Morgunblaðið - 14.05.2003, Qupperneq 22
LISTIR
22 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
KAMMERKÓRINN Vox gaudiae
heldur tónleika í Hjallakirkju í
kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20.30.
Kórinn er annar af tveimur kórum
við Hjallakirkju í Kópavogi og er
skipaður áhugafólki með söng-
reynslu í bland við fólk með tónlist-
armenntun á ýmsum stigum.
Að þessu sinni fær kórinn til liðs
við sig kammerhljómsveitina Alda-
vini. Hljómsveitin sérhæfir sig í
flutningi tónlistar frá barokktím-
anum og leikur á hljóðfæri sem eru
smíðuð sem eftirlíkingar af hljóð-
færum þess tíma, í þessu tilfelli
tvær blokkflautur sem þær Camilla
Söderberg og Ragnheiður Haralds-
dóttir leika á og tvær gömbur sem
þær Hildigunnur Halldórsdóttir og
Ólöf Sesselja Óskarsdóttir leika á.
Þá leikur Sigurður Halldórsson á
fimm strengja selló.
„Þetta er mjög fágætt,“ segir Jón
Ólafur Sigurðsson, organisti Hjalla-
kirkju og stjórnandi tónleikanna,
„mjög fágætt að verk séu flutt á
þessum hljóðfærum, þótt það færist
nú í aukana upp á síðkastið, fólk er
að uppgötva þennan fallega hljóm.
Hann er mýkri en í nýrri hljóð-
færum, kraftminni og blandast vel,
sérstaklega í þessari kantötu, þar
sem gömburnar beinlínis gráta.“
Þar vísar Jón Ólafur til kantötu
nr. 106 eftir J. S. Bach, Gottes Zeit
ist die allerbeste Zeit (Actus trag-
icus) eða „Guðs stund er hin allra
besta“. Er þetta ekki svolítið kald-
hæðnislegt efnisval eins og staða
heimsmála er? „Nei, við hugsum
ekkert um stríð hérna,“ svarar Jón
Ólafur kátlega. „Þetta er einfald-
lega einhver allra fallegasta kant-
ata Bachs, við ætluðum að flytja
hana föstudaginn langa en urðum
að fresta af óviðráðanlegum orsök-
um.“
Einsöngvarar í kantötunni eru
Laufey Helga Geirsdóttir sópran,
Oddný Sigurðardóttir mezzosópr-
an, Guðlaugur Viktorssson tenór og
Benedikt Ingólfsson bassi. Laufey
syngur einnig einsöngskantötuna
Syngið Drottni nýjan söng eftir D.
Buxtehude. Kristján Helgason barí-
ton syngur Faðir vorið eftir Sigurð
Skagfield. Einnig flytur kórinn
mótettur og verk eftir Jakob
Tryggvason, Anton Bruckner, Knut
Nystedt, Gabriel Fauré, Wolfgang
Amadeus Mozart og fleiri.
Hjallakirkja hefur tvö orgel og
verða þau bæði notuð, svo og þriðja
orgelið sem er stillt í barokk-
tónhæð. Orgelleikari er Lenka
Mátéová og stjórnandi er sem fyrr
segir Jón Ólafur Sigurðsson.
Barokk
í Hjalla-
kirkju
Morgunblaðið/Jim Smart
Kammerkórinn Vox gaudiae heldur tónleika ásamt kammersveitinni Aldavinum í Hjallakirkju í kvöld kl. 20.30.
Vorhátíð LHÍ, haldin í Listasafni
Reykavíkur – Hafnarhúsi kl. 12–
12.30. Fókusinn – verk nemenda
skoðuð.
Nemendaleikhús LHÍ, Sölvhóls-
götu 13, frumsýnir útskriftarverkið
Tvö hús kl. 20. Leikgerð eftir Kjart-
an Ragnarsson og Magnús Þór Þor-
bergsson byggð á Blóðbrullaupi og
Heimili Vernhörðu Alba eftir Fed-
erico Garcia Lorca.
Á MORGUN
Dansleikhúsið frumsýnir fjögur ný
verk á á Nýja sviði Borgarleikhúss-
ins kl. 20. Tvinnað verður saman nú-
tímadansi, leiklist og lifandi tónlist.
Flutt verður nútímadansverkið Viti
eftir Katrínu Ingvadóttur, kamm-
erdansverkið Vision eftir Lovísu
Ósk Gunnarsdóttur og Sigurð Hall-
dórsson við tónverkið Dans eftir
Snorra S.Birgisson. Verkið var áður
flutt á tónleikum Caput 15:15 í mars
sl. Nútímadansverkið Fló eftir Jó-
hann Frey Björgvinsson og dans-
leikhúsverkið Viðutan eftir Irmu
Gunnarsdóttir og Jón Gunnar Þórð-
arson.
