Morgunblaðið - 14.05.2003, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Daglegt flug til London
Iceland Express flýgur til London alla daga.
Skoðaðu og bókaðu á IcelandExpress.is eða komdu á söluskrifstofuna
Suðurlandsbraut 24, opið 9-17 virka daga.
Lág fargjöld. Engin bókunarfyrirvari. Engin lágmarksdvöl og engin hámarksdvöl.
Söluskrifstofa Suðurlandsbraut 24, opið 9-17 virka daga I Sími 5 500 600 I www.IcelandExpress.is
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
KJARADÓMUR er skipaður
fimm dómendum og jafn mörg-
um til vara í 4 ár í senn. Þar af
skipar Hæstiréttur tvo dómend-
ur og skal annar þeirra vera lög-
fræðingur og formaður dómsins,
Alþingi kýs tvo fulltrúa og fjár-
málaráðherra skipar einn. Dóm-
inn skipa Garðar Garðarsson
formaður, Jón Sveinsson, Mar-
grét Guðmundsdóttir, Óttar
Yngvason og Þorsteinn Júlíus-
son.
Kjaradómur ákveður laun for-
seta Íslands, þingfararkaup al-
þingismanna og þingfararkostn-
að, launakjör ráðherra,
hæstaréttardómara, héraðsdóm-
ara, biskups Íslands, ríkisend-
urskoðanda, ríkissáttasemjara,
ríkissaksóknara og umboðs-
manns barna. Kjaranefnd er
skipuð þremur mönnum, þar af
tilnefnir Kjaradómur tvo nefnd-
armenn og fjármálaráðherra
skipar einn sem jafnframt er
formaður nefndarinnar. Kjara-
nefnd ákveður laun og starfs-
kjör embættismanna, annarra
en falla undir svið Kjaradóms
skv. lögum um Kjaradóm og
kjaranefnd. Kjaranefnd ákveður
m.a. laun lögreglumanna, toll-
varða og fangavarða og laun og
starfskjör heilsugæslulækna og
prófessora. Guðrún Zoëga, for-
maður kjaranefndar, segir að
það hafi ekki verið rætt innan
nefndarinnar hvort nefndin
muni úrskurða um breytingar á
launum og kjörum í kjölfar úr-
skurðar Kjaradóms.
Kjaranefnd ekki
rætt um breytingar
KARL Björnsson, framkvæmdastjóri launanefnd-
ar sveitarfélaga, segir engar algildar reglur í
ráðningarsamningum sem kveði á um að laun
æðstu embættismanna sveitarfélaga taki mið af
breytingum á þingfararkaupi. Það sé jafnmisjafnt
og samningarnir séu margir.
„Algengast er að ef einhver er með slíkar við-
miðanir séu það laun sveitarstjórna og annarra
nefnda og er þá miðað við ákveðið hlutfall af þing-
fararkaupi. Síðan eru einstaka yfirstjórnendur
sem hafa slíka viðmiðun, aðallega bæjar- og sveit-
arstjórar.“ Hann segir þennan þátt launamála
sveitarfélaganna ekki snúa beint að launanefnd-
inni sem semji vegna starfsmanna sem tilheyri
stéttarfélögum.
„Það hefur oft gerst í gegnum tíðina að menn
eru kannski að ákveða laun, einhverja viðmiðun
við þingfararkaup og svo koma þessar hækkanir í
einhverjum stökkum og þá bregðast menn við,
annaðhvort með því að sleppa þeim eða taka hluta
þeirra, eða þá lækka hlut sinn í þingfararkaupi.
Kjörnir fulltrúar hafa þetta alveg á valdi sínu þótt
þessi viðmiðun sé fyrir hendi,“ segir Karl. Hafi
hins vegar verið gerður ráðningarsamningur, t.d.
við bæjarstjóra til fjögurra ára sem taki breyt-
ingum samkvæmt hækkunum á þingfararkaupi,
sé ekki sjálfgefið að hægt sé að taka það ákvæði
tilbaka, að mati Karls.
Hann segir að þegar teknar séu ákvarðanir um
slíkar viðmiðanir beri að horfa til launaþróunar
undanfarin misseri og hversu langt er frá því laun
voru síðust hækkuð. Hann segir að svo virðist, að
sínum dómi, sem markmiðið með úrskurði Kjara-
dóms sé að leiðrétta vegna einhvers sem eigi sér
dýpri og eldri rætur en viðmiðun við launaþró-
unina undanfarið.
