Morgunblaðið - 14.05.2003, Síða 39

Morgunblaðið - 14.05.2003, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2003 39 ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I ATVINNA ÓSKAST Starf óskast Óska eftir starfi sem hafnarvörður. Upplýsingar í síma 562 5775. R A Ð A U G L Ý S I N G A R TILBOÐ / ÚTBOÐ Austur-Hérað Útboð Íþróttamiðstöð Egilsstöðum — Fjölnotasalur Verkið felst í að byggja um 150 m² viðbyggingu á annarri hæð íþróttahússins og innrétta þar fjölnotasal. Helstu verkþættir eru: steyptir veggir og gólf, burðarvirki úr límtré, glerveggur, þak, gólfefni og klæðningar inni, málun, raflagnir, vatns-, hita- og loftræsikerfi. Helstu magntölur eru:  Steypumót 175 m²  Steypa 22 m³  Límtré 6 m³  Þak 250 m²  Gluggar og gler 70 m²  Hitakerfi 9300 W  Loftræsikerfi 2500 m³/klst Verktaki getur hafið framkvæmdir að lokinni undirritun verksamnings. Öllum frágangi að utan og hreinsun vinnusvæðis úti skal vera lokið eigi síðar en 20. ágúst 2003. Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 1. október 2003. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Hönnun- ar hf. (s. 470 4050), Miðvangi 2-4, Egilsstöðum, frá og með föstudeginum 16. maí 2003. Tilboðum skal skila á skrifstofu Hönnunar hf. - Egilsstöðum, föstudaginn 30. maí 2003 fyrir kl 16.00, þar sem þau verða opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Forstöðumaður Umhverfissviðs. Útboð Útboðsgögn fyrir neðangreint útboð eru til sýnis og sölu á skrifstofum Hitaveitu Suðurn- esja hf., Brekkustíg 36, Reykjanesbæ og Bæjar- hrauni 14, Hafnarfirði. Grindavíkurgeymir - Endurnýjun þaks HS02001 Verkið felst í endurnýjun þaks miðlunargeymis- ins. Fjarlægja skal álklæðningu, pappa og timb- urklæðningu og byggja upp nýtt þak með læst- ri álklæðningu. Mála skal hluta geymisins, sementskústa hluta undirstaða og sílanbaða steypu. Helst magntölur: Álklæðning, pappi og klæðning fjarlægð 126 m² Nýtt þak með læstri álklæðningu 126 m² Háþrýstiþvottur og sementskústun steyptra flata 150 m² Sílanböðun 550 m² Háþrýstiþvottur, sandblástur og málun álklæðningar 110 m² Verkinu skal að fullu lokið 31. ágúst 2003. Opnun fer fram kl. 11.00 þriðjudaginn 27. maí 2003 á skrifstofu Hitaveitu Suðurnesja hf, Brekkustíg 26, Reykjanesbæ. Gögn verða seld á kr. 2.490 m. vsk. Hitaveita Suðurnesja hf., Brekkustíg 36, 260 Njarðvík, Reykjanesbæ, sími 422 5200, bréfasími 421 4727. TILKYNNINGAR Bessastaðahreppur Deiliskipulag við Brekku Hreppsnefnd Bessastaðahrepps auglýsir hér með tillögu að breytingu á deiliskipulagi við Brekku í Bessastaðahreppi samkvæmt 1. mgr. 26. gr., sbr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Breytingin nær til lóðanna 7 og 9 við Ásbrekku, vestast í landi Brekku. Í tillög- unni er byggingarreit á lóðunum breytt með nýrri húsagerð G og gert ráð fyrir breytingu á ákvæði varðandi aðalhönnuði húsa við göt- una. Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Bessa- staðahrepps, Bjarnastöðum, frá kl. 08.00 - 16.00 alla virka daga til 26. júní 2003. Þeim, sem telja sig eiga hagsmuna að gæta, er gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillöguna. Frestur til að skila inn at- hugasemdum rennur út 26. júní 2003. Athuga- semdum skal skilað skriflega til sveitarstjóra Bessastaðahrepps, Bjarnastöðum. Þeir, sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests, teljast samþykkir henni. Sveitarstjórinn í