Morgunblaðið - 14.05.2003, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 14.05.2003, Qupperneq 47
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2003 47  ÍSLANDSMEISTARAR KR luku undirbúningi sínum fyrir Íslands- mótið í knattspyrnu með því að sigra Víking, 3:1, í æfingaleik í Víkinni í fyrrakvöld. Sigurvin Ólafsson, Garðar Jóhannsson og Arnljótur Ástvaldsson komu KR í 3:0 en Tóm- as M. Reynisson minnkaði muninn á lokamínútunni.  HJÁLMAR Jónsson var í leik- mannahópi Gautaborgar en kom ekki við sögu þegar lið hans tapaði, 1:2, fyrir Helsingborg í sænsku úr- valsdeildinni í knattspyrnu í fyrra- kvöld.  CRAIG Dean, enski knattspyrnu- maðurinn sem kom til reynslu hjá Breiðabliki á dögunum, fór aftur eft- ir að hafa meiðst í æfingaleik gegn Val. Blikar hafa ekki ákveðið hvort þeir leiti frekar eftir því að fá hann í sínar raðir.  STEVE Bruce skrifar væntanlega á næstum vikum undir nýjan samn- ing um knattspyrnustjórn hjá Birm- ingham þótt hann eigi enn eftir þrjú ár af núverandi samningi sem hann gerði fyrir tveimur árum.  TEDDY Sheringham leikur í kvöld sinn síðasta leik í búningi Tott- enham en þá leikur liðið vináttu leik við bandaríska liðið DC United. Sheringham segist ætla að leika knattspyrnu eitthvað áfram með öðru liði en vonast til að geta snúið einn góðan veðurdag til baka á White Hart Lane og tekið þar við knattspyrnustjórn.  BARRY Ferguson, fyrirliði Rang- ers, hefur verið valinn knattspyrnu- maður ársins í Skotlandi af samtök- um íþróttafréttamanna þar í landi.  JERMAIN Defoe hefur verið neit- að um að vera settur á sölulista hjá West Ham eins og hann fór fram á mándaginn, daginn eftir að liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni.  THOMAS Hörster, þjálfara Bayer Leverkusen, var sagt upp í gær en hann tók við af Klaus Toppmöller um miðjan febrúar. Í stað Hörsters hefur Klaus Augenthaler, fyrrver- andi landsliðsmaður Þjóðverja verið ráðinn til að stýra Leverkusen út leiktíðina. Leverkusen hefur gengið flest í mót á leiktíðinni og er liðið í milli fallhættu þegar tvær umferðir eru eftir. Fyrir einu ári lék Lever- kusen til úrslita í Meistaradeild Evr- ópu við Real Madrid.  MARC Wilmots hefur ákveðið að halda ekki áfram þjálfun Schalke í Þýskalandi en hann tók við þjálfun liðsins í lok mars af Frank Neubart. Líklegast er talið að Christoph Daum taki við þjálfun Schalke.  GIANLUCA Vialli ætlar að setjast á skólbekk í haust og læra til þjálf- ara. Vialli hefur verið atvinnulaus síðan hann hætti knattspyrnustjórn hjá Watford í fyrra. Vialli getur ekki fengið þjálfun á Ítalíu nema hafa fullgild þjálfararéttindi. FÓLK ÍSLANDSMEISTURUM KR í knatt- spyrnu er spáð að þeir verji Íslands- meistaratitil sinn í sumar. Spá fyr- irliða, þjálfara og formanna liðana í efstu deild karla (Landsbankadeild- inni) var kynnt í gær. Stigin féllu þannig: KR 277, Grindavík 250, Fylkir 246, ÍA 218, Fram 160, Þróttur 113, ÍBV 102, KA 97, FH 95, Valur 92. 8,1 milljón króna í verðlaun Verðlaunafé deildarinnar er samtals 8,1 milljón kr. Íslands- meistarar fá 1,5 milljónir kr., annað sætið gefur 1,2 milljónir kr., þriðja sætið 1 milljón króna, 4.–5. sæti 800 þúsund, 6.–8. sæti 600 þúsund og 9.–10. sæti 500 þúsund krónur. KR-ingum spáð sigri GRINDVÍKINGAR hafa vart und- an að svara fyrirspurnum um enska knattspyrnumanninn Lee Sharpe, Grindavík og íslenska knattspyrnu almennt. Ingvar Guð- jónsson, framkvæmdastjóri knatt- spyrnudeildar Grindavíkur, sagði við Morgunblaðið í gær að hann hefði fengið ótal hringingar er- lendis frá undanfarna daga og vik- ur, auk þess sem enskir blaða- menn hefðu komið til Grindavíkur og fleiri væru búnir að boða komu sína. „Í síðustu viku voru hérna menn frá enska blaðinu Mail on Sunday og þáttagerðamenn frá Western World Soccer Show, þættinum sem er sýndur á Sýn, hafa boðað komu sína í þessari viku. Síðan er látlaust hringt og spurt, ekki bara frá Englandi heldur frá hinum ýmsu löndum. Ég hef fengið sím- töl frá Noregi, Ítalíu og Frakk- landi að undanförnu þar sem spurt er um Sharpe, forvitnast um félagið og um íslenskan fótbolta,“ sagði Ingvar. Sharpe leikur sinn fyrsta deilda- leik með Grindvíkingum á sunnu- dag þegar þeir fá nýliða Vals í heimsókn í fyrstu umferð úrvals- deildarinnar. Mikil spenna var á lokasprettiefstu deildar á síðustu leiktíð og segist Willum reikna með að ekki verði síður spenna í lofti í sumar. „Við er- um með öflugan og góðan hóp leik- manna sem eru vísir til góðra verka, en við erum okkur engu síður afar vel meðvitandi um að við verðum að vinna ákaflega vel í okkar málum í sumar. Það verður bara að taka einn leik fyrir í einu,“ segir Willum sem þrátt fyrir að hafa fengið sterka leikmenn til liðs við vaska sveit sína hefur einnig orðið að sjá á bak Þormóði Egilssyni, fyr- irliða til margra ára, og Þorsteini Jónssyni. „Það sem er sérstakt við að missa Þormóð og Þorstein er að þeir eru kjölfestuleikmenn, sem eru ómetanlegir. Yfirleitt kemur það ekki í ljós fyrr en á reynir hversu mikilvægir slíkir leikmenn eru. En við erum með marga reynda menn sem verða að taka ábyrgðina í þeirra stað.“ Willum segir það vissulega skapa vissa félagslega pressu að ganga til leiks sem ríkjandi meistarar. „Það reynir verulega á hópinn og það er talsverð list í því fólgin að greina milli væntinga í umhverfinu og því sem við erum að vinna í hverju sinni. Willum segir undirbúning allan hafa gengið vel. KR-ingar hafi leikið um 20 leiki þannig að menn séu í góðri leikæfingu. „Þegar út í mótið er komið er spurningin fyrst og fremst um hina huglægu þætti,“ segir Willum Þór Þórsson, þjálfari KR. Ætlum okkur að vera ofar „Niðurstaða spárinnar kemur mér ekki á óvart og er nokkuð í sam- ræmi við það sem menn hafa talað um sín á milli síðustu daga,“ sagði Aðalsteinn Víglundsson, þjálfari Fylkis sem reiknað er með að hafni í þriðja sæti efstu deildar þegar upp verður staðið að loknu Íslands- mótinu í haust. „Það virðist vera lít- ill munur á fjórum til fimm liðum og vonandi gengur það eftir þannig að mótið verði jafnt og skemmtilegt. Okkar markmið er hins vegar ekki þriðja sætið, heldur að vera enn ofar og í keppninni um Íslands- meistaratitilinn,“ segir Aðalsteinn sem reiknar með að KR, Grindavík, Fylkir, ÍA og Fram verði í barátt- unni um sigurlaunin. „Síðan geta fleiri lið bæst í hópinn, það er jú eitt sem gerir keppnina svo skemmti- lega og það er að ekkert er hægt að bóka fyrirfram.“ Fylki vantaði herslumuninn upp á að vinna Íslandsmeistaratitilinn í fyrrahaust og Aðalsteinn viðurkenn- ir að nú séu leikmenn hans reynsl- unni ríkari. „En það tekur nokkur ár að skapa hefð fyrir sigri hjá Fylki, hefð sem KR-ingar og Skagamenn hafa, svo dæmi sé tekið. Það má ekki gleyma því að það eru aðeins þrjú ár síðan Fylkir var í næstefstu deild, þannig að við erum nýkomnir í bar- áttuna á meðal þeirra bestu. Okkar vinna hjá Fylki snýst fyrst og fremst um það að búa félagið undir framtíðina og vera með gott lið. Ég tel okkur vera á réttri leið í þeim efnum,“ sagði Aðalsteinn og bar ekki á móti því að nokkurrar spennu og eftirvæntingar væri farið að gæta í herbúðum Fylkis vegna Íslands- mótsins, en fyrsti leikur Fylkis er á heimavelli við Fram á sunnudaginn. „Við verðum klárir í slaginn þegar flautað verður til leiks.“ Verðum með frá byrjun „Við ætlum okkur að sjálfsögðu að vera með í toppbaráttunni frá upp- hafi, ekki koma aftan að liðunum og upp í efstu sætin á lokasprettinum eins og við gerðum í fyrra,“ sagði Bjarni Jóhannsson, þjálfari Grinda- víkur, sem spáð er öðru sæti í deild- inni en Grindvíkingar höfnuðu í þriðja sæti í fyrra. „Undirbúningur hefur gengið vel, lítið hefur verið um meiðsli þannig að við höfum getað æft mjög vel og leikið af fullum styrk. Við lékum vel fram eftir undirbúningstímabilinu en því miður hefði ég viljað sjá meiri reisn yfir frammistöðu okkar í síð- ustu leikjum,“ segir Bjarni sem tel- ur líkamlegt ástand leikmanna vera mun betra en á sama tíma í fyrra og það eigi almennt við um öll lið. Hag- stætt tíðarfar í vetur og ekki síst með tilkomu byltingar í aðstöðu til knattspyrnu innanhúss hafi almennt gert það að verkum að lið komi mun betur undirbúin til leiks en áður. „Þetta hefur orðið til þess að bæði við og aðrir mætum sterkari til leiks en nokkru sinni fyrr sem vonandi endurspeglast í betri liðum og jöfnu og skemmtilegu Íslandsmóti,“ segir Bjarni Jóhannsson, þjálfari Grinda- víkur. Morgunblaðið/Arnaldur Þjálfarar liðanna í efstu deild – aftari röð frá vinstri: Magnús Gylfason, ÍBV, Bjarni Jóhannsson, Grindavík, Þorlákur Árnason, Val, Willum Þór Þórsson, KR, Ásgeir Elíasson, Þrótti, og Ólafur Jóhannesson, FH. Fremri röð: Kristinn Rúnar Jónsson, Fram, Ólafur Þórðarson, ÍA, Aðalsteinn Víglundsson, Fylki, og Þorvaldur Örlygsson, KA. Ætlum okkur að sækja annan titil „VIÐ ætlum okkur ekki að vera í titilvörn í sumar, heldur halda til leiks með það í huga að sækja annan titil. Sigurinn í fyrra verður ekki af okkur tekinn,“ segir Willum Þór Þórsson, þjálfari Íslandsmeistara KR, sem flestir reikna með að standi uppi sem sigurvegarar í efstu deild þegar keppni lýkur 20. september í haust. „Íslandsmeistaratit- illinn í fyrra skilar okkur engu öðru en auknu sjálfstrausti og metnaði til að vinna annan titil í keppninni í sumar,“ segir Willum. Eftir Ívar Benediktsson Willum Þór Þórsson segir KR-inga ekki ætla að vera í titilvörn heldur sókn Vel fylgst með Lee Sharpe

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.