„Þetta er ekki leiðrétting gagnvart almennri
launaþróun síðustu misseri. Það er alveg ljóst. Það
er eins og verið sé að reyna almennt að rétta hlut
þessara stjórnenda miðað við einhverja aðra
stjórnendur úti í þjóðfélaginu, þeir hafi þá verið
komnir langt aftur úr samkvæmt einhverri upp-
haflegri viðmiðun.“
Óljóst hvað tekur við ef
viðmiðunarreglum verður breytt
Karl segir ekkert óeðlilegt við að sveitarfélög
taki sér slíkar viðmiðanir til fyrirmyndar. Mark-
miðið sé að finna hlutlausa viðmiðun sem er óháð
einstökum kjarasamningi og afleiðing heildarþró-
unar launa í landinu. Spurður hvort óeðlilegt sé þá
að laun æðstu embættismanna hjá sveitarfélög-
unum hækki til jafns við úrskurð Kjaradóms segir
hann svo vera „nema menn séu sammála um að
þau hafi verið vanmetin á einhvern hátt eins og
Kjaradómur virðist meta það í sínum úrskurði. Ef
menn hafa verið sáttir við launastigið hjá þessum
embættismönnum fyrir úrskurðinn hljóta þeir að
spyrja sig hvort það sé eðlilegt að taka þessa
hækkun óskerta inn núna“.
Í ályktun sem samþykkt var á bæjarmálafundi
Samfylkingar í Hafnarfirði 12. maí sl. er lýst yfir
vanþóknun á stórfelldum hækkunum sem Kjara-
dómur hefur ákvarðað á launum helstu ráða-
manna þjóðarinnar. Með úrskurði Kjaradóms séu
forsendur til að miða laun nefndarmanna hjá bæn-
um við þingfararkaup algerlega brostnar enda
engan veginn í takt við almenna launaþróun í land-
inu. Í framhaldi af úrskurði Kjaradóms ætla bæj-
arfulltrúar Samfylkingar að leggja til að
viðmiðunarreglum verði breytt hjá bænum, að því
er segir í ályktuninni.
Árni Þór Sigurðsson, forseti borgarstjórnar,
segir ekki tímabært að svo stöddu að hrófla við
launaviðmiðunum borgarfulltrúa og borgarstjóra
að því leyti sem þau taka mið af Kjaradómi en
hugsanlega verði málið rætt í hópi stjórnenda
borgarinnar í vikunni. Hjá Reykjavíkurborg hefur
lengi verið miðað við að laun borgarfulltrúa og
borgarstjóra tækju 80% viðmið af þingfararkaupi.
Aftur á móti er ekki lengur greitt sérstaklega fyrir
setu í fastanefndum.
Árni Þór segir að sér þyki erfitt að hverfa frá
því viðmiði enda sjái hann ekki í hendi sér að borg-
arfulltrúar taki sjálfir ákvörðun um eigin launa-
greiðslur líkt og alþingismenn gerðu hér fyrr á ár-
um.
Laun sveitarstjórnarmanna
ákveðin með ýmsum hætti
Skiptar skoðanir meðal
sveitarstjórnarmanna
um úrskurð Kjaradóms
GARÐAR Garðarsson, formaður
Kjaradóms, segir að umræða um úr-
skurð dómsins sé á villigötum og svo
virðist sem gagnrýnendur hans hafi
ekki lesið forsendurnar fyrir úr-
skurðinum. Laun æðstu embættis-
manna hafi lítið hækkað heldur hafi
launin verið leiðrétt með þeim hætti
að vægi dagvinnulauna í heildar-
launum hafi verið aukið.
Garðar sagðist ekki vilja svara
spurningum um einstök atriði held-
ur vísaði í úrskurðinn og lög um
Kjaradóm. Hann svaraði því þó að
hann teldi að laun þingmanna hefðu
verið of lág. Árið 1999 hefði Kjara-
dómur gert úttekt á launakjörum
þeirra og komist að því að þau væru
ekki nægilega góð, m.a. vegna auk-
ins álags. Einnig yrði að taka tillit
til þess að hér væri um heildarlaun
að ræða en ekki greitt fyrir yfir-
vinnu og annað slíkt. Spurður um
hvort launin yrðu lækkuð ef drægi
úr álagi, t.d. ef þingmenn fengju að-
stoðarmenn, sagði hann að tekið
yrði tillit til þess þegar það lægi fyr-
ir.
Dagvinnulaun opinberra
starfsmanna tvöfaldast
Garðar segir að í raun hafi emb-
ættismenn lítið sem ekkert hækkað
í launum heldur hafi stærri hlutur
launa þeirra nú verið færður inn í
dagvinnulaun. Hann bendir á að á
síðustu árum hafi hlutur dagvinnu-
launa í heildarlaunum opinberra
starfsmanna farið vaxandi og dag-
vinnulaun þeirra næstum tvöfaldast
á sex árum. Þetta hafi ekki gerst hjá
embættismönnum sem heyra undir
Kjaradóm og það hafi nú verið leið-
rétt.
