Morgunblaðið - 14.05.2003, Page 46
ÍÞRÓTTIR
46 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HANDKNATTLEIKUR
ÍR – Haukar 25:33
Austurberg, Reykjavík, fjórði úrslitaleikur
um Íslandsmeistaratitil karla, þriðjudaginn
13. maí 2003.
Gangur leiksins: 0:1, 1:1, 1:3, 3.3, 3:6, 6:6,
6:7, 8:10, 9:10, 9:13, 10:14, 10:16, 13:18,
17:21, 17:24, 19:27, 23:33, 25:33.
Mörk ÍR: Bjarni Fritzson 9/3, Einar Hólm-
geirsson 5, Guðlaugur Hauksson 3/2, Ólaf-
ur Sigurjónsson 3, Kristinn Björgúlfsson 2,
Brynjar Steinarsson 1, Ingimundur Ingi-
mundarson 1, Sturla Ásgeirsson 1.
Utan vallar: 10 mínútur.
Mörk Hauka: Ásgeir Örn Hallgrímsson 8,
Halldór Ingólfsson 5, Robertas Pauzuolis 5,
Aron Kristjánsson 4, Þorkell Magnússon 4,
Jón Karl Björnsson 3/2, Vignir Svavarsson
2, Andri Stefan 1, Þórir Ólafsson 1/1.
Utan vallar: 10 mínútur.
Dómarar: Stefán Arnaldsson og Gunnar
Viðarsson.
Áhorfendur: 1.800.
Haukar Íslandsmeistarar, unnu einvígið,
3:1.
Þetta var fjórði Íslandsmeistaratitilinn
hjá Haukum en þeir hömpuðu titlinum
1943, 2001, 2001 og nú 2003.
Þannig vörðu þeir
Hrafn Margeirsson, ÍR 11 (5). 4 (1) lang-
skot, 3 (2) gegnumbrot, 2 (2) línuskot, 2
hraðaupphlaup.
Hallgrímur Jónasson, ÍR 2 (1). 1 línuskot, 1
(1) úr horni.
Bjarni Frostason, Haukum 19/1 (8). 9 (3)
langskot, 3 (2) gegnumbrot, 3 (1) úr horni, 2
(2) línuskot, 1 hraðaupphlaup, 1 vítaskot.
Birkir Ívar Guðmundsson, Haukum 1/1. 1
vítaskot.
KNATTSPYRNA
Meistaradeild Evrópu
Undanúrslit, síðari leikur:
Inter Mílanó – AC Milan ......................... 1:1
Obafemi Martins 83. – Andrei Shevchenko
45. – 80.000.
AC Milan mætir Real Madrid eða Juven-
tus í úrslitum á Old Trafford í Manchester
28. maí.
England
Undanúrslit um sæti í 1. deild, síðari leikur:
Bristol City – Cardiff ............................... 0:0
Cardiff vann samanlagt 1:0
Undanúrslit um sæti í 2. deild, síðari leikur:
Bournemouth – Bury ................................3:1
Bournemouth vann samanlagt 3:1
Holland
Roda – Groningen .................................... 5:1
Noregur
Bikarkeppnin, 2. umferð, helstu úrslit:
Aalgaard – Viking .................................... 0:1
Averöykamraterne – Molde .................... 0:3
Frigg – Vålerenga .................................... 0:5
Rosenborg – Clausenengen................... 15:0
Strömsgodset – Bærum........................... 7:1
Svíþjóð
Malmö FF – Örgryte ............................... 1:1
Austurríki
Bikarkeppnin, undanúrslit:
Salzburg – Austria Vín............................. 0:1
Kärnten – Mattersburg ........................... 4:0
Austria Vin og Kärnten leika til úrslita
um bikarinn.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Austurdeild:
Boston – New Jersey ........................101:110
Eftir tvær framlengingar.
New Jersey vann 4:0 og er komið í úrslit
– mætir Detroit eða Philadelphia.
ÚRSLIT
LOGI Ólafsson var í gær ráðinn
þjálfari karlalandsliðsins í knatt-
spyrnu við hlið Ásgeirs Sigurvins-
sonar. Þeir munu að öllu óbreyttu
stjórna liðinu í þeim fimm leikjum
sem það á eftir í undankeppni Evr-
ópumóts landsliða á þessu ári.
Logi var landsliðsþjálfari Íslands
frá ársbyrjun 1996 til júníloka 1997.
Þá var honum sagt upp störfum og
Guðjón Þórðarson leysti hann af
hólmi. Logi tók þá við Skagamönn-
um og þjálfaði þá 1998 og 1999 og
síðan FH 2000 og 2001. Á síðasta ári
var hann aðstoðarþjálfari Lilleström
í Noregi.
