Morgunblaðið - 14.05.2003, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Buxnadagar
Vinnufatabúðin
Gatnamót Miklubrautar
og Kringlumýrarbrautar
Beygjuljós
sett á umferð
frá Kringlu-
mýrarbraut
ÁKVEÐIÐ hefur verið að setja
beygjuljós á umferð frá Kringlumýr-
arbraut inn á Miklubraut. Ljósin
verða einungis virk á kvöldin og um
helgar enda verða flest slys vegna
beygjuumferðar á gatnamótunum
utan annatíma.
Málið var til kynningar í borgar-
ráði í gær en samgöngunefnd borg-
arinnar samþykkti breytingarnar á
fundi sínum í síðustu viku.
Talið að fækka
megi slysum um 25%
Að sögn Sigurðar Skarphéðins-
sonar gatnamálastjóra verða flest
umferðaróhöpp á umræddum gatna-
mótum vegna þeirrar umferðar sem
beygir til vinstri frá Kringlumýrar-
braut inn á Miklubraut. Flest óhöpp-
in eigi sér stað utan annatíma.
Talið er að fækka megi slysum á
gatnamótunum um 25% með þessum
aðgerðum.
Áætlað að slysum/18
HAUKAR úr Hafnarfirði voru í
gærkvöldi krýndir Íslandsmeist-
arar í handknattleik karla í fjórða
skipti í sögu félagsins þegar þeir
höfðu betur á móti ÍR, 33:25, í
fjórða úrslitaleik liðanna.
Haukar unnu úrslitaeinvígið 3:1
en undir stjórn Viggós Sigurðs-
sonar hömpuðu Haukarnir deild-
armeistaratitlinum og bera því með
réttu sæmdarheitið besta hand-
knattleikslið landsins. Þetta er
þriðji Íslandsmeistaratitill Hauka á
síðustu fjórum árum.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Fjórði
titill
Hauka
Haukar meistarar/44–45
FRAM komu áhyggjur af því í við-
tölum við nokkra heimamenn á
kynningarfundi Landsvirkjunar á
umhverfisáhrifum virkjana í neðri
hluta Þjórsár í gær, að framkvæmdir
við Urriðafossvirkjun gætu haft al-
varleg áhrif á grunnvatn í Skeiða- og
Gnúpverjahreppi. Ólafur Leifsson í
Björnskoti, sem sæti á í sveitar-
stjórn, segist hafa sérstakar áhyggj-
ur af þessu og í sama streng tekur
Vilmundur Jónsson í Skeiðháholti,
sem segir áhyggjuefni ef jarðvegs-
vatnið muni hækka á býlum og sum-
arbústaðalöndum vegna fram-
kvæmdanna.
Fjölmargir kynntu sér
áætlanir Landsvirkjunar
Fjölmargir lögðu leið sína að
Brautarholti á Skeiðum í gær þar
sem Landsvirkjun stóð fyrir kynn-
ingu á matsskýrslu um umhverfis-
áhrif virkjana við Núp og Urriðafoss.
Heimamenn sem rætt var við sáu
bæði kosti og lesti á fyrirhuguðum
framkvæmdum en sögðust þó þurfa
að gefa sér meiri tíma til að fara yfir
viðamiklar skýrslur Landsvirkjunar.
Guðlaugur Þórarinsson, fulltrúi
Landsvirkjunar, segir að áhyggjur
af grunnvatnsstöðu séu ástæðulaus-
ar. Hönnuð verði sérstök mannvirki
til að koma í veg fyrir breytingar á
grunnvatni, m.a. með vatnsrás með-
fram stíflu Urriðafossvirkjunar.
Hanna virkjanir með tilliti til
skjálfta- og sprungusvæðis
Fyrirhugaðar virkjanir eiga að
rísa á virku jarðskjálfta- og sprungu-
svæði á Suðurlandi. Guðlaugur segir
að Landsvirkjun telji sig geta hann-
að virkjanir sem standa örugglega af
sér hugsanlega skjálfta. „Það stafar
hins vegar meiri hætta af sprungun-
um en af skjálftahröðuninni sjálfri.
Byggist okkar hönnun á því að finna
og kortleggja sprungurnar og finna
heila fleka sem mannvirkin verða
reist á. Þetta krefst talsverðra rann-
sókna, sem við höfum þegar byrjað á,
en þarf að kanna ennþá betur áður
en kemur til útboðs,“ segir hann.
Íbúar við Þjórsá kynntu sér í gær áætlanir um nýjar virkjanir í ánni
Hafa áhyggjur af hækk-
un grunnvatns í byggð
Morgunblaðið/RAX
Fulltrúar Landsvirkjunar kynntu áhugasömum heimamönnum áætlanir
um virkjanir við Núp og Urriðafoss í Þjórsá í Brautarholti á Skeiðum í gær.
Vilja að/28
„ÞAÐ kom mér á óvart að það
skyldi vera fugl inni í búri hjá okk-
ur og ég var mjög hissa að það
skyldi vera mandarínönd,“ segir
Finnbogi Bernódusson í Bolung-
arvík, en öndin er nú í endurhæf-
ingu í Náttúrugripasafninu í Bol-
ungarvík.
Finnbogi segir að öndin hafi
sennilega komist inn um hringlaga
loftræstitúðu, sem er um fjórar
tommur í þvermál, en ristin hafi
dottið úr. „Þegar konan kom til
mín í vinnuna í morgun sagði hún
mér að það hefði komist fugl inn í
búrið en hann hefði sennilega farið
út aftur. Við hugsuðum ekkert
meira um þetta en þegar við kom-
um heim undir kvöld fannst henni
eitthvað óþrifalegt í búrinu og tal-
aði um hvað hann hefði verið að-
sópsmikill þessi skógarþröstur, en
okkur kom ekki annað til hugar en
þarna hefði verið skógarþröstur á
ferð. Hún leitaði um allt en fann
engan fuglinn og þá lagði ég til að
láta heimilisköttinn um leitina og
setti hann upp á hillu. Þá kom í ljós
að eitthvað annað var þarna og síð-
an flaug þessi litla önd upp í efstu
hillu. Ég kom kettinum þegar út til
að hann gerði þessum fallega fugli
örugglega ekki mein og eftir að
við höfðum náð honum kom upp úr
kafinu að um mandarínönd var að
ræða. Fyrir nokkrum vikum sáust
mandarínandarhjón í Súgandafirði
og skilst mér að þessi fugl hafi
ekki áður sést á Íslandi en hugs-
anlega er þetta karlinn þaðan.“
Mandarínöndin er frá Asíu og
var flutt þaðan endur fyrir löngu
til Evrópu þar sem hún var höfð til
skrauts í skrúðgörðum en hún
verpir í trjám. Þessi mandarínönd
er minni en stokkönd en stærri en
algengar andartegundir hérlendis,
að sögn Finnboga. Hann segir að
ekki hafi séð á henni en hann hafi
farið með hana á Náttúrugripa-
safnið því ómögulegt hafi verið að
senda hana út í nóttina og óviss-
una.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Mandarínönd í Bolungarvík
Hótel og sýningar-
skáli í Aðalstræti
Byrjað að
byggja í júlí
FRAMKVÆMDIR að nýju hóteli og
sýningarskála á horni Aðalstrætis og
Túngötu munu hefