Morgunblaðið - 20.11.2002, Síða 38

Morgunblaðið - 20.11.2002, Síða 38
UMRÆÐAN 38 MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ARNÞÓR Garðarsson, Gísli Már Gíslason, Ragnhildur Sig- urðardóttir og Þóra Ellen Þór- hallsdóttir hafa beðið Morgun- blaðið um birtingu á eftirfarandi vegna umræðna undanfarið um Norðlingaölduveitu: Mat á umhverfisáhrifum er gert í þeim tilgangi að upplýsa og mæla raunveruleg áhrif fram- kvæmda. Matið nær ekki tilgangi sínum ef mikilvægum atriðum er sleppt, ef niðurstöður eru settar fram með misvísandi hætti og vísindamenn eru beittir þrýstingi í þeim tilgangi að fá fram hag- felldari niðurstöður fyrir fram- kvæmdaaðila. Þetta ætti ekki að vera ágreiningsefni. Að undanförnu hefur talsvert verið rætt um hvort mat á um- hverfisáhrifum áformaðrar Norð- lingaölduveitu í Þjórsárverum hafi farið fram með þeim hætti að tilgangi þess hafi verið náð. Við fjögur sem þessa grein ritum höfum tekið þátt í þessari um- ræðu þar sem við höfum haft ým- islegt við vinnubrögð, efnistök og framsetningu upplýsinga að at- huga. Við komum að þessu máli sem sjálfstæðir vísindamenn en ekki sem hópur, enda voru at- hugasemdir okkar og sjónarhorn af ólíkum toga þótt öll bæru þau að sama brunni. Nú hafa farið fram víðtæk skoðanaskipti um þetta mál í fjölmiðlum. Það er von okkar að sú umfjöllun hafi varpað ljósi á það sem við teljum að kunni að hafa verið alvarlegir misbrestir í matinu, og hafi hugs- anlega valdið því að niðurstaða Skipulagsstofnunar varð önnur en ella hefði orðið. Skýrslur Tvenns konar skýrslur eru lagðar fram við mat á umhverfis- áhrifum: skýrslur sérfræðinga um einstaka þætti málsins og yf- irlitsskýrsla sem á að gefa heild- stæða og trúverðuga mynd af framkvæmdinni og áhrifum hennar. Yfirlitsskýrslan byggist á því sem fram kemur í sérfræði- skýrslum. Það er mikilvægt að niðurstöður sérfræðinga komi fram í yfirlitsskýrslu. Séu rit- stjórar hennar ósammála þeim, ber ritstjórum að greina frá því og færa fram rök fyrir öðru áliti. Gagnrýnin Gagnrýni okkar var af ólíkum toga og var sett fram á ýmsum stigum matsferlisins. Arnþór Garðarsson, dýrafræð- ingur og prófessor, gagnrýndi að lýsingum á niðurstöðum rann- sókna á fuglalífi í yfirlitsskýrslu bar ekki saman við rannsókn- arskýrslu. Orðaval var með þeim hætti að ætla mátti að áhrif væru minni en niðurstöður rannsókna hans höfðu gefið til kynna. Rit- stjórn matsskýrslu gat ekki vísað í rannsóknir sem sýndu að áhrif- in væru önnur en rannsókn Arn- þórs hafði gefið til kynna. Gísli Már Gíslason, vatnalíf- fræðingur og prófessor, taldi að áhrif lóns á lífríki tjarna og lindáa væru meiri og víðtækari en gefið var til kynna yfirlits- skýrslu. Þar kom ekki fram að með Norðlingaölduveitu yrðu stærstu lindár sem eftir eru í Þjórsárverum settar að hluta eða öllu leyti undir lón og að áður höfðu aðrar stórar lindár í Þjórsárverum farið undir Kvíslaveitu. Gísli gagnrýndi að í matsskýrslu væri dregið úr áhrifum á lífríkar tjarnir í vest- urhluta veranna og á lífríki Þjórsár, sem yrði umturnað á 30 km kafla. Þóra Ellen Þórhallsdóttir, grasafræðingur og prófessor, taldi að ritstjórar matsskýrslu hefðu ekki getið rannsókna sem hefðu getað varpað skýrara ljósi á áhrif vetrarflóða og breyttrar grunnvatnsstöðu á freðmýra- rústir og gróður. Niðurstöður Þóru Ellenar gáfu tilefni til að ætla að umhverfisáhrif fram- kvæmdarinnar kynnu að verða önnur en lesa mátti í