Morgunblaðið - 20.11.2002, Side 47
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2002 47
Fyrir jólin bjóðum við upp á glæsilegt
mini-hlaðborð
Rjómalöguð súpa með nýbökuðu brauði,
hangikjöt, ávaxtafyllt lambalæri,
hamborgarhryggur, kalkúnn, villipate,
hreindýrapate, kartöflusalat, hrásalat, rauðkál,
grænar baunir, 4 tegundir af síld, sjávarrétta-
gratín, sykurbrúnaðar kartöflur, fiskipate,
tartarsósa, rauðvínssósa, sveppasósa
og ýmislegt fleira sem og eftirréttir.
Jólahlaðborð á
aðeins 2.100 kr.
(Munið að panta strax)
Pantanasími 569 0098
eða hjá Siggu í síma 699 1070
Fimmtudaga, föstudaga
og laugardaga frá og með
28. nóvember
Ferðafélag Íslands stendur fyrir
kvöldgöngu á fullu tungli mið-
vikudagskvöldið 20. nóvember.
Gengið verður frá Kaldárseli í Vala-
ból. Þátttakendum er bent á að hafa
með sér góð ljós. Fararstjóri er Sig-
urður Kristjánsson. Brottför er frá
BSÍ kl. 19.30 og komið við í Mörk-
inni 6. Þátttökugjald 1.700 kr. fyrir
félagsmenn og 1.900 kr. fyrir aðra.
Frjálshyggjufélagið stendur fyrir
hádegisverðarfundi í Iðnó miðviku-
daginn 20. nóvember kl. 12. Yf-
irskrift fundarins er „Samkeppni á
matvörumarkaði“ og er hann hald-
inn í kjölfar umræðu um hugsanlega
fákeppni á matvörumarkaðinum og
of hátt vöruverð til neytenda. Hauk-
ur Örn Birgisson, formaður Frjáls-
hyggjufélagsins, Ólafur Teitur
Guðnason blaðamaður og Össur
Skarphéðinsson, formaður Samfylk-
ingarinnar, munu flytja erindi á
fundinum. Að loknum framsöguer-
indum verður opnað fyrir almennar
umræður og spurningar frá fund-
argestum. Fundarstjóri verður Jón
Gnarr.
Söfnun til styrktar bágstöddum
börnum verður í dag, miðvikudag-
inn 20. nóvember, á veitingastofum
McDonald’s í yfir 100 þjóðlöndum
standa að fjársöfnun til handa börn-
um. Þetta framtak er nefnt „World
Children’s Day at McDonald’s“ eða
Alþjóðadagur barna hjá McDon-
ald’s.
Það er breytilegt á milli landa,
markaða og veitingastofa úti í hinum
stóra heimi hvernig að söfnun er
staðið og hvernig söfnunarfénu
verður varið. Sem dæmi stendur til
að styrkja um 200 miðstöðvar víða
um heim, sem berjast gegn krabba-
meini, hvítblæði, geðsjúdómum, fötl-
un og hvers konar misnotkun á
börnum … Í Rússlandi, Eistlandi og
Kúveit mun 21 munaðarleys-
ingjahæli njóta hjálpar … Í Egypta-
landi, Króatíu, El Salvador, Singa-
pore og fleiri löndum munu um 70
barnaspítalar njóta styrkja … Og í
Kína er ætlunin að dreifa 300.000
orðabókum til barna í fjarlægum
héruðum …
Það fé sem safnast á Íslandi á al-
þjóðadeginum mun renna óskipt til
Styrktarfélags krabbameinssjúkra
barna (SKB), en Lyst ehf. mun verja
10% af allri nettó sölu (án vsk) dags-
ins til SKB. Söfnunarbaukar verða
settir upp á veitingastofunum, sem
fólk getur sett framlög sín í. Þessir
baukar eru algjörlega undir stjórn
SKB og fulltrúi þess mun sjá um
tæmingu. Þess má geta að góðgerð-
arfélögin Ronald McDonald House
Charities hafa áður varið samtals
340 milljónum Bandaríkjadala til
ýmissar barnahjálpar.
