Morgunblaðið - 14.05.2003, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2003 43
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
NAUT
Afmælisbörn dagsins:
Þið eruð kraftmikil, dugleg
og fylgist vel með. Það verð-
ur mikið að gerast í félags-
og ástarlífinu á komandi ári.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þér er mikið í mun að ná sam-
bandi við fólk. Þú vilt að aðrir
hlusti á það sem þú segir án
þess að augu þeirra flökti. Þú
hefur eitthvað að segja.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Samskipti við yfirvöld eða
stórar stofnanir geta fært þér
peninga í dag eða með ein-
hverjum hætti komið þér til
góða í starfi.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Dagurinn hentar vel til að
ganga frá viðskiptum við vini
eða kunningja. Það eru einnig
líkur á að vinur þinn geti með
einhverjum hætti aðstoðað þig
í viðskiptum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Sjálfsagi þinn og skipulagning
vekja aðdáun annarra. Fólk
kann að meta það hvað þú ger-
ir hlutina af mikilli vandvirkni.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þetta er góður tími til að huga
að ferðalögum, útgáfumálum,
fjölmiðlum og framhalds-
menntun. Draumar geta orðið
að veruleika.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Dagurinn hentar vel til alls
konar viðskipta og verslunar.
Þú nýtur þess stuðnings sem
þú þarft á að halda. Þetta er
einnig góður tími til fjáröfl-
unar og annars konar söfn-
unarstarfs.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú átt auðvelt með að vinna
með öðrum í dag. Þú virðir
viðhorf annarra og það aflar
þér verðskuldaðrar virðingar.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er líklegt að þú daðrir við
einhvern þér eldri og reyndari
í dag. Málið snýst líklega frek-
ar um þína eigin sjálfsmynd
en viðkomandi aðila. Það er
ekkert að því að spegla sig í
viðhorfi annarra.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú getur náð miklum árangri í
því sem þú tekur þér fyrir
hendur. Þú ert tilbúin(n) til að
leggja vinnu í undirbúning og
smáatriði og það er það sem
gerir gæfumuninn.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Gerðu ráðstafanir til að fegra
heimili þitt með einhverjum
hætti. Árangurinn mun veita
bæði þér og öðrum langvar-
andi gleði.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú átt auðvelt með að telja
fólk á þitt band. Það aflar þér
virðingar að þú skulir gefa þér
tíma til að gæta að öllum smá-
atriðum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ráð frá einhverjum þér eldri
geta komið þér að gagni í dag
og orðið til þess að auka tekju-
möguleika þína. Hlustaðu allt-
af á ráðleggingar sama hvað-
an þær koma.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Heyin túna hjá oss öll
hríðum mæta fyrr og síð,
slegin krúna væn um völl
víða blotnar þessa tíð.
Kembir úrinn kólgumegn,
kallar smalinn hátt um fjall,
dembiskúr og skessiregn
um skallann vætir margan jall.
Tæmir kvía tekst upp þá,
tindinn hylur þokan blind,
flæmir skýjaskúmið há
með skyndi í burtu hvörja kind.
Baggaþjóðin bragðafull
ber nú þungt á hvörri mer
kagga, skjóður, osta, ull;
er að éta fisk og smér.
- - -
Bjarni Gissurarson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
90 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 14.
maí, er níræð Guðrún Jóns-
dóttir frá Syðri-Hömrum í
Ásahreppi í Rangár-
vallasýslu, Melhaga 9,
Reykjavík. Guðrún er að
heiman í dag.
50 ÁRA afmæli. Ámorgun, fimmtudag-
inn 15. maí, er fimmtug
Stella S. Kiernan, BSc
hjúkrunarfræðingur. Af því
tilefni verður Stella með op-
ið hús fyrir vini og vanda-
menn á Kikhanebakken 14,
2840 Gl Holte, Danmörku,
allan afmælisdaginn. Síminn
er (0045) 4550 5563.