mats- skýrslu. Þessar rannsóknir voru birtar í erlendum tímaritum að undangengnu faglegu mati og ekki lágu fyrir aðrar rannsóknir sem gátu komið í þeirra stað. Ragnhildur Sigurðardóttir vistfræðingur gagnrýndi að orðalagi á mikilvægum þáttum í vísindalegri samantekt hennar á fjölmörgum rannsóknum var breytt þannig að neikvæð áhrif framkvæmda virtust minni en grunnrannsóknir höfðu leitt í ljós. Þá höfðu ritstjórar skýrsl- unnar valið að birta ekki kafla sem hún hafði skrifað um áhrif framkvæmda á vistfræði svæð- isins í heild. Auk þess taldi Ragnhildur að framkvæmdaaðili hefði beitt þrýstingi í þeim til- gangi að framsetning og orðalag samantektar hennar yrði með þeim hætti að hún drægi síður úr þeim möguleika að til fram- kvæmda gæti komið. Þegar Ragnhildur neitaði að verða við þessu, var köflum hennar breytt að henni forspurðri. Ritstjórn matsskýrslu Landsvirkjun réð fyrirtækið VSÓ-ráðgjöf til að sjá um mat á umhverfisáhrifum Norðlinga- ölduveitu. VSÓ-ráðgjöf hefur fullyrt að við matið hafi í einu og öllu hafi verið farið að lögum og reglum sem gilda um mat á um- hverfisáhrifum. Við töldum það skyldu okkar að upplýsa að við hefðum, hvert á sinn hátt, fundið fyrir því að ekki var farið með okkar innlegg eða niðurstöður á þann hátt sem við töldum eðli- legt. Aðrir munu taka ákvörðun um hvort ástæða sé til að kanna hvort vinnubrögð við mat á um- hverfisáhrifum Norðlingaöldu- veitu gætu talist lögbrot. Við teljum mikilvægast að líta fram á við og draga lærdóm af þeim misbrestum sem okkur virðast hafa orðið í umræddu mati þannig að bæta megi mat á um- hverfisáhrifum í framtíðinni. Lærdómur Langoftast ríkir góð samvinna milli sérfræðinga og fram- kvæmdaaðila um vinnu við mat á umhverfisáhrifum framkvæmda. Þeir fræðimenn sem að matinu koma verða ekki varir við þrýst- ing frá framkvæmdaaðila, né það að rannsóknaniðurstöðum sé hallað eða úr þeim sigtað. Oftast er heldur ekki um að ræða sér- stakar eða óumdeildar náttúru- perlur og ekki verið að hætta mjög miklum verðmætum. Vera má að ferlið, eins og það er sett upp núna, gangi vel meðan ekki eru alltof miklir náttúruvernd- arhagsmunir í húfi, en síður þeg- ar um er að ræða mjög verðmæt svæði og þegar áhrifin eru orðin svo neikvæð að fyrirfram leikur vafi á hvort framkvæmdin muni fást samþykkt eða hvort henni verður hafnað vegna óásættan- legra umhverfisáhrifa. Það hlýtur að geta skapað tog- streitu að framkvæmdaraðili beri alfarið ábyrgð á framsetningu á rannsóknum og niðurstöðum eins og gert er ráð fyrir í lögum um mat á umhverfisáhrifum fram- kvæmda. Í flestum tilfellum hef- ur framkvæmdaaðili verulega hagsmuni af því að framkvæmd fái jákvæða umsögn og því hlýtur það að vera freistandi að búa þannig um hnúta að kostir fram- kvæmdar verði meira áberandi en gallar. Víða hefur verið valin sú leið að fela sjálfstæðum stofn- unum að annast umhverfismat einmitt í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að togstreita af þessu tagi leiði til þess að matið verði á einhvern hátt bjagað. Þar sem þessi leið hefur ekki verið valin hér á landi verður hlutverk Skipulagsstofnunar sem eftirlits- aðila afar mikilvægt. Tryggja verður stofnuninni aðstæður til að sinna því hlutverki. Í öðru lagi verður að viðhafa vinnubrögð sem tryggja að allar mikilvægar hliðar málsins komi fram í matsskýrslu. Þótt fram- kvæmdaraðili sé ekki sammála tiltekinni rannsókn sem unnin er af viðurkenndum