Morgunblaðið - 14.05.2003, Side 14
ERLENT
14 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
AÐ MINNSTA kosti 40 manns og
hugsanlega 50, þar af níu tilræð-
ismenn, létu lífið í sjálfsmorðs-
sprengjuárásum í þrem húsasam-
stæðum í Riyadh, höfuðborg
Sádi-Arabíu, undir miðnætti á
mánudagskvöld. Tæplega 200
manns særðust. Innanríkisráðu-
neyti Sádi-Arabíu og bandaríska ut-
anríkisráðuneytið greindu frá þessu
í gær. Var tekið fram að tala lát-
inna myndi ef til vill eiga eftir að
hækka.
Í húsunum bjuggu aðallega er-
lendir ríkisborgarar, og meðal
þeirra sem létust voru Jórdanir,
þ.á m. tvö börn, Bandaríkjamenn,
Filippseyingar, Líbani, Svisslend-
ingur og Ástrali. Einnig létust Sádi-
Arabar, þ.á m. sonur aðstoðarborg-
arstjórans í Riyadh.
Húsasamstæðurnar eru afgirtar
og læst hlið á veggjunum umhverfis
þær. Tilræðismennirnir skiptust á
skotum við öryggisverði áður en
þeir óku bílum hlöðnum sprengiefni
inn í húsasamstæðurnar og
sprengdu þá í loft upp. Sagði innan-
ríkisráðuneyti Sádi-Arabíu að við-
brögð varðanna hefðu komið í veg
fyrir að fórnarlömbin yrðu enn
fleiri.
Nokkru síðar, aðfaranótt þriðju-
dagsins, sprakk fjórða sprengjan,
sem var öllu minni, við höfuðstöðv-
ar bandarísk/sádiarabísks fyrirtæk-
is. Engan mun hafa sakað í því til-
ræði.
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, kom til Sádi-Arabíu
í gærmorgun, og sagði hann að þótt
enginn hefði enn lýst tilræðunum á
hendur sér bæru þau öll merki þess
að hryðjuverkasamtök Osama bin
Ladens, al-Qaeda, hefðu verið að
verki.
Einkenni al-Qaeda
Samtökin eru þekkt fyrir sjálfs-
morðssprengjutilræði og samhæfð-
ar aðgerðir á borð við hryðjuverkin
í Bandaríkjunum 11. september
2001 og bílsprengjutilræði samtímis
við bandarísku sendiráðin í Kenýa
og Tansaníu 1998, er urðu 230
manns að bana.
Bandarískur leyniþjónustumaður
í Washington sagði að upplýsingar
er fengist hafa undanfarinn hálfan
mánuð hefðu bent til að al-Qaeda
væri að leggja á ráðin um tilræði í
Sádi-Arabíu, en þar er bin Laden
fæddur og þar eru helgustu staðir
íslams.
Mikill fjöldi erlendra ríkisborg-
ara starfar í Sádi-Arabíu, þ.á m. um
35 þúsund Bandaríkjamenn og 30
þúsund Bretar. Flestir útlending-
arnir starfa í olíuiðnaðinum, á fjár-
málamarkaðinum og við kennslu. Á
bak við háa veggi í húsasamstæðum
á borð við þær sem ráðist var á
geta Vesturlandabúarnir sleppt því
að fylgja ýmsum ströngum sam-
skiptareglum er ríkja í Sádi-Arabíu,
eins og til dæmis þeim, að konur
skuli ekki fara út af heimilinu nema
hylja sig undir kufli.
Bandaríkjamenn hafa haft um
fimm þúsund manna herlið í Sádi-
Arabíu, og hefur það vakið andúð í
þeirra garð. Bandaríska varnar-
málaráðuneytið tilkynnti reyndar í
síðustu viku að hermennirnir væru
á förum og yrðu flestir á brott und-
ir haustið. Bin Laden hefur ítrekað
fordæmt veru „heiðinna“ hermanna
á helgu landi múslíma.
Meint tengsl við vopnafund
Í gær var haft eftir innanríkis-
ráðherra Sádi-Arabíu, Nayef prins,
að ekki væri hægt að útiloka að
fleiri tilræði yrðu framin. Hann
sagði ennfremur að talið væri að
tengsl væru á milli tilræðanna á
mánudagskvöldið og mikilla vopna-
birgða sem yfirvöld fundu fyrir
viku.
Enn væri leitað 19 manna er
grunaðir væru um aðild að því máli
– 17 Sádi-Araba, eins Jemena og
eins Íraka sem væri kúveitskur og
kanadískur ríkisborgari – og taldir
taka við skipunum beint frá bin
Laden. Segja yfirvöld að hinir
grunuðu hafi haft uppi áætlanir um
að nota vopnin sem fundust til
árása á sádísku konungs-
fjölskylduna og bandarísk og bresk
skotmörk í landinu.
Bandaríska alríkislögreglan,
FBI, mun senda menn til Riyadh til
að aðstoða við rannsókn málsins, að
því er talsmaður hennar sagði í
gær. Hafa sádiarabísk yfirvöld þeg-
ar veitt leyfi fyrir að um tíu fulltrú-
ar stofnunarinnar taki þátt í rann-
sókninni.
Tugir létust
í sprengju-
tilræðum
Reuters
Tvær stúlkur skoða eyðilegginguna af völdum sprengjutilræðanna mannskæðu í Riyadh í fyrrakvöld.
