Morgunblaðið - 14.05.2003, Side 24

Morgunblaðið - 14.05.2003, Side 24
LISTIR 24 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ E FTIR að hafa skrifað tvo pistla sem fjölluðu um gripdeildir og eyðileggingu ómetanlegra menningarminja í Mesópótam- íu, vöggu vestrænnar menning- ar – atburði sem gerðust á svæði þar sem menn hófu akuryrkju fyrir tíu þúsund árum, fundu seinna upp hjólið og sextíu talna kerfið, þ.e. mínútur og sek- úndur, lásu í himintungl löngu fyrir tilkomu sjónauka og skildu eftir sig guðdómleg lista- verk – er mál að líta til fleiri hliða. Nú ýtti svohljóðandi fyrirsögn á forsíðu ARTnewsletter við mér: The Breton sale: 30 Persent More Than Predicted. Vísar til þess að glóðvolg sala á einkasafni stofnanda og æðsta- prests súrrealistahreyfingarinnar, Andrés Bretons (1896–1966), 4.000 listaverk, listgripir og handrit, hafi farið þrjátíu prósent yfir mats- verði. Gerðist á tíu daga uppboði, haldið hjá hinu heimsþekkta firma Hôtel Drouot í París dagana 7.–17. apríl, uppboðshaldari; Calmel Cohen. Kom í kjölfar af því að franska ríkið hafnaði að kaupa það allt í þeim tilgangi að stofna sérstakt súr- realistasafn í borginni, sem kona hans og dóttir höfði barist fyrir. Tryggði sér þrátt fyrir allt 335 hluti að andvirði rúmlega 11,5 milljónir evra/12,4 milljónir dollara, sem má margfalda með 84 til að fá út íslenzku krónutöluna. Safnið hafði verið í vörslu ekkju hans, Elísu, sem lést árið 2000, og dóttur,hinnar 67 ára gömlu Aube Elléouët-Breton, á heimili þeirra á Rue Fontaine við rætur Montmartre-hæðar, sem höfðu lagt allt í sölurnar fyrir stofnun súrreal- istasafns. Þegar hin endanlega höfnun var ljós og uppboðið auglýst vakti það mikla reiði og ólgu í röðum lista- og menntamanna í Frans. Samið var bænarskjal undirritað af 3.400 máls- metandi einstaklingum, þar sem farið var fram á að ríkið festi sér allt safnið. En núverandi menningarmálaráðherra, Jean-Jacques Ailla- gon, hafnaði að afturkalla söluna en lofaði að ríkið skyldi „vakandi“ eins og hann orðaði það. Hér voru þeir Mitterrand sálugi og Jack Lang, fyrrverandi menningarmálaráðherra, með sanni illa fjarri mikilvægri og sögulegri ákvarðanatöku. Má áréttta í framhjáhlaupi, að þetta er í stíl við þróunina meðal íhaldssamari afla í heiminum nú um stundir, sem blinduð af græðgi og markaðshyggju eru að skjóta sig í fótinn í ljósi sögunnar. Bregða fæti fyrir eðli- lega döngun menntunar og lista í stíl við kommúnista og einræðisherra á liðinni öld, ýta til hliðar og leggja í hendur miðstýringarafla, með hópefli og múghyggju að leiðarljósi. Víða verið að minnka fjárveitingar til safna og menningar þar sem flokkar yst til hægri hafa komist til valda og þannig munu 70 af 500 föst- um starfsmönnum missa vinnuna við Þjóð- minjasafnið í Kaupmannahöfn, merkilegustu stofnun Danmerkur, ef fyrirhugaðar sparnað- aráætlanir ná fram að ganga. Einungis eitt en nærtækt dæmi af mörgum beggja vegna Atl- antsála. Þótt innvígðir þekki meira en vel til nafns- ins, André Breton, og maðurinn hafi iðulega skarað skrif mín þegar þau hafa snert þennan listgeira, er rétt að endurtaka sitthvað hér. Svo snemma sem 1919 stofnaði skáldið og rithöf- undurinn bókmenntatímaritið Litterature ásamt félögum sínum, þeim Louis Aragon og Phillippe Soupault. Stefnuskráin í fyrstu á breiðum grunni og í samstarfi við menn eins og André Gide, Blaise Cendrars og Darius Mil- haud. En með komu Tristans Tzara til Parísar, eins stofnanda hinnar byltingarkenndu Dada- hreyfingar