Morgunblaðið - 14.05.2003, Blaðsíða 52
52 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
VEGNA FJÖLDA ÁSKORANA!
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10. Sýnd kl. 5.50, 8, 10.10. B.i.14 ára.
SG DV
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
Svona
snilldarverk
eru ekki á
hverju strái.”
Þ.B.
Fréttablaðið
Frábær rómantísk gamanmynd
sem hefur allstaðar
slegið í gegn.
Sýnd kl. 9. Sýnd kl. 6. Bi. 14
ÓHT Rás 2
HK DV
„Magnað verk“
Sýnd kl. 8.
Star Kiss
Sýnd kl. 6.
Missing Allen
Sýnd kl. 6.
My Terrorist/Ruthie & Connie
Sýnd kl. 8.
Alt om min far
Sýnd kl. 10.
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. / Sýnd kl. 8 og 10.
KRINGLAN / AKUREYRI
KEFLAVÍK
Tilboð
500
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. Sýnd kl. 4. Tilboð 500 kr.Sýnd kl. 3.50. ísl. tal
ÁLFABAKKIÁLFABAKKI
Smávegis óhöpp
(Minor Mishaps/Små ulykker)
Drama
Danmörk 2001. Myndform.
LÍKT og nafnið bendir til fjallar
þessi danska mynd (í enskum um-
búðum) um óhöpp. Bæði stóráföll, en
þessi minniháttar, sem við upplifum
öll af og til í hversdagslífinu, eru
einkum til umfjöllunar. Það fyrsta er
fráfall eiginkonu læknisins Johns
(Kiil). Í framhaldinu og tómarúminu
sem myndast kynnumst við mislitri
fjölskyldunni í gleði og sorg.
Tom (Henrik Prin) er vel stæður
verkfræðingur og byggingarverk-
taki, Marianne (Rich) er yngri dótt-
irin, ósjálfstæð pabbastelpa, algjör
andstæða Evu (Faurschou), mis-
lukkaðrar lista-
konu og ljóð-
skálds sem á í
lesbísku ástar-
sambandi.
Fjórða „barnið“
er Sören (Jesper
Christensen),
litli bróðir
Johns, bótaþegi
sem býr í Sví-
þjóð og á í erfiðu hjónabandi.
Styrkur Smávegis óhappa liggur í
hárfínni persónugerð og undantekn-
ingarlaust framúrskarandi leik.
Hver og einn fjölskyldumeðlimanna
á við sín persónulegu vandamál að
stríða; vinnuálagið er að fara með
heilsu Johns læknis; Tom er undir
sömu sök seldur og er ofurkapp hans
á vinnumarkaðnum að ríða fjöl-
skyldu hans að fullu. Marianne snýst
í kringum föður sinn, jafnvel svo að
aðra fjölskyldumeðlimi grunar að
ekki sé allt með felldu á milli þeirra.
Eva er hornrekan, villuráfandi í list-
sköpun og kynlífi. Sören er búinn að
kúpla sig út úr hversdagslífinu svo
kona hans leitar grimmt að fullnæg-
ingu utan veggja hjónaherbergisins.
Hér er engin stórdramatík á ferð-
inni í anda Festen og annarra slíkra
verka, heldur fengist við vandamál
sem hinn almenni áhorfandi þekkir
af eigin raun. Þrátt fyrir allar
hremmingarnar er boðskapur mynd-
arinnar einkar jákvæður og mann-
bætandi og niðurstaðan sannfærandi
og skilur við mann tiltölulega sáttan
við þennan lífsins brælusjó. Smáveg-
is óhöpp leynir á sér í flestum skiln-
ingi og óhætt að mæla með henni við
alla þá sem gaman hafa af litbrigðum
mannlífsins. Og danski húmorinn
aldrei langt undan.
