Morgunblaðið - 14.05.2003, Page 48
FÓLK Í FRÉTTUM
48 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
LEIKARAHJÓNIN Michael
Douglas og Catherine Zeta Jones
hafa tekið að sér að
leika aðal-
hlutverkin í leik-
ritinu Einkalíf
(Private Lives) í
West End í Lond-
on, en í leikritinu
leika þau fráskilin
hjón sem verja
hveitibrauðsdög-
unum með nýjum mökum á sama hót-
elinu.
Sagan segir að með þessu vilji Cath-
erine sanna sig sem „alvarlega leik-
konu“, enda telji hún að kvikmynda-
leikkonurnar Nicole Kidman og
Gwyneth Paltrow njóti mun meiri
virðingar eftir að þær komu fram á
sviði í London … Rjómi þotuliðsins
og jálkanna úr kvikmyndaheiminum
er staddur á kvikmyndahátíðinni í
Cannes, sem hefst í dag. Ennfremur
sækja þúsundir blaðamanna hátíðina
en þetta er í
56. sinn, sem
hún er haldin.
Þessi virta
hátíð stendur
í tvær vikur
og þar ganga
myndir kaup-
um og sölum
og nýjar
stjörnur
verða til …
Jerry Hall hefur greint frá því, að hún
hafi skilið við söngvarann Mick Jagg-
er eftir að henni mistókst að venja
hann af kvenseminni.
Hall greinir frá því í nýlegu viðtali við
breska blaðið Night & Day að framan
af hafi hún talið að hún gæti breytt
Jagger, en að hún hafi síðan gert sér
grein fyrir því, eftir að hann barnaði
brasilísku fyrirsætuna Luciönu Mor-
ad, að hann myndi aldrei breytast.
„Við Mick áttum yndislegt líf saman
og það gerði ákvörðunina um skiln-
aðinn svo erfiða. Það var bara
framhjáhaldið sem fór yfir strikið.
Mick vildi ekki skilnað en hann er
kvennamaður og það er mjög leiði-
gjarnt og erfitt. Ég trúði því virkilega
að ég gæti breytt honum. Ég hélt að
hann myndi róast og verða dásam-
legur félagi og faðir, en ég varð að
gefast upp, segir hún.
„Þetta var mjög óheilbrigt samband.
Ég hefði átt að yfirgefa hann miklu
fyrr, en við eigum fjögur yndisleg
börn og ég er þakklát fyrir þau.“
Þá segir hún að sér líði mjög vel eftir
skilnaðinn og að hún verði hamingju-
samari með hverj-
um deginum sem
líður … Leikkonan
Sandra Bullock
hefur fengið sett
nálgunarbann á
mann, sem hefur
elt hana á röndum
undanfarið ár.
Nálgunarbannið
gildir til 6. júní, en þá mun dómarinn
ákveða hvort varanlegt nálgunarbann
verður sett á manninn.
Maðurinn, Thomas James Weldon,
er sagður hafa elt leikkonuna á milli
Kaliforníu, Suður-Karólínu og Texas
auk þess sem hann hefur skrifað
henni símbréf og tölvupóst og skilið
fjölmörg skilaboð eftir á símsvara
hennar.
FÓLK Ífréttum
Á DÖGUNUM kom Jónsi, söngvari
hljómsveitarinnar Í svörtum fötum, í
heimsókn á fund Æskulýðsfélags
Grafarvogskirkju. Jónsi talaði við
unglingana um mikilvægi góðs og
heilbrigðs lífsstíls og söng hann fyrir
unglingana og þeir með honum. Var
mikið fjör á fundinum enda ekki á
hverjum degi sem alvöru popp-
stjarna kíkir í heimsókn. Myndin var
tekin af tilefninu og eins og sjá má
var glatt á hjalla.
Æskulýðsfélag Grafarvogskirkju
Jónsi í heimsókn
POPPKÓNGURINN Michael Jackson hefur stefnt
Motown-útgáfufyrirtækinu vegna vangoldinnar einka-
leyfisþóknunar vegna áður óbirtrar tónlistar Jackson
Five-sönghópsins. Þá sakar hann fyrirtækið um að
hafa notað tónlist hópsins í auglýsingum í heimild-
arleysi.
Jackson heldur því fram að fyrirtækið, virtasta út-
gáfufyrirtækið á sviði sálartónlistar á sjöunda og átt-
unda áratug síðustu aldar, skuldi sér einkaleyf-
isþóknun vegna notkunar gamals efnis, sem birt hefur
verið á undanförnum árum. Bræðurnir, sem skipuðu
Jackson Five, riftu samningi sínum við Motown árið
1976 og gengu í kjölfarið til samninga við Sony. Þeir
náðu síðan samkomulagi við Motown árið 1980 þar sem
þeir afsöluðu sér rétti sínum til einkaleyfisþóknunar.
Jackson segir hins vegar að sá samningur hafi ein-
ungis náð til tónlistar, sem þá hafi verið gefin út, og
vill að samningurinn verði dæmdur ógildur vegna
óheimillar notkunar fyrirtækisins á áður óbirtri tón-
list. Þá krefst hann þess að hann fái afhentar allar upp-
tökur fyrirtækisins sem hann hafi komið að með einum
eða öðrum hætti.
