Morgunblaðið - 14.05.2003, Qupperneq 25
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2003 25
Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
533 4800
SÍÐUSTU ÍBÚÐIRNAR Í NAUSTABRYGGJU
Í kvöld verður opið hús í Naustabryggju 57 milli kl.
18.30 og 20.00. Sigurður Karl (866 9958) sölu-
maður verður á staðnum og sýnir þær íbúðir sem
eru til sölu. Íbúðirnar eru allar glæsilegar og bjóð-
ast nú á betri kjörum en áður. Þær seljast tilbúnar
án gólfefna eða tilbúnar til innréttinga.
Sjón er sögu ríkari. 3495
OPIN HÚS
NAUSTABRYGGJA 57
Í kvöld milli kl. 18.00 og 20.00 ætlar Erna að sýna
131 fm mjög góða 5 herbergja íbúð á 4. hæð í fal-
legu fjölbýlishúsi. Glæsilegt útsýni. Fjögur herbergi
með rúmgóðum skápum, rúmgott hol, tvær stórar
samliggjandi stofur með fallegu útsýni. Baðher-
bergi flísalagt og nýleg tæki. Suð-vestursvalir.
Auka 100 fm rými í risi en er skráð 8,6 fm.
Húsið hefur allt verið tekið í gegn að utan. 3947
ESKIHLÍÐ 8
Björn Þorri hdl. lögg. fastsali, Karl Georg hrl. lögg. fastsali.
Heimsferðir bjóða þér nú síðustu sætin í sólina í maí og júní á
hreint ótrúlegu verði, en nú er sumarið komið á vinsælustu áfanga-
stöðum Evrópu og aldrei betra að njóta vinsælustu staðanna á feg-
ursta tíma ársins.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Sólar-
tilboð
í maí og júní
frá kr. 19.950
með Heimsferðum
Benidorm
Verð frá kr. 29.962
21. og 28. maí. M.v. hjón með 2 börn,
2–11 ára, vikuferð, stökktutilboð.
Rimini
Verð frá kr. 29.962
20. og 27. maí. M.v. hjón með 2 börn,
2–11 ára, vikuferð, stökktutilboð.
Mallorca
Verð frá kr. 39.962
21. maí, 9. júní. M.v. hjón með 2 börn,
2–11 ára, vikuferð, stökktutilboð.
Costa del Sol
Verð frá kr. 39.962
21. og 28. maí. M.v. hjón með 2 börn,
2–11 ára, vikuferð, stökktutilboð.
Verona
Verð frá kr. 19.950
22. maí. Flugsæti með sköttum, 2 fyrir 1
til Verona.
Barcelona
Verð frá kr. 29.950
22. og 29. maí. Flugsæti með sköttum.
Tryggðu þér síðustu sætin í maí og júní
* Verð eru staðgreiðsluverð.
Almennt verð er 5% hærra og miðast
við ef greiðsla hefur ekki borist frá
kortafyrirtæki fyrir brottför.
ÚRSLIT alþingiskosninganna
voru góður sigur fyrir Samfylk-
inguna og Frjálslynda flokkinn. En
það voru einnig mikil tíðindi, að rík-
isstjórnin skyldi
halda velli. Stjórnin
situr því áfram.
Viðræður stjórn-
arflokkanna um
framhald stjórn-
arsamstarfs eru að-
eins formsatriði.
Það ber ekkert á
milli flokkanna. Stefna þeirra er nán-
ast hin sama í öllum málum.
Fylgistap Sjálfstæðisflokksins var
mikið. Flokkurinn tapaði 7 prósentu-
stigum og 4 þingmönnum og er nú
með 33,7% atkvæða. Samfylkingin
bætti við sig rúmlega 4 prósentustig-
um og 3 þingmönnum og er með 31%.
Það ber því ekki mikið á milli þessara
stóru flokka. Samfylkingin er nú
álíka sterk og Sjálfstæðisflokkurinn.
Það eru mikið tíðindi. Sameining
jafnaðarmanna hefur tekist. Fram-
sóknarflokkurinn tapaði tæpu 1 pró-
sentustigi. En á það ber að líta að fyr-
ir 4 árum tapaði Framsókn miklu
fylgi eða um 5 prósentustigum.
Flokkurinn hefur því tapað tæplega 6
prósentustigum á stjórnarsamstarf-
inu við Sjálfstæðisflokkinn. En
Framsókn lætur eins og hún hafi
unnið sigur og er harðánægð með úr-
slitin! Litlu verður Vöggur feginn.
(Úrslitin 10. maí sl. eru næstverstu
kosningaúrslit Framsóknar, ef miðað
er við sjálfstæð framboð flokksins.)
