Morgunblaðið - 14.05.2003, Síða 8

Morgunblaðið - 14.05.2003, Síða 8
FRÉTTIR 8 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H U S 21 14 9 0 5/ 20 03 Ný vara í Britax barnabílstól Nýi Britax barnabílstóllinn verður í einkasölu í Húsasmiðjunni næstu mánuði og á sérstöku kynningarverði í maí. Britax cosy tot Vnr. 3000917 Verð 12.900 kr. Kynningarverð í maí 9.900 kr. • Frá 0 til 13 kg (u.þ.b. 9 - 12 mánaða). • Aukin hliðarvörn. • Djúpir hliðarvængir. • Þriggja punkta öryggisbelti með púðum, tryggir góða og þægilega festingu fyrir barnið. • Sól- og vindskyggni. • Sérhannað handfang. • Auðvelt er að festa stólinn. • Áklæði má þvo í þvottavél. Í maí er opið lengur í timbursölu Súðarvogi 3-5 og versluninni Skútuvogi. Opið virka daga kl. 8.00-18.00 og laugardaga kl. 9.00-17.00. Enginn gereyðingarvopnaframleiðandi, bara ótíndur bankaræningi? Málþing um kynhegðun unglinga Þarf að opna umræðuna Samráðshópur umheilbrigðan og já-kvæðan lífsstíl barna og unglinga hefur setið að störfum hin síðari misseri og gengst fyrir málþingi í lok vikunnar. Dagbjört Ásbjörnsdóttir starfsmaður ÍTR er í for- svari fyrir hópinn og mál- þingið. – Hverjir standa að um- ræddum samstarfshóp? „Tilurð samráðshópsins má rekja til haustsins 2001. Þá höfðu Félagsþjónustan í Reykjavík, Neyðarmóttak- an og Lögreglan í Reykja- vík haft afskipti af málefn- um kornungra stúlkna sem voru þátttakendur í áhættusamri kynlífshegð- un með eldri mönnum. Við- töl við nokkrar stúlkur birtust á ís- lenskri vefsíðu og fréttir af því voru mjög til umræðu í þjóðfélaginu. Við eftirgrennslan kom í ljós að þetta átti við rök að styðjast og málefni umræddra aðila fór í hefðbundna vinnu og stuðning hjá þeim stofn- unum sem málið varðaði. Í fram- haldi af þessu var boðað til fundar og ákveðið að mynda samráðshóp með fulltrúum frá Félagsþjónust- unni, Fræðslumiðstöð Reykjavík- ur, Íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur, Neyðarmóttöku, SAMFOK, Lögreglunni, Land- læknisembættinu og Menningar- miðstöðinni Gerðubergi.“ – Eftir hvaða áherslum starfar hópurinn? „Á síðastliðnum árum hafa orðið töluverðar breytingar í íslensku samfélagi, og má að vissu leyti rekja það til hinnar svokölluðu klámvæðingar og almenns mark- leysis í samfélaginu í þeim efnum. Börn og ungt fólk verða ekki síst fyrir áhrifum og það er okkar reynsla að mörg þeirra lenda í nið- urlægjandi og sjálfskemmandi hegðun. Samráðshópurinn er stað- ráðinn í að sporna við þessari óæskilegu þróun og leggja áherslu á heilbrigðan og jákvæðan lífsstíl barna og unglinga. Það er hlutverk fullorðinna sem uppalenda að tryggja öryggi og velferð barna og unglinga með forvörnum og fræðslu.