Morgunblaðið - 13.05.2003, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 13.05.2003, Qupperneq 15
S Á SEM þetta ritar var ný- kominn til starfa á vett- vangi húsnæðismála fyrir 20 árum þegar á brast með alþingiskosningar vorið 1983. Þá, eins og nú, fjölluðu umræður um húsnæðismál í aðdraganda kosning- anna fyrst og fremst um lánamál, einkum um það hvort hlutfall lána af byggingarkostnaði hefði lækkað eða hækkað í tíð þeirrar ríkisstjórnar er þá var að syngja sitt síðasta. Ríkisstjórnin gat sýnt fram á tals- verða prósentuhækkun lánanna, en stjórnarandstaðan benti á að vegna þess að lánin voru greidd út á 15 mánaða tímabili í 50% verðbólgu, væru þau í raun búin að rýrna um helming þegar húsbyggjandinn loksins fengi þau í hendur. Báðir að- ilar héldu fast fram sinni túlkun og kjósendur voru litlu nær. Að afstöðn- um kosningum 1983 skullu svo á mestu átök sem sést hafa í húsnæðis- málum hér á landi með tilkomu Sig- túnshópsins og ári síðar með átök- unum um lánsréttindi til handa Búseta. Hefðu íslenskir stjórnmála- menn og embættismenn húsnæðis- kerfisins árin á undan verið í betri takt við raunveruleikann er næsta víst að þróun húsnæðismála níunda áratugarins hefði orðið talsvert önn- ur. Umræður um húsnæðismál voru hverfandi litlar í nýafstaðinni kosn- ingabaráttu. Stjórnarflokkarnir, einkum sá sem fer með húsnæðis- mál, töldu ástand málaflokksins vera afar gott, sem vissulega gæti skýrt umræðuleysið. Stjórnarandstaðan benti hins vegar í samræmi við sitt hlutverk á ýmsar brotalamir og horfði með söknuði á eftir gamla fé- lagslega húsnæðiskerfinu. Húsnæðisumræðan hér á landi ár- ið 2003 geldur þess enn, ekki síður en 1983, hve föst hún er í einhliða umræðum um lánamál og því hvort þessi eða hinn stjórnmálaflokkurinn hafi boðið lántakendum betri kjör þegar hann sat við stjórnvölinn í fé- lagsmálaráðuneytinu. Þó ekki væri nema út af þessu yrði það framþróun málaflokksins mjög til góðs að lung- inn af lánastarfseminni yrði – eins og hjá öllum öðrum vestrænum þjóðum – færður yfir til réttra fagaðila bankakerfisins. Í þróuðu og nútímalegu markaðs- samfélagi – eins og við Íslendingar erum æ meir að sannfærast um að við lifum í – væri það ótvírætt fram- faraskref að hin almenna fjármögn- Hin týnda húsnæðisumræða un íbúðakaupa og húsbygginga yrði endanlega tekin undan áhrifavaldi stjórnmálamanna og færð í hendur fagstofnana á sviði lánsviðskipta. Slíkar stofnanir kallast bankar á ís- lensku. Helstu talsmönnum stjórnarand- stöðuflokkanna í húsnæðismálum hættir hins vegar á stundum til þess að detta niður í taumlausa fortíðar- hyggju og sjá enga aðra lausn en endurreisn gamla félagslega lána- kerfisins með tilheyrandi rokdýrum almennum vaxtaniðurgreiðslum. Lagðar eru fram tillögur um byggingu óraunhæfs fjölda fé- lagslegra leiguíbúða, en horft fram hjá nauðsyn þess að efla leiguíbúðir sem almennan húsnæðisvalkost, ekki síst sem mikilvægan þátt í nýrri borgarstefnu í höfuðborginni. Flókið samspil Húsnæðimál einkennast af flóknu samspili markaðar og ríkisafskipta, þau lúta í senn meginlögmálum markaðshagkerfisins og eru jafn- framt að einhverju leyti viðfangsefni velferðaraðgerða