McDonald’s er stærsta veitinga-
húsakeðja heims. Um 46 milljón
manns heimsækja daglega yfir 30
þúsund veitingastofur í 121 landi.
Um 80 af hundraði veitingastofanna
eru í eigu sjálfstæðra leyfishafa.
Hægt er að nálgast frekari upplýs-
ingar um alþjóðadaginn World
Children’s Day með því að heim-
sækja www.media.mcdonalds.com
Í DAG
Stefanía Óskarsdóttir heldur í
kvöld, miðvikudaginn 20. nóvember,
kl. 20, opinn fund um gæði og þjón-
ustu í velferðarkerfinu á kosn-
ingaskrifstofu stuðningsmanna
Stefaníu Óskarsdóttur, Laug-
arásvegi 1. Að lokinni framsögu
Stefaníu verða almennar umræður.
Heitt kaffi á könnunni. Þetta er
fjórði opni fundurinn, sem Stefanía
heldur í prófkjörsbaráttunni. Hinir
fyrri voru um matvöruverð, stöðu
Íslands í umheiminum og jafnrétti í
reynd.
Stefanía sækist eftir 6. sæti í próf-
kjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík
sem haldið verður 22. og 23. nóv-
ember.
Í DAG STJÓRNMÁL
Kínaklúbbur Unnar kynnir næstu
Kínaferð sína, fimmtudaginn 21.
nóvember kl. 20.30 í húsi Kína-
klúbbsins, Njálsgötu 33. Ferðin
verður 8. – 31. maí á næsta ári. Far-
ið verður vítt og breitt um Kína og
m.a. verður sigling á Jang-Tse-
Kiang fljótinu, um gljúfrin þrjú.
Þessi ferð verður 18. ferð Unnar
Guðjónsdóttur til Kína. Allir eru vel-
komnir á kynninguna.
Inga Dóra Björnsdóttir mannfræð-
ingur flytur fyrirlestur í boði fé-
lagsvísindadeildar um rannsóknir
sínar á ævi Ólafar Sölvadóttur, sem
þekkt var í Bandaríkjunum undir
nafninu Olof Krarer the Esquimaux
Lady. Í fyrirlestrinum er m.a.
fjallað um þann vanda sem fylgir því
að skrá ævisögu konu sem villti á
sér heimildir og skildi eftir rangar
upplýsingar um líf sitt. Fyrirlest-
urinn er haldinn í stofu 101 í Odda,
kl. 17.
Fimmtudaginn 21. nóvember mun
Svandís Svavarsdóttir ræða um
fæðingarsögur íslenskra kvenna í
Rabbi Rannsóknastofu í kvenna-
fræðum, fimmtudaginn 21. nóv-
ember kl. 12, í stofu 101 í Lögbergi.
Allir velkomnir.
Kristín Björg Guðmundsdóttir,
dýralæknir, rannsóknadeild dýra-
sjúkdóma, embætti yfirdýralæknis á
Keldum flytur erindi sem hún nefn-
ir: Listeria monocytogenes í dýrum
á Íslandi, fimmtudaginn 21. nóv-
ember kl. 12.20 í bókasafni Keldna.
Málstofa í læknadeild fer fram
fimmtudaginn 21. nóvember, kl.
16.15, í sal Krabbameinsfélags Ís-
lands, efstu hæð. Anna Guðmunds-
dóttir flytur erindið: Map kinasar í
æðaþelsfrumum. Málstofan fer fram
á hverjum fimmtudegi kl. 16:15, en
kaffiveitingar eru frá 16.
Mágus, félag viðskiptafræði-
nema við Háskóla Íslands, í sam-
starfi við viðskiptafræðiskor býður
fulltrúum úr íslensku viðskiptalífi í
heimsókn og léttan hádegisverð í
Odda, fimmtudaginn 21. nóvember
kl. 12. Þar gefst gestum tækifæri á
að kynnast starfsemi viðskiptaskor-
ar, þeirri menntun sem hún býður
nemendum og hvernig hún nýtist at-
vinnulífinu. Ágúst Einarsson, deild-
arforseti Viðskipta- og hag-
fræðideildar, Stefán Svavarsson
dósent og Brynjólfur Ægir Sæv-
arsson viðskiptafræðanemi og fram-
kvæmdastjóri Stúdentaráðs Há-
skóla Ísland munu m.a. ávarpa gesti.