Jackson vill rifta samningi við Motown
Ekkert er ókeypis
Michael Jackson 2002.Ungur Michael Jackson.
Reuters
Miðvikud. 14. maí kl 13.30
Sunnud. 18. maí kl 14
Sunnud. 25. maí kl 14
www.sellofon.is
lau 17. maí kl. 21, NASA, örfá sæti
fim 22. maí, HÓTEL SELFOSS
föst 23. maí, kl. 21 nokkur sæti
mið 28. maí, Lokasýning í Nasa í vor
lau 31. maí ZÜRICH í SVISS; frumsýning
fim 5. júní kl. 21, SJALLINN AKUREYRI
Miðasala á Akureyrir fer fram í Pennanum
Eymundsson Glerártorgi
og á Selfossi í Alvörubúðinni,
Stóra svið
Nýja svið
Þriðja hæðin
Miðasalan er opin frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnaður kl. 10 virka daga.
Fax 568 0383 - midasala@borgarleikhus.is
Miðasala 568 8000
PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler
Su 18/5 kl 20, Su 25/5 kl 20
Takmarkaður sýningarfjöldi
Litla svið
RÓMEÓ OG JÚLÍA
e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT
Fö 16/5 kl 20, Lau 17/5 kl 20, Fö 6/6 kl 20,
ATH: SÍÐUSTU SÝNINGAR
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN
í samstarfi við SJÓNLEIKHÚSIÐ
Leikrit með söngvum - og ís á eftir!
Lau 17/5 kl 14
MAÐURINN SEM HÉLT AÐ KONAN HANS
VÆRI HATTUR
eftir Peter Brook og Marie-Hélène Estienne
Fö 16/5 kl 20, Fö 23/5 kl 20
ATH: SÍÐUSTU SÝNINGAR
KVETCH eftir Steven Berkoff
í samstarfi við Á SENUNNI
Fi 15/5 kl 20 - Aukasýning
ATH: SÍÐASTA SÝNING
DANSLEIKHÚS JSB
Í kvöld kl 20, Lau 17/5 kl 14, Þri 20/5 kl 20
ATH: Aðeins þessar sýningar
SUMARÆVINTÝRI e. Shakespeare og
leikhópinn
Lau 17/5 kl 20, Fi 22/5 kl 20, Lau 24/5 kl 20
ATH: SÝNINGUM LÝKUR Í MAÍ
GESTURINN e. Eric-Emmanuel Schmitt
Su 18/5 kl 20 - Aukasýning
Örfáar sýningar vegna fjölda áskorana
ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield
Lau 17/5 kl 20, Lau 24/5 kl 20, Mi 28/5 kl 20
PÚNTILA OG MATTI e. Bertolt Brecht
Fi 22/5 kl 20, Su 25/5 kl 20, Fi 29/5 kl 20
ATH: SÍÐUSTU SÝNINGAR
SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI
eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson
Fö 16/5 kl 20, Fö 23/5 kl 20
Fö 30/5 kl 20, Lau 31/5 kl 20
ATH: SÍÐUSTU SÝNINGAR
"DANS FYRIR ÞIG"
30 ára afmælissýning Íslenska dansflokksins
FROSTI-Svanavatnið (lokakafli) eftir Láru Stefánsdóttur
Brot úr nokkrum af eftirminnilegustu
verkum Íslenska dansflokksins
2.sýn fi 15/5 kl 20,
3.sýn su 18/5 kl 20
ATH. AÐEINS ÞESSAR TVÆR SÝNINGAR
TVÖ HÚS eftir Lorca
Frumsýning fim. 15.5. kl. 20 uppselt
Hátíðarsýn. lau. 17.5. kl. 20 uppselt
sun. 18. maí kl. 20
mið. 21. maí kl. 20
fim. 22. maí kl. 20
fös. 23. maí kl. 20
fim. 29. maí kl. 20
fös. 30. maí kl. 20
sun. 1. júní kl. 20
fim. 5. júní kl. 20
fös. 6. júní kl. 20 Síðasta sýning
AÐEINS ÞESSAR SÝNINGAR
Sýnt í Smiðjunni - s. 552 1971
Leikfélag Hólmavíkur sýnir:
Sex í sveit
eftir Marc Camoletti í leikstjórn Skúla
Gautasonar.
Föstudaginn 16. maí kl. 21.00
í Félagsmiðstöðinni Óðali, Borgarnesi.
Laugardaginn 17. maí kl. 20.30
í Tjarnarbíói, Tjarnargötu 12, Reykjav-
ík.
Aðgangseyrir aðeins kr. 1.500 fyrir full-
orðna, kr. 800 fyrir 6-16 ára og 67 ára
og eldri. Frítt fyrir yngri en 6 ára.
Miðapantanir á báðar sýningar í
síma 865 3838.
Óperukór Hafnarfjarðar
Tónleikar í Hafnarborg 14. og 16. maí kl. 20
Stjórnandi: Elín Ósk Óskarsdóttir.
Meðal einsöngvara: Guðrún Ingimarsdóttir, sópran og Þorgeir Andrésson, tenór.