En enn og aftur spyr maður:
Hvers vegna í ósköpunum er verið
að fela uppruna myndarinnar með
villandi nafni og umbúðum? Sæbjörn Valdimarsson
Myndbönd
Í lífsins brælu
DISKUR 1
1. Náttúrúbúrú
2. 0,000 Orð
3. Loksins Erum Við Engin
4. Enginn Vildi Hlusta á Fiðl-
unginn, því Strengir Hans
Vóru Slitnir (getiði ekki
verið góð …)
5. Póst Póstmaetur
6. Insert Coin – Bjarne Riis
Arcade Game Mjiks (eftir
múm)
7. Bak Þitt Er Sem Renni-
braut – Bústadavegurinn er
Fáviti Megamix (eftir
músikvat)
8. Insert Coin
9. Bak Þitt Er Sem
Rennibraut
10. þurrki þurrk
(múm + músíkvatur)
DISKUR 2
1. Flugvélabensín
2. Myndir af Melrakkasléttu
3. Venus og Borgarljósin
4. Snjókorn í Lófa
5. Múm Spilar la la la
6. Overture
7. She Introduces Herself
8. She Listens to Her Heart
9. She Attempts to
Say the „Word“
10. She Begins
Her Education
DISKUR 3
1. Syndir Guðs
(recycled by múm)
2. To Be Free (múm remix)
3. Light of India (múm mix)
4. IMpossible (múm mix)
5. Asleep On a Train
6. Please Sing My
Spring Reverb
7. Hufeland
8. Helvítis Symphony No
I for 13 electric guitars
Lagalisti
diskanna
HLJÓMSVEITIN múm á sér
aðdáendur um veröld víða – með-
al annars Portúgala sem að sögn
múmliða þekkir ferðaáætlanir
hljómsveitarinnar betur en liðs-
menn hennar sjálfir. Sá heldur ut-
an um ítarlega heimasíðu tileink-
aða sveitinni (www.noisedfisk.-
com/mumweb) sem kallas Friends
of the random summer, nefnt í
höfuðið á einu lagi hljómsveit-
arinnar. Friends of the random
summer hafa nú gefið út safn
þriggja diska sem innihalda
ýmsar upptökur og bland-
anir af lögum múm frá
1998 þar til diskurinn
Þetta var dáldið
róstusamt í gær …
kom út (Yesterday
Was Dramatic …),
og er ætlunin að
veita aðdáendum yf-
irsýn, innsýn og að-
svif að hljóðheimi
múm.
Á diskunum má
meðal annars finna
efni af Tilraunaeld-
hússtónleikum (Helvítis
gítarsinfóníuna), lög úr
Náttúruóperunni sem Mennta-
skólinn við Hamrahlíð setti upp á
sínum tíma og
lög af diskinum
Flugmaður, sem
sveitin gerði
ásamt Andra
Snæ Magnasyni.
Diskunum er dreift um nokkurs
lags pýramída-kerfi, eins og öðrum
fæðubótarefnum, mann fram af
manni. Strangt til tekið er útgáf-
an trúlega kolólögleg og tauga-
veiklaðri tónlistarmenn gætu
efnast nokkuð á málaferlum en
múmfróðir menn segja að fátt
sé fjær hljómsveitinni.
Í þessum tengslum er einnig
vert að benda á vefsamfélag sem
snýst um múm (á slóðinni
www.livejournal.com/commun-
ity/mum_community). Þar skiptast
aðdáendur á upplýsingum um
hljómsveitina, spyrjast fyrir um sjald-
gæf lög o.s.frv.
Uppátektasamir meðlimir hennar
dveljast nú meira og minna í Berlín og
una hag sínum vel þar í borg.
Heyrst hefur að einn grall-
aranna í sveitinni hafi brallað
þar eitthvað sniðugt með
ungæðislegu vestfirsku ljóð-
skáldi …
Óvenjuleg útgáfa á múm-músík
Ólögleg-
ir aðdá-
endur
Aðdáendur múm leynast í ýmsum
krókum og kimum.
HINN 30. og 31. maí fer fram í Dan-
mörku, nánar tiltekið í Árósum, tón-
listarhátíðin SPOT. Um er að ræða
hátíð þar sem ungar, upprennandi og
ósamningsbundnar sveitir, einkum
frá Skandinavíu, spreyta sig. Jafn-
framt er um eins konar ráðstefnu að
ræða, hvar fagmenn úr dægurtónlist-
argeiranum flytja tölur. Á meðal
þátttakenda þar verður aðstoðarrit-
stjóri Rolling Stone, David Fricke, en
hann er einlægur áhugamaður um
skandinavíska tónlist, og varð meðal
annars fyrstur erlendra tónlistar-
blaðamanna til að stinga penna niður
á blað um Sykurmolana. Hátíð þessi
þykir veita góða innsýn í það mark-
verðasta í skandinavískri dæg-
urtónlist hverju sinni og mætti segja
að hún samsvaraði Airwaves-
hátíðinni. Í ár fer Pétur Hallgrímsson
(E-X, Lhooq, Olympia, Stríð og friður
o.s.frv.) út með einyrkjaverkefni sitt
og einnig hefur orgelkvartettinum
Apparati verið boðið utan til spila-
mennsku. Gildi svona hátíða er mikið
og getur komið listamönnum frekar á
framfæri. Til marks um það má nefna
að hin danska The Raveonettes lék á
hátíðinni í fyrra en einnig hinn fær-
eyski Teitur Lassen (sem nú hefur
gert risasamning við Universal) og
Árósabandið Under Byen, sem hefur
verið umtalað í nýbylgjuheiminum
undanfarið ár (síðan Det er mig der
holder træerne sammen kom út í apr-
íl á síðasta ári).
Íslenskir listamenn þátttakendur
Orgelkvartettinn Apparat
verður víðförull í sumar.
Tónlistarhátíðin SPOT í Árósum
TENGLAR
.....................................................
www.spot09.dk