að hálfu almanna- valdsins. Markaðsþættirnir hafa verið í sókn á undanförnum árum hérlendis sem erlendis, óháð því hve vel það fellur að hugmyndafræði hinna ýmsu stefnumótandi aðila sem að málaflokknum koma. Landamæri markaðar og ríkis- stýringar hafa verið dregin að nýju, lánastarfsemin á sér nú orðið eðli- lega sveitfestu handan áhrifasvæðis ríkisvalds og stjórnmálamanna. Ábyrgð hins opinbera hefur auk þess verið að færast nær borgurunum í þeim skilningi að sveitarfélög hafa verið að öðlast meira olnbogarými og sjálfstæði og jafnframt meiri ábyrgð á sviði húsnæðismála. Þó að nokkur slæm umferðar- óhöpp hafi orðið við mótun íslenskrar húsnæðisstefnu á undanförnum ára- tugum hefur húsnæðisyfirvöldum hér á landi eigi að síður tekist að gera nokkra hluti rétt. Húsbréfakerfið, sem eiga mun 15 ára afmæli á næsta ári, hefur til að mynda, þegar á heild- ina er litið, heppnast býsna vel. Þetta sést best af því að fráfarandi félagsmálaráðherra, Páll Pétursson, hefur ekki hróflað við því þótt hann hafi að öðru leyti malbikað yfir vel- flest önnur handarverk Jóhönnu Sig- urðardóttur, forvera síns á ráðherra- stóli. Önnur undantekning frá þessu er reyndar húsaleigubótakerfið, sem mótað var í tíð Jóhönnu, en hefur góðu heilli verið aukið og eflt í ráð- herratíð Páls. Sú stefnubreyting sem nú er orðin í þá átt að efla leigumarkaðinn og auka byggingar bæði almennra og félagslegra leiguíbúða er einnig stórt framfaraskref. Húsaleigubótakerfið er mikilvæg forsenda yfirstandandi leiguíbúðauppbyggingar og efling þess skilyrði frekari framþróunar leigumarkaðarins. Þrátt fyrir brýna nauðsyn þess að draga úr yfirvikt húsnæðislánakerf- isins, en ekki auka enn þyngd þess með hæpnum aðgerðum eins og 90% lánum til allra lántakenda, er áfram brýn þörf á því að almannavaldið haldi á tónsprotanum í þeim samkór ólíkra aðila er koma þurfa að mótun farsællrar húsnæðisstefnu. Með öðrum orðum – svo notað sé tískuorð markaðsfræðinga – gæða- stjórnun húsnæðisstefnu og húsnæð- iskerfis er í dag lykilatriði, eins og í ótalmörgum öðrum tilvikum er það ekki stærðin sem er úrslitaatriði. Ofvöxtur ríkisstofnana hefur margoft verið til óþurftar og oftar en ekki boðið heim ofstjórn og miðstýr- ingu. Það bíður þeirrar ríkisstjórnar sem sest að völdum eftir þessar kosningar að stilla að nýju strengi hinnar íslensku húsnæðisstefnu. Húsnæðisstefna eftir Jón Rúnar Sveinsson, félagsfræðing hjá Borgarfræða- setri/jonrunar@hi.is MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 C 15HeimiliFasteignir Sogavegur - Sérbýli Vorum að fá í sölu gott 60 m² 2ja til 3ja herbergja sérbýli á einni hæð. Sérinngangur og lóð. Áhv. 5 millj. húsbréf og byggingasj. Verð 8,8 millj. Asparfell Vorum að fá í sölu mjög góða 68 m² íbúð á 3. hæð í fjöleignahúsi með lyftu. Vel umgengin íbúð með parketi og góðum suðursvölum. Áhv. 3,8 millj. byggsj. Verð 8,2 millj. 800.000 kr. íbúð Mjög snyrtileg 35 m² ósamþ. einstaklingsíbúð í fjórbýli. Íbúðin er nýmáluð og laus til afhendingar. Áhv. 3,1 millj. og útb. 800.000 og íbúðin er þín. Jörfabakki Vorum að fá í sölu góða 2ja herbergja ósamþ. 