Morgunblaðið - 14.05.2003, Side 1
STOFNAÐ 1913 129. TBL. 91. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Komnir
í úrslit
AC Milan keppir um
Evrópubikarinn Íþróttir 44
Michael Jackson stefnir
Motown-útgáfunni Fólk 48
Bók
verður bíó
Nemendur Heiðaskóla á
söguslóðir Engla alheimsins 20
ALÞÝÐUSAMBAND Íslands, ASÍ, hefur sent frá
sér ályktun þar sem harðlega er mótmælt ný-
gengnum úrskurði Kjaradóms um hækkun launa
og lífeyrisréttinda þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu
embættismanna. Hækkanirnar eru sagðar „al-
gjörlega órökstuddar“ og í engu samræmi við
launaþróun á almennum vinnumarkaði. Þetta séu
því afar kaldar kveðjur til almenns launafólks sem
eitt hafi mátt axla byrðar af því að tryggja stöð-
ugleika í landinu.
Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur ASÍ, hef-
ur skoðað launaþróunina frá fyrsta ársfjórðungi
1999 til fyrsta ársfjórðungs 2003, þar sem með-
taldar eru samningshækkanir um síðustu áramót
en nýr úrskurður Kjaradóms ekki. Á þessum tíma
hafi launavísitala Hagstofunnar hækkað um
31,31%. Sé sú vísitala skoðuð nánar þá komi í ljós
að á almennum markaði hafi laun hækkað um
27,2% og laun opinberra starfsmanna hækkað um
37,8%. Á sama tíma hafi laun embættismanna er
heyra undir Kjaradóm hækkað almennt um 41,9%.
Með úrskurði Kjaradóms nú geti laun sumra emb-
ættismanna hafa hækkað um allt að 60% frá fyrsta
ársfjórðungi 1999. Ólafur Darri skoðaði einnig
þróun lágmarkslauna og miðað við taxtagreiðslur
og sama tímabil hafa þau hækkað um 33%.
ASÍ telur að þessi úrskurður muni torvelda end-
urnýjun kjarasamninga um næstu áramót, m.a.
hvað varðar tímalengd þeirra. ASÍ vekur jafn-
framt athygli á því að hluti þeirra sem þessara
launahækkana njóta ber pólitíska ábyrgð á stöð-
ugleikanum næstu misserin. Launafólk muni
fylgjast með því hver viðbrögð væntanlegrar rík-
isstjórnar verði við þessum úrskurði.
Umræða á villigötum
Garðar Garðarsson, formaður Kjaradóms, segir
að umræða um úrskurðinn sé á villigötum og svo
virðist sem gagnrýnendur hans hafi ekki lesið for-
sendurnar fyrir úrskurðinum. Hann bendir á að á
síðustu árum hafi hlutur dagvinnulauna í heild-
arlaunum opinberra starfsmanna farið vaxandi og
dagvinnulaun þeirra næstum tvöfaldast á sex ár-
um. Þetta hafi ekki gerst hjá embættismönnum
sem heyra undir Kjaradóm og það hafi nú verið
leiðrétt.
ASÍ mótmælir úrskurði
Kjaradóms harðlega
Segir Kjaradóm hafa
hækkað laun um allt að
60% á fjórum árum
Fá greiddar/6
TALIÐ er að allt að fimmtán þús-
und lík kunni að vera geymd í
fjöldagröfum sem fundist hafa í
þorpinu al-Mahawil, nærri borg-
inni Hilla í Írak, en hún er um 56
km suður af höfuðborginni Bagd-
ad. Talið er að í gröfunum sé að
finna pólitíska andófsmenn sem
drepnir voru eftir uppreisn sjíta-
múslíma í Suður-Írak árið 1991.
Fullyrt er á fréttasíðu BBC að
líkamsleifar um 3.000 manna hafi
þegar fundist. Segir í frétt BBC að
óbreyttir íraskir borgarar hafi
verið að grafa á staðnum í þeirri
von að geta borið kennsl á lík ætt-
ingja sem hurfu á sínum tíma.
