Morgunblaðið - 26.03.2003, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 2003 B 19
vinnuvélar
Partur - Spyrnan - Lyftarar
Eldshöfða 10 - 110 Reykjavík - Símar 585 2500 og 567 8757
KENNAMETAL
DAEWOO lyftarar
fleygar - krabbar -
klippur o.fl.
borbúnaður
blöð og fræsitennur
Notaðir lyftarar á lager - Viðgerðarþjónusta
Varahlutir í flestar gerðir lyftaraFjaðrir
og loftpúðar í vörubíla,
sendibíla og jeppa
VÉLASVIÐ Heklu hf. er annað
af tveimur meginsviðum fyrir-
tækisins. Starfsemi sviðsins
felst í sölu og þjónustu á at-
vinnutækjum og tengdum bún-
aði.
Ásmundur Jónsson, fram-
kvæmdastjóri vélasviðs Heklu,
segir það bjóða viðskiptavinum
sínum breiða línu Caterpillar
vinnuvéla, lyftara, aflvéla í skip
og rafstöðva. Einnig Scania
vöruflutninga- og hópferðabif-
reiðar, HIAB hleðslukrana,
Sörling palla og malarvagna,
Goodyear hjólbarða, Combilift
og Aisle Master fjölnota lyftara
auk búnaðar frá mörgum öðrum
framleiðendum, fyrir íslenskt
atvinnulíf til lands og sjávar.
„Vélasvið Heklu er eitt elsta
og stærsta starfandi fyrirtæki í
sölu og þjónustu á atvinnutækj-
um hér á landi. Við höfum kom-
ið við sögu í helstu stórfram-
kvæmdum á sviði jarðvinnu
hérlendis á undanförnum ára-
tugum svo sem við vegafram-
kvæmdir, verkefni á sviði orku-
framleiðslu, virkjanagerðar og
svo framvegis. Við höfum einnig
þjónustað íslenskan sjávarútveg
um árabil. Þá höfum við á
skömmum tíma byggt upp öfl-
uga lyftaraþjónustu þar sem við
bjóðum lyftara fyrir allar að-
stæður.
Undanfarin tvö ár hefur verið
frekar rólegt yfir þessum mark-
aði – nú hins vegar finnum við
fyrir breytingum þar á. Ýmis
fyrirsjáanleg verkefni, víðsveg-
ar um landið, gera það að verk-
um að stærri og smærri verk-
takafyrirtæki og fram-
kvæmdaaðilar af ýmsum toga
eru þegar komnir í startholurn-
ar. Það hefur í för með sér
aukna spurn eftir bæði vöru og
þjónustu sem við höfum orðið
áþreifanlega vör við. Okkur
finnst þar af leiðandi tilltölulega
bjart framundan og aðgerðir
stjórnvalda á sviði verklegra
framkvæmda voru kærkomnar
fyrir þennan iðnað sem og at-
vinnulífið í heild,“ segir Ás-
mundur.
Hann segir árið hafa farið vel
af stað, pantanir í tæki og bún-
að slagi nú þegar hátt í heild-
arsölu síðasta árs. „Við höfum
sem dæmi á fyrstu þremur
mánuðum ársins afhent 10
Scania vöru- og flutningabif-
reiðar en allt árið í fyrra afhent-
um við 17 slíkar bifreiðar. Þrátt
fyrir það var Scania annað árið í
röð söluhæst í flokki stærri
vöru- og flutningabifreiða. Mik-
ið er fyrirliggjandi af pöntun-
um, bæði í Scania og Caterpill-
ar.“
Fyrir utan höfuðstöðvar véla-
sviðs Heklu er fyrirtækið með
þjónustuaðila á Akureyri og
Reyðarfirði og „framundan er
enn frekari uppbygging á að-
stöðu okkar á þessum stöðum,“
segir Ásmundur.
Aukin spurn eftir
vöru og þjónustu
Alltaf á
þriðjudögum