Hvaða skilaboð felast í kosn-
ingaúrslitunum? Hvers vegna tapar
Sjálfstæðisflokkurinn svona miklu
fylgi? Það er vegna óánægju með
stefnu Sjálfstæðisflokksins. Það er
vegna misskiptingarinnar í þjóð-
félaginu. Það er vegna kvótakerf-
isins, slæmra kjara aldraðra, öryrkja
og atvinnulausra og rangláts skatta-
kerfis. Forustumenn Sjálfstæð-
isflokksins segja, að sótt hafi verið
fast að Sjálfstæðisflokknum og þess
vegna hafi flokkurinn tapað. Eðli-
legra er að orða þetta svo, að Sjálf-
stæðisflokkurinn hafi verið gagn-
rýndur vegna rangrar stjórnar-
stefnu. Það er því eðlilegt, að
Sjálfstæðisflokkurinn skyldi tapa
fylgi. En það hefði verið jafn eðlilegt
að Framsókn hefði einnig tapað
meira fylgi, þar eð sá flokkur ber
einnig ábyrgð á stjórnarstefnunni,
sem fylgt hefur verið. Framsókn hef-
ur einnig farið með mikilvæg mál,
eins og málefni bótaþega, húsnæðis-
mál og heilbrigðismál, en allir þessir
málaflokkar eru í ólestri. Kjósendur
hefðu því átt að refsa Framsókn. Svo
varð ekki. Og því getur Framsókn nú
framlengt völd og stjórnarstefnu
Sjálfstæðisflokksins.
Fréttablaðið skýrði frá því, að
Halldór Ásgrímsson ætti þess kost að
verða forsætisráðherra í ríkisstjórn
Samfylkingar og Framsóknarflokks-
ins. Ekki veit ég hvort það er rétt.
Alla vega hefur það ekki verið sam-
þykkt formlega í Samfylkingunni.
Slík ríkisstjórn hefði aðeins eins
þingsætis meirihluta og yrði því mjög
veik stjórn. Ég hefi ekki trú á því, að
slík stjórn mundi framkvæma mikið
af umbótamálum Samfylkingarinnar.
Stærsta umbótamálið er breyting á
kvótakerfinu og þar stendur Fram-
sókn þversum í veginum. Ég tel, að
Samfylkingin eigi ekki að fara í rík-
isstjórn, ef hún nær ekki fram lag-
færingum á kvótakerfinu. Og það
verður að opna greinina. Það eru
skiptar skoðanir um það innan Sam-
fylkingarinnar hvort Samfylkingin
eigi að lyfta Halldóri í stól forsætis-
ráðherra. Grasrótin er andvíg því.
Það er athyglisvert, að það er meira
atriði hjá Framsókn að fá ákveðin
embætti en að koma fram stefnu-
málum sínum. Viðræður Fram-
sóknar við Sjálfstæðisflokkinn snúast
meira um ákveðna ráðherrastóla en
um málefni.
Skilaboð kjósenda þjóðarinnar í
nýafstöðnum kosningum voru alveg
skýr: Þjóðin vill breytingar í íslensk-
um stjórnmálum. Þjóðin vill að dreg-
ið verði úr misskiptingunni í þjóð-
félaginu með breytingum á
kvótakerfinu, með umbótum á vel-
ferðarkerfinu og með lækkun skatta
á hinum lægst launuðu og bótaþeg-
um. Stjórnmálamenn verða að taka
tillit til óska þjóðarinnar. Það hefnir
sín, ef þeir hundsa vilja þjóðarinnar.
Þjóðin vill breytingar
Höfundur er viðskiptafræðingur.
Eftir Björgvin Guðmundsson
Fyrir flottar konur
Bankastræti 11 • sími 551 3930
KOSNINGUNUM er lokið og niðurstaða kjósenda liggur fyrir. Þeir hafa
látið vilja sinn í ljós með því að marka söguleg tímamót í íslenskum stjórn-
málum. Það er ástæða til að þakka þeim fyrir framsýnina og persónulega vil
ég þakka fyrir þann stuðning, hlýhug og traust sem ég hef verið aðnjótandi í
þessum kosningum.
Samfylkingin vann góðan sigur og fram á sjónarsviðið er
kominn nútímalegur og víðsýnn jafnaðarmannaflokkur sem
hefur styrk til þess að veita Sjálfstæðisflokknum, sem hefur
borið ægishjálm yfir aðra flokka í meira en 70 ár, verðuga
samkeppni og aðhald. Það telst líka til tíðinda að nýr borg-
aralegur flokkur, Frjálslyndi flokkurinn, hefur fest sig í
sessi. Hægri flokkurinn á Íslandi, Sjálfstæðisflokkurinn, tap-
aði verulegu fylgi og hefur aðeins einu sinni áður mælst með
minna fylgi í alþingiskosningum ef frá er talið árið 1987 þegar flokkurinn
gekk klofinn til kosninga. Mest var fylgistapið í Reykjavík norður, kjördæmi
formannsins. Í borgarstjórnarkosningunum árið 1994 tapaði flokkurinn sínu
höfuðvígi og í síðustu borgarstjórnarkosningum mældist hann með minnsta
fylgi sem hann hefur nokkurn tíma fengið í Reykjavík. Flokkurinn hefur
þannig þokast frá því að vera ein helsta valdastofnun samfélagsins yfir í það
að vera pólitískur flokkur eins og hver annar. Ef að líkum lætur verður ekk-
ert eins og það áður var í íslenskum stjórnmálum. Það er tímanna tákn að
þessar breytingar eiga sér stað við aldamót. Nýrri öld fylgja nýir siðir og ný
sjónarmið.
