisin Landmannaafrétt m.a. í frumvarpi hafa skilið þennan að löggjafinn ge eignarrétti á svon almennum lögum. því fram í stefnun landnám sé ekki h Grágásar enn í f skulu almenninga hafa verið“. Bláskógabyggð fram að sú ákvö stjórnsýslunefnd, skurðarvald um e ekki stjórnarskrá sáttmála Evrópu. numið eignarrétt lýst heimildarskj gert með lögum eð Úrskurðum óbyggðanefndar um þjóð Með La að vopn landeig Þingfest verða í Héraðs- dómi Suðurlands í dag hið minnsta sex mál vegna úr- skurða óbyggðanefndar frá því í mars sl. um þjóð- lendur í uppsveitum Ár- nessýslu. Hér er um próf- mál að ræða sem gætu ráðið nokkru um framhald þjóðlenduúrskurða. Björn Jóhann Björnsson kynnti sér stöðu þjóðlendumála. 30 MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. NORÐMENN OG AUÐLINDAGJALD UMBÆTUR Í ÞÁGU ALDRAÐRA Samningur sá, sem fulltrúar rík-isstjórnar og Landssambandseldri borgara skrifuðu undir í gær um aðgerðir til þess að bæta hag aldraðra, markar ákveðin þátta- skil í þeim umræðum sem staðið hafa undanfarin misseri. Með samn- ingi þessum hefur ríkisstjórnin fall- izt á viss grundvallarsjónarmið í málflutningi talsmanna aldraðra á undanförnum misserum og kemur til móts við þau með myndarlegum og afgerandi hætti. Til marks um það um hve um- fangsmiklar ráðstafanir er að ræða er sú staðreynd að árlegur kostn- aður ríkissjóðs vegna þessa sam- komulags verður um 5 milljarðar króna, þegar samningurinn er að fullu kominn til framkvæmda á árinu 2005. Talsmenn aldraðra hafa ítrekað vakið athygli á því að ákveðinn hóp- ur eldra fólks búi við bágan hag. Með samkomulaginu, sem undirrit- að var í gær, eru tryggðar lágmarks- tekjur hækkaðar og dregið úr jað- aráhrifum tekjutengingar og kemur þessi hækkun til framkvæmda í tveimur áföngum. Þessi þáttur í að- gerðum ríkisstjórnarinnar nær einnig til öryrkja, ef rétt er skilið, og bætir hag þeirra að sama skapi. Hér er augljóslega um umtalsverða hækkun að ræða eins og fram kemur í Morgunblaðinu í dag. Þá er það athyglisverð nýjung að stjórnvöld stefna að því að heima- þjónusta við aldraða verði efld og að sú þjónusta, sem ýmist er veitt af ríki eða sveitarfélögum, verði sam- einuð undir einni sameiginlegri stjórn. Er það áreiðanlega til bóta. Þá er stefnt að verulegum umbót- um í stoðþjónustu við aldraða í formi dagvistunar og hvíldarinnlagna. Er gert ráð fyrir verulegri fjölgun dag- vistarrýma fyrir aldraða. Vífilsstaðir, sem nú standa auðir, verða teknir í notkun til bráðabirgða næstu 3–5 ár og þar komið fyrir hjúkrunarheimili fyrir aldraða, þar sem hægt verður að veita allt að 70 manns þjónustu. Hlutverki Framkvæmdasjóðs aldraðra verður breytt á þann veg að hans verkefni verði að greiða öldr- unarstofnunum húsnæðisframlag sem standi undir viðhaldskostnaði og verulegum hluta af fjárfesting- arkostnaði nýrra hjúkrunarheimila. Ennfremur er stefnt að því að fjölga hjúkrunarrýmum fyrir aldraða um 150–200 á næstu 2–3 árum. Athyglisverður er sá þáttur þessa samkomulags að tekið er undir hug- myndir um sveigjanleg starfslok og að almannatryggingalögum verði breytt á þann veg að fólk hafi af því ávinning að fresta töku lífeyris frá Tryggingastofnun ríkisins. Ekki fer á milli mála að hér er staðið vel að verki og tekið á helztu gagnrýnisatriðum í málflutningi talsmanna aldraðra. Það er fagnaðarefni að samkomu- lag hefur tekizt um þessi mikilvægu málefni. Auðvitað er ljóst að félaga- samtök aldraðra líta á þennan samn- ing fyrst og fremst sem áfanga á leið til bættra lífskjara fyrir aldraða. Hins vegar er ekki ólíklegt að í framtíðinni verði litið svo á að hér hafi orðið ákveðin þáttaskil og að um sé að ræða sáttargjörð á milli aldr- aðra og samfélagsins. Þjóðfélag sem hugsar ekki vel um aldraða þegna sína er vont þjóð- félag. Og það er auðvitað til skamm- ar ef einhver hópur aldraðra býr við fátæktarmörk. Með samningnum, sem undirritaður var í gær, er vænt- anlega stefnt að því að koma í veg fyrir það. Í peningaflóði undanfarinna ára hefur það stundum gleymzt að sú kynslóð, sem hefur verið að komast á eftirlaun á undanförnum árum, er kynslóð sem nýtur ekki nema að tak- mörkuðu leyti góðs af þeirri miklu uppbyggingu lífeyrissjóðanna sem orðið hefur á síðustu tæpum tveimur áratugum eftir að verðtrygging kom til sögunnar. Þeir sem fara á eft- irlaun að áratug liðnum munu búa við mun betri eftirlaunakjör en nú- verandi kynslóðir eftirlaunafólks. Þegar á heildina er litið er ljóst að með þessu samkomulagi hefur náðst mikilvægur áfangi í baráttu aldr- aðra fyrir bættum kjörum og því hlýtur allur almenningur að fagna. Hugleiðingar norska sjávarút-vegsráðherrans um auðlinda- gjald í norskum sjávarútvegi, sem Morgunblaðið skýrði frá í gær, eru athyglisverðar. Er ljóst að svipuð staða er komin upp í Noregi og við Ís- lendingar kynntumst fyrir nokkrum árum. Í ræðu, sem Svein Ludvigsen, sjáv- arútvegsráðherra Noregs, flutti fyrir skömmu, sagði hann m.a.: „Þegar fjallað er um auðlindagjald og sölu fiskiskipa með veiðiréttindi á háu verði, verður að finna leið til þess að norskur almenningur njóti þeirrar verðmætasköpunar sem við það verð- ur. Ég mun nú setja af stað umræður um það hvort innheimta beri auð- lindagjald. Það er ljóst að þær um- ræður verða mjög mikilvægar.“ Þetta er mjög þroskuð afstaða hjá norska sjávarútvegsráðherranum en varla kemur það okkur Íslendingum á óvart að þetta mál komi upp í Nor- egi. Það hlýtur óhjákvæmilega að koma upp hvar sem kvótakerfi er tekið upp í fiskveiðum. Ekki fer á milli mála að við Íslend- ingar erum að mörgu leyti frum- kvöðlar á þessu sviði þótt Nýsjálend- ingar hafi vissulega rutt brautina. Víðtækar umræður hér um margra ára skeið hafa skýrt álitamálin í þessu samhengi og rökin með og á móti. Það verður fróðlegt fyrir okkur að fylgjast með framvindu umræðna í Noregi en auðlindagjald kemur til framkvæmda hér að tæpum tveimur árum liðnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.