Skólakór Mosfellsbæjar heldur
vortónleika sína í sal Varmárskóla
kl. 20. Einsöngvari eru Hugi Jóns-
son, en hann er fyrrverandi kór-
félagi. Hann stundar nú söngnám
hjá Bergþóri Pálssyni í Söngskól-
anum í Reykjavík.
Á efnisskránni er m.a. gospellög,
Vínartónlist og lög úr söngleikjum.
Undirleikari er Arnhildur Valgarðs-
dóttir og söngstjóri Guðmundur
Ómar Óskarsson.
Aðalheiður
Ólöf Skarp-
héðinsdóttir
kynnir verk
sín í glugga
Meistara
Jakobs,
Skólavörðu-
stíg 5 til 24.
maí. Kynn-
ingin er í
tengslum við
einkasýningu hennar sem nú stend-
ur yfir í Sverrissal í Hafnarborg.
Aðalheiður er ein 11 listamanna sem
reka Meistara Jakob.
Í DAG
Verk eftir Aðalheiði
Skarphéðinsdóttur.
ÚTHLUTAÐ hefur verið úr
Launasjóði fræðirithöfunda í
fjórða sinn. Til úthlutunar á
árinu 2003 voru 10,8 milljónir
króna og bárust 53 umsóknir
um starfslaun. Meginhlutverk
sjóðsins er að auðvelda samn-
ingu bóka og verka í stafrænu
formi til eflingar íslenskri
menningu. Rétt til að sækja um
starfslaun úr sjóðnum hafa höf-
undar alþýðlegra fræðirita,
handbóka og viðamikils upplýs-
ingaefnis á íslensku í ýmsu
formi.
Eftirtöldum rithöfundum
voru veitt starfslaun í sex mán-
uði: Ármann Jakobsson fyrir
verkefnið: Alþýðlegt fræðirit
um Hringadróttinssögu. Bryn-
dís Eva Birgisdóttir fyrir verk-
efnið: Nýr lífsstíll – hreyfing og
mataræði. Gylfi Gunnlaugsson
fyrir verkefnið: Skapandi við-
taka fornbókmenntanna, tíma-
bilið 1750–1900. Halldór Sverr-
isson fyrir verkefnið: Skað-
valdar í gróðri og í húsum.
Helgi Hallgrímsson fyrir verk-
efnið: Lagarfljót. Kristín Ást-
geirsdóttir fyrir verkefnið:
Ingibjörg H. Bjarnason og ís-
lensk kvennahreyfing 1915–
1930 og Páll Björnsson fyrir
verkefnið: Jón Sigurðsson:
Samband þjóðar og hetju.
Sjö rithöf-
undar fá
starfslaun í
sex mánuði
BÓKAÚTGÁFAN Bjartur hefur hafið rekstur
forlags í Danmörku og heitir forlagið Ferdinand.
Snæbjörn Arngrímsson stofnaði Bjart fyrir tíu
árum og hefur bókaútgáfan gefið mikið út af sam-
tímabókmenntum, bæði íslenskum og þýddum.
Aðspurður hvort Bjartur hyggi nú á útflutning
íslenskra höfunda segir Snæbjörn nei. „Við ætlum
ekki að gefa út íslenskar bækur, að minnsta kosti
ekki til að byrja með, heldur fyrst og fremst nýta
tengsl sem við höfum við umboðsmenn úti til að
starfa á stærri markaði. Við höfum rennt hýru
auga til Danmerkur svolítið lengi. Við höfum
sama forskot þar og hérna heima, að vera svolítið
nösk á bækur sem eru um það bil að slá í gegn.