En breytingaferlinu er ekki lokið og staðan er að mörgu leyti viðkvæm og
vandmeðfarin. Það er ekki víst að stjórnmálamennirnir skynji sinn vitjunar-
tíma eða hlusti grannt eftir skilaboðum kjósenda. Eins og svo oft endranær
er Framsóknarflokkurinn í lykilstöðu og hann getur valið um að festa
óbreytt ástand í sessi enn um sinn eða taka þátt í þeirri pólitísku nýsköpun
sem kjósendur kalla eftir. Það ræðst á næstu dögum hvora leiðina hann vel-
ur. Framtíð Samfylkingarinnar ræðst hins vegar ekki af því hvort hún verð-
ur innan stjórnar eða utan að þessu sinni. Það sem skiptir máli er að Sam-
fylkingin standi áfram fyrir þeirri hugmyndalegu nýsköpun í stefnu og
starfsháttum sem er svo nauðsynleg á vettvangi stjórnmálanna við upphaf
nýrrar aldar. Með slíka veislu í farangrinum mætir hún tvíefld til leiks í
næstu kosningum.
Ég veit að margir stuðningsmenn Samfylkingarinnar tóku það mjög nærri
sér þegar ljóst varð að ég næði ekki kjöri á alþingi að þessu sinni. Ég vissi
sjálf að þannig gæti farið – reiknaði raunar með því í upphafi – og ég vissi að
framboð mitt væri ferð út í óvissuna. Þessi óvissuferð hefur verið bæði lær-
dómsrík og ánægjuleg enda samferðafólkið gott. Ég þakka því samfylgdina
að þessu sinni og nú leggjum við ótrauð saman í lengra ferðalag sem felur í
sér fyrirheit um varanlegar breytingar á íslenskum stjórnmálum.
Tímanna tákn
Eftir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur
Höfundur er fv. borgarstjóri.
MIKIÐ var nú erfitt að sætta sig
við að sætur sigur Samfylking-
arinnar í alþingiskosningunum
skyldi ekki verða
nægilega stór til að
fella ríkisstjórnina.
Og fjári var erfitt að
sætta sig við að Ingi-
björg Sólrún skyldi
ekki komast inn á
þing þrátt fyrir
sögulegan sigur
Samfylkingarinnar í Reykjavík-
urkjördæmi norður. Þetta er svona
álíka svekkjandi eins og að vera
kominn með annan fótinn í úrslita-
leik í bikarkeppninni, en þurfa síðan
að spila um bronsið. Engu að síður
sætir maður niðurstöðunni, enda eru
leikreglurnar alveg klárar, og ekkert
að gera annað en að vinna enn betur
næst þegar tækifæri gefst og setja
sér þá að ná settu marki.
Þrátt fyrir allt voru það þó ekki
ofangreind tíðindi sem gerðu mér
sunnudaginn þungbærastan, heldur
hitt að formaður Samfylkingarinnar
skyldi sjá ástæðu til þess að skella
því framan í flokksystkini sín að
Ingibjörg Sólrún yrði ekki næsti for-
maður flokksins, því hann ætlaði sér
að halda áfram og að um það væri
sátt. Sátt hverra, með leyfi að
spyrja?
Ingibjörg Sólrún stóð sig ákaflega
vel í kosningabaráttunni og sýndi og
sannaði að hún er sá leiðtogi sem
stór jafnaðarmannaflokkur á Íslandi
þarf á að halda vilji hann festa sig í
þessi. Hún staðfesti í kappræðum við
aðra flokksleiðtoga að hún er mik-
ilhæfur stjórnmálamaður með ótví-
ræða foringjahæfileika og við sem
flykktum okkur bak við Samfylk-
inguna eigum rétt á að njóta þeirra
hæfileika áfram. Þar sem Ingibjörg
Sólrún er utan þings er alveg ljóst að
best mun heyrast til hennar næstu
misserin ef hún sest í formannsstól í
flokknum. Þetta eiga núverandi
stjórnendur Samfylkingarinnar að
sjá í hendi sér eftir að hafa kynnst
breiðu baklandi flokksins í kosninga-
baráttunni, og ganga í það samein-
aðir að svo megi verða. Annað sætti
ég mig ekki við – og veit um ótal-
marga aðra sem eru á sömu skoðun.
Grátt oná svart
Eftir Sigurð Svavarsson
Höfundur er útgáfustjóri.
! !
" !
# $% &'#
# $% '
()
*& *+* #
&& && *+ & #