Bessastaðahreppi. Skaftfellingar athugið! Sumarleyfi sóknarpresta 2003 Austurhluti Skaftafellsprófastsdæmis: Bjarnanesprestakall: Sr. Sigurður Kr. Sigurðsson sóknarprestur verður í sumarleyfi sem hér segir: frá 12. júní til 2. júlí - frá 20. júlí til 26. júlí og frá 10. ágúst til 16. ágúst. Sr. Einar G. Jónsson á Kálfafellsstað leysir hann af á meðan. Kálfafellsstaðarprestakall: Sr. Einar Guðni Jónsson sóknarprestur verður í sumarleyfi sem hér segir: frá 3. júlí til 19. júlí - frá 27. júlí til 9. ágúst og frá 18. ágúst til 26. ágúst. Sr. Sigurður Kr. Sigurðsson á Höfn leysir hann af á meðan. Vesturhluti Skaftafellsprófastsdæmis: Kirkjubæjarklaustursprestakall: Sr. Bryndís Malla Elídóttir sóknarprestur verður í sumarleyfi sem hér segir: frá 15. maí til 20. júní og frá 26. júní til 7. ágúst. Sr. Haraldur M. Kristjánsson í Vík leysir hana af á meðan. Víkurprestakall: Sr. Haraldur M. Kristjánsson prófastur verður í sumarleyfi sem hér segir: frá 8. ágúst til 31. ágúst og frá 15. sept. til 2. október. Sr. Bryndís Malla Elídóttir á Kirkjubæjarklaustri leysir hann af á meðan. Haraldur M. Kristjánsson, prófastur Skaftafellsprófastsdæmis. Auglýsing frá landskjör- stjórn um úthlutun þingsæta Landskjörstjórn kemur saman til fundar föstu- daginn 16. maí 2003, kl. 15.00, til að úthluta þingsætum á grundvelli kosningaúrslita í kjör- dæmum eftir almennar alþingiskosningar sem fram fóru hinn 10. maí sl. Hér með er umboðsmönnum þeirra stjórn- málasamtaka sem buðu fram við alþingiskosn- ingarnar boðið að koma til fundarins, sem haldinn verður í fundarsal 1 á 2. hæð í Austur- stræti 8-10, Reykjavík, húsnæði nefndasviðs Alþingis. Gengið er inn frá Vallarstræti. Reykjavík, 14. maí 2003. Landskjörstjórn Þorvaldur Lúðvíksson, formaður, Gestur Jónsson, varaformaður, Ástráður Haraldsson, Elsa S. Þorkelsdóttir, Gísli Baldur Garðarsson. Fimmta norræna umhverfis- matsráðstefnan Reykjavík 24.—26. ágúst 2003 5th Nordic Environmental Assessment Confer- ence. Planning for Sustainable Development - the practice and potential of environmental assessment Skráningu lýkur 15. maí! Minnt er á fimmtu norrænu umhverfismatsráð- stefnuna sem verður haldin í Reykjavík 24.—26. ágúst 2003. Nánari upplýsingar og skráningar- form eru á heimasíðu Skipulagsstofnunar: www.skipulag.is . Sölumaður/kona óskast til starfa á fasteignasölu. Leitað er eftir samviskusömum, reglusömum og sjálfstæðum einstaklingi til að bætast í góðan hóp sölumanna. Laun eru árangurs- tengd. Vinsamlegast sendið fyrirspurnir og umsóknir á andres@eign.is fyrir 20. maí nk. með öllum nauðsynlegum upplýsingum. Styrktarfélag vangefinna Bjarkarás Þroskaþjálfar og stuðningsfulltrúar ósk- ast til starfa. Um er að ræða tvær heilar stöður og hálft starf eftir hádegi. Stöð- urnar eru lausar nú þegar eða eftir nán- ara samkomulagi. Bjarkarás er hæfingarstöð og er staðsett í Stjörnugróf 9. Þangað sækja 45 ein- staklingar vinnu og þjálfun. Vinnutíminn er frá kl. 8.30—16.30 eða 9.00—17.00 alla virka daga. Umsóknarfrestur er til 23. maí. Nánari upplýsingar veita Þórhildur Garðarsdóttir forstöðuþroskaþjálfi og Guðrún Eyjólfsdóttir yfirþroskaþjálfi í síma 568 5330. Laun eru samkvæmt kjarasamningum ríkisins og Þroskaþjálfafélagi Íslands. Hægt er að nálgast upplýsingar og um- sóknareyðublöð um Styrktarfélagið á heimasíðu þess, http://www.styrktarfelag.is .

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.