Morgunblaðið - 14.05.2003, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2003 29
J
ANEZ Potocnik segist
vera hamingjusamur
maður þessa dagana. Allt
frá því Slóvenía sótti um
aðild að Evrópusamband-
inu (ESB) árið 1994 hefur undir-
búningurinn að því að ná þessu
marki mætt manna mest á honum,
og því var það mikilvægur áfangi
fyrir hann þegar landsmenn hans
samþykktu ESB-aðildarsamning-
inn með yfirgnæfandi meirihluta
(tæplega 90% þeirra sem atkvæði
greiddu) í þjóðaratkvæðagreiðslu
hinn 23. marz sl. Áður höfðu skoð-
anakannanir gefið til kynna að
stuðningurinn væri mun minni, á
bilinu 60–70%.
Aðspurður segir hann ástæðu
þess að úrslitin úr þjóðaratkvæða-
greiðslunni fóru svona fram úr von-
um vera þá helzta, að Slóvenar hafi
mjög sterka tilfinningu fyrir því að
þeir tilheyri Evrópu, og eins og
Evrópusambandið sé að þróast
verði æ meir hægt að setja sama-
semmerki milli þess og Evrópu.
Potocnik tekur þó fram, að það
hafi líka skipt máli að í þjóðarat-
kvæðagreiðslunni hafi jafnframt
verið kosið um aðild landsins að Atl-
antshafsbandalaginu (NATO), sem
hafi verið umdeildari en aðildin að
ESB. Svo vildi til að atkvæða-
greiðslan fór fram þremur dögum
eftir að Íraksstríðið hófst, sem hafi
ýtt undir efasemdir Slóvena um
NATO-aðildina, en að sama skapi
ýtt undir það að kjósendur segðu
„já“ við ESB.
Í matsskýrslum framkvæmda-
stjórnar ESB á aðildarundirbún-
ingi umsóknarríkja, sem gefnar eru
út árlega á meðan á aðildarviðræð-
unum stendur (í tilviki Slóveníu frá
1998 til 2002) kom ítrekað fram, að
Slóvenar stæðu sig mjög vel í sam-
anburði við hin umsóknarríkin í að
gera nauðsynlegar umbætur á eigin
löggjöf, stjórn- og réttarkerfi, sem
innganga í ESB útheimtir.
Potocnik, sem er hagfræðingur
að bakgrunni en ekki atvinnu-
streitan milli ríkja kom síðan fram á
vettvangi ráðherraráðs ESB, sem
umsóknarríkin sömdu jú formlega
við.
Slóvensk stjórnvöld tóku líka
strax í upphafi ferilsins þá afstöðu,
að það væri þess virði að leggja það
á sig sem þyrfti til að teljast standa
sig vel í aðildarundirbúningnum. Að
sögn Potocniks var ástæðan fyrir
þessari stefnu einföld: hún þjónaði
eigin þjóðarhagsmunum Slóvena.
„Með því að fá „góða einkunn“ fyrir
aðildarundirbúning okkar styrktum
við líka samningsstöðu okkar þegar
kom að lokaáfanga aðildarviðræðn-
anna, þar sem mestu hagsmuna-
málin voru tekin fyrir,“ útskýrir
Potocnik.
Könnuðu kosti og galla EES
Áður en slóvensk stjórnvöld
ákváðu að sækja um aðild að ESB
árið 1994 gerðu þau ýtarlega könn-
un á valkostunum, og lögðu í því
sambandi m.a. mat á kosti og galla
aðildar að EFTA og samningnum
um Evrópska efnahagssvæðið,
EES.
„EES er hálfgerð aðild að ESB,
þar sem manni er gert að uppfylla
svo til alla staðla og reglur ESB, án
þess að hafa áhrif á ákvarðanatöku
eða stefnumótun. Þetta var okkar
niðurstaða,“ segir Potocnik. Hags-
munum þeirra væri mun betur
borgið innan ESB en í EES. „Við
njótum meira jafnræðis með fullri
aðild, jafnvel sem smáþjóð. Með því
að standa utan við höfum við jú eng-
in áhrif, með aðild sitjum við við
sama borð og aðrar þróaðar þjóðir
Evrópu,“ segir ráðherrann.
„Ef ég á að vera hreinskilinn: að
vera aðili að EES þýðir að vera
þátttakandi í innri markaðnum,
sem fylgir bæði ávinningur og
skuldbindingar, og því fylgir líka
skuldbinding til að taka þátt í að
axla fjárhagslegar byrðar af
lífskjarajöfnunarstefnu ESB, án
þess að hafa þó nokkuð um stefnu-
mótun og ákvarðanatöku ESB að
segja. Ég á satt að segja bágt með
að sjá að þetta sé EFTA-ríkjunum í
EES í hag,“ bætir Potocnik við.
