Morgunblaðið - 14.05.2003, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 14.05.2003, Qupperneq 26
UMRÆÐAN 26 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Í FRÉTTABLAÐINU hinn 5. febrúar sl. birtist grein undir yfirskriftinni „Íslensk tónlist ókeypis á netinu“. Umfjöllunarefnið var „peer2peer“-forrit sem gerir fólki keift að sækja tónlist á Internetinu án endurgjalds. Forrit þessi reiða sig ekki á miðlægan gagnagrunn tónlistar, líkt og brautryðjandinn Napster gerði, heldur þurfa notendur að- eins auðkenni á tölvu annars notanda, eins eða fleiri, til að nálgast tónlistina. Eins og kunnugt er leiddi málshöfðun á hendur Napster til gjaldþrots fyrirtækisins. Hagsmunaaðilar innan tónlistargeirans hafa markvisst leitað leiða til mál- sóknar gagnvart „peer2peer“-dreifingaraðilunum og hafa um nokkurt skeið sent út falskar skár á Netið sem gerir þeim kleift að rekja þær og staðsetja þannig þá sem misnota Netið á þennan hátt. Það hefur nýlega komið í ljós að þessi net skapa umtalsverðar tekjur og líklega verður málshöfðun á hendur þeim sem sannarlega dreifa tónlist ólöglega á þennan hátt byggð á þeim forsendum. En ætli notendur þessara neta geri sér grein fyrir því að um ólöglegt at- hæfi kunni að vera að ræða? Í grein Fréttablaðsins var haft eftir 19 ára um- sjónarmanni vefsíðu sem tengir saman íslenska notendur ólöglega dreifðrar tónlistar að notkun Netsins hefði líklega þau áhrif að hann keypti tónlist í minna mæli. Ég varð vitni að því í vor þegar þessi mál bar á góma að virtur lögfræðingur lýsti því yfir fyrir fullum sal af fólki að hann væri mjög sáttur við þessa þróun. Nú einfaldlega hlæði dóttir hans niður tónlist af Netinu og sparaði honum stórfé. Hvernig getum við ætlast til að unga fólkið okkar átti sig á því að um ólöglegt athæfi er að ræða þegar vel upplýst fólk virðist ekki vita betur! Staðreyndin er sú að notkun Netsins á þennan hátt hefur einmitt þau áhrif að sala tónlistar fer minnkandi, að sjálfsögðu. Það er engin hvatning að kaupa tónlist ef þú getur fengið hana frítt. Sem betur fer hefur íslensk tónlist ekki verið aðgengileg á Netinu hingað til í miklum mæli en það kann að vera að breytast með tilkomu vefsíðunnar sem tilgreind er í grein Fréttablaðsins. Þróunin hefur nefnilega verið sú að sala íslenskrar tónlistar hefur aukist jafnt og þétt síðustu árin. Gæti það verið vegna þess að hún hefur ekki verið fáanleg á Netinu í neinum mæli hingað til? Því hefur verið haldið fram að ólögleg dreifing tónlistar á Netinu snúist að miklu leyti um að kynna tónlist fyrir fólki og enginn skaðist á athæfinu, það jafnvel auki sölu. Þetta kann að hafa verið rétt í árdaga Napster en allar kannanir síðustu ára í Bandaríkjunum, Þýskalandi, Svíþjóð og víðar benda til þess að notkun Netsins dragi verulega úr sölu. Í október síðastliðnum gerði greiningarfyrirtækið Jupiter könnun sem staðfesti að þriðjungur þeirra sem nota „peer2peer“-netin reglulega kaupir minna af tónlist en hann gerði áður. Það hefur líka verið bent á að útgáfufyrirtækin séu þau einu sem bera skarð- an hlut frá borði. Það er ekki rétt. Í raun eru allir sem vinna að tónlistariðn- aðinum á einn eða annan hátt fórnarlömb. Á Íslandi er áætlað að tónlist- arbransinn skapi um 750–1.000 störf og í Evrópu starfa um 600.000 manns að tónlist. Þá er ótalinn allur sá fjöldi listamanna og þeir sem koma að fram- leiðslu hljómplatna á einn eða annan hátt. Í síðasta mánuði misstu þúsundir fólks vinnuna þegar 224 hljómplötuverlsunum var lokað í Bandaríkjunum vegna minnkandi sölu. Það er þó ekki sanngjarnt að kenna Internetinu um eingöngu, ólögleg afritun geisladiska er annað og í raun stærra vandamál. Hljómplötusala hefur minnkað um 25% í heiminum frá árinu 1997 þegar Int- ernetið og geislabrennarar urðu almenningseign og talið er að um helmingi af allri tónlist í heiminum sé nú dreift ólöglega. Þau rök að