ÍSLENSKU bikarmeist-
ararnir í sveit Sumarferða
urðu í öðru sæti í bikar-
keppni Norðurlandanna sem
fram fór í Svíþjóð um
helgina. Danir unnu nokkuð
sannfærandi en Svíar urðu
þriðju. Bikarkeppni Norður-
landanna hefur farið fram á
tveggja ára fresti frá árinu
1985 og hefur Ísland unnið
tvívegis, 1997 og 2001. Í
sveit Íslands spiluðu Guð-
mundur Sv. Hermannsson,
Helgi Jóhannsson, Ásmund-
ur Pálsson og Björn Ey-
steinsson. Sigursveit Dana
var skipuð Lars Blakset,
Jens Auken, Mathias Bruun
og Nicolai Kampmann. Ís-
land tapaði fyrir Dönum 12-
18, en vann aðra leiki, þar á
meðal Svía 18-12. Lítum á
spil frá þeirri viðureign:
Vestur gefur; NS á hættu.
Norður
♠ K10842
♥ Á
♦ ÁK96
♣DG4
Vestur Austur
♠ ÁD76 ♠ --
♥ 1054 ♥ G8763
♦ G8754 ♦ D103
♣7 ♣K9832
Suður
♠ G953
♥ KD92
♦ 2
♣Á1065
Hinn íslenski „Svíi“
Magnús Magnússon spilaði í
sænsku sveitinni með þeim
Svend-Aake Bjerregaard,
Tommy Guldberg, PO
Sundelin og Johan Sylvan.
Magnús og Sven-Aake voru í
AV gegn Ásmundi og Birni:
Vestur Norður Austur Suður
Sven-Aake Ásmundur Magnús Björn
Pass 1 spaði Pass 3 grönd
Pass 4 lauf Pass 4 tíglar
Pass 4 grönd Pass 5 tíglar
Pass 5 hjörtu Pass 5 spaðar
Pass Pass Pass
Stökk Björns í þrjú grönd
var af „splinter“-ætt, lofaði
stuðningi við spaðann og
einspili til hliðar. Ásmundur
spurði um einspilið, síðan
um lykilspil og trompdrottn-
ingu. Þegar Björn sagði
fimm spaða vissi Ásmundur
að það vantaði í spilið ás og
spaðadrottningu og lét því
slemmuna eiga sig. Hann
fékk 11 slagi.
Á hinu borðinu keyrðu PO
Sundelin og Sylvan í
slemmu, sem Sundelin spil-
aði á fjórlitinn í suður. Út-
spil Guðmundar í vestur var
lítið hjarta. PEÓ gaf sér
góðan tíma, en tók loks tíg-
ulás og trompaði tígul til að
spila spaðagosa að heiman.
Guðmundur stakk upp ás og
spilaði tígli. Í þessari stöðu
vinnst slemman ef sagnhafi
tekur á tígulkóng, spilar litlu
laufi og svínar tíunni. Hann
getur hent tígli í háhjarta og
svínað tvisvar fyrir spaða-
drottningu. PEÓ vildi hins
vegar komast hjá laufsvín-
ingunni og trompaði annan
tígul í borði. Nú er ekki
hægt að ná spaðadrottning-
unni nema með einhvers
konar trompbragði en það
lét á sér standa og slemman
fór niður: 13 IMPar til Ís-
lands.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
60 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 14.
maí, er sextugur Valgarður
Sigurðsson, Stigahlíð 49,
Reykjavík. Hann og eigin-
kona hans, Elísabet Krist-
jánsdóttir, taka á móti gest-
um föstudaginn 16. maí kl.
17–20 í Turninum, versl-
unarmiðstöðinni Firði,
Hafnarfirði.
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7
4. e4 d6 5. Rf3 0-0 6. Be2
Ra6 7. 0-0 e5 8. Be3 Rg4 9.
