Morgunblaðið - 14.05.2003, Side 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
TILRÆÐI Í RIYADH
Að minnsta kosti 29 manns biðu
bana, þar af níu tilræðismenn, í
sprengjuárásum í þremur húsa-
samstæðum í Riyadh, höfuðborg
Sádí-Arabíu, undir miðnætti á
mánudagskvöld. Tæplega 200
manns særðust. Sjö Bandaríkja-
menn voru meðal látinna en einnig
Sádí-Arabar; talið er að al-Qaeda-
hryðjuverkasamtökin beri ábyrgð á
verknaðinum. George W. Bush
Bandaríkjaforseti fordæmdi
sprengjuárásirnar í gær og hét því
að hafa hendur í hári þeirra sem
bera ábyrgð á þeim.
ASÍ mótmælir hækkunum
Alþýðusamband Íslands (ASÍ)
mótmælir harðlega nýgengnum úr-
skurði Kjaradóms um hækkun launa
og lífeyrisréttinda þjóðkjörinna full-
trúa og æðstu embættismanna. Seg-
ir ASÍ að hækkanirnar séu „al-
gjörlega órökstuddar“ og að þær séu
í engu samræmi við launaþróun á al-
mennum vinnumarkaði. Þá er því
haldið fram að Kjaradómur hafi
hækkað laun þjóðkjörinna fulltrúa
og æðstu embættismanna um allt að
60% á fjórum árum.
Haukar Íslandsmeistarar
Haukar úr Hafnarfirði voru í gær-
kvöldi krýndir Íslandsmeistarar í
handknattleik karla í fjórða skipti í
sögu félagsins. Haukar báru sig-
urorð af ÍR-ingum, 33:25, í fjórða úr-
slitaleik liðanna í Austurbergi og
unnu þeir þar með úrslitaviðureign-
ina um Íslandsmeistaratitilinn 3:1.
Línur skýrast fyrir helgi
Davíð Oddsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, og Halldór Ás-
grímsson, formaður Framsókn-
arflokksins, áttu stuttan fund í
ráðherrabústaðnum í gær, að lokn-
um fundi ríkisstjórnarinnar, en for-
mennirnir fóru á fundi sínum yfir
verkáætlun vegna viðræðnanna um
endurnýjun ríkisstjórnarsamstarfs
flokkanna. Líklegt er að línur skýr-
ist fyrir helgi um það hvort sam-
komulag náist eða ekki.
Fjöldagröf í Írak
Fundist hafa fjöldagrafir nærri
borginni Hilla í Írak, um 56 km suð-
ur af höfuðborginni Bagdad. Ljóst
er talið að þar sé að finna a.m.k. þrjú
þúsund lík, en þau gætu þó verið allt
að fimmtán þúsund. Hugsanlega er
um að ræða andófsmenn sem drepn-
ir voru eftir uppreisn sjíta-múslíma í
Suður-Írak árið 1991.
6. KYNSLÓÐ PASSAT
ÞJÓNUSTUSKOÐUN
LOFTSÍUR
GM Í MATRIX
SUBARU IMPREZA
GRANDIS
NÝTT ANDLIT MITSUBISHI
OUTLANDER REYNSLUEKIÐ
FLATAHRAUNI 31 • HAFNARFIRÐI
SÍMI 555 6025 • www.kia.is
K IA ÍSLAND
Bílar sem borga sig!
S u ð u r l a n d s b r a u t 2 2
S í m i 5 4 0 1 5 0 0
w w w. l y s i n g . i s
LÝSING
Alhliða
lausn í
bílafjármögnun
Ný og glæsileg hljómtækjalína frá Alpine
Ný
árge
rð
Flottar græjur!
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 32
Viðskipti 12/13 Minningar 32/37
Erlent 14/17 Hestar 38
Höfuðborgin 18 Bréf 40
Akureyri 19 Dagbók 42/43
Suðurnes 20 Íþróttir 44/47
Landið 21 Fólk 48/53
Listir 22/24 Bíó 50/53
Umræðan 25/27 Ljósvakamiðlar 54
Forystugrein 28 Veður 55
* * *
SPIL með myndum af eftirlýstum
Írökum eru nú til sölu í versl-
uninni Hjá Magna við Laugaveg í
Reykjavík og segir Magni R.