ókeypis dreifing tónlistar sé saklaus eru skammtímahugsun, því hvernig í ósköpunum getum við ætlast til þess að tónlistarmenn haldi áfram að skapa tónlist ef þeir fá ekki greitt fyrir vinnu sína? Nú hvarflar ekki að mér að halda því fram að þeir sem nota Netið á þenn- an hátt séu allir ótíndir glæpamenn, síður en svo. Í flestum tilfellum er um að ræða fólk sem veit ekki betur. Ég efast um að foreldrar líti á börn sín, sem hlaða niður tónlist í dag og eiga jafnvel hundruð laga á tölvunni sinni, sem þjófa. En ætli sömu foreldrar geri sér grein fyrir því að allur heimurinn hef- ur aðgang að heimilistölvunni með þeirri hættu sem það hefur í för með sér? Ég trúi því heldur ekki að þeir sem hlaða niður tónlist ólöglega geri sér grein fyrir að í raun eru þeir að gera uppáhaldslistamanninum sínum mestan óleik. Það er staðreynd að stærstur hluti þeirra sem hlaða niður tónlist er ungt fólk sem er í sakleysi sínu að njóta tónlistar. Það eitt og sér er að sjálfsögðu mjög jákvætt og notkun tónlistar hefur aldrei verið eins mikil í heiminum og nú. En er það ekki okkar hlutverk, sem erum eldri og reyndari, að fræða unga fólkið um þennan þjófnað rétt eins og annað ólöglegt athæfi? Það er nefni- lega enginn munur á því að labba inn í plötuverslun og stinga inn á sig geisla- diski og að hlaða honum ólöglega niður um Netið. Í það minnsta ættum við að láta af því að státa af því að spara á þennan hátt eins og fyrrnefndur lögfræð- ingur. Þeim var ég verst er ég unni mest Eftir Stefán Hjörleifsson Höfundur er tónlistarmaður. MARGIR stjórnmálamenn hafa réttilega haldið því fram að mál- efnin sem lögð eru til grundvallar séu ætíð mikilvæg- ari en mennirnir sem veljast hverju sinni til að koma þeim í fram- kvæmd. Það er bara einn galli á gjöf Njarðar og hann er sá að menn og málefni eru tveir aðskildir hlutir sem fara ekki alltaf saman og því standa kjósendur frammi fyrir vissum vanda þegar kemur að kosn- ingum. Til eru þeir sem kjósa flokk á grunni almennrar stefnu án þess að huga að einstaklingunum sem velj- ast í forystusveitina eða að fram- kvæmdamálunum sem sett eru í öndvegi fyrir kosningar. Í þeim til- fellum kýs fólk sjálfstæðisstefnuna, jafnaðarmennskuna, framsókn- arstefnuna, vinstri umhverfisstefn- una, frjálslyndisstefnuna o.s.frv. Þessir kjósendur eru þrátt fyrir stefnuhollustuna í raun að velja menn, karla og konur, til starfa fyr- ir þjóðina þegar þeir kjósa tiltekinn flokk því það er ætíð ákveðinn hóp- ur manna sem framfylgir eða geng- ur þvert á stefnuna á hverjum tíma; hún gerir það ekki sjálf. Aðrir kjósendur eru ekki svona stefnuhollir og miða val sitt við hvaða einstaklingar það eru sem hafa valist í framboðssveitir flokk- anna. Þeir spyrja til að mynda: Eru bæði kynin í framboði, eru fram- boðsaðilar úr öllum stéttum, eru einstaklingarnir einsleitur eða fjölbreytilegur hópur, þröngsýnar eða víðsýnar manneskjur? Þeir kjósendur sem velja flokk út frá einstaklingum eða samsetningu hóps sem býður sig fram eru eins og fyrrnefndi kjósendahópurinn fyrst og fremst að velja menn eða hóp manna til að gegna ákveðnum launuðum störfum fyrir þjóðina bæði á Alþingi og í ríkisstjórn. Svo eru það kjósendurnir sem leggja mikið upp úr að skoða fram- kvæmdaskrárnar sem flokkarnir leggja fram fyrir kosningar í þeim tilgangi að vinna almenning á sitt band. Yfirleitt eru þó slíkar skrár þeim annmörkum háðar að vera mjög almennt orðaðar sem minnkar gildi þeirra til muna. Stefnt skal að á kjörtímabilinu ... og svo eru nefndir til sögunnar ákveðnir mála- flokkar. Slíkar skrár þyrftu hins vegar að vera raunhæfari og tiltaka: Hvað sé vilji til að gera, hvers vegna, í þágu hverra og með hvaða tilkostnaði. En þeir aðilar sem kjósa flokk á grundvelli stefnuskrár kom- ast samt ekki hjá því að velja menn með atkvæði sínu þó réttlæting valsins byggist á framsettum kosn- ingamálum. Ef alþingiskosningar