Mannréttindahreyfingar telja að
lík allt að 200 þúsund fórnarlamba
ógnarstjórnar Saddams Husseins
sé að finna í fjöldagröfum víðs veg-
ar um Írak. Talsmenn þeirra hafa
hvatt til þess að fjöldagrafir eins
og þær, sem nú hafa fundist í al-
Mahawil, verði varðar ágangi al-
mennings, enda kunni þar að vera
að finna sönnunargögn sem gætu
skipt sköpum þegar hafist verður
handa við að sækja til saka hátt-
setta embættismenn Saddam-
stjórnarinnar.
Al Schmidt, majór í land-
gönguliðssveitum Bandaríkjahers,
sagði hins vegar að virða bæri rétt
þess fólks sem hefði mátt þola
þjáningar í stjórnartíð Saddams.
Reuters
Stór fjölda-
gröf fund-
in í Írak
GEORGE W. Bush Bandaríkjafor-
seti fordæmdi í gær hryðjuverkin í
Riyadh í Sádí-Arabíu sl. mánudags-
kvöld þar sem að minnsta kosti 29
manns létu lífið, þar af níu tilræðis-
menn. Sennilegt er talið að fjöldi fall-
inna sé í reynd hærri, jafnvel á bilinu
fjörutíu til fimmtíu. Sagði Bush þetta
verk „morðingja sem trúa einungis á
hatrið“ og hét því að þeir sem bæru
ábyrgð á voðaverkunum myndu „fá
að komast að því hvað réttlæti merkir
í Bandaríkjunum“.
Bílsprengjur sprungu við þrjár af-
girtar húsasamstæður í Riyadh þar
sem mikill fjöldi erlendra ríkisborg-
ara er búsettur, þ.á m. Bandaríkja-
menn. Colin Powell, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sem er í
heimsókn í Sádí-Arabíu, sagði allt
benda til þess að hryðjuverkasamtök-
in al-Qaeda hefðu verið að verki.
Var tilkynnt í gærkvöldi að Banda-
ríkjastjórn hefði ákveðið að kalla
mikinn hluta starfsliðs bandarískra
sendiskrifstofa í Sádí-Arabíu heim
vegna tilræðanna.
„Munum hafa uppi á þeim“
Bush sagði ennfremur að „mis-
kunnarlaus morð á bandarískum
borgurum og öðrum borgurum
minna okkur á það að stríðinu gegn
hryðjuverkum er ekki lokið“.
Forsetinn sagði að hann myndi
biðja fyrir fjölskyldum fórnarlamb-
anna, og að haft yrði uppi á þeim sem
bæru ábyrgð á hryðjuverkunum. „Í
Tétsníu væru „fyllilega sambæri-
legar“. Kom þetta fram í máli hans á
fundi með George Robertson, fram-
kvæmdastjóra Atlantshafsbanda-
lagsins (NATO). Sagði Pútín enn-
fremur að Rússar væru tilbúnir til
samstarfs við NATO í baráttunni
gegn hryðjuverkastarfsemi, sem og á
fleiri sviðum.
minnsta kosti 54 að bana í rússneska
sjálfstjórnarlýðveldinu Tétsníu á
mánudagsmorgun hefðu „sömu ein-
kenni“. Talsmaður hryðjuverkadeild-
ar rússneska hersins í Norður-Kák-
asus sakaði al-Qaeda um að hafa
staðið að tilræðinu í Tétsníu, þar sem
bílsprengja sprakk við opinbera
byggingu í þorpinu Znamenskoye.
Pútín sagði ennfremur að afleið-
ingar voðaverkanna í Riyadh og
hvert sinn sem einhver ræðst gegn
heimalandi okkar eða meðborgurum
okkar munum við hafa uppi á þeim,“
sagði Bush. „Við munum draga þá
fyrir dómstóla. Spyrjið bara talíban-
ana. Ég trúi því að við getum sigrast á
öllum hindrunum er verða á vegi okk-
ar.“
Vladimír Pútín Rússlandsforseti
sagði í gær að hryðjuverkin í Riyadh
og sprengjutilræði sem varð að
Bush fordæmir hryðju-
verkin í Sádí-Arabíu
Pútín segir að
tilræðunum í
Riyadh og Tétsn-
íu svipi saman
Reuters
Sádí-arabískur öryggisvörður í rústum einnar húsasamstæðunnar á vettvangi sprengjutilræðanna í Riyadh.
Indianapolis, Moskvu. AP, AFP.
Tugir létust/14
Stjarna
höfðar mál