Morgunblaðið - 29.12.2002, Side 48
48 SUNNUDAGUR 29. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
!
"
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
RITDÓMUR Inga Boga Bogasonar
um bók mína „Rómúlía hin eilífa“ (18/
12) er vægast sagt undarlegur. Í hon-
um má finna beinar og milliliðalausar
staðreyndavillur auk þess sem frá-
sögn af inntaki bókarinnar er villandi.
Tökum staðreyndavillurnar fyrst: 1)
Ingi Bogi segir að samkvæmt bókinni
sé aðeins ein öld síðan hin skáldaða
þjóð Rómúlir hafi tekið að rita sögur
sínar. Þetta er rangt, í bókinni kemur
skýrt fram að þeir hafi tekið að festa
sögur sínar á blað skömmu eftir
Krists burð (sjá blaðsíðu 21). 2) Ingi
Bogi segir að bókin sé „sagnasafn“.
Enn skjátlast Inga Boga, sú stað-
reynd að bókin inniheldur fjölda
ljóða, stuttar ritgerðir og heljarlangt
leikrit sýnir annað. Ingi Bogi heldur
því fram að bókin sé sundurlaus, það
vanti grunnhugmynd. En hann nefnir
hvergi að bókin hefur aðalpersónu,
„útgefandann“ og „þýðandann“
Valdemar Septimus Gunnsteinsson
sem „ritar“ um bókmenntir og sögu
Rómúlíu. Auk þess „skrifar“ hann um
tengsl sín við landið og segir frá því
hvernig hans líf tengist ýmsum bók-
menntaverkum þess. Í bókarlok eru
þræðir bundnir saman er lesandi fær
tvo kosti: Er Valdemar geggjaður og
landið hugarburður eða er þetta allt
saman satt og Rómúlía næsti ferða-
áfangi íslenskra flökkukinda? Ævi og
örlög Valdemars eru því það lím sem
heldur sögunni saman ásamt hinni að-
alpersónunni. Sú aðalpersóna er bók-
menntahugtakið sjálft, því inniheldur
bókin sýnishorn af öllum bókmennta-
greinum og -stílum sem til eru. Þess
vegna má finna póstmódernískar sög-
ur um Andrés Önd en Ingi Bogi segist
ekki skilja hvað slíkar sögur hafi með
rómúlska menningu að gera. Svarið
er að þær hafa með heimsbókmenntir
og -menningu að gera. Auk þess virð-
ist Ingi Bogi ekki skilja að mikilvægt
er að tengja sögur, ljóð og leikrit bók-
arinnar við „bókmenntasögu“ lands-
ins. Valdemar segir þar frá hinum
ýmsu höfundum og er „höfundur“
sagna á borð við Andrés Önd og Sher-
lock Holmes er ákveðin persóna,
Maríus Tíberíus að nafni. Skilja verð-
ur sögur Agrippa Ajacanda í ljósi
þess sem sagt er um þennan mann og
flest skáldverk bókarinnar í ljósi þess
sem sagt er um sögu landsins. Þetta
virðist hafa farið fram hjá Inga Boga
enda nefnir hann hvergi að skáldverk
bókarinnar séu skrifuð af uppdiktuð-
um höfundum. Því er frásögn hans af
bókinni vægast sagt villandi. Hann
ræðir ekki spurningar á borð við „er
Rómúlía Ísland eða bara heimur-
inn?“, „er bókin póst-módernískt völ-
undarhús?“ Þess vegna ristir ritdóm-
ur hans grunnt. Honum er frjálst að
þykja bókin vond en hann er skyldug-
ur til að skýra rétt frá inntaki hennar.
Þeirri skyldu bregst hann.
STEFÁN SNÆVARR,
Lillehammer, Noregi.
Svar við ritdómi
Stefán Snævarr skrifar
1964 eignuðust iðnaðarmenn athvarf
í menntakerfi þjóðarinnar – skóla
sem beinlínis var stofnaður til að
bjóða þeim framhaldsmenntun við
hæfi. Þótt skólinn lúti frá 2002 lögum
um háskólastig og nefnist Tæknihá-
skóli Íslands hefur þetta hlutverk
ekki verið frá honum tekið.
Starfinu verður frá 2003 skipað í
deildir með þessum hætti: Undir-
búningsdeild, tæknideild, heilbrigð-
isdeild og rekstrardeild. Tvær þær
síðartöldu eru viðhengi við upphaf-
legt hlutverk skólans og ber alls ekki
að lasta það. Hið upphaflega verður
því falið tæknideildinni einni (og á
sinn hátt undirbúningsdeildinni).
Bakþanki að þessu bréfi eru tvær
spurningar: Hvernig fara Íslending-
ar að því að ná aukinni velmegun fyr-
ir fjölgandi þjóð? Þarf þjóðin ekki að
verða mjög góð í einhverju umtals-
verðu?
Eitt er víst, þörf fyrir vélbúnað til
að auðvelda lífsbaráttuna í mann-
heimi er óendanleg. Líklega liggja
tækifærin í afburða hönnun og fram-
leiðslu á einhverju af öllum þessum
vélbúnaði (dæmi: Marel). Til þessa
þarf ekki aðeins góða iðnaðarmenn,
þeir þurfa mikla framhaldsmenntun.
Undirritaður leyfir sér að lýsa
þessum hugrenningum um leið og
lýst er trausti á ráðherrann til efl-
ingar nefndrar tæknideildar sem
hafi það hlutverk að hámennta iðn-
aðarmenn.
BJARNI KRISTJÁNSSON,
fv. rektor.
Opið bréf til mennta-
málaráðherra
Frá Bjarna Kristjánssyni
FYRIR allmörgum árum, líklega í
kringum 1975, las ég lesendabréf í
einmitt þessum dálkum þar sem höf-
undurinn stakk upp á því að byggður
yrði risablásari í því tilefni að kæla
loftið á hálendi Íslands. Þar með
skyldi hop jöklanna stöðvast og einn-
ig komandi kynslóðir skilja kvæði ís-
lenzkra skálda um þá.
Það hef ég talið vera bréf sem
skrifað var af manni (eða konu? – það
man ég ekki, og kannski var það birt
undir dulnefni) sem skildi það sem er
mikilvægt í lífinu. En tímar breytast.
Nú hugsa menn í fullri alvöru um
orkustofnun í Kárahnjúkum, um að
fórna Dimmugljúfrum fyrir hugsan-
legar – en ekki vissar – tekjur. Það
minnir á það sem er að gerast austur
í Kína, en ekki verður illt betra af því.
Ég vona innilega að áætlanir um
þessa virkjun stöðvist og að eftirkom-
endur okkar fái að njóta einstæðrar
fegurðar landsins eins og við.
Stokkhólmi, annan í jólum 2002.
ERIK ELVERS,
(sem hefur verið Íslandsvinur
frá strákaárum sínum og komið
til Íslands í um 20 skipti).
Tímar breytast
Frá Erik Elvers