51 m² íbúð í kjallara í snyrtilegu fjöleignahúsi. Ákv. 3,8 millj. Verð 5,8 millj. Lómasalir - Glæsilegar 4ra herb. íbúðir í litlu fjölbýli á þessum skemmtilega stað, sérinngangur í hverja íbúð og stæði í bílageymslu. Hægt er að fá íbúðir afh. tilbún- ar til innréttingar, ef samið er strax. Verð frá 14,6 millj. Til leigu - Vegmúli 140 m² á götu- hæð, sem er að mestu salur með starfs- mannaaðstöðu, rúmlega 200 m² á 3. hæð (2. frá götu) sem verður innréttuð eftir þínu höfði. Lyfta er í húsinu. Til afhendingar strax. Starfsmenn fasteignasölunnar eru á staðn- um og sýna húsnæðið þegar þér hentar. Barónsstígur Vorum að fá í sölu gott 111 m² skrifstofuhæð í risi sem er nýtt sem tannlæknastofa í dag. Eignin býður upp á mikla möguleika. Verð 10,9 millj. Stórhöfði Í nýju og mjög vel staðsettu húsi eru til sölu fjórar einingar, 153 m² á 1. hæð, 426 m² á 2. hæð, 158 m² á 2. hæð og 218 m² á 4. hæð. Húsnæðið er til afhending- ar nú þegar, fullbúið að utan og sameign fullfrágengin með lyftu og snyrtingum, að innan er húsnæðið tilbúið til innréttingar. Pálmi B. Almarsson Löggiltur fasteignasali Sverrir B. Pálmason Sölumaður Jón Guðmundsson Sölumaður Katrín Magnúsdóttir Ritari Sigurður Á. Reynisson Sölumaður Byggingarfélag Gylfa og Gunnars ehf. hefur hafið sölu á stórglæsilegum 2ja, 3ja, 4ra, 5 og 6 herbergja íbúðum í glæsileg- um fjöleignahúsum í Bryggjuhverfinu. Íbúðirnar eru frá 95 fm og upp í 218 fm. „Penthouse“-íbúðir eru á tveimur hæðum og verður þeim skilað tilbúnum til innrétt- inga. Öðrum íbúðum verður skilað fullbúnum án gólfefna. Stæði í bílageymslu fylgir öllum íbúðum. Nokkrar íbúðir til afhendingar nú þegar. Glæsilegur sölubæklingur á skrifstofu Bifrastar. Verð frá 14,9 millj. Skemmtileg staðsetning við smábátahöfnina og sjávarilmur í lofti. NAUSTABRYGGJA 12-22 Byggingarfélag Gylfa og Gunnars ehf. hefur hafið sölu á stórglæsilegum 3ja og 4ra herbergja íbúðum, 96-119 fm, í glæsi- legu fjöleignahúsi í Grafarholtinu. Lyfta er í húsinu og sérinngangur í hverja íbúð. Vandaðar innréttingar frá Brúnási, tölvu- og símalagnir í öllum herb. Hægt er að fá bílskúr. Frábær staðsetning og glæsilegt útsýni. Íbúðum verður skilað fullbúnum án gólfefna. Glæsilegur sölubæklingur á skrifstofu Bifrastar. Verð frá 13,2 millj. KRISTNIBRAUT 77-79 Grafarvogur - Staðahverfi Mjög fallega innréttuð 113 m² 4ra herb. íbúð á 2. hæð í góðu fjöleignahúsi. Fallegar innrétting- ar og vönduð gólfefni. Áhv. 9 millj. Verð 14,9 millj. Laugateigur Vorum að fá í sölu stóra og góða 103 m² 3ja herbergja lítið niðurgrafna íbúð með sérinn- gangi í fallegu húsi á þessum rólega stað. Ákv. 4,1 millj. húsbréf. Verð 12,7 millj. Spóahólar Vorum að fá í sölu góða 95 m² 4ra herbergja íbúð á 2. hæð í litlu fjöl- eignahúsi. Þrjú svefnh. Flísar og parket. Áhv. 4,6 millj. Verð 11,1 millj. Brekkubyggð - Hæð Mjög góð 62 m² neðri hæð í raðhúsaklasa á þessum eftirsótta stað. Sérinngangur og allt sér. Parket og flísar. Áhv. 6 millj. Verð 10,9 millj. Krummahólar - Stæði Mjög rúmgóð 77 m² 2-3ja herb. íbúð á 2. hæð ásamt stæði í bílageymslu. Húsvörður og lyfta. Parket og flísar. Laus eftir mánuð. Verð 9,3 millj. Hraunbær Vorum að fá í sölu glæsilega 58,4 m² 2ja herbergja íbúð á 3. hæð (efstu) með