„Við Ásgeir munum vinna mjög
náið saman með liðið og reynum að
bæta hvor annan upp. Ég mun að-
allega sjá um að stjórna æfingum og
síðan leggjum við dæmið upp í sam-
einingu. Það er gert ráð fyrir að við
stjórnum liðinu í þeim fimm leikjum
sem eftir eru í þessari keppni,“ sagði
Logi við Morgunblaðið í gær.
Hann telur sig mun betur í stakk
búinn til að fást við þjálfun landsliðs-
ins en þegar hann stýrði því á sínum
tíma. „Ég hef fengist við þjálfun all-
ar götur síðan og fengið reynslu af
því að vinna erlendis með atvinnu-
mönnum. Ég kvaddi landsliðið á sín-
um tíma á annan hátt en ég hafði
áhuga á og þykir því mjög vænt um
að fá tækifæri til að koma að því á
nýjan leik,“ sagði Logi.
Næstu verkefni landsliðsins eru
Evrópuleikirnir gegn Færeyjum og
Litháen dagana 7. og 11. júní. Liðið
kemur saman 2. júní til undir-
búnings en Logi sagðist gera ráð
fyrir að leikmennirnir sem koma er-
lendis frá héldu sér í viðunandi æf-
ingu til þess tíma. Þeir Ásgeir og
Logi tilkynna væntanlega leik-
mannahópinn seinnipartinn í næstu
viku.
Logi þjálfar lands-
liðið með Ásgeiri
Logi Ólafsson
KJARTAN Antonsson, varn-
armaður Fylkis, meiddist illa á hné
í æfingaleik við Aftureldingu á
sunnudaginn þegar liðbönd í inn-
anverðu hné tognuðu. Aðalsteinn
Víglundsson, þjálfari Fylkis, segir
að eins og staðan sé nú reikni hann
ekki með að Kjartan leiki með Ár-
bæjarliðinu fyrr en í lok júní.
„Þetta er mikið áfall bæði fyrir
Fylki og Kjartan sjálfan þar sem
hann hefur barist í meiðslum síð-
ustu tvö til þrjú ár. Hann var allur
að koma til og hefur verið okkar
jafnbesti leikmaður í síðustu leikj-
um. En við leggjum allt í að hann
jafni sig og geti farið að leika með
okkur,“ sagði Aðalsteinn í gær.
Kjartan gekk til liðs við Fylki í
vetur eftir að hafa verið á mála hjá
ÍBV um nokkurra ára skeið. Kjart-
ani var ætlað að leika við hlið Þór-
halls Dans Jóhannssonar í stöðu
miðvarðar.
„Kjartan er feikisterkur leik-
maður þegar hann er heill og við
ætlum að gera allt til þess að hann
komist á beinu brautina á nýjan
leik. Kjartan er leikmaður sem við
ætlum að njóta góðs af í framtíð-
inni,“ segir Aðalsteinn.
Þá er Elmar Ásbjörnsson einnig
úr leik. Elmar missti af öllu síðasta
tímabili þar sem hann sleit kross-
band og hann varð fyrir sams konar
meiðslum á dögunum.
Kjartan úr leik
fram í lok júní
SALAR Yashin og Zeid
Yashin, írask/sænsku knatt-
spyrnubræðurnir sem dvalið
hafa hjá 1. deildarliði Leift-
urs/Dalvíkur að undanförnu,
leika með liðinu í sumar.
Þeir hafa verið nyrðra und-
anfarnar tvær vikur og stað-
ið undir væntingum, að sögn
Rúnars Guðlaugssonar, for-
manns Leifturs/Dalvíkur.
„Þeir hafa spilað með okk-
ur tvo æfingaleiki, gegn KA
og Þór, og staðið sig vel. Við
bíðum aðeins eftir því að fá
leikheimild fyrir þá,“ sagði
Rúnar en Leiftur/Dalvík tek-
ur á móti HK á Ólafsfjarð-
arvelli í fyrstu umferð 1.
deildarinnar á sunnudaginn.
Salar Yashin er 25 ára
miðjumaður og Zeid Yashin
er 19 ára sóknarmaður. Þeir
eru frá Írak en hafa verið
búsettir í Svíþjóð um árabil
og Salar á að baki leiki með
Örebro í úrvalsdeildinni. Þar
lék hann með þeim Arnóri
Guðjohnsen, Hlyni Birgissyni
og Hlyni Stefánssyni.
