Morgunblaðið - 20.11.2002, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 20.11.2002, Blaðsíða 52
KVIKMYNDIR 52 MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNN á hraðbrautinni, allir að flýta sér, þeirra á meðal tveir New York-búar sem þurfa að ná til borg- ardómara í afar mikilvægum erinda- gjörðum. Þar skiljast leiðir, annað eiga þeir tæpast sameiginlegt. Gavin Banek (Ben Affleck) er rísandi lög- fræðingur á virtri lögmannsstofu, ekki sakar að hann er giftur dóttur annars aðaleigandans. Liggur lífið á því hann þarf að leggja fram (heldur vafasama) pappíra en um leið og þeir eru samþykktir fyrir dómstólunum er Banek orðinn einn af eigendum lögfræðistofunnar Doyle Gipson (Samuel L. Jackson) er á hinn bóginn lágt settur, þeldökk- ur tryggingasali með slæma skap- gerðarbresti og óvirkur alkóhólisti (í augnablikinu). Gipson liggur ekki minna á því hann á að mæta stund- víslega í forræðismáli sem varðar unga syni hans tvo en móðirin er bú- in að fá nóg af eiginmanninum, vill skilja og flytja sem lengst í burtu. Gipson hefur bætt ráð sitt og er bú- inn að festa kaup á íbúð sem hann vonar að tryggi að fjölskyldan fari ekki frá honum. Þá rekast bílar mannanna saman með það hrikaleg- um afleiðingum að dagurinn verður sá versti í lífi beggja. Banek fer af vettvangi, skilur Gipson eftir – og í ógáti pappírana. Uppgötvar það ekki fyrr en frammi fyrir dómaranum sem gefur Banek frest til kvölds að leggja þá fram. Annars á hann jafn- vel fangelsisvist yfir höfði sér. Óhappið dregur ekki síður dilk á eftir sér hjá Gipson því búið er að af- greiða forræðismálið er hann mætir 20 mínútum of seint og heimur hans hrynur saman. Skellir allri skuldinni á Banek og hyggur á hefndir þar sem hann er með pappíra lögfræðingsins undir höndum. Nú hefst daglangt stríð þar sem báðir aðilar beita öllum brögðum til að klekkja á hinum. Til að byrja með skal það skýrt tekið fram að Changing Lanes er enginn hversdagslegur hefndartryll- ir með tilheyrandi ofurofbeldi, slags- málum, kúlnahríð o.s.frv. Öllu frekar sálfræðilegs eðlis því Banek og Gip- son beita útsjónarsemi og huglægum árásaraðferðum í marglitri orrustu þessa örlagaríka dags. Til að bæta enn á innri spennu fléttast í fram- vinduna hliðarsögur tengdar áfeng- issýki og skapbrestum Gipsons til viðbótar hjónabandsraunum og fast- eignakaupum sem lenda í uppnámi. Hvað Banek snertir þarf hann að glíma við vægast sagt hæpnar að- ferðir lögfræðistofunnar að kippa í lag vandanum sem skapast yfir horfnu pappírunum. Þar er öllum meðölum beitt . Samviskan er þó enn með einhverri meðvitund því Banek sér sig knúinn til að endurskoða stöðu sína í einkalífi og starfi sem hvort tveggja hangir á bláþræði. Myndin fjallar því undir yfirborð- inu um ranglæti og réttlæti, ábyrgð og skyldur engu síður en uppgjörið milli aðalpersónanna. Sið- fræði samtímans, ekki síst lögfræðistéttarinnar, blekkingarnar sem við gerum okkur að góðu í hversdagslífinu með því að bregða upp blinda aug- anu. Tengdapabbi (Sydn- ey Pollack) gerir hinum tvístígandi Banek grein fyrir eðli starfsins; það snýst ekki um að koma alltaf heiðarlega fram