fagaðila þá má hann ekki láta hjá líða að greina frá henni í yfirlitsskýrslu eða lýsa henni á þann hátt að það geti valdið misskilningi. Það er ekkert athugavert við að ólíkar skoðanir séu uppi um áhrif fram- kvæmda á tiltekna þætti í nátt- úrufari. En í yfirlitsskýrslu ber að greina frá öllum hliðum máls- ins og færa rök fyrir því ef nið- urstöður einnar rannsóknar eru taldar betri skýringarkostur en annarrar. Hugsanlega væri ástæða til að setja siðareglur sem tækju af vafa um þessi at- riði. Þegar um er að ræða mjög stór og flókin verkefni virðist einsýnt að beita þarf meiri fag- legri ritrýni en nú tíðkast og taka þá mið af því ferli sem notað er við birtingu greina í viður- kenndum vísindaritum. Í þriðja lagi vekjum við athygli á hversu mikið skortir á að við höfum heildaryfirlit yfir náttúru landsins. Oft þarf framkvæmda- aðili að standa fyrir grunnrann- sóknum sem annars staðar á Vesturlöndum er löngu búið að vinna. Stuðla má að faglegri vinnubrögðum með því að styðj- ast við rannsóknir vísindamanna sem þegar hafa hlotið viðurkenn- ingu með birtingu í ritrýndu tímariti. Með þessum orðum viljum við beina umræðunni að grundvall- arþáttum málsins og þeim lær- dómi sem af því má draga.Von- andi stuðlar sú umfjöllum sem þetta mál hefur fengið að vönd- uðum vinnubrögðum í framtíð- inni. Hvernig má bæta mat á umhverfis- áhrifum framkvæmda? Lærdómur af matsskýrslu um Norðlingaölduveitu SIGURÐUR Kári Kristjánsson er ungur maður með mikla reynslu og skýra stefnu sem mun nýtast honum vel sem málsvari komandi kynslóða á Alþingi. Ég hef þekkt til hans frá því við spil- uðum saman í yngri flokkum Fram í Safamýri. Leiðir okkar lágu því næst saman í lagadeild- inni í Háskólanum þar sem fé- lagsmálin og félagslífið var drifið áfram undir forystu hans. Sigurður Kári er mikill áhuga- maður um íþróttir og þekkir þjóð- félagslegt mikilvægi þeirra af eigin raun. Hann er talsmaður þess að auka frelsi og efla samkeppni í þeim tilgangi að bæta hér lífskjör, m.a. með lægra matvöruverði. Þá er Sig- urður þeirrar skoðunar að lækka eigi skatta á einstaklinga og er ekki sammála þeim sem halda því fram að skattalækkanir þurfi að þýða minni velferð. Mér er það því mikið fagnaðar- efni að Sigurður Kári skuli gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæð- isflokksins í Reykjavík fyrir þing- kosningarnar næsta vor. Við þurf- um ungan og kraftmikinn mann á Alþingi. Sigurð Kára í 7. sætið. Sigurð Kára í 7. sætið Andri V. Sigurðsson lögfræðingur skrifar: GRUNDVÖLLUR velferðarkerf- isins eru almannatryggingar. Með núverandi fyrirkomulagi er öllum landsmönnum tryggður jafn aðgang- ur að heilbrigðisþjónustu. Með skatt- greiðslum í ríkissjóð tryggja lands- menn sér réttindi sem nauðsynlegt er að skilgreina. Það verður að vera ljóst hve biðtími eftir skoðun á heilsu- gæslustöð eða hjá sérfræðingi á að vera langur. Það verður að vera ljóst hve biðtími eftir aðgerð á sjúkrahúsi eða vist á hjúkrunarheimili á að vera langur. Einkavæðing og einkarekstur á þessum þætti þjónustunnar er ekki á dagskrá. Grundvallaratriði rekstrarþáttar- ins er að allur kostnaður við hina ýmsu þætti þjónustunnar sé þekktur. Greiðslur fyrir hana verða að vera af- kastatengdar, þ.e. að fjármagnið á að fylgja sjúklingnum. Ekkert er á móti því að einstakir þættir verði einka- væddir á grundvelli þjónustusamn- inga við tryggingakerfið. Má þar nefna hvers konar læknisþjónustu, rekstur