í Zürich, 5. febrúar 1916, urðu skil til annarra og framsæknari átta. Fyrsta súrrealíska sköpunarverkið, „Les Champs magnétiques“ (Svið dulhyggjunnar), sem þeir Breton og Soupault voru höfundar að, sýndi fram á djúpar efasemdir um alla rök- hyggju og formalisma, þ.e. markaða og form- lega reglufestu. Takmarkið var að finna nýjan tjáningarhátt, tungumál sálarinnar, sprottið upp úr hinu ómeðvitaða; ríki draumanna og hugarflugsins. Þrengja fram vitundinni um hið innra sjálf og gefa því mál, þræða víðáttur, öngstræti og breiðgötur drauma. Tveimur ár- um síðar varð til stefnuyfirlýsing, manifest, og voru þá Paul Éluard, Benjamin Péret, fleiri skáld og rithöfundar komnir til sögunnar ásamt hópi málara. Einsýn og stigmagnandi fræðiástríðaBrétons, stjórnlyndi og andstaða hansgagnvart þeim sem að hans mati viku afkórréttri leið, orsakaði deilur og úrsagn- ir úr hópnum. Miklu réð hér einnig að fæstir vildu vera viðhengi og meðreiðarsveinar Bret- ons, einkum eftir að hann snerist til komm- únisma. En þrátt fyrir allt og að ýmsir nafn- kunnustu fulltrúar súrrealismans yrðu utangarðs er fram liðu stundir var Breton óumdeilanlega hinn andlegi leiðtogi súrreal- istahreyfingarinnar meðan hans naut við. Merkilegt að keimlík atburðarás átti sér stað í Danmörku á fjórða áratugnum með Vilhelm Bjerke-Petersen sem óvæginn hugmynda- fræðing. Sáði þó grómögnum framsækinna nú- lista sem sprungu út í lok áratugarins og á stríðsárunum, undanfari Linien og Cobra, kemur meðal annars fram í elstu myndum Svavars Guðnasonar frá þessu tímaskeiði. Hinn frjói, vakandi andans maður og grúsk- ari André Breton í fyrirsvari fyrir ein merk- ustu stílbrigði módernismans – sankaði að sér listaverkum. Ætti þessi söfnunar- og varð- veisluástríða ekki að koma mjög á óvart. Bak- hjarl, félagi og vinur margra framsæknustu og hugmyndaríkustu listamanna tímanna í bók- menntum og myndlist, nema ef vera skyldi magnið. Uppboðið vakti drjúga athygli fjöl- miðla, 50.000 gestir komu til að skoða safngrip- ina, bækur, handrit, málverk og ljósmyndir, frumstæða list, mynt og alþýðulist, auk þess að um 300 eintök gengu út af hinni digru, átta binda sýningarskrá er kostaði heila 300 doll- ara. Náttúrulega vont mál að ekki risi safn til- einkað Breton og súrrealistahreyfingunni og bættist við röð margra spennandi sér- og einkasafna sem fyrir eru víða um borgina, og einstæð lifun að sækja heim. Hins vegar er hið almenna mat á gildi og verðmæti andlegra af- urða er fram kemur, eða það sem við nefnum mannauð og manngildi, nokkuð sem ber að staðnæmast við. Meira en helmingur af öllu samsafninu kom frá einkasafni Bretons á myndlist, aðallega súrrealískri, og í háum gæðaflokki, þar af voru tvö verk slegin á 2,9 milljónir evra eða 2,7 milljónir dollara hvor; Gildran, 1924, eftir Joan Míro og Kona, 1927, eftir Jean Arp. Að vísu höfðu sumir búist við að tíma-mótandi verk Míros yrði slegið á þvísem næmi allt að 5 milljónum dollara,og var eitt örfárra sem fóru undir matsverði. Hins vegar var um metupphæð að ræða hvað Arp snerti og verkið tryggt Pompidou-menningarmiðstöðinni. Í ljósi 11. september og stríðsins í Írak og hríðversnandi efnahagsástands í Bandaríkjunum má vera eðlilegt að þarlendir haldi í bili að sér hönd- unum um listaverkakaup í Evrópu. Frakkland að auki á svörtum lista í augnablikinu. En sum verkanna fóru langt yfir matið, fimmfalt hvað málverk eftir Victor Brauner snerti eða 792.000 evrur/ 855.000 dollara, og tvöfalt fyrir málverk