Bg5 f6 10. Bh4 c6 11. Hb1 g5
12. Bg3 f5 13. exf5 Bxf5 14.
Hc1 e4 15. Re1 Rh6 16. Rc2
Bg6 17. Bh5 De8 18. Bxg6
Dxg6 19. Dd2 Hae8 20.
Hce1 Rb8 21. He2 Rd7 22.
Hfe1 Rb6 23. Rxe4 Rxc4 24.
Dd3 Rxb2
Staðan kom upp í
A-flokki minning-
armóts Capablanca
sem stendur nú yfir
á Kúbu. Ivan Mor-
ovic (2.551) hafði
hvítt gegn Alonzo
Zapata (2.543). 25.
Rf6+! Bxf6 25. ...
Dxf6 gekk ekki upp
vegna 26. Db3+ Df7
27. Hxe8 og hvítur
vinnur. Í framhald-
inu hefur svartur
ekki nægar bætur
fyrir skiptamuninn.
26. Dxg6+ hxg6 27. Hxe8
Rc4 28. Hxf8+ Kxf8 29. Hb1
b6 30. Rb4 c5 31. dxc5 dxc5
32. Rc6 Ke8 33. Rxa7 Kd7
34. Hd1+ Bd4 35. Rb5 Rf5
36. Rxd4 Rxd4 37. f3 Kc6
38. Bf2 Re6 39. h4 gxh4 40.
Bxh4 b5 41. Bf6 b4 42. Kf2
Rb6 43. Hh1 c4 44. Hh6 c3
45. Hxg6 Kd5 46. Bg5 Rc4
47. Bh6 Rb2 48. Hg8 Rd4
49. Hd8+ Kc4 50. g4 c2 51.
Hxd4+ og svartur gafst
upp.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
BIKARKEPPNI Norðurlandanna
í brids hefur verið haldin í Rottneros í
Svíþjóð annað hvert ár frá árinu 1985.
Þessi keppni er um margt merkileg
en hún er ávallt haldin í boði Svíans
Påls Horns, sem er fæddur í Rottn-
eros. Þarna keppa bikar- eða lands-
meistarar Norðurlandanna það árið.
Rottneros er í raun gríðarstór listi-
garður í Värmland í Svíþjóð. Þarna í
nágrenninu fæddist skáldkonan
Selma Lagerlöf og ein þekktasta
skáldsaga hennar, Gösta Berlings
saga, gerist á þessum slóðum. Afi
Påls Horns, Svante Pålsson, byggði
upp listigarðinn í Rottneros og safn-
aði þar saman höggmyndum eftir
helstu myndhöggvara Norður-
landanna á síðustu öld. Í garðinum er
m.a. að finna myndina Móðurást eftir
Ásmund Sveinsson.
Pål Horn hefur búið í Bandaríkj-
unum lengi og stýrir þar umfangs-
miklum fjármálarekstri en kemur
alltaf til Rottneros þegar bikar-
keppnin er haldin þar.
Norrænir bridsspilarar söfnuðust
saman í Rottneros um helgina og
mátti sjá þar marga reynda keppn-
ismenn. Fulltrúar Íslands voru að
þessu sinni bikarmeistarar Brids-
sambandsins, þeir Ásmundur Páls-
son, Björn Eysteinsson, Guðmundur
Sv. Hermannsson og Helgi Jóhanns-
son. Ísland hafði titil að verja en Ís-
lendingar unnu mótið árið 2001. Einn
úr sigurliðinu þá, Magnús Magnús-
son, var raunar meðal keppenda en
nú í liði Svía.
Íslenska liðið byrjaði á að vinna
Svía, 18:12, tapaði síðan fyrir Dönum
með sama mun, vann Norðmenn 23:7,
Finna 19:11 og Færeyinga 18:12. Lið-
ið endaði með 90 stig og það nægði í 2.
sætið. Danir höfðu hins vegar nokkra
yfirburði og hlutu 108 stig. Í sigurlið-
inu voru Jens Auken, Lars Blakset,
Mathias Bruun og Nicolai Kamp-
mann, allt þekktir landsliðsmenn.