snúast að- allega um að velja flokka með eða út frá tilteknum mönnum hvað verður þá um öll málefnin sem svo sannarlega er mikilvægt fyrir al- menning að taka beina afstöðu til? Lýðræði sem byggist eingöngu á stuðningi við það hvaða flokkur leið- ir löggjafarsamkunduna eða land- stjórnina verður ætíð takmarkað. Slíkt býður hættunni heim hvað varðar forræðishyggju og/eða snið- göngu forystumanna á meiri- hlutavilja almennings þegar kemur að framkvæmd hinna ýmsu mála. Hvernig á kjósandi sem hefur skoðanir óháðar flokkslínum að láta málefnavilja sinn í ljós við alþing- iskosningar? Jú, hann á kost á að velja þá flokkssveit manna sem hann treystir best, hvort sem það er á grundvelli stefnu, samsetningar hópsins eða kosningaloforða en fær lítið um afgreiðslu málefnanna að segja. Að alþingiskosningum lokn- um er nefnilega hlutverki þessa til- tekna kjósanda sem atvinnuveit- enda fyrir stjórnmálamenn lokið, lýðræðislega kosin framvarðarsveit þjóðarinnar hefur haft sitt í gegn og fær frítt spil næstu árin. Kjósand- inn góði fær ekki annað hlutverk í stjórnmálum landsins á komandi kjörtímabili en að sitja með hendur í skauti, áhrifalaus með öllu þótt ef til vill sé hann langt frá því að vera sammála stjórnmálamönnunum, sem hann sjálfur átti þátt í að ráða, um afgreiðslu og framkvæmd ein- stakra mála. Menn og málefni eru tvær hliðar á sama peningi og það þarf að gefa almenningi kost á að tjá sig um þetta hvort tveggja í tvenns konar kosningum; annars vegar flokks- eða mannakosningum til Alþingis og hins vegar sérstökum kosningum um mikilvæg málefni þar sem mál- efnaleg afstaða er ríkjandi án trufl- unar frá stjórnmálamönnum eða flokkum. Ísland er almennings- hlutafélag, allur almenningur hlut- hafar og ráðherrar framkvæmda- stjórar. Það er eðlilegasti hlutur í heimi að hluthafar séu spurðir þeg- ar nýta á sameiginlegt fjármagn þeirra til hinna og þessara fram- kvæmda. Annað er ekki sæmandi þjóð sem vill teljast lýðræðisleg, vonandi ekki eingöngu til hálfs heldur að fullu leyti, bæði hvað varðar menn og málefni. Menn eða málefni Höfundur starfar sem sálfræðingur. Eftir Guðrúnu Einarsdóttur LÍKLEGT má telja, að á næstu misserum muni skilningur forráða- manna þeirra háskóla, sem nú starfa í landinu, og æðstu yfirvalda menntamála á þörf fyrir aukið og stór- bætt samstarf há- skólanna á ýmsum sviðum fara vax- andi. En fullnægj- andi vettvang fyrir samráð milli allra háskólanna og fyrir skoðanaskipti milli þegna þeirra skortir í reynd. Í hinum al- mennu lögum um háskóla frá 1997 er að vísu gert ráð fyrir því, að há- skólar hafi með sér „samráð og samstarf til að nýta sem best til- tæka starfskrafta og gagnakost og stuðla með hagkvæmum hætti að fjölbreyttri háskólamenntun“. Þá er þar kveðið á um skipun „samstarfs- nefndar háskólastigsins“, en í henni eiga einungis sæti rektorar háskól- anna. Með þessum hætti hefur myndast vísir að samráðsvettvangi, en hann er þó í reynd ófullnægj- andi. Hefur raunverulegt samstarf milli háskólanna a.m.k. ekki verið áberandi til þessa, en þess í stað hefur ríkt nokkur spenna í sam- skiptum sumra háskólanna a.m.k. og orðið öllum augljós öðru hverju, eins og umræður um háskólamál- efni í fjölmiðlum hafa t.d. borið með sér upp á síðkastið. Mikilvægt er, að skapaður sé – helst án allra lagaboða – nýr sam- ráðs- og umræðuvettvangur ís- lenska háskólasamfélagsins, þ.e. þeirra manna, sem starfa og nema á hverjum tíma í öllum hérlendum háskólum. Nánar tiltekið vett- vangur, þar sem raddir þessara manna, eða í reynd fulltrúa þeirra, heyrist og hafi áhrif, og takmarkist ekki við hinn afar fámenna hóp rektoranna einna. Hér skal því haldið fram, að full ástæða sé til þess að háskólarnir sjálfir stofni til háskólaþings, er komi til frambúðar saman með reglubundnum fresti (eða af sérstöku tilefni ef þörf þyk- ir) og þar sem fram fari, á breiðum grundvelli, umræða