efir Francis Picabia, 1,4 milljónir evra/1,51 milljón dollara, ásamt metverði á verkum ýmissa minna þekktra súrrealista. Fréttir sem eru ekki fátíðar í ARTnewsletter er svo er komið, jafnvel veit ég um dæmi um nífalda hækkun matsverðs. Þá fengust 4,46 milljónir evra/4,0 millj-ónir dollara fyrir ljósmyndasafnið seminnibar 499 númer og þar mörg metslegin. Þá skal nefna handrit og bækur, en súrrealismi var ekki síður bókmenntagrein. Hér fóru 1.692 númer á 4,03 milljónir evra/4,35 milljónir dollara. Þar á meðal var handrit Bretons í formi 48 síða stílabókar skrifuð í Quebec í október 1944, hún slegin á 750.000 evrur/810.000 dollara, sem er met fyrir súr- realískt handrit. Þó mun allra tíma met fyrir handrit fransks rithöfundar á 20 öld nema 1,8 milljónum evra, og um að ræða afurð Louis- Ferdinands Céline (1894–2001), gerðist í París í maí 2001. Loks var fyrsta prentun á riti Bretons, Qu’ est-ce que le surrealisme (Hvað er súrrealismi), með teikningu af víólu eftir Magritte á titilsíðu, slegin á 243.000 evr- ur/262.000 dollara. Mikla athygli vakti að lítil tréstytta, varla meira en 12 sentimetra há, af Uli – karlkyns ættföður frá Nýja-Írlandi í Bismarck- eyjaklasanum – var slegin á 1,1 milljón evra/1,19 milljónir dollara og var kaupandinn engin annar en dóttir Bretons Aube Elléouët- Breton, sem færði hana bókasafni Jacques Doucet í París til varðveislu. Skýrslan um þetta eina uppboð er ein súlengsta sem ég man eftir í ARTnews-letter eða a þriðju síðu og alltof löng fyrirlesendur Mbl., sem fæstir eru inni í þess- um málum. Hins vegar má vera uppörvandi, að mesta eyðilegging, gripdeildir og illvirki seinni tíma á menningarverðmætum, glóðvolgum, í Mesópótamíu hafa síður en svo slegið á mat Evrópubúa á gildi og vægi handfastra verð- mæta andlegra athafna og afurða. Borðleggj- andi vitneskjan á mikið erindi hingað á hjara veraldar, jafnt litið til norðlægra breidd- argráða sem ranghugmynda á þessa hlið virkr- ar þjóðreisnar. Að ekki er um að ræða lúxus, heldur verð- mæti sem eru frumskilyrði lífs. Lífsnauðsyn … Af menningarverðmætum Man Ray; ljósmynd í anda súrrealismans. Súrrealismi fram í fingurgóma: Victor Brauner (1903–1966): Hið innra líf, 1939, olía á léreft, 91,7 x 76,6 cm. MoMA, New York. Man Ray: André Breton um 1930. SJÓNSPEGILL Bragi Ásgeirsson bragi@internet.is w w w .d es ig n. is © 20 03 - IT M 90 52 V. Fellsmúla • S. 588 7332 Opi›: Mán. - föst. 9-18, Laugardaga 10-14 Furuinnréttingar og hreinlætistæki Vortilbo› Allar innréttingar til afgrei›slu af lager sérsni›nar fyrir sumarhúsi› flitt. WC me› festingum og har›ri setu. Tvöföld skolun. Stútur í vegg e›a gólf. Ver› frá kr. 17.950,- stgr.Einfaldir stálvaskar me› bor›i Ver› frá kr. 8.900,- Einfaldur stálvaskur Ver› frá kr. 7.900,- Gegnumstreymishitari 5KW Kr. 13.430,- 15L undir vask Kr. 15.990,- 30L Ló›réttur Kr. 18.990,- 50L Ló›réttur Kr. 22.990,- 50L Láréttur Kr. 23.990,- 80L Ló›réttur Kr. 24.990,- 80L Láréttur Kr. 26.990,- 80L Ló›réttur, má einnig nota fyrir sólarrafhlö›u Kr. 27.990,- 80L Láréttur, má einnig nota fyrir sólarrafhlö›u Kr. 29.990,- 120L Ló›réttur Kr. 29.990,- 150 L Ló›réttur Kr. 35.990,- Thermex hitakútar 15-150 ltr. Heilir sturtuklefar í horn. Öryggisgler, segullæsing, sturtu-sett, blöndunartæki, botn og vatnslás. 70x70 cm. Kr. 52.390,- stgr 80x80 cm. Kr. 53.390,- stgr 75x90 cm. Kr. 62.450,- stgr 90x90 cm. Kr. 62.450,- stgr Handlaug á vegg stær› 45x34 sm Kr. 3.950,-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.