Hann segist vel vita að það skipti
miklu fyrir Íslendinga að hafa með
EES-aðildinni getað samið um
þátttöku í innri markaðnum án þess
að þurfa að selja sig undir sameig-
inlega sjávarútvegsstefnu ESB.
„Það er að sjálfsögðu undir Ís-
lendingum sjálfum komið hvernig
þeir telja hagsmunum sínum bezt
borgið. En mitt mat, svona utan frá
séð, er þetta: Er það virkilega
svona erfitt að finna lausn á fisk-
veiðimálinu þannig að allir geti við
unað? Því eftir því sem ég fæ bezt
séð mælir allt annað með því að það
þjóni hagsmunum Íslands bezt að
sækjast eftir fullri aðild að ESB,“
segir Potocnik.
inni til austurs færast ytri landa-
mæri ESB langt í austur og
slavneskumælandi þjóðir bætast í
hópinn, en það sem er frábrugðnast
fyrri stækkunarlotum er að löndin
tíu sem nú fá inngöngu – að Kýpur
og Möltu undanskildum – eru fyrr-
verandi kommúnistaríki. Á sama
tíma og þau voru að semja um aðild
voru þau að ganga í gegn um al-
gjöra umbyltingu á efnahags-,
stjórn- og réttarkerfum sínum.
„Strax eftir að Slóvenía varð
sjálfstætt ríki [1991] unnum við að
því að skilgreina hvaða leið við vild-
um fara til umbóta í efnahagsmál-
um,“ segir Potocnik. Hópur sér-
fræðinga, hann þar á meðal, hafi
unnið skýrslu um þessa stefnumót-
un, sem var gefin út í tíu bindum.
Þegar slóvensk stjórnvöld fóru síð-
an út í að skilgreina samningsmark-
mið sín í aðildarviðræðunum við
Evrópusambandið kom í ljós að þau
féllu að stærstum hluta saman við
þau markmið sem þau höfðu áður
komizt að niðurstöðu um, óháð aðild
að ESB. Hið nauðsynlega umbóta-
ferli frá sósíalísku kerfi til markaðs-
og lýðræðiskerfis féll því saman við
aðlögunarferlið að Evrópusam-
bandsaðild. „Eða eins og ég lít á
það,“ segir Potocnik, „aðlögunin að
ESB flýtti fyrir umbótaferlinu og
veitti því hlutlaust aðhald utan frá.“
Það megi ekki gleyma því að marg-
ar breytingar sem umbótaferlið út-
heimti voru erfiðar í framkvæmd;
sumir hafi haft hag af því að streit-
ast á móti þessum breytingum, og
því hafi verið gott að eftirlitshlut-
verks framkvæmdastjórnar ESB
skuli hafa notið við í þessu ferli.
Potocnik segir það hafa verið sína
reynslu, að í aðlögunarferlinu
gegndi framkvæmdastjórnin raun-
verulega hlutlausu eftirlits- og
miðlunarhlutverki; hagsmunatog-
stjórnmálamaður, lék lykilhlutverk
í þessu aðlögunarferli Slóveníu.
Hann fór fyrir samninganefnd
landsins í aðildarviðræðunum. Í
janúar 2002 var hann skipaður ráð-
herra Evrópumála í slóvensku rík-
isstjórninni.
Hinn góða árangur hvað varðar
stuðning almennings við samn-
ingana um inngöngu í ESB álítur
Potocnik einnig vera afrakstur
gegnsærrar upplýsingastefnu
stjórnvalda, sem þau fylgdu í gegn
um allt aðildarviðræðuferlið. „Við
birtum samningsmarkmið okkar
alltaf jafnóðum, enda var reglan sú
að þingið þurfti að samþykkja
markmiðin í hverjum málaflokki.
Þetta var mjög gegnsætt ferli,“ seg-
ir hann.
Þessi gegnsæisstefna átti að mati
Potocniks mikinn þátt í að efla tiltrú
almennings og ekki sízt fjöl-
miðlanna á ferlinu.
Grundvallarmunur á þessari
og fyrri stækkunarlotum
Í allri umfjöllun um stækkunar-
lotu ESB sem nú stendur fyrir dyr-
um segir Potocnik nauðsynlegt að
hafa í huga að það sé grundvallar-
munur á henni og fyrri stækkunar-
lotum sambandsins. Með stækkun-
Morgunblaðið/Jim Smart
Meðal gesta voru sendiherrar Svíþjóðar (lengst t.v.), Frakklands (2. f.v.) og Finnlands (4. f.v.), Gunnar Snorri Gunnarsson, ráðuneytisstjóri utanríkis-
ráðuneytisins (3. f.v.), Vigdís Finnbogadóttir, fv. forseti Íslands, og Einar Benediktsson, fv. sendiherra. Fremst t.h. situr Páll Skúlason, rektor HÍ.