Skráning á netfangi, astadis@hi.is
Bragi Skúlason sjúkrahúsprestur
heldur erindi í opinni málstofu í
praktískri guðfræði um karl-
mennsku og hetjufyrirmyndir í ís-
lenskum fornsögum, á morgun,
fimmtudaginn 21. nóvember kl.
12.05, í stofu V í aðalbyggingu H.Í.
Eftir erindi hans gefst tækifæri til
umræðna. Allir velkomnir.
Á MORGUN
INNAN upplýsingatækniáætlunar
ESB eiga Íslendingar hvað mesta
möguleika á heilbrigðistæknisvið-
inu að því er fram kemur í samtali
við Sigurð Guðmundsson land-
stengilið áætlunarinnar. Hann seg-
ir að helsti vandi Íslendinga felist í
því að fá fyrirtæki hafi fjárhags-
legt bolmagn til að bera kostnað af
mótframlagi sínu til rannsókn-
anna.
Sjöttu rannsóknaáætlun ESB
verður hleypt af stokkunum með
ráðstefnu Rannís nk. föstudag.
Eins og fram hefur komið eru und-
irsvið áætlunarinnar sjö. Eitt
þeirra er svokallað upplýsinga-
tæknisvið og hefur í sviðið í dag-
legu tali verið kallað upplýsinga-
tækniáætlun ESB. Sigurður
Guðmundsson tekur fram að upp-
lýsingatækniáætlunin sé afar víð-
tæk, þ.e. nái yfir allar rannsóknir
á því hvernig upplýsingatækni geti
nýst í samfélaginu. „Ég get nefnt
að gert er ráð fyrir því að skoðað
verði hvaða áhrif upplýsingatækn-
in hafi á þróun innan læknisfræði,
erfðafræði, samgangna, stjórn-
sýslu, öryggismála og samskipta
manna á milli almennt. Innan heil-
brigðiskerfisins verður því velt
upp hvernig megi með tækjum og
tólum að gera sjúklingum lífið létt-
ara og áfram mætti telja. Satt að
segja er nánast allt undir.“
Sigurður segir að lögð sé
áhersla á að verkefni innan sjöttu
rannsóknaáætlunarinnar séu þver-
fagleg, þ.e. horft sé á viðfangs-
efnin í víðu samhengi. „Eitt dæmi
er að þegar sjónum er beint að
upplýsingatækni innan heilbrigð-
isgeirans er gert ráð fyrir því að
velt sé upp spurningum um hvern-
ig ákveðnar upplýsingatækniað-
gerðir hafi á samfélagsmyndina í
heild.“
Sigurður viðurkennir að meðal-
stórum íslenskum fyrirtækjum
geti reynst erfitt að starfa innan
áætlunarinnar. „Innan íslenskra
fyrirtækja er gríðarlega mikill
áhugi á því að starfa innan áætl-
unarinnar. Hlutverk okkar land-
stenglanna er að aðstoða fulltrúa
fyrirtækjanna eftir fremsta megni
við að komast inn í áætlunina, t.d.
með því að fylla út umsóknir og
finna samstarfsaðila,“ sagði hann
og bætti við að helsti vandinn fæl-
ist í því að fá íslensk fyrirtæki
hefðu fjárhagslegt bolmagn til að
bera kostnað af mótframlagi sínu
til rannsóknanna. „Þversögnin
felst í því að mörg íslensk fyr-
irtæki hafa ekki efni á því að vera
með þó að þau geti verið nokkuð
viss um góðan ávinning af sam-
starfinu. Hjá fámennum þjóðum
eins og Íslendingum er þessi vandi
enn meira áberandi heldur en
meðal fjölmennari þjóða því að
fyrirtækin eru flest svo lítil á
heimsmælikvarða.“
Gríðarlegir möguleikar
Sigurður var spurður að því á
hvaða sviðum hann teldi að Íslend-
ingar ættu besta möguleika. „Ég
tel að bestu möguleikar okkar Ís-
lendinga séu á heilbrigðistækni-
sviðinu. Þar standa nokkur íslensk
fyrirtæki verulega vel að vígi, t.d.