sjálfseignarstofnana á hjúkr- unarheimilum og öðrum stofnunum. Sveitarfélög hljóta einnig að koma inn í myndina varðandi ýmsa heimaþjón- ustu. Hagkvæmustu lausnir á núverandi vanda eru aukin ferliþjónusta og upp- bygging hjúkrunarheimila. Þar gætu sjálfseignarstofnanir með fjármögn- un lífeyrissjóða átt stóran þátt. Við rekstur þjónustunnar verður að hafa að leiðarljósi að nýta fjár- magn sem best þannig að allir fái jafn- an þá þjónustu sem þeir þurfa fyrir sem minnstan kostnað. Eftir Láru Margréti Ragnarsdóttur Höfundur er alþingismaður. „Hagkvæm- ustu lausnir eru aukin ferliþjónusta og uppbygg- ing hjúkrunarheimila.“ Stefnumótun í heilbrigðismálum SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN er eini fjöldaflokkurinn sem Ísland hefur átt. Hið breiða fylgi má rekja til þess að hann hefur sett velferð allra þegnanna á oddinn. Forystumenn hans um og eftir miðja síð- ustu öld gengu heils- hugar að uppbygg- ingu þess velferðarkerfis á veg- um ríkis og sveitarfé- laga, sem þjóðin býr að enn í dag. Það hefur hinn almenni kjósandi kunnað að meta. Katrín Fjeldsted er málsvari þess- arar stefnu flokksins og talar þar fyr- ir munn fjölmargra flokksmanna. Menntun hennar og reynsla sem heimilislæknis í Reykjavík um ára- tuga skeið hafa veitt henni sjaldgæf- an skilning og innsýn í líf og kjör fólks, og sem borgarfulltrúi Reykvík- inga í tólf ár beitti hún sér fyrir fjöl- mörgum málum sem varða velferð okkar allra. Katrín er gáfuð, hugrökk og hjartahlý þingkona, sem þorir að fylgja sinni sannfæringu. Hennar rödd þarf að hljóma hátt og skýrt á Alþingi. Kjósum Katrínu í fjórða sæt- ið. Katrínu í fjórða sætið Guðrún Pétursdóttir skrifar: TRYGGJA verður ráðherrum Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík þrjú efstu sætin í prófkjörinu um næstu helgi. Davíð Oddsson, forsætis- ráðherra, Geir H. Haarde, fjár- málaráðherra, og Sólveig Pétursdóttir, dóms- og kirkjumálaráðherra, eru röggsamir og atorkumiklir ráð- herrar, sem sýnt hafa það og sannað hve góðum forystumönnum Sjálf- stæðisflokkurinn býr yfir. Sólveig Pétursdóttir sækist eftir þriðja sæti á listanum í Reykjavík og mikilvægt er að veita henni brautargengi í það sæti. Málaflokkar ráðuneytis hennar eru umfangsmiklir og taka til flestra þátta mannlegs lífs. Í störfum sín- um, bæði sem þingmaður frá 1991 og ráðherra í þriðja ráðuneyti Davíðs Oddssonar, hefur Sólveig unnið öt- ullega að umbótum á fjölmörgum sviðum sem ekki er unnt að telja upp í stuttri grein. Hún fylgir málum sín- um eftir af mikilli festu og leggur ríka áherslu á úrbætur, m.a. í lög- gæslu- og fíknefnamálum svo dæmi sé nefnt. Fjölmennum á kjörstað og tryggj- um Sólveigu þriðja sætið. Ráðherrana í efstu þrjú sætin Magnús L. Sveinsson, fyrrv. formaður Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, skrif- ar: EFTIR að hafa unnið sem aðstoð- armaður Björns í nærri fjögur ár finnst mér hans sterkustu leiðtoga- hæfileikar felast í skýrri sýn, krafti og kjarki. Hann býr yfir einstakri þekkingu á mál- efnum Reykjavíkur, mennta- og utanrík- ismálum. Alþingi Ís- lendinga hefur þörf fyrir mann eins og Björn, sem hefur sterka pólitíska sannfæringu og er um leið reiðubú- inn að skoða málin út frá ólíkum sjónarhornum með hagsmuni fram- tíðarkynslóða að leiðarljósi. Styðjum Björn Ásdís Halla Bragadóttir, bæjarstjóri Garðabæjar, skrifar:

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.