Núna er á þriðja sæti danska listans bókin Balzac
og kínverska saumastúlkan sem við gáfum út í
fyrrasumar í Neon-bókaröðinni.“
Í fréttatilkynningu er sagt frá fyrstu útgáfu
forlagsins sem virðist í góðu
samræmi við þessar yfirlýsing-
ar: „Fyrsta verk hins nýstofn-
aða forlags var gerð samnings
um útgáfu bókarinnar DaVinci
Code eftir Dan Brown, sem sit-
ur nú við topp New York Tim-
es-metsölulistans og hefur set-
ið þar síðustu sjö vikur. Saga
þessarar bókar er einstök þar
sem höfundurinn var alls
óþekktur fyrir átta vikum.“
Þýðingar Harry Potter-bókanna hafa reynst
forlaginu mikill „gullkálfur“ eins og Snæbjörn
tekur undir og létt undir aðra útgáfu. Er ætlunin
líka að styrkja íslenska útgáfu með ágóða að ut-
an? „Ja, það er vonandi að eitthvert fjármagn
komi til baka. Þetta verður rekið sem eitt fyr-
irtæki, þannig séð, að peningar munu streyma á
milli.“
En ætlunin er alls ekki að gefa íslenska höf-
unda út í Danmörku? „Jújú, ef við finnum íslenskt
verk sem okkur finnst alveg tilvalið fyrir danskan
markað, þá gefum við það út eins og hinar bæk-
urnar. En við leggjum okkur ekki mikið eftir
landamærum eða þjóðernisskuldbindingum.“
Yndisleg heimsstríð
Spurður út í nafngiftina segir Snæbjörn að
Sjálfstætt fólk og Bjartur í Sumarhúsum séu fyr-
irmynd bókaforlagsins í einu og öllu, og hann hafi
fundið þetta fallega nafn í samræðu í síðasta hluta
ritsins: „… Já þetta yndislega heimsstríð, sem
guð gefi að við fáum sem skjótlegast aftur annað
slíkt, það hófst með þeim hætti að skotin var ein
mannfýla sem sumir nefndu Ferdínand …“
Bókaútgáfan Bjartur hefur rekstur forlags í Danmörku, Ferdinands
„Höfum sama forskot í Dan-
mörku og hérna heima“
Snæbjörn
Arngrímsson
AFGREIÐSLA styrkumsókna til
hinnar nýju Kvikmyndamiðstöðvar
Íslands hófst á mánudag í fyrsta sinn
frá því í janúar 2002, þegar hillti í að
Kvikmyndamiðstöð leysti Kvik-
myndasjóð af hólmi, at varð í kring-
um sjóðinn og tafir á rekstri.
Það var glatt á hjalla hjá hinni
nýju miðstöð þegar íslenskir kvik-
myndagerðarmenn skiluðu inn
styrkumsóknum sínum, sem mið-
stöðin lofar að afgreiða nú á met-
hraða. „Við ætlum að tilkynna um út-
hlutanir úr þessu holli milli 12. júní
og 1. júlí – framleiðslustyrki og
styrki til stutt- og heimildarmynda
fyrir 12. júní og veita síðan ný vilyrði
fyrir 1. júlí,“ segir Laufey Guðjóns-
dóttir, nýskipaður forstöðumaður
miðstöðvarinnar. Eftir þessa af-
greiðslu eiga árlegar úthlutanir – ár-
legir stefnumótadagar íslenskra
kvikmyndagerðarmanna á Túngötu
14 síðustu mínútur fyrir lokun
klukkan 17 – að heyra sögunni til.
„Nú þurfum við að koma fram-
leiðsluhjólinu aftur í gang og gerum
þetta því svona, höfum tiltekinn
skilafrest en geymum handrits- og
þróunarstyrki rétt í fyrstu. Eftirleið-
is mun miðstöðin afgreiða umsóknir
allt árið um kring.“
Ásgrímur Sverrisson, kvikmynda-
gerðarmaður sem rekur fagvefinn
asgrimur.is, staðfestir að eiginlega
hafi öll íslensk kvikmyndafram-
leiðsla verið strand síðan í ársbyrjun
2002, af fjölmörgum ástæðum, og þá
meðal annars vegna tafa hjá sjóðn-
um. Síðdegis á mánudag hafði hann
ekki litið inn hjá Kvikmyndamiðstöð-
inni sjálfur en staðfesti að hjá kvik-
myndaframleiðendum væri „allt á
suðupunkti“.
Aftur kvik
listgrein
Morgunblaðið/Jim Smart
Þorgeir Guðmundsson og Óttar
Proppé reka erindi í Kvikmynda-
miðstöð Íslands.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT Íslands
hefur opnað miðasölu á heimasíðu
hljómsveitarinnar, sinfonia.is.
Þröstur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar
Íslands, og Sigrún Eðvaldsdóttir
konsertmeistari, opnuðu netsöluna
formlega við athöfn í anddyri Ís-
landsbanka á Kirkjusandi í gær.
Þau keyptu miða á ABBA-tónleika
Sinfóníuhljómsveitar Íslands handa
Bjarna Ármannssyni bankastjóra,
en Íslandsbanki hefur lagt Sinfón-
íuhljómsveitinni lið við undirbúning
tónleikanna.
Fjölmargir hafa átt samskipti við
Sinfóníuhljómsveitina undanfarnar
vikur vegna tónleika hennar næstu
helgi í Laugardalshöll en þar munu
gamlar perlur með sænsku popp-
hljómsveitinni ABBA njóta sín í nýj-
um búningi. Það eru breskir söngv-
arar frá söngleikja- og skemmtana-
húsinu West End International í
London sem þenja munu raddbönd,
auk þess verða fleiri gestir á svið-
inu, þeir Jón Ólafsson píanóleikari,
Gunnlaugur Briem trommuleikari
og Guðmundur Pétursson gítarleik-
ari.
Miðasala á Netinu
Morgunblaðið/Arnaldur
Frá opnun miðasöluvefjar Sinfóníuhljómsveitar Íslands.