Morgunblaðið - 20.11.2002, Síða 51

Morgunblaðið - 20.11.2002, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2002 51 DAGBÓK TÍGULLITURINN hér að neðan dregur fram í dags- ljósið þekkt bókarstef varð- andi litaríferð. Í blindum er Áxx, en heima KGxx. Besta leiðin til að tryggja þrjá slagi á litinn er að taka fyrst á kónginn, svo ásinn og spila loks að gosanum. Það er öryggisspila- mennska sem tekur inn í myndina Dx á eftir KGxx. Austur gefur; allir á hættu. Norður ♠ 96432 ♥ G73 ♦ Á84 ♣ÁD Suður ♠ ÁKDG7 ♥ 102 ♦ KG32 ♣87 Vestur Norður Austur Suður – – 1 hjarta 1 spaði Pass 3 spaðar Pass 4 spaðar Pass Pass Pass Suður verður sagnhafi í fjórum spöðum eftir opnun austurs á hjarta. Vestur kemur út með hjartaáttu og austur spilar þremur efstu í litnum. Suður stingur þriðja hjartað frá með gosa og þá hendir vestur laufi. Þegar trompin eru tekin reynist vestur hafa byrjað með eitt, en austur tvö. Hvernig á að spila? Hættan er sú að vestur sé með tíguldrottningu og austur laufkóng. Ef tígull- inn fríast er hægt að henda laufdrottningunni niður, svo þeirri hugsun lýstur vissu- lega niður að taka „bókar- stefið“ í tíglinum. En er lík- legt að austur sé með fjórlit í tígli? Hann hefur þegar sýnt sexlit í hjarta og tvö tromp. Og einhvers staðar er allt laufið. Norður ♠ 96432 ♥ G73 ♦ Á84 ♣Á84 Vestur Austur ♠ 10 ♠ 85 ♥ 85 ♥ ÁKD964 ♦ D1076 ♦ 95 ♣965432 ♣KG10 Suður ♠ ÁKDG7 ♥ 102 ♦ KG32 ♣87 Betri leið (en ekki örugg) er að spila tígulkóng og litlum tígli á áttuna! Eins og spilið er lendir austur inni á níu og verður að spila hjarta í tvöfalda eyðu eða laufi upp í gaffalinn. Vestur getur engu bjargað með því að stinga upp tígultíu, því þá fríast gosinn. Og ef aust- ur hefur byrjað með þrjá tígla (til dæmis Dxx) fríast þrettándi tígullinn. Es. Ef vestur stingur níu eða tíu á milli og ekkert bitastætt kemur úr austrinu þarf sagnhafi að gera upp við sig framhaldið. Hann gæti spilað tígli áfram, eða laufás og drottningu í þeirri von að austur lendi inni og eigi engan tígul. Síðar- nefnda leiðin er ekki „makkervæn“ ef austur reynist eiga drottningu þriðju í tígli og vestur lauf- kóng. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson 60 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 20. nóvember, er sextugur Hall- dór Sigurður Hafsteinn Sigurðsson, framkvæmda- stjóri, Langagerði 8, Reykjavík. Hann og eigin- kona hans, Hrafnhildur Konráðsdóttir, taka á móti vinum og vandamönnum á afmælisdaginn í Versölum, Hallveigarstíg 1, kl. 17.30. 60 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 20. nóvember, er sextug Ólína Torfadóttir, framkvæmda- stjóri hjúkrunar, Óðinsgötu 24A, Reykjavík. Ólína tekur á móti samstarfsfólki og samferðamönnum á afmæl- isdaginn á Akureyri í Bláu könnunni, Paris, II. hæð kl. 16–19 og 23. nóvember tek- ur hún á móti ættingjum og öðru samferðafólki ásamt fjölskyldu sinni í safnaðar- heimili Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík á Laufásvegi 13 á milli kl. 15 og 19. 