heldur að reyna að hafa góðverkin fleiri en illvirk- in á ársgrundvelli! Banek og Gipson eru báðar vel skrifaðar og skýrar persónur, aukin- heldur fá flestir aðrir sem koma við sögu markvissar og hnitmiðaðar setningar. Heildar- myndin er óvenjuleg, umhugsunar- verð og kraftmikil afþreying sem ristir oft á slétt og fellt yfirborð hversdagsins einsog við þekkjum hann og út vellur vilsan. Hinsvegar er umfjöllunin misjafnlega trúverð- ug, sveiflast úr egghvassri ádeilu í hæpnar dramatískar uppákomur. Leikstjórinn, Roger Michell, er kunnastur fyrir gamanmyndina Notting Hill, sem er í flestum skiln- ingi algjör andhverfa Changing Lan- es. Hann heldur vel á spöðunum og áhorfendum við efnið. Líkt og í Nott- ing Hill tekst honum að skapa per- sónulegan stíl og hefur fína stjórn á leikurunum. Nokkrir kunnir skap- gerðarleikarar fylla upp í rúmið, eft- ir stendur oft athyglisverð og vel gerð mynd sem kemur notalega á óvart. Flýttu þér hægt CHANGING LANES (SKIPT UM AKREIN) Laugarásbíó, Sambíóin  Leikstjóri: Roger Michell. Kvikmynda- tökustjóri: Salvatore Totino. Tónlist: Dav- id Arnold. Aðalleikendur: Ben Affleck, Samuel L. Jackson, Toni Collette, Kim Staunton, Sydney Pollack, William Hurt, Tina Sloan. 100 mín. Paramount. Banda- ríkin 2002. Sæbjörn Valdimarsson Skipt um akrein er mynd sem fjallar „undir yfirborðinu um ranglæti og réttlæti, ábyrgð og skyldur engu síður en uppgjörið milli aðal- persónanna“, segir í umsögn. Russell Crowe hefur ákveðið að taka sér hlé frá kvikmyndaleik vegna mikils álags og til að geta verið meira með kærustunni og veikum föður sínum. Crowe hyggst halda heim til Ástralíu um leið og tökum myndarinnar Master and Commander lýk- ur í Mexíkó og hefur þegar af- lýst fyrirhugaðri hljómleikaferð hljómsveitar sinnar 30 Odd Foot of Grunts til Bandaríkjanna vegna þessa … Jennifer Lopez grét gleðitárum þegar Ben Affleck bað hennar í kertalýstu herbergi stráðu rósablöðum. Lag hennar Glad hljóm- aði í græjunum en hún samdi lagið um ástina sína … Stúlkurnar í At- omic Kitten fá 135 milljónir króna fyrir að láta sjá sig í kynþokkafullum undirfötum. Liz McLarnon, Jenny Frost og nýbakaða móðirin Nat- asha Hamilton hanna undirfötin sjálfar. Ef vel gengur getur verið að þær framleiði heila fatalínu undir nafni hljómsveitarinnar … Christina Ricci er hrædd við stökk- mýs. Leikkonan hefur óttast dýrin umfram allt annað frá því að hún var þriggja ára. Þá beit mús af þessu tagi hana í nefið og ætlaði aldrei að sleppa takinu … Söngkonan Hann- ah Spearritt úr S Club 7 er trúlofuð fyrrum hljómsveitarfélaga sínum Paul Cattermole. Þau ætla að ganga í hljónaband innan tíðar og setjast að á bóndabæ … Kelly Os- bourne þolir ekki Christinu Aguil- era og segir hana matvanda og vera stöðugt að skipa fólki fyrir. Þetta sagði hún eftir að hafa unnið með söngkonunni djörfu í hljóðveri. FÓLK Ífréttum Russell Crowe Jennifer Lopez KVIKMYNDIN No Such Thing eftir hinn virta bandaríska kvik- myndaleikstjóra Hal Hartley var frumsýnd á föstudaginn. Myndin er ekki síst merkileg fyrir þær sakir að hún var tekin hérlendis en framleiðendur eru þeir Frið- rik Þór Friðriksson