Gagnrýnir umræðu
um prósentuhækkun
„Eitt í viðbót. Af hverju horfa
menn alltaf bara á prósentuhækk-
anir?“ spyr Garðar. Hjá öðrum
launamönnum sé samið um ýmsar
aðrar hækkanir, s.s. um tilfærslur
um launaflokka, hærri greiðslur
vegna starfsaldurs og menntunar.
Laun geti hækkað mun meira en
sem nemi beinni prósentuhækkun
með slíku launaskriði. Þetta komi
hins vegar aldrei fram. Ekki sé um
slíkar hækkanir að ræða hjá þeim
sem falla undir Kjaradóm heldur sé
tekið tillit til þessara atriða þegar
heildarlaun þeirra séu ákvörðuð.
Aðspurður sagði Garðar að launa-
skriðið kæmi reyndar fram að hluta
í launavísitölu.
Garðar Garðarsson,
formaður Kjaradóms
Umræða
um úr-
skurðinn á
villigötum
ÞINGFARARKAUP alþingismanna
er nú 437.777 krónur á mánuði en
ýmsar álagsgreiðslur bætast þar við.
Þannig fær hver alþingismaður
53.100 krónur á mánuði í fasta fjár-
hæð til að standa undir aukakostnaði
eins og bóka- og tímaritakaupum,
risnu, póstburðargjöldum utan skrif-
stofu, fundahöldum, ráðstefnum og
námskeiðum. Af þessari upphæð á
hann að borga skatt en þarf þess
ekki ef hann getur lagt fram greidda
reikninga fyrir kostnaði af þessu
tagi. Þá fær alþingismaður endur-
greiddan kostnað við síma á heimili
og starfsstöð sinni en með starfsstöð
er átt við hvers konar aðstöðu sem
þingmaður hefur í kjördæmi sínu ut-
an heimilis. Við störf utan Alþingis á
þingmaður síðan rétt á að nota bún-
að, svo sem farsíma, tölvu og fax-
tæki. Þá á hann rétt á að fá dagblöð
send heim til sín.
Varaforseti Alþingis, formenn
þingflokka og formenn fastanefnda
fá greitt 15% álag á þingfararkaup
fyrir störf sín sem þýðir 65.666 krón-
ur aukalega. Sama álag fá varafor-
menn fastanefnda og þingflokka
þann tíma sem formaður er utan
þings og varamaður hans situr á
þingi en á meðan fellur niður álags-
greiðsla til formanns. Þá er heimilt
að greiða formönnum sérnefnda 15%
álag og varaformönnum fjárlaga- og
utanríkisnefndar 10% álag eða
43.777 kr.
Fá rúmlega 72 þúsund í
húsnæðis- og dvalarkostnað
Alþingismenn frá kjördæmi utan
Reykjavíkur og Reykjaness fá
mánaðarlega greiddar 72.450 kónur í
húsnæðis- og dvalarkostnað. Alþing-
ismenn sem eiga heimili utan
Reykjavíkur eða nágrennis og fara
daglega til Reykjavíkur fá greiddar
24.150 krónur. Haldi alþingismaður
sem á aðalheimili utan Reykjavíkur
eða Reykjaness annað heimili í
Reykjavík getur hann óskað eftir að
fá greitt 40% álag á hinar fyrrnefndu
72.450 krónur sem gerir 101.430
krónur. Alþingismenn utan Reykja-
víkur fá kostnað við ferðir milli heim-
ilis og Reykjavíkur endurgreiddan,
einnig ef þingmaður fer daglega á
milli heimilis og Reykjavíkur um
þingtímann. Þeir fá 47.000 kr. mán-
aðarlega í fastan ferðakostnað en
þingmenn í Reykjavík 36.300 kr. Á
hann að standa undir ferðakostnaði í
næsta nágrenni heimilis eða starfs-
stöðvar auk dvalarkostnaðar á ferða-
lögum í kjördæmi. Þá skal endur-
greiða allan ferðakostnað innan
kjördæmis fyrir ferðir á fundi eða
samkomur sem þingmaður boðar til
eða hann er boðaður á sé vegalengd
frá heimili 30 km eða meira. Ef al-
þingismaður ekur eigin bifreið skal
greiða gjald fyrir hvern ekinn km og
skal þingmaður þá færa í sérstaka
akstursbók þar sem tilefni ferðar
kemur fram. Þá eiga þingmenn rétt
á dagpeningagreiðslum vegna ferða-
laga innanlands og utan.
Á meðan alþingismenn eru í fæð-
ingarorlofi eiga þeir rétt á greiðslu
þingfararkaups en einnig skal greiða
húsnæðis- og dvalarkostnað og
ferðakostnað ef við á.
Alþingismenn eiga rétt á ýmsum föstum álagsgreiðslum ofan á þingfararkaup
Fá greiddar
53.100 kr. í
fastan kostnað
Morgunblaðið/Sverrir