50 ÁRA afmæli. Ámorgun, fimmtudag- inn 21. nóvember, er fimm- tugur Þorfinnur Snorrason, Selfossi 4, Selfossi. Eigin- kona Þorfinns er Ingunn Stefánsdóttir. Þorfinnur verður að heiman á afmæl- isdaginn. LJÓÐABROT HAUSTVÍSA Lengir nóttu, lúta höfðum blóm, laufið titrar fölt á háum reinum, vindur hvíslar ömurlegum óm illri fregn að kvíðnum skógargreinum, greinar segja fugli, og fuglinn þagnar. Í brjósti mannsins haustar einnig að, upp af hrelldu hjarta gleðin flýgur, en vetrarmjöll í daggardropa stað á dökkvan lokk og mjúkan þögul hnígur, og æskublómin öll af kinnum deyja. Grímur Thomsen Árnað heilla MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ætt- armót og fleira lesend- um sínum að kostnað- arlausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað. Sam- þykki afmælisbarns þarf að fylgja afmæl- istilkynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569- 1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake SPORÐDREKI Afmælisbörn dagsins: Þú ert hugsjónamaður sem tekur málstað þeirra sem minna mega sín. Komandi ár getir orðið magnaðasta ár ævi þinnar. Láttu drauma þína rætast. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Fjárhagsáhyggjur gær- dagsins eru liðnar hjá og þú finnur hjá þér kraft til að koma málstað þínum á framfæri. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú ættir að borga reikninga og huga að fjármálunum í dag. Þú þarft að koma skipulagi á þennan þátt lífs þíns. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Tunglið er í tvíburamerkinu og það veitir tvíburunum forskot á önnur stjörnu- merki. Notaðu tækifærið til að koma ár þinni vel fyrir borð. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Tunglið hefur mikil áhrif á stjörnumerki þitt og þú finnur því vel fyrir þeirri spennu sem fylgir fullu tungli. Þú hefðir gott af því að hvíla þig í dag. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Samskipti þín við aðra ganga vel í dag. Vandamál þín virðast viðráðanleg og ekki eins ógnandi og áður. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Streitan sem hefur þjakað þig að undanförnu hefur minnkað mikið. Þú finnur þó enn fyrir eðlilegri, heil- brigðri streitu. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Það er eins og þú andir létt- ar í dag. Tunglið er fullt og þú ert tilbúinn til að takast á við ný verkefni. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú ættir að huga að því hvernig þú getir aflað þér fjár með lántökum eða aukaverkum. Hindranir sem hafa staðið í vegi þínum eru að hverfa. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Spennan sem fylgir fullu tungli er að minnka. Reyndu að slaka á og njóta lífsins. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Með góðri hjálp geturðu komið miklu í verk í vinnunni. Þótt þú viljir fá viðurkenningu fyrir verk þín þarftu ekki að gera allt upp á eigin spýtur. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Stattu upp frá tölvunni eða sjónvarpinu og farðu út á meðal fólks. Njóttu þess að vera með öðrum. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Dagurinn hentar vel til út- réttinga og framkvæmda. Þú hefur kraft og áræðni til að láta hendur standa fram úr ermum. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. 1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 a6 5. a4 Rf6 6. Rc3 Dc7 7. Be2 Bb4 8. O-O Bxc3 9. bxc3 Rxe4 10. c4 Rc3 11. De1 Rxe2+ 12. Dxe2 O-O 13. Ba3 d6 14. Hfd1 Hd8 15. Hd2 Rc6 16. Had1 Ra5 Staðan kom upp á Ólymp- íuskákmótinu sem lauk fyrir skömmu í Bled. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir (2025) hafði hvítt gegn Rani Hamid (2148). 