Morgunblaðið - 14.05.2003, Síða 19
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2003 19
FYRSTA skóflustunga að fyrsta
íbúðarhúsinu í Naustahverfi var
tekin í gær en þar var að verki
Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri
sem hóf þar með framkvæmdir við
húsið númer 23 við Stekkjartún.
Naustahverfi liggur beint ofan
við Akureyrarflugvöll, frá suður-
enda Kjarnaskógar. Áætlað er að
hverfið byggist upp á 15 árum og
að íbúafjöldi verði á bilinu 6–8
þúsund manns í 2.300 til 3.000
íbúðum. Skiptist hverfið upp í tvö
skólahverfi og eina kirkjusókn.
Í þeim áfanga sem nú er verið
að hefja verða alls 158 íbúðir en
þegar er búið að úthluta lóðum
fyrir 143 íbúðir. Gatnafram-
kvæmdir við næsta áfanga hefjast
á næstu dögum, en í honum er
gert ráð fyrir um 170 íbúðum.
Lóðum í þeim áfanga verður út-
hlutað fyrri hluta sumars og verða
þær byggingarhæfar 1. nóvember
næstkomandi.
Fyrsta byggingin sem í var ráð-
ist í Naustahverfi var leikskóli sem
tekinn verður í notkun 18. ágúst í
sumar, áður en fyrstu íbúarnir
flytja í hverfið, og er þar að lík-
indum einsdæmi að slík bygging
rísi áður en íbúarnir láta sjá sig.
Grunnskóli verður svo síðar
byggður við hlið leikskólans, eða
þegar íbúafjöldi hefur náð tilsettu
marki.
Morgunblaðið/Kristján
Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri afhenti fjölskyldunni sem ætlar að byggja einbýlishúsið Stekkjartún 23 blóm-
vönd. F.v. Anna María Guðmann, Adam Traustason, börnin Trausti Lúkas og Þórey Lísa og Kristján Þór.
Áætlað að hverf-
ið allt byggist
upp á 15 árum
Framkvæmdir hófust í gær í Naustahverfi þar sem 6–8 þúsund manns munu búa í framtíðinni
ÞAÐ var lán í óláni
að Páll Gíslason fékk
send SMS-skilaboð
þar sem hann var að
leita að golfkúlu sinni
við 5. holu á golfvell-
inum á Þverá í Eyja-
fjarðarsveit. Hann
sneri sér nefnilega
við til að lesa boðin
en í sama mund kom
fljúgandi golfkúla og
skall á hnakka hans.
„Annars hefði ég
fengið kúluna í andlit-
ið og það hefði örugg-
lega ekki farið eins
vel,“ segir Páll, sem
var fljótur að hrista af sér höf-
uðhöggið þótt þungt væri.
Páll er íþróttakennari og meist-
araflokksmaður í handknattleik
og knattspyrnu til 15 ára og seg-
ist hann hafa sloppið afar vel við
meiðsl á sínum
íþróttaferli.
Páll hafði hug á að
snúa sér að „gam-
almennaíþróttinni“
eins og hann orðaði
það, golfi, eftir lang-
an feril í boltanum.
„Ég ætlaði að skella
mér í golfið í sumar,
en það byrjaði ekki
vel, enda ákvað ég í
kjölfarið að taka
frekar fótboltaskóna
fram að nýju.“
Páll var með fé-
lögum sínum á golf-
vellinum við Þverá á
laugardag, kosningadaginn, og
var að leita að boltanum sínum við
5. holu í mestu rólegheitum þegar
hann fékk SMS-boð. Hann sneri
sér við til að lesa boðin, sem voru
frá félaga hans og áköfum fram-
sóknarmanni, Siguróla Kristjáns-
syni, Mola, sem var að minna Pál
á að kjósa rétt. „Nei, ég var ekki
búinn að kjósa og ætli við látum
ekki liggja milli hluta hvort ég
hafi farið að ráðum Mola, en
vissulega bjargaði það mér að ég
skyldi snúa mér til að lesa boðin
þegar boltinn kom á fljúgandi
ferð í hnakkann á mér,“ sagði
Páll.
„Það slokknaði á mér
augnablik“
Hann telur að boltinn hefði
flogið um 20 metra áður en hann
lenti í höfði hans. „Mér brá alveg
rosalega,“ sagði hann og bætti við
að höggið hefði verið þungt, „það
slokknaði á mér augnablik, ég
datt út og sá líklega einar 12 til
13 fuglategundir. Eftir að ég sett-
ist niður var ég fljótur að jafna
mig,“ sagði Páll.
Páll Gíslason fékk óvænt golfkúlu af afli í hnakkann
SMS-boð björguðu andlitinu
Páll Gíslason
Vorferð þeirra sem sótt hafa opið
hús fyrir aldraða í Akureyrarkirkju í
vetur verður á morgun, fimmtudag-
inn 15. maí, kl. 15. Farið verður fram
að Grund í Eyjafirði þar sem sr.
Hannes Örn Blandon prófastur tek-
ur á móti hópnum í Grundarkirkju
og segir frá sögu staðarins. Þórhild-
ur Örvarsdóttir og Sigrún Arna Arn-
grímsdóttir syngja við undirleik
Björns Steinars Sólbergssonar org-
anista og Ingvi Rafn Jóhannsson
leikur undir á harmoniku.
Á MORGUN
Moggabúðin
Íþróttataska, aðeins 2.400 kr.