um margvísleg málefni, sem snerta æðri menntun í landinu og starfsemi háskólanna al- mennt og á sértækum sviðum, um þróun háskólanna til lengri tíma og um hlutverk þeirra og afstöðuna til þjóðlífs (þ. á m. atvinnulífs) og þjóð- menningar og einnig um afstöðu þeirra gagnvart ríkisvaldinu. Einn- ig verði þar fjallað um samvinnu milli háskólanna og hvernig henni verði best fyrir komið, landi og lýð til heilla. Með öðrum orðum: Á há- skólaþingi fari fram umræða, sem í ríkum mæli sé borin uppi af hug- sjónum, þekkingu og víðsýni þeirra, sem þar leiða saman hesta sína, og grundvallist á raunverulegri há- skólapólitík. Háskólaþing gæti í einhverjum mæli sótt fyrirmynd sína til þing- halds, sem viðgengst á nokkrum öðrum sviðum eins og alkunna er, sbr. t.d. fiskiþing, búnaðarþing og náttúruverndarþing. Það er mála sannast, þótt merki- legt megi virðast, að háskólapólitík hefur ekki náð miklum viðgangi eða þroska hér á landi – þrátt fyrir margvíslegt og að sumu leyti vel unnið stefnumótunarstarf, sem fram hefur farið á vegum einstakra háskóla og er bundið við þá eina, t.d. á vettvangi svokallaðra háskóla- funda innan Háskóla Íslands. Víð- tæk umræða, innan háskólanna sem utan, um grundvallaratriði, sem snerta háskólana almennt, hefur aldrei náð að þróast hér, enda hefur einmitt skort hentugan vettvang til þess. Stjórnmálamenn hafa að jafn- aði, fremur en ekki, sneitt hjá þess háttar umræðu, nema þá helst til- neyddir við ákveðin tækifæri. Háskólaþing – ef stofnað verður – getur m.a. samþykkt rökstuddar ályktanir um málefni háskólanna sjálfra (þ. á m. um samvinnu milli þeirra) og um þau þjóðmál, sem þingið lætur sig varða, en einnig myndi það geta vísað málum til milliþinganefnda eða tiltekinna að- ila innan háskólanna til nánari um- fjöllunar. Má vissulega ætla, að á þessum nýja vettvangi, sem hér hefur verið nefndur til sögu, muni fæðast margar góðar hugmyndir, sem horfi til framfara og verði síðar hrint í framkvæmd þegar aðstæður leyfa. Líklegt er, að ályktanir há- skólaþings muni vega þungt í þjóð- málaumræðunni og hafa veruleg áhrif gagnvart stjórnvöldum – mun meiri áhrif en hver einstakur há- skóli fær megnað. Að sjálfsögðu er ekki raunhæft, að háskólaþing geti rúmað alla þegna háskólasamfélagins, sökum fjölda þeirra, heldur verði það að meginhluta skipað fulltrúum frá há- skólunum sjálfum – kosnum þar með þeim hætti, að þeir komi af hinum ýmsu sviðum starfseminnar (þ.e. úr hópi kennara og annarra vísindamanna, nemenda, stjórn- sýslumanna o.s.frv.) – auk þess sem þar verði fulltrúar stjórnmálaflokka og yfirvalda menntamála, ríkisfjár- mála o.fl. Auk háskólaþings, sem hér hefur verið vikið að, geta háskólarnir sem hægast komið sér saman um að byggja upp annars konar, og enn víðtækari, umræðuvettvang svo sem sameiginlegt tímarit um al- menn háskólamálefni, sem þjóni öllu háskólasamfélaginu. Einnig geta sambærilegar deildir háskól- anna haft með sér formlegt og reglubundið samráð, m.a. á grund- velli ábendinga eða ályktana á há- skólaþingum – og svo mætti lengi telja. Enginn fær á þessari stundu séð fyrir alla þá gagnsemi fyrir há- skólana, menninguna og gjörvallt þjóðfélagið, sem leitt getur af þeim nýmælum, er hér var drepið á, komist þau til framkvæmda. Háskólaþing Höfundur er prófessor í lögfræði við Háskóla Íslands. Eftir Pál Sigurðsson Bómullar-satín og silki-damask rúmföt Skólavörðustíg 21, sími 551 4050 ER NEFIÐ STÍFLAÐ? Fæst í apótekum og lyfjaverslunum STERIMAR Skemmir ekki slímhimnu er náttúrulegur nefúði sem losar stíflur og léttir öndun. Fyrir 0-99 ára. Fyrirtæki • stofnanir • heimili Hreinsum rimla-, viðar-, strimla- og plíseruð gluggatjöld Einnig sólarfilmur Eru rimlagardínurnar óhreinar? sími 897 3634 dgunnarsson@simnet.is Sendum grænmetismat í hádeginu til fyrirtækja Sími 552 2028 fyrir hádegi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.