17. Bxd6! Hxd6 17...Dd7 var einnig slæmt vegna 18. Bb4 Dxa4 19. Bxa5 Dxa5 20. Rc6 Hxd2 21. Rxa5 og hvítur vinn- ur. Í framhaldinu reynist staða svarts einnig erfið þótt óþarfi hafi verið að missa hrókinn jafn fljótt og raun bar vitni. 18. Rb5 axb5?! 19. Hxd6 h6 20. cxb5 b6? 21. Hd8+ Kh7 22. De4+ f5 23. Dxa8 Bb7 24. Hh8+ Kg6 25. De8+ Kg5 26. Dxe6 Dxc2 27. De7+ Kh5 28. He1 Dc3 29. Hg8 g5 30. Df7+ og svartur gafst upp. Íslenska kvennasveitin stóð sig með mikilli prýði og lenti í 65. sæti af 90 keppnisþjóðum en árangur liðsmanna varð þessi: 1. borð Guðfríður Lilja Grétarsdóttir 6 vinn- inga af 13 mögulegum. 2. borð Harpa Ingólfsdóttir 7 v. af 13 mögulegum 3. borð Aldís Rún Lárusdóttir 6 v. af 13 mögulegum varamaður Anna Björg Þorgrímsdóttir 0 v. af 3 mögulegum. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik.           undirfataverslun Síðumúla 3-5 - Sími 553 7355 Opið mánudaga-föstudaga kl. 11-18, laugardaga kl. 11-15. Glæsilegt úrval af undirfötum PÓSTSENDUM Brjóstahaldarar með og án fyllingar í skálastærðum: A, B, C, D, DD, E, F. Ótal litir og snið. Verð 3.900-4.550. T-buxur, háar buxur, boxer-buxur í stíl. Verð 1.900-2.800. Spariskór Bankastræti 11 • sími 551 3930 Suðurnesjamenn Íslands- meistarar (h)eldri spilara Helgina 16.–17. nóv. fór fram Ís- landsmót heldri spilara í tvímenn- ingi. Eftir miklar sviptingar undir lokin höfðu Valur Símonarson og Kristján Örn Kristjánsson sigur, en í síðustu setunni spiluðu þeir við Gísla Haf- liðason og Guðmund Magnússon sem þá voru efstir. Gísli og Guð- mundur lentu í 2. sæti og Eggert Bergsson og Torfi Ásgeirsson fengu bronsið. Í flokki yngri spilara voru aðeins 2 pör. Anna Guðlaug Nielsen og Sigurður Björgvinsson skoruðu 7 stigum meira en Ari Már Arason og Halldór Sigfússon. Lokastaðan: Kristján Ö. Kristjáns. - Valur Símonarson 64 Guðmundur Magnússon - Gísli Hafliðason 48 Eggert Bergsson - Torfi Ásgeirsson 38 Gylfi Baldursson - Jón Hjaltason 22 Ásmundur Pálsson - Sigtryggur Sigurðs. 20 Tvímenningsmót Súgfirðinga Önnur umferð í tvímenningsmóti Súgfirðingafélagsins var spiluð um helgina í sal svfr.is. Keppni var jöfn að venju en meðalskor var 130 stig. Keppnin verður í fjórum lotum og gilda þrjú bestu kvöldin til verð- launa. Fjórtán pör eru í keppninni. Óskar Kristjánss. - Þorleifur Hallbertss. 148 Ólafur Ólafsson - Ellert Ólafsson 139 Björn Guðbjörnss. - Gunnar Ármannss. 137 Arngr. Þorgrímss. - Sigurpáll Ingibss. 137 Guðbjörn Björnss. - Steinþór Benedss. 135 Guðrún K. Jóhannesd. - Gróa Guðnad. 134 Jóhann M. Guðm. - Þorvarður Guðm. 134 Guðbjartur Halldórss. - Gísli Jóhannss. 134 Einar Ólafsson - Sigurður Kristjánsson 131 Eftir umferðirnar tvær standa eftirfarandi pör best í baráttunni um Súgfirðingaskálina. Guðbjörn Björnss. og Steinþór Benedss. 301 Guðrún Kristín Jóhannesdóttir og Gróa Guðnadóttir/Kristjana Steingrímsdóttir 299 Björn Guðbjörnss. og Gunnar Ármannss.273 Óskar Kristjss. og Þorleifur Hallbertss. 268 Einar Ólafss. og Sigurður Kristjánss. 264 Þriðja umferð verður spiluð í lok febrúar á næsta ári. Þeir skelltu sér í bæinn um helgina, félagarnir Valur Símonarson og Kristján Örn Kristjánsson, formað- ur Bridsfélags Suðurnesja, og sigr- uðu á Íslandsmóti heldri spilara eft- ir hörkukeppni. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson www.avon.is Snyrtivöruverslun opin allan sólarhringinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.