“ – Að hverju er stefnt? „Samráðshópurinn er fulltrúi fyrir fjölda Íslendinga sem hefur áhyggjur af óheftri klámumræðu og þeim fyrirmyndum sem drengir og stúlkur hafa í dag. Það er ljóst að áhrif foreldra á uppeldi barna sinna fer dvínandi, aðrir áhrifa- þættir hafa gripið inn í. Fjölmiðlar eru þar einn veigamikill þáttur. Sterk og jákvæð sjálfsmynd barna og unglinga er besta forvörnin og hún verður einungis tryggð með samfélagslegri ábyrgð. Samráðs- hópurinn leggur áherslu á mikil- vægi foreldra og ábyrgð fjölmiðla í þessum málefnum. Hópurinn vill vekja samfélagslega gagnrýni í þessari umræðu þar sem ungling- um, uppalendum og fjölmiðlum er gefinn kostur á að koma sínum viðhorfum á framfæri. Það er jafn- framt mikilvægt að gefa þessum aðilum vísbendingar þegar vel er gert í þeim mála- flokkum sem skapa ímyndir hjá ungu fólki og móta viðhorf í sam- félaginu.“ – Finnið þið fyrir byr og góðum viðtökum í þjóðfélaginu? „Það virðist sem fólk sé yfir höf- uð ánægt með þessa umræðu og telur hana vera löngu tímabæra. Fulltrúar ofangreindra stofnana eru að vinna í þessum málaflokki með einum eða öðrum hætti innan síns starfsvettvangs. Unglingar jafnt og fullorðnir eru á eitt sam- mála um mikilvægi þess að opna þessa umræðu. Samráðshópurinn hefur staðið fyrir greinaskrifum og stutt við foreldra- og nemenda- fræðslu í grunnskólum. Hópurinn stóð m.a. fyrir verkefninu Ungling- ar þinga með fulltrúum frá nem- endaráðum grunnskólanna í Reykjavík haustið 2002 þar sem þema þingsins var Unglingar, kyn- líf og fjölmiðlar. Niðurstöður þingsins styrktu samráðshópinn enn frekar í að snúa sér að áhrifa- mætti fjölmiðla og í framhaldi af því varð til verkefnið Ljósberinn sem miðaði að því að útnefna þann fjölmiðlamann sem hvað best stæði sig á þessu sviði. Guðrún Gunnars- dóttir hlaut hana fyrir afgerandi afstöðu gegn klámi 2002.“ – Segðu okkur frá málþinginu, hvert verður þema þess og hverjir taka til máls? „Yfirskrift málþingsins er „Kyn- ferðislegar tengingar í auglýsing- um og ábyrgð fjölmiðla“ og verður haldið föstudaginn 16. maí næst- komandi klukkan 13 til 16 í Menn- ingarmiðstöðinni Gerðubergi. Til máls taka Þorsteinn Þorsteinsson forstöðumaður markaðssviðs RÚV, Guðmundur Oddur Magnús- son grafískur hönnuður, Kristinn Már Ársælsson nemi við heim- speki- og félagsfræði við Háskóla Íslands, Edda Jónsdóttir fjölmiðla- fræðingur, Sverrir Björnsson graf- ískur hönnuður, Guðrún Guð- mundsdóttir mannfræðingur, Steinunn Helga Jakobsdóttir og Hrefna Sverrisdóttir á ritstjórn tímaritsins Orðlaus. Nemendur við LHÍ kynna verkefnið sitt Barnaleikir og Tara Sverrisdóttir nemandi við Langholtsskóla les úr bókinni Engill í Vesturbænum eftir Kristínu Steinsdóttur. Þær Þorgerður Þorvaldsdóttir sagn- og kynjafræðingur og Halldóra Geir- harðsdóttir leikkona stjórna pall- borðsumræðum. Ég vil taka það sérstaklega fram að öll vinna þátt- takenda er unnin í sjálfboðavinnu í þágu málefnisins. Öllum er heimill aðgangur og er ekkert þátttöku- gjald.“ Dagbjört Ásbjörnsdóttir  Dagbjört Ásbjörnsdóttir er fædd í Hafnarfirði 28. mars 1973. Stúdent frá FG 1994, BA-gráða í mannfræði frá HÍ 1998 og MA í kynja- og kynlífsfræðum frá Int- ernational School og Humanities and Social Science, University of Amsterdam vorið 2002, með rit- gerð um sjálfsmynd og kyn- hegðun íslenskra ungmenna, 15 til 18 ára. Starfað hjá ÍTR sl. 5 ár, sérstaklega að málefnum sem snúa að kynhegðan og kynlífi unglinga. Leggja áherslu á heilbrigðan og jákvæðan lífsstíl

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.