Yashin-
bræður
með
Leiftri/
Dalvík
KA var spáð áttunda sætinu enfélagið kom á óvart í fyrra með
því að enda í fjórða sæti. „Það vita
allir að úrslit í íþróttum ráðast ekki í
kaffisamsæti og ég velti mér svo sem
ekki mikið upp úr því hvað aðrir
hugsa. Ég veit hvar minn styrkur er
og hvað mínu liði hentar mest að
gera. Þetta verður jafnerfitt og í
fyrra og við þurfum áfram að hafa
mikið fyrir hverju einasta stigi. Það
hafa orðið breytingar hjá okkur, við
misstum besta markvörð deildarinn-
ar í fyrra og vitum ekki enn hvað sá
nýi getur. Okkar markmið er að ná
stöðugleika í deildinni eftir margra
ára fjarveru og það tekur langan
tíma að vinna hann upp,“ sagði Þor-
valdur Örlygsson, þjálfari KA, við
Morgunblaðið.
Mikið basl á okkur í vor
FH hafnaði í sjötta sæti í fyrra en
var í gær spáð því níunda og þar með
falli. Ólafur Jóhannesson, þjálfari
FH, sagði að það kæmi sér ekki á
óvart. „Spáin er ekki óeðlileg, það
hefur verið mikið basl á okkur í vor,
en við ætlum að afsanna þetta. Við
höfum verið í vandræðum, fengið
menn seint og margir verið meiddir,
en þetta er allt að koma. Danirnir
tveir styrkja okkur heilmikið, þetta
eru fínir strákar og góðir fótbolta-
menn. Ég á von á því að KR, Grinda-
vík, Fylkir og ÍA skeri sig úr í sumar
en hin sex liðin geta endað hvar sem
er, frá fjórða sæti til tíunda. Það
skiptir miklu máli fyrir okkur að
byrja vel, framhaldið getur ráðist af
því. Ef menn fara illa af stað er hætt-
an að festast í einhverju fari og kom-
ast ekki upp úr því aftur,“ sagði Ólaf-
ur.
Ódýrasta liðið í deildinni
Nýliðum Vals er spáð botnsætinu
og falli á ný. Þorlákur Árnason telur
sitt lið vanmetið eins og stundum áð-
ur. „Í fyrra var ekki búist við því að
við ynnum 1. deildina en við vorum
búnir að því fljótlega eftir 17. júní.
Staðreyndin er sú að við erum með
ódýrasta liðið í deildinni en peninga-
liðunum þremur er spáð þremur
efstu sætunum, sem er eðlilegt.
Fimm neðstu liðin í spánni eru mjög
svipuð að styrkleika en það er svo
sem ágætt að aðrir skuli ekki hafa
mikla trú á að okkur gangi vel,“
sagði Þorlákur.
Morgunblaðið/Arnaldur
Fyrirliðar liðanna í efstu deild – aftari röð frá vinstri: Páll Einarsson, Þrótti, Birkir Kristinsson, ÍBV,
Ólafur Örn Bjarnason, Grindavík, Jón Gunnlaugsson, ÍA, og Heimir Guðjónsson, FH. Fremri röð:
Ágúst Gylfason, Fram, Finnur Kolbeinsson, Fylki, Sigurbjörn Hreiðarsson, Val, og Einar Þór Dan-
íelsson, KR. Á myndina vantar Þorvald Makan Sigbjörnsson, KA.
„Úrslitin ráðast ekki
í kaffisamsæti“
EF marka má hina árlegu spá þjálfara, fyrirliða og forráðamanna
sem birt var í gær verður gífurlega hörð fallbarátta í úrvalsdeildinni
í knattspyrnu í sumar. Aðeins 23 stig skildu að sjötta og tíunda lið í
spánni en samkvæmt henni munu Þróttur, ÍBV, KA, FH og Valur
skipa fimm neðstu sætin. FH og Val er spáð falli en hin þrjú sleppa
naumlega ef þetta gengur eftir.
FH og Val spáð falli og KA áttunda sætinu
ÓLAFUR Jóhannesson, þjálf-
ari FH, er í nokkrum vand-
ræðum með að stilla upp vörn
sinni fyrir fyrstu leiki Ís-
landsmótsins í knattspyrnu.
Þrír varnarmenn verða fjarri
góðu gamni þegar FH fær ÍA
í heimsókn í fyrstu umferð-
inni á sunnudaginn. Freyr
Bjarnason hefur ekkert leikið
á undirbúningstímabilinu
vegna meiðsla í hné og ekki
er reiknað með honum fyrr
en í fyrsta lagi gegn Val í
þriðju umferð. Ásgeir Gunn-
ar Ásgeirsson meiddist á
ökkla á dögunum og ólíklegt
er að hann spili gegn ÍA og þá
tekur Hermann Albertsson,
sem FH fékk frá Leiftri/
Dalvík í vetur, út tveggja
leikja bann í upphafi Íslands-
mótsins.
Til viðbótar er hæpið að
sóknarmaðurinn Atli Viðar
Björnsson verði tilbúinn í
slaginn gegn ÍA en hann hef-
ur verið frá vegna veikinda
síðustu daga.
Vandræði
með vörn-
ina hjá FH