Stefnan á aðild að ESB
flýtti fyrir umbótum
Á málfundi í tilefni af
Evrópudeginum flutti
Janez Potocnik, Evr-
ópumálaráðherra Slóv-
eníu, erindi í Háskóla
Íslands á mánudag um
reynsluna af því að
semja um aðild að Evr-
ópusambandinu, út frá
sjónarhóli lítils ríkis.
Auðunn Arnórsson tók
gestinn tali.
Morgunblaðið/Jim Smart
Dr. Janez Potocnik var gestafyrirlesari á málfundi í tilefni af Evrópu-
deginum, sem haldinn var í Hátíðarsal Háskóla Íslands á mánudag.
’ Hið nauðsynlegaumbótaferli frá
sósíalísku kerfi til
markaðs- og
lýðræðiskerfis féll
saman við aðlög-
unarferlið að
ESB. ‘
auar@mbl.is
40–50 hektarar fara undir lón
„Framkvæmdirnar snerta mig
mjög mikið,“ segir Jón Vilmundar-
son, en hann á tvær jarðir að
Skeiðháholti og Blesastöðum 2 í
Skeiðahreppi. Um það bil 40 til 50
hektarar af jörðinni í Skeiðháholti
munu fara undir lón, að sögn hans.
Einnig munu u.þ.b. 10 hektarar af
Blesastaðalandinu fara undir virkj-
unarsvæðið, að sögn hans. „Það
mun um það bil fjórði parturinn af
Skeiðháholtsjörðinni verða fyrir
raski vegna þessa,“ segir Jón.
„Það er engin spurning að þetta
mun hafa mikil áhrif. Það er ekkert
farið að ræða við okkur um bætur.
Það er líka óþægilegt að þegar
virkjanirnar verða komnar á fram-
kvæmdaáætlun eru öll landnot hjá
okkur í uppnámi vegna þess að við
getum ekki ráðstafað landi á neinn
annan hátt á meðan þetta vofir yf-
ir,“ segir hann.
Vilmundur Jónsson, faðir Jóns í
Skeiðháholti, segir að framkvæmd-
irnar hafi augljóslega talsverð sjón-
ræn áhrif. Einnig fari ræktuð tún
að nokkru undir vatn og þar að auki
fari malartekja undir fyrirhugað
lón. „Menn eru einnig svolítið
hræddir við að jarðvegsvatnið inni í
landinu muni hækka vegna fram-
kvæmdanna. Þjórsárhraun liggur
hér undir alveg niður í sjó og það er
mikið um jarðskjálftasprungur á
svæðinu, þannig að það er mikill
vatnsleki. Þegar hækkar í ánni
hækkar vatn í brunnum inni í
sveit,“ segir Vilmundur.
Hreinasta orkan
Bergljót Þorsteinsdóttir á Reykj-
um segir að hinar fyrirhuguðu
virkjunarframkvæmdir snerti
hennar bújörð ekki með beinum
hætti en ljóst sé að verði þær að
veruleika þá muni þær hafa mikil
áhrif í samfélaginu í kring og að
mörgu sé að hyggja í því sambandi.
„En ég tel líka að við verðum að
horfa á að vatnsaflsorkan er hrein-
asta orkan sem við höfum. Ég hefði
þó frekar viljað að virkjað yrði inni
á hálendinu frekar en hér niðri í
byggð,“ segir hún.
Ólafur Leifsson, sem búsettur er
að Björnskoti á Skeiðum, á sæti í
sveitarstjórn Skeiða- og Gnúp-
verjahrepps. Ólafur kveðst hafa
sérstakar áhyggjur af hugsanleg-
um áhrifum Urriðafossvirkjunar á
grunnvatnsstöðu í jörðunum á
Skeiðum. Slíkt gæti haft mjög al-
varlegar afleiðingar. „Að öðru leyti
er ég mjög jákvæður gagnvart
þessum virkjunum,“ segir hann.
Guðlaugur Þórarinsson hjá
Landsvirkjun segir að hönnuð verði
sérstök mannvirki til að koma í veg
fyrir breytingar á grunnvatni, m.a.
með vatnsrás meðfram stíflu við
Urriðafossvirkjun. Áhyggjur af því
séu því ástæðulausar.
Matsskýrslur Landsvirkjunar
verða kynntar á opnum fundi á
Laugalandi í Holtum í dag.
m, eins og
hafi ekki
gegnum
r þó ljóst
uni hafa
að mörg-
þessi orka
urland er
nnar hluti
rðist vera
ju undir
ir hærra
purningin
kemur til
raforku-
eiðum vegna virkjana
ði náið
eigendur
Morgunblaðið/RAX
r í Brautarholti á Skeiðum í gær.
útskýr-
na sér
son hjá