Reuters
Vinnuvélar fyrir framan rústir einnar húsasamstæðunnar í Riyadh, höfuð-
borg Sádi-Arabíu, þar sem bílsprengja sprakk í fyrrakvöld.
"!$)1*!
)!'#23
)* .!.!*#$/'"+
!/0#!1#2 3 4 2
5// *2$ '!
* 2 /&*674*+82*9
4#&
8 5 "& +
# 4
!!
% /
6:;+88);8
!"! !#!$#!
%!&'$
(# &
%!)#
! $
!
!%! !%!*'% %
'!
' +,-.
Líkur taldar á að al-Qaeda hafi staðið
fyrir hryðjuverkunum í Sádi-Arabíu
Washington, Riyadh. AFP, AP.
COLIN Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, fullvissaði í gær
Palestínumenn um að Vegvísinum
svonefnda, áætlun stórveldanna um
frið í deilum Ísraela og Palestínu-
manna, yrði ekki breytt til að þókn-
ast Ariel Sharon, forsætisráðherra
Ísraels. Sharon sagði í viðtali við
blaðið The Jerusalem Post í gær að
deilan um byggðir gyðinga á her-
numdu svæðunum yrði ekki á dag-
skrá í friðarviðræðunum og jafn-
framt að ekki yrði hætt að styrkja
þær byggðir sem fyrir væru.
Sharon sagði að enginn þrýst-
ingur væri af hálfu Bandaríkja-
manna í þá veru að leggja land-
tökubyggðirnar niður en þar búa nú
hundruð þúsund Ísraela. Byggðirn-
ar eru í andstöðu við ákvæði al-
þjóðalaga um aðgerðir á hernumd-
um svæðum. Í Vegvísinum eru
ákvæði um að frekari mannvirki
verði ekki reist en síðar láti Ísrael-
ar af hendi megnið af hernumdu
svæðunum til Palestínustjórnar.
Sharon mun ræða við George W.
Bush Bandaríkjaforseta 20. maí í
Washington. Er gert ráð fyrir að
þeir muni meðal annars fjalla um
Vegvísinn.
„Ísraelar hafa gert nokkrar at-
hugasemdir við Vegvísinn og við
munum hlýða á það sem þeir segja
en við ætlum ekki að breyta áætl-
uninni eða endurskoða hana,“ sagði
Powell í Amman í Jórdaníu í gær.
Hann lauk friðarför sinni til Ísraels
og heimastjórnarsvæða Palestínu-
manna á mánudag, án þess að hafa
mikið upp úr krafsinu. Ísraelar eru
enn ekki sáttir við friðarvegvísinn
og áframhaldandi óöld hefur dregið
úr vonum um friðarumleitanir.
Powell dró úr því að andstaða
Ísraela væri alvarlegur þrándur í
götu og hvatti deiluaðila til að taka
fyrstu skrefin í átt að fullgildingu
Vegvísisins, sem er þriggja þrepa
friðaráætlun Bandaríkjamanna,
Rússa, Sameinuðu þjóðanna og
Evrópusambandsins. Áætlunin
kveður m.a. á um að bundinn verði
endi á allt ofbeldi og hryðjuverk og
stofnað palestínskt ríki árið 2005.
Palestínumenn hafa samþykkt
hana, en Ísraelar gert fimmtán at-
hugasemdir og ekki lagt blessun
sína yfir hana opinberlega.
Powell átti í förinni viðræður við
leiðtoga Egyptalands og Jórdaníu
en fór síðan til Sádi-Arabíu. Ráð-
herrann sagði m.a. að það væri enn
mikilvægara að Ísraelar ræddu
beint við Palestínumenn en að þeir
samþykktu Vegvísinn. Fréttaskýr-
endur sögðu að það eina sem komið
hefði út úr för Powells um helgina
væri að skipulagður hefði verið
fundur forsætisráðherra Ísraela og
Palestínumanna, Sharons og
Mahmuds Abbas, nk. föstudag.
Powell segir Vegvísi
ekki verða breytt
Amman, Jerúsalem. AFP.
Sharon fullyrðir að gyðingabyggðir á hernumdu svæð-
unum fái að standa og deilan um þær verði ekki rædd
COLIN Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, ræðir við frétta-
menn eftir að hann skoðaði rústir
einnar húsasamstæðunnar í Riyadh
í gær, þar sem margir landar hans
létu lífið. „Þetta ber svo sannarlega
með sér að al-Qaeda hafi verið að
verki,“ sagði Powell. „Þetta var vel
skipulagt hryðjuverk ... fram-
kvæmdin var óaðfinnanleg og þetta
sýnir eðli óvinarins sem við eigum
við að etja.“
Powell ítrekaði að Bandaríkja-
menn væru staðráðnir í að ráða nið-
urlögum al-Qaeda. „Sú eyðilegging
sem blasir hér við mun ekki draga
kjarkinn úr Bandaríkjamönnum og
ég er viss um að hún mun ekki
draga úr Sádí-Aröbum í sameig-
inlegri viðleitni okkar til að upp-
ræta svona hryðjuverkastarfsemi ...
Þetta er glæpastarfsemi, hryðju-
verk eins og þau gerast verst, ekk-
ert réttlætir þetta.“
AP
„Sýnir eðli óvinarins“