og Francis Ford Coppola. Tökurnar fóru fram á suðvesturhorni landsins, á Reykjanesi, í Hvalfirði og í Reykjavík. Í myndinni segir frá skrímsli og sambandi þess við unga blaðakonu en á milli lína tekst myndin á við firringu sam- tímans og manneskju- og ómann- eskjulegheitin sem hann ein- kenna. Morgunblaðið/Kristinn Steindór Andersen og Helgi Björnsson létu sjá sig. Skrímslið hans Hartley No Such Thing frumsýnd í Háskólabíói "Grettissaga er stórkostleg leikhúsupplifun." S.S og L.P. Rás 2 Grettissaga saga Grettis leikrit eftir Hilmar Jónsson byggt á Grettissögu lau 23. nóv kl. 20, nokkur sæti, föst 29. nóv, kl. 20, laus sæti Sellófon eftir Björk Jakobsdóttur mið 20. nóv, uppselt, föst 22.nóv AUKASÝNING, nokkur sæti, sun 24. nóv, uppselt, þri 26. nóv, uppselt, mið 27. nóv, örfá sæti, sun 1. des, uppselt, mið 4. des, nokkur sæti, fim 5. des, laus sæti, Sýningarnar á Sellófon hefjast kl 21.00 Stóra svið SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Miller fö 22/11 kl 20, su 1/12 kl. 20 HONK! LJÓTI ANDARUNGINN e. George Stiles og Anthony Drewe Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna Lau 23/11 kl 20 ATH: Kvöldsýning, Su 24/11 kl 14, Su 1/12 kl 14 MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney Fim 21. nóv kl 20 - AUKASÝNING Fö 29. nóv kl 20 - AUKASÝNING Fi 5. des kl 20 - AUKASÝNING KRYDDLEGIN HJÖRTU e. Laura Esquivel Lau 30/11 kl 20 SÍÐASTA SÝNING 15:15 TÓNLEIKAR Lau 23/11 Sveinn L. Björnsson, Lárus Grímsson og Guðni Franzson. CAPUT Nýja sviðið Þriðja hæðin Litla svið Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is Miðasala: 568 8000 HERPINGUR e. Auði Haralds og HINN FULLKOMNI MAÐUR e.Mikael Torfason í samstarfi við DRAUMASMIÐJUNA Lau 23/11 kl 20 PÍKUSÖGUR e. Eve Ensler fi 28/11 kl. 20 RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT FRUMSÝNING Í dag kl 17.30 UPPSELT Su 24/11 kl 20 Ath. breyttan sýningartíma JÓN OG HÓLMFRÍÐUR e. Gabor Rassov frekar erótískt leikrit í þrem þáttum fim 21/11, fö 22/11, Veisla í Vesturporti! ..ef ykkur langar til að eiga stund þar sem þið getið velst um af hlátri, ekki missa af þessari leiksýn- ingu... (SA, Mbl.) fös. 22. nóv. kl. 21.00 lau. 23. nóv. kl. 21.00 Vesturport, Vesturgata 18 Miðasala í Loftkastalanum, Sími 552 3000 loftkastalinn@simnet.is www.senan.is Hin smyrjandi jómfrú sýnt í Iðnó 2. sýn. 20. nóv. kl. 20 3. sýn. 24. nóv. kl. 20 4. sýn. 1. des. kl. 15 5. sýn. 1. des. kl. 20 Léttur kvöldverður innifalinn Miðasala í síma 562 9700 Kvöldverður fyrir og eftir sýningar Miðasala er opin frá kl. 10-16 virka daga, kl. 14-17 um helgar, frá kl. 19 sýnd. Ósóttar pantanir seldar 4 dögum fyrir sýningar. Sími 562 9700 Munið gjafakortin! Fim. 21/11 kl. 21 Örfá sæti Fös. 22/11 kl. 21 Örfá sæti Lau. 23/11 kl. 21 Örfá sæti Fös. 29/11 kl. 21 Örfá sæti Lau. 30/11 kl. 21 Nokkur sæti Fim. 5/12 kl. 21 Nokkur sæti Fös. 6/12 kl. 21 50. sýning - Uppselt Fös. 13/12 kl. 21 Nokkur sæti 8. sýn. sun 24. nóv. kl. 14 örfá sæti 9. sýn. sun. 1. des. kl. 14 laus sæti 10. sýn. lau. 7. des. kl. 14. laus sæti 11. sýn. sun. 8. des kl. 14. laus sæti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.