Morgunblaðið - 14.05.2003, Síða 50
Sjaldgæf plata Sigur Rósar til sölu
SIGUR RÓS hefur gefið út geisladiskinn Hlemmur með tónlist sem hljóm-
sveitin gerði við samnefnda heimildamynd Ólafs Sveinssonar. Geisladisk-
urinn kemur út í 5.000 eintökum sem hljómsveitin dreifir að mestu leyti
sjálf, að mestu leyti þegjandi og hljóðalaust, í góðu samræmi við kúrsinn
sem nýjasta plata þeirra ( ) tók. Plötubúðinni 12 tónum við Skólavörðustíg
hafa áskotnast nokkur eintök sem þeir plötubúðarmenn hafa ekki haft hátt
um en selja þeim sem spyrja.
„Þetta er bara til hérna og síðan spyrst það út,“ segir
Lárus Jóhannesson 12 tónamaður.
Endist upplagið fram í vikuna?
„Við eigum alveg eitthvað. Þetta er alveg op-
inber útgáfa þannig séð, ekki eins og það
sem þeir gáfu út með Steindóri And-
ersen sem var óopinbert, nokkrir
diskar sem þeir brenndu. Við hefð-
um getað selt margmargmargfalt upplagið þá.“
Téð plata er sex laga plata með undirleik Sig-
ur Rósar við rímnasöng Steindórs. Platan er
illfáanleg í dag og eins og nærri má geta, eft-
irsótt á meðal aðdáenda.
Það er annars helst að frétta af meðlimum
Sigur Rósar að Jón Þór Birgisson, söngvari
og gítarleikari, mun koma fram – einn síns
liðs – á hátíð hljóðorðameistarans Laurie
Anderson í Seattle 16. maí, undir nafninu
Frakkur. Frakkur ku spila nokkuð brögð-
ótta raftónlist. Í júní fer síðan hljómsveitin öll
á Vesturlandatúr.
50 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14.
Miðasala opnar kl. 15.30
kl. 6 og 9.
Sýnd kl. 5, 8 og 10.40. B.i. 12
Kvikmyndir.is
Þetta var hin
fullkomna
brúðkaupsferð...
þangað til hún
byrjaði!
Sýnd kl. 4 B.i. 12
Ertu nokkuð myrkfælinn?
Búðu þig undir að öskra.
Mögnuð hrollvekja sem fór
beint á toppinn í
Bandaríkjunum.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 16.
HK DV
SV MBL
Kvikmyndir.com
"Tvöfalt húrra"
Fréttablaðið
X-ið 977
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 12
SV MBL
HK DV
Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
"Tvöfalt
húrra"
Frétta-
blaðið
Svarta gríman 2
(Black Mask 2)
Kung Fu
Hong Kong/Bandaríkin 2002. Skífan.
VHS (100 mín.) Bönnuð innan 16 ára.
Leikstjóri: Tsui Hark. Aðalleikendur:
Andy On, Teresa Herrerra, Jon Polito,
Scott Adkins, Traci Lords.
SVARTA grím-
an (On) er erfða-
breyttur vígamað-
ur sem snúist hefur
í lið með góðu öfl-
unum. Skapara
hans til mikillar ar-
mæðu sem hugðist
nota þetta gang-
andi morðtól til
voðaverka. Hann býr því til annan
slíkan og setur til höfuðs Svörtu
grímunni, sem vekur áhuga Kings
(Jon Polito). Hann er vafasamur
sýningarstjóri flokks stökkbreyttra
glímukappa og ætlar að setja upp
sannkallaða erfðavísasprengju villi-
sýra náttúrunnar til að betrumbæta
enn frekar sinn óárennilega flokk, til
að vinna á þeim grímuklædda.
NB-útgáfa frá Hong Kong af
X-Men, Batman og öðrum slíkum
bandarískum teiknisögufígúrum.
Svarta gríman kemur þó ekki til með
að veita fyrirmyndum sínum í vestri
neina teljandi samkeppni, þó fyrri
myndin (Hak hap (’96), með Jet Li)
hafi vakið einhverja athygli á sínum
túma. Brellurnar eru kauðskar, leik-
urinn vélrænn líkt og leikstjórnin og
efnið ólánleg samsuða uppúr Marvel
og D.C. Comics. Klámmyndaleik-
konan Lords gleður augað lítillega,
sama verður ekki sagt um skapgerð-
arleikarann Polito (ógleymanlegur
sem illmennið í Miller’s Crossing
(’90) og „bragðarefurinn“ í The Man
Who Wasn’t There (‘01), sem virðist
víðs fjarri góðu gamni alvörukvik-
myndagerðarmanna á borð við þá
Coenbræður. B-menn
Myndbönd
Sæbjörn Valdimarsson
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Sigur Rós á hljómleikum í Háskólabíói sem haldnir voru síðastliðinn desember. Á mynd
eru Georg Holm og Orri Dýrason, auk þess sem glittir í bakið á Kjartani Sveinssyni.
Hlemmur
hljóðalaust á
Skólavörðustíg
TENGLAR
.....................................................................
www.12tonar.is, www.sigur-ros.co.uk
NOEL Redding, sem var bassaleikari hjá Jimi Hendrix
á sjöunda áratugnum, er látinn, 57 ára að aldri. Í frétt
BBC segir að umboðsmaður hans, Ian Grant, greini frá
þessu á vefsíðu fyrirtækis síns, Track Records. „Noel
er farinn aftur til Jimi og Margrétar móður sinnar sem
lést fyrir viku,“ skrifar umboðsmaðurinn. Ekki er
greint frá dánarorsök. Redding lék á þremur opinber-
um plötum Hendrix, Are You Experienced (’67), Axis:
Bold as Love (’67) og Electric Ladyland (’68). Hann
stofnaði sveitina The Jimi Hendrix Experience ásamt
Jimi og trymblinum Mitch Mitchell árið 1966. Redding
hafði áður verið gítarleikari en skipti yfir á bassa þeg-
ar hann hóf samstarf með Hendrix. Sveitin hætti árið
1969 en Hendrix lést ári síðar.
Redding gaf þá út nokkrar plötur með hljómsveitum
sínum, Fat Mattress, Road og Noel Redding Band.
Redding lenti í vandræðum á áttunda áratugnum
með greiðslur vegna höfundarlauna og í eitt skipti
neyddist hann til að selja bassann sem hann notaði við
gerð áðurnefndra platna til þess að komast af.
Á síðasta ári lýsti Redding vandræðum sínum á vef-
síðu tónlistartímaritsins Billboard, www.billboard.-
com, en hélt um leið höfði.
„Ég hefði átt að gerast pípulagningamaður. Þetta er
grín. Engu að síður fá þeir þó borgað. En … ég er þó að
enn að leika tónlist, þökk sé Guði. Það er höfuðatriðið.“
Noel Redding 1946–2003
Bassaleikari
Hendrix allur
Þátt Noels Reddings í listsköpun Jimis
Hendrix ætti ekki að vanmeta.