Morgunblaðið - 20.11.2002, Síða 53

Morgunblaðið - 20.11.2002, Síða 53
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2002 53 BURTSÉÐ frá því hvort hún er meðvituð kímnin sem fólgin er í titli nýjustu plötu sveiflukóngsins úr Skagafirðinum þá er hann fynd- inn. „Alltaf eitthvað nýtt“ er kannski ekki fyrsta setningin sem kemur upp í hugann er Geirmund og tónlist hans ber á góma, en þar hafið þið það; nýja platan hans ber þetta kostu- lega nafn og það er nákvæmlega ekkert að því. Sýnir bara að karl- inn hefur greinilega góðan húmor fyrir sjálfum sér. Auðvitað vita þeir sem til Geirmundar þekkja að hann er ekki líklegur til þess að venda kvæði sínu í kross og hefur svo sem ekki mikla ástæðu til, eins vinsæll og hann hefur nú verið í gegnum tíðina. En dokum aðeins við. Ef grannt er skoðað þá er meira til í þessum titli en í fyrstu virðist. Aðal Geirmundar hefur löngum verið skagfirska sveiflan hans, sígilt rokk og ról, nett skandinavískir júróvisjóntaktar og auðlærð og hugljúf vangalög, m.ö.o. grunnuppskriftin að eldfjör- ugu sveitaballi. Og vissulega er hún til staðar hér. En eftir mark- vissar þreifingar undanfarin ár virðist hann loksins hafa komist að því hvernig gera megi góða upp- skrift ennþá betri, með því að bæta í hana klípu af vel tugginni kántrístemmningu með tilheyrandi fiðlustrokum og fetilgítarslætti. Og þar höfum við það. Alltaf eitt- hvað nýtt. Geirmundur er að fullu búinn að tileinka sér kántríbylgjuna sem tröllriðið hefur landanum síðasta veifið og kristallast það í óðnum til vinsælasta hópdans landsins, línu- dansins, í laginu „Lífið það er línu- dans“. Og þar sem Geirmundur syngur lagið í fullu fjöri studdur hinum einu sönnu Snörum þá veit maður vel að karlinn meinar það sem hann segir. Honum þykir lífið vera einn bráðfjörugur línudans og maður getur ekki annað en dáðst að jákvæðni þessa manns sem svo lengi hefur glatt landann á dansi- böllum með leik sínum og söng. Alltaf eitthvað nýtt er hressileg, traust og vönduð Geirmundar- plata, alveg eins og þær eiga að vera. Hún inniheldur góða blöndu af fjörugum lögum og ballöðum í hnökralausum og viðeigandi flutn- ingur Geirmundar og samstarfs- fólks, með upptökustjórann Magn- ús Kjartansson í fararbroddi. Vel var til fundið hjá Geirmundi að fá Snörurnar með í kántrísveifluna en að öðrum ólöstuðum syngja Helga Möller og Páll Rósinkranz listilega vel bestu lög plötunnar, gullfallegar ballöður „Ég veit það kæri vinur“ og „Ég vildi geta flog- ið“ en í því fyrrnefnda á Samúel J. Samúelsson einkar smekkvíst bás- únusóló sem setur afar sterkan og tregafullan svip á lagið. Þessi tvö lög innihalda líka einna bestu texta plötunnar sem allir voru ort- ir af Kristjáni Hreinssyni. Oftast fellur yrkisefni hans vel að laga- smíðum Geirmundar, er jákvætt og sígilt en betur tekst honum þó upp í hugljúfu lögunum en fjörinu þar sem kímnin missir gjarnan marks og verður klaufaleg, eins og í „Samba fyrir Silla“ sem fjallar eins og nafnið gefur til kynna um Silla, sem er svo „sauðheimskur maður“ en samt „alltaf svo glað- ur“. Alltaf eitthvað nýtt ætti að vera kærkominn gripur í plötusafn unn- enda Geirmundar og ekki kæmi á óvart ef honum tækist að þessu sinni að vinna einhverja lífsglaða línudansara á sitt band að auki. Tónlist Lífið er línudans Geirmundur Valtýsson Alltaf eitthvað nýtt Skífan Alltaf eitthvað nýtt, geislaplata Geir- mundar Valtýssonar. Lög eftir Geirmund og textar eftir Kristján Hreinsson. Auk Geirmundar sungu aðalsöng þau Helga Möller, Páll Rósinkranz, Snörurnar, Berg- lind Björk Jónasdóttir og Guðrún Gunn- arsdóttir. Gunnlaugur Briem lék á tromm- ur, Harldur Þorsteinsson bassa, Vilhjálmur Guðjónsson gítara, Samúel J. Samúelsson útsetti fyrir blásturs- hljóðfæri og lék á básúnu, Jóel Pálsson saxófón, Kjartan Hákonarson trompet og Magnús Kjartansson lék á píanó, hljóm- borð, nikku og söng bakraddir. Magnús Kjartansson útsetti lögin og stjórnaði upptökum í MK hljóðveri í Hafnarfirði í september 2002. Skarphéðinn Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.