suðursvölum og fallegu útsýni í fjöl- eignahúsi. Endurnýjað eldhús og nýtt parket. Áhv. 2,7 millj. byggsj.lán. Verð 8,6 millj. Bláhamrar - Sérinngangur Vorum að fá í sölu mjög góða 4-5 herb. íbúð á 2. hæð í góðu fjöleignahúsi með sérinn- gangi. Fjögur svefnherbergi. Parket. Verð 14,5 millj. Lómasalir - Nýtt Glæsileg 94 m² 3ja herb. íbúð á 3. hæð í nýju fjöleignahúsi, lyfta er í húsinu og stæði í bílageymslu fylgir. Íbúðin verður afhent fullb. án gólfefna um mánaðam. júní/júlí. Verð 13,9 millj. Meðalholt - Laus í júní/júlí Vorum að fá í sölu 3ja herb. íbúð á 1. hæð með aukh. í kjallara á þessum eftirsótta stað. Nýlegt bað. Parket og flísar. Laus um miðjan júní. Áhv. 4,2 millj. veðdeild. Verð 10,7 millj. Dúfnahólar - Laus Falleg 72 m² 3ja herbergja íbúð á 4. hæð í fjöleignahúsi með lyftu. Húsið er klætt að utan. Fallegt baðher- bergi. Parket og flísar. Útsýni. Áhv. 5,5 millj. húsbr. og 1,6 millj. viðb.lán. Laus fljótlega. Verð 9,9 millj. Nökkvavogur - Bílskúr Vorum að fá í sölu góða 2ja til 3ja herbergja íbúð á 1. hæð ásamt bílskúr í fjórbýlishúsi. Nýleg eldhúsinnrétting. Eitt herb. í kjallara sem er innangengt í. Verð 10,9 millj. Austurberg - Bílskúr Góð 80 m², 3ja herbergja íbúð á 4. hæð í góðu fjöleignahúsi ásamt bílskúr. Íbúðin er öll nýmáluð og bað- herbergi er flísalagt í hólf og gólf. Áhv. 3,6 millj. húsbréf. Verð 11,4 millj. Hlíðargerði - Einbýli Vorum að fá í einkasölu gott 100 m² einbýlis- hús sem er hæð og ris ásamt 32 m² bílskúr. Þrjú svefnherbergi, stofa og borðstofa. Park- et og flísar. Góður garður. Áhv. 4,2 millj. Verð 18,9 millj. Hlaðbrekka - Skipti Vorum að fá í sölu mjög gott og vel viðhaldið 161 m² ein- býlishús á tveimur hæðum með innb. bíl- skúr. Þrjú svefnherbergi. Hús í mjög góðu ástandi. Parket og flísar. Skipti á minni eign koma til greina. Áhv. 9 millj. Verð 22 millj. Hjallavegur Góð 126 m² 5 herbergja efri sérhæð á tveimur hæðum (hæð og ris) í fjór- býlishúsi, sem hefur verið töluvert endurnýj- uð. Parket og flísar. Áhv. 3,8 millj. Óskað er eftir tilboði. Skipholt - Nýtt Mjög rúmgóð og fallega innréttuð 5 herb., 112 m² íbúðarhæð á þessum eftirsótta stað. Þrjú svefnherb. og tvær stofur. Nýtt eldhús, parket og flísar. Áhv. 2,8 millj. Verð 16 millj. Sólvallagata Vorum að fá í einkasölu mjög rúmgóða og falleg 4ra herb., 115 m² íbúðarhæð á þess- um vinsæla stað. Þrjú svefnherbergi og stofa eða tvær stofur og tvö herb. Nýlegt eldhús og fallegt bað. Parket og náttúruflísar. Áhv. 3,8 millj. Verð 15,3 millj. SAMTENGD SÖLUSKRÁ FJÖGURRA FASTEIGNASALA - EIN SKRÁNING - MINNI KOSTNAÐUR - MARGFALDUR ÁRANGUR bifrost@fasteignasala.is LÆGRI SÖLUÞÓKNUN - VANTAR EIGNIR Vegna mjög mikillar sölu, það sem af er ári, vantar okkur nú þegar allar stærðir og gerðir eigna á skrá. Sérstaklega er skortur á 2ja, 3ja, 4ra og 5 herb. íbúðum. Ef þú ert í söluhugleiðingum eða ekki hefur gengið að selja, settu þig þá í samband við okkur. Við bjóðum upp á miðlægan eignagrunn fjögurra fasteignasala en samt einkasöluþókn- un. Hringdu og við skoðum eignina og gerum þér gott tilboð. FJÓRFÖLD SKRÁNING - MARGFALDUR ÁRANGUR - MINNI KOSTNAÐUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.