Össur, Flaga, Decode og fleiri.
Þótt sum þeirra séu ekkert sér-
staklega stór á heimsmælikvarða
eru þau að vinna að ákaflega
spennandi rannsóknum. Eins held
ég að við ættum að eiga ágæta
möguleika á sviði upplýsingatækni
í námi og kennslu,“ sagði hann og
tók fram að þrátt fyrir ákveðna
erfiðleika fæli áætlunin í sér gríð-
arlega möguleika fyrir aðildar-
þjóðirnar. „Einn af möguleikunum
eru rannsóknir í tengslum við raf-
rænt lýðræði. Þessi notkun á upp-
lýsingatækninni mun að sjálfsögðu
breyta öllu upplýsingastreymi til
og frá almenningi. Almenningur á
eftir að koma að allri stjórnsýslu
með mun virkari hætti en áður.
Ekki má heldur gleyma því að
okkur gefst kostur á að sækja um
stuðning til að gera forathuganir
vegna djarfra hugmynda. Þess
vegna er um að gera setja fram
góðar hugmyndir þó að fjármagn
vanti til að láta reyna hvernig þær
koma út í veruleikanum.“
Upplýsingatækniáætlun ESB
Mestir mögu-
leikar í heil-
brigðisgeiranum
BÓKASAFN Þórshafnarhrepps
fékk á dögunum myndarlega
bókagjöf frá Verkalýðsfélagi Þórs-
hafnar en bækurnar eiga eflaust
eftir að nýtast safngestum vel.
Það voru tuttugu og tvær
kennslubækur í hinum ýmsu tölvu-
forritum til lærdóms á eigin spýt-
ur en það kemur sér vel að geta
setið við tölvuna og farið yfir
námsefnið á þeim hraða sem hent-
ar hverjum og einum. Gott bóka-
safn er menningarauki á hverjum
stað og hvert framlag í það er
mikils virði, svo forráðamenn
bókasafnsins kunnu Verkalýðs-
félaginu bestu þakkir fyrir gjöf-
ina.
Bókasafni voru færð-
ar kennslubækur
Þórshöfn. Morgunblaðið.
FERMINGARBÖRN úr 43
sóknum söfnuðu 4.650.000 króna
þegar þau gengu í hús 4. nóv-
ember síðastliðinn. Fengu börnin
1,5 milljónum meira en í fyrra en
þá söfnuðu börn úr 39 sóknum.
Safnað var fyrir verkefnum í
Afríku og fyrir peningana er t.d.
hægt að grafa 50 brunna og út-
vega þar með 50.000 manns
hreint drykkjarvatn. Fénu verð-
ur einnig varið til menntunar
barna.
Fermingarbörn voru allt frá
þremur á Miklabæ í Skagafirði í
300 í Grafarvogssókn í Reykja-
vík. Í Miklabæjarsókn, á Pat-
reksfirði, Siglufirði og í Bolung-
arvík fengu börnin yfir 5.000
krónur í hvern bauk. Árangurinn
fór fram úr björtustu vonum og
mikil stemmning ríkti. Víða buðu
sóknarnefndir uppá veitingar að
söfnun lokinni. Söfnunarfénu
verður varið til verkefna í Afríku
í samvinnu við Lútherska heims-
sambandið sem Hjálparstarf
kirkjunnar er aðili að. Söfnunin
er árleg, segir í fréttatilkynningu
frá Hjálparstarfi kirkjunnar.
Fermingarbörn söfn-
uðu 4,6 milljónum
PIPAR OG SALT
Klapparstíg 44 Sími 562 3614
MORTEL
Marmara-
mortel
hvít/græn
Verð frá kr. 1.600