Þeir spiluðu vel og voru einnig
heppnir. Í verðlaunaafhendingu í
mótslok bað Blakset Norðmenn af-
sökunar á því að þegar Danir og
Norðmenn mættust sögðu Danir eina
hálfslemmu þar sem tvær svíningar
þurftu að ganga og alslemmu sem
þurfti að finna tvær drottningar.
Norðmennirnir fóru síðan í slemmu
sem tapaðist.
Leikur Íslendinga og Svía í fyrstu
umferð var nokkuð sveiflukenndur
en fleiri sveiflur duttu til Íslands, þar
á meðal í þessu spili þegar íslensku
spilararnir unnu geim við bæði borð:
Suður gefur, enginn á hættu
Norður
♠ ÁD987
♥ Á10532
♦ 632
♣–
Vestur Austur
♠ 5 ♠ K2
♥ G4 ♥ 9876
♦ D974 ♦ ÁK5
♣KD10652 ♣ÁG74
Suður
♠ G10643
♥ KD
♦ G108
♣983
Við annað borðið sátu Ásmundur
og Björn NS og í AV sátu Magnús
Magnússon og Sven-Åke Bjerre-
gård. Þar var stígandi í sögnum:
Vestur Norður Austur Suður
Bjerreg. Ásm. Magnús Börn
pass
3 lauf 4 lauf 5 lauf 5 spaðar
pass pass dobl//
Ásmundur sýndi báða háliti með 4
laufum og Björn barðist í 5 spaða.
Það má velta því fyrir sér hvort öll
rök hnígi ekki að því að vestur eigi að
spila út tígli gegn 5 spöðum dobluð-
um; austur er væntanlega með dobl-
inu að benda á styrk utan við lauf og
varnarslagir í hálitunum hverfa
væntanlega ekki.
Bjerregård ákvað hins vegar að
spila út laufi og þá gat Björn trompað
í blindum, tekið spaðaás og hjarta-
hjónin. Þegar hjartagosinn datt
trompaði Björn lauf í borði og gæddi
sér á hjörtunum og henti tíglum
heima þegar Magnús varð að fylgja.
Spaðakóngurinn varð því eini slagur
varnarinnar og Íslendingar fengu
750.
Við hitt borðið sátu Guðmundur og
Helgi AV og Johan Sylvan og P.O.
Sundelin NS:
Vestur Norður Austur Suður
Guðm. Sylvan Helgi Sundelin
pass
2 grönd pass 3 grönd//
Opnunin sýndi langlit í öðrum
hvorum láglitnum og veik spil. Sylvan
ákvað að bíða átekta en þegar Helgi
lyfti í 3 grönd var hann mát. 4 lauf eða
4 tíglar hefðu verið eðlilegar sagnir
og varla gat hann sagt 4 hjörtu eða 4
spaða enda ljóst að Helgi ætti styrk í
hálitunum.
Það er hægt að hnekkja 3 gröndum
með því að spila út litlu hjarta en
Sylvan byrjaði á spaðaás. Hann skipti
síðan í hjarta og Sundelin tók kóng og
drottningu en fleiri urðu slagir varn-
arinnar ekki. 430 til Íslands og 15
stig.
BRIDS
Rottneros í Svíþjóð
BIKARKEPPNI NORÐURLANDANNA
Bikarkeppni Norðurlandanna í brids var
haldin í Rottneros í Svíþjóð dagana 9.–
11. maí. Heimasíða mótsins er http://
www.bridgefederation.se/welcome/
index.htm.
Ljósmynd/Ib Lundby
Dönsku sigurvegararnir. Frá vinstri eru Pål Horn mótshaldari, Mathias
Bruun, Nicolai Kampmann, Jens Auken og Lars Blakset.
Guðm. Sv. Hermannsson
Ísland í 2. sæti
í Rottneros
Teppi á stigaganga
Ármúla 23, sími 533 5060
alltaf á föstudögum