Magnússon, eigandi verslunar-
innar, að þau hafi vakið mikla at-
hygli.
„Þetta eru sömu spil og var
dreift til Bandaríkjamanna í Írak
svo þeir gætu þekkt viðkomandi
menn,“ segir Magni. Hann segist
hafa fengið 50 stokka í gegnum
breskt fyrirtæki og þar sem hann
hafi ekki þurft að greiða eins há-
an flutningskostnað og ef hann
hefði pantað spilin frá Bandaríkj-
unum geti hann boðið þau á svip-
uðu verði og erlendis. „Þessi spil
hafa verið gífurlega eftirsótt um
allan heim,“ segir hann og bætir
við að útlendingar hafi keypt
fyrstu stokkana hjá sér.
Íraksspil-
in komin
til Íslands
Morgunblaðið/Árni Torfason
Magni R. Magnússon með spil úr
Íraksstokknum.
PÁLL Bragi Kristjónsson var í gær
ráðinn forstjóri Eddu útgáfu hf., en
Halldór Guðmundsson, sem hefur
unnið við bókaútgáfu í 19 ár, lengst
af sem útgáfustjóri Máls og menn-
ingar og við stjórnvölinn hjá Eddu
útgáfu frá stofnun félagsins árið
2000, lét af störfum að eigin ósk og
snýr sér nú að ritun bókar um ævi og
verk Halldórs Laxness með stuðn-
ingi útgáfunnar. Aðspurður segist
Halldór engar skuldbindingar hafa
gert í starfslokasamningi um að
hann megi ekki stofna annað bóka-
forlag. Bókaútgáfa sé hvort sem er
ekki á döfinni hjá sér, heldur muni
hann alfarið snúa sér að öðru.
Undanfarna mánuði hafa Páll
Bragi Kristjónsson, sem verið hefur
framkvæmdastjóri Eddu útgáfu, og
Halldór Guðmundsson skipað fram-
kvæmdastjórn félagsins, en nú verð-
ur Páll Bragi einn ábyrgur fyrir
stjórninni.
Halldór Guðmundsson segir að
miklar og jákvæðar breytingar hafi
orðið hjá Eddu útgáfu með nýjum
eigendum, en fyrirtækið sé á réttri
leið og því hafi hann talið að þetta
væri rétti tíminn til að hætta og snúa
sér alfarið að helsta hugðarefni sínu
undanfarna tvo áratugi, en Edda út-
gáfa hefur undirritað viljayfirlýs-
ingu við hann um að hann taki að sér
ritun bókar um ævi og verk Halldórs
Laxness. „Ég hef borið ábyrgð á út-
gáfu yfir 3.000 bóka á undanförnum
19 árum og ég neita því ekki að það
að setja saman stærri bók um Hall-
dór Laxness hefur lengi verið
draumur minn,“ segir Halldór og
segist fá góðar aðstæður til þess
næstu tvö árin. Hann segir að bók
sem hann hafi gefið út um nafna sinn
í Þýskalandi í fyrra í tilefni þess að
100 ár voru liðin frá fæðingu skálds-
ins hafi ýtt mjög undir þá löngun að
gera eitthvað meira í þá veru. „Ég
hef fengist við hans verk og ævi í 20
ár og ef sinna á þessu með einhverj-
um myndarbrag verður að sinna því
vel.“
Á hluthafafundi í félaginu nýlega
var skipuð ný stjórn en hana skipa
Þór Kristjánsson, stjórnarformaður,
Páll Bragi Kristjónsson og Þröstur
Ólafsson.
Páll Bragi ráðinn
forstjóri Eddu útgáfu
Halldór Guð-
mundsson hættir
eftir 19 ára starf
DAVÍÐ Oddsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, og Halldór Ás-
grímsson, formaður Framsóknar-
flokksins, áttu stuttan fund í
ráðherrabústaðnum í gær, að lokn-
um fundi ríkisstjórnarinnar, en for-
mennirnir fóru á fundi sínum yfir
verkáætlun vegna viðræðnanna um
endurnýjun ríkisstjórnarsamstarfs
flokkanna.
Eftir fundinn sögðu formennirnir
að þeir hefðu sett í gang vinnu til að
afla gagna, m.a. um efnahagsmál og
ríkisfjármál, til að hafa í viðræðun-
um. Davíð sagði að í raun væru form-
legar viðræður hafnar milli flokk-
anna og kvaðst vænta þess að línur
yrðu skýrari undir næstu helgi; þá
ætti að vera orðið ljóst hvort sam-
komulag næðist eða ekki. „Það eru
ágætar líkur á því í augnablikinu að
þessi stjórn haldi áfram,“ sagði
hann.
Rætt um stöðuna
á ríkisstjórnarfundi
Davíð sagði að ekkert hefði komið
upp á sem væri þess eðlis að það
gæti stöðvað viðræðurnar en bætti
því við að þær væru þó enn ekki
langt komnar. „Það verður að hafa í
huga að við erum á grunnu svæði
ennþá,“ sagði hann.
„Við erum aðallega í gagnasöfnun
núna. Okkur vantar ýmsar upplýs-
ingar sem við viljum hafa og erum að
láta færa okkur slík gögn.“ Aðspurð-
ur sagði hann að formennirnir
myndu ekki hittast meira þann dag-
inn en þeir myndu þó vera í sam-
bandi í gegnum síma eða með tölvu-
pósti.
Halldór sagði eins og Davíð að
ólíklegt væri að hægt yrði að ljúka
viðræðunum fyrir helgi. Aðspurður
hvort einhver ágreiningur væri uppi
varðandi málefni sagði hann svo ekki
vera. „Það er enginn ágreiningur um
málefni enn sem komið er. Við erum
að afla gagna og eigum eftir að fara
yfir þau.“ Inntur eftir því hvort þeir
hefðu rætt skiptingu ráðuneyta milli
flokka sagði Halldór að þeir ætluðu
fyrst að fara yfir málefnin en síðan
verkaskiptinguna. „Við förum yfir
verkaskiptinguna þegar þar að kem-
ur. Það fer eftir því hvernig gengur
með málefnin.“
Fyrir fund formannanna hittist
ríkisstjórnin á fyrsta fundi sínum
eftir kosningar en ríkisstjórnin mun
starfa þar til önnur hefur verið
mynduð. Davíð og Halldór sögðu að
þeir hefðu á þeim fundi gert ríkis-
stjórninni grein fyrir stöðu mála.
„Þá var farið yfir kosningabaráttuna
og ýmislegt sem tengdist henni,“
sagði Halldór.
Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson áttu stuttan fund í ráðherrabústaðnum
Línur skýrist undir helgi
Morgunblaðið/Arnaldur
Ráðherrar ríkisstjórnarinnar komu saman til fundar í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í gær.
UNGI maðurinn frá Blönduósi
sem lýst var eftir á mánudag og
leitað var að fannst látinn
skammt frá býlinu Hæli í Torfa-
lækjarhreppi á sjöunda tíman-
um í gærkvöldi.
Allt að áttatíu björgunarsveit-
armenn á Norðurlandi voru
komnir til leitar í gær að hálfþrí-
tugum manni, Viktori Guð-
bjartssyni, sem saknað hafði
verið frá því á laugardag. Lög-
reglan á Blönduósi hafði afar fá-
ar vísbendingar til að fara eftir
við rannsókn málsins, en síðast
var vitað um Viktor í nágrenni
Húnavallaskóla á laugardags-
morgun. Björgunarsveitir frá
Hólmavík, Akureyri, Sauðár-
króki, V-Húnavatnssýslu og
Skagaströnd voru kallaðar til
leitar og var leitað á landi og úr
lofti. Leitin var hert enn frekar í
gær og voru notaðir sérþjálfaðir
hundar við leitina.
Ungi mað-
urinn fannst
látinn
KONA slasaðist er hún féll af
hestbaki á Lögmannshlíðarvegi
norðan Akureyrar á sjöunda
tímanum í gærkvöldi. Hún var
ein á ferð og er ekki vitað um
tildrög slyssins. Konan var flutt
á Fjórðungssjúkrahúsið á Ak-
ureyri en í gær var óljóst um
meiðsl hennar.
Féll af
hestbaki