Morgunblaðið - 26.03.2003, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 26.03.2003, Blaðsíða 30
OPEL CORSA SWING 5/98 Ekinn 95, 3 dyra, 5 gíra, sjálfskiptur. Verð 560 þús. Tilboð 400 þús. Notaðir bílar hjá Benna, Bíldshöfða 10, sími 587 1000. SUBARU FORESTER CS 09/98 Beinskiptur, ek. 52 þ. km. Verð kr. 1.490.000. Skipti möguleg á ódýrari. Notaðir bílar hjá Benna, Bíldshöfða 10, sími 587 1000. TOYOTA COROLLO 1600CC LUNA 03/99, ek. 76 þ. km. Beinskiptur, sumar- og vetrardekk, álfelgur. Verð kr. 890.000. Notaðir bílar hjá Benna, Bíldshöfða 10, sími 587 1000. VW GOLF GTI 2000CC, 09/96 Ek. 101 þ. km. Beinskiptur, loftkæling, 5 dyra. Verð kr. 890.000. Notaðir bílar hjá Benna, Bíldshöfða 10, sími 587 1000. PLYMOUTH GRAND VOYAGER V6, 3800cc, SE 4x4, árg. 1998, ek. 99 þ. km, sjsk., 7 manna. Verð kr. 2.190.000. Til- boðsverð kr. 1.990.000. Skipti möguleg á ódýrari. Notaðir bílar hjá Benna, Bíldshöfða 10, sími 587 1000. DAEWOO LANOS 1500 SE 02/01 Ek. 28 þ. km, beinskiptur, 4 dyra, spoiler. Verð kr. 890.000. Notaðir bílar hjá Benna, Bíldshöfða 10, sími 587 1000. BÁTUR TIL SÖLU Skemmtibátur með nýlegum 90 hö Merc- ury (tvígengis), kerra fylgir. Ásett verð 780 þ. Uppl. í Ss. 896 7513 (Davíð), 864 7930 (Valbjörn) & 897 2779 (Þröstur). NÝ TOYOTA Á VERÐI FRÁ KR. 19.250 Skoðaðu allt um TOYOTA á saumavelar.is. Tökum notaðar upp í nýjar. Saumavéla- viðgerðir. Sala og verkstæði í Mosgerði 3. Sími 892 3567. bílar SMÁAUGLÝSINGAR Aðeins 1.689 kr. án myndar og 2.948 kr. með mynd. Við myndum bílinn fyrir þig. Pantanafrestur er til kl. 12 á þriðjudögum. HAFÐU SAMBAND! Auglýsingadeild Morgunblaðsins. Sími 569 1111 eða augl@mbl.is bílar HAFÐU SAMBAND! Auglýsingadeild Morgunblaðsins. Sími 569 1111 eða augl@mbl.is 30 B MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ formúlan SPÆNSKI ökuþórinn Fernando Alonso hefur sett sér að markmiði að verða yngsti heimsmeistari sög- unnar í Formúlu-1. Hann varð á laugardag yngstur ökuþóra til að vinna ráspól, en hann er aðeins 21 árs. Alonso varð á endanum þriðji í kappakstrinum, komst í fyrsta sinn á verðlaunapall og er það jafnframt fyrsta pallsæti Renault eftir að frönsku bílaverksmiðjurnar tefla fram keppnisliði í Formúlu-1 á ný. Það tókst Spánverjanum unga þótt hann væri með flensu alla helgina og þyrfti að glíma við gír- kassabilun á síðustu hringjunum í Sepang. „Þetta er líklega besta helgi lífs míns. Ég er alsæll yfir því að vera yngstur. Ég hóf körtuakst- ur mjög ungur, keppti í Formúlu Nissan 17 ára, í Formúlu 3000 18 ára og með Minardi [í Formúlu-1] 19 ára. Ég hef alltaf verið yngsti ökuþórinn í þessum flokkum. Að vera sá yngsti sem vinnur ráspól er fínt og ég vona að ég verði yngsti ökuþórinn til að vinna kapp- akstur ... og svo kannski yngsti heimsmeistarinn,“ sagði hann eftir mótið í Sepang. Alonso verður 22 ára 29. júlí næstkomandi, eða rétt fyrir þýska kappaksturinn í Hockenheim. Hann verður því að vinna mót í ár til að slá við Nýsjálendingnum Bruce McLaren í metabókum sem yngsti mótssigurvegari. Þá varð brasilíski ökuþórinn Emerson Fittipaldi heimsmeistari 25 ára. Alonso hafði forystu fyrstu 14 hringina í Sepang, fram að fyrra þjónustustoppinu, og var ætíð meðal þriggja fremstu. Þar til fyrir hálfum mánuði, eftir eitt keppn- istímabil með Minardi 2001, hafði hann ekki unnið stig í keppni. „Það var mjög góð tilfinning að leiða kappaksturinn. Og síðan keppti ég við Rubens [Barrichello] í öðrum áfanga en á þeim þriðja átti ég í smávægilegum vandræðum með gírskiptinguna. Ég varð að handskipta síðustu hringina og var heppinn að komast á mark,“ sagði Alonso. Barrichello var þar til á laug- ardag yngsti ökuþórinn til að hafa unnið ráspól en hann hrósaði Alonso eftir keppnina og sagði hann efni í heimsmeistara, nokkuð sem Renault-stjórinn Flavio Briat- ore hefur haldið fram um tíma. Var Renault-liðið gagnrýnt, einkum af breskum fjölmiðlum, er það ákvað í fyrra að afþakka frekari þjónustu Jenson Button og ráða Alonso í hans stað. Forsvarsmönnum liðsins fannst þeir öðlast uppreisn æru í gær. „Ég vona að allir ensku blaða- mennirnir sem sögðu að við hefð- um fremur átt að halda í Button hafi nú kjark til að segja að við höfum líklega gert rétt,“ segir tæknistjórinn Mike Gascoyne. Alonso ætlar að verða yngsti heimsmeistarinn Reuters Fernando Alonso fagnar þriðja sætinu í Sepang í Malasíu. Góð ráð Lýsingar Suðurlandsbraut 22 540 1500 www.lysing. is Hvaða þjónusta er innifalin í rekstrarleigu? Það er mismunandi eftir bílaumboðum hvaða þjónusta er innifalin í rekstrarleigu, en almennt eru það smur- og þjónustuskoðanir skv. þjónustuhandbók. Sum bílaumboð bjóða einnig auka dekkjagang og dekkjaskipti um vor og haust. Þegar tilboð eru borin saman er mikilvægt fyrir leigutaka að bera saman hvað er innifalið í þjónustupakkanum sem umboðið býður. ÍTALSKIR og þýskir fjölmiðlar eiga erfitt með að melta frammi- stöðu Michaels Schumacher hjá Ferrari í upphafi keppnistímabil- ins, en neita því þó alfarið að af- skrifa heimsmeistarann alveg strax. Schumacher hafa orðið á af- drifarík mistök í báðum fyrstu mótunum og í Malasíu í gær varð hann að láta sér nægja að fylgj- ast með fagnaðarlátum úr fjarska er hann kom á mark í sjötta sæti. „Eftir klúðrið í Melbourne bjóst enginn við atvikinu í Sepang – ákeyrslu á fyrstu beygju milli hins óharðnaða og þjösnarans,“ sagði íþróttadagblaðið La Gazz- etta dello Sport um ákeyrslu Schumachers á Jarno Trulli í annarri beygju eftir ræsingu. „En ég held að gagnrýnin vari ekki í heilan mánuð,“ bætir blaða- maðurinn Candido Cannavo við en hann lýsir Schumacher sem „hinum fullkomna bræðingi manns og tölvu, hjarta og tækni“. Og bætir svo við: „Þeir sem geta ekki beðið þess að flá hann lifandi verða brátt að bíta í tunguna.“ Æsingurinn er meiri í heima- landi Schumachers, Þýskalandi. „Schumi er að fara á taugum,“ segir stærsta blað landsins, **FONT**Bild, í risafyrirsögn yfir stórri mynd af Schumacher haldandi um höfuð sér af vantrú. „Pressan eykst og eykst,“ segir þar líka. **FONT**Bild Zeitung er og nokkuð óvægið í gagnrýni sinni á heimsmeistarann sem er í sjötta sæti í stigakeppni ökuþóra að loknum tveimur mótum. „Þú vinnur ekki titilinn með þessum hætti, Dumi,“ segir blaðið og fer í orðaleik með því að setja í stað viðurnefnisins Schumi orðið Dumi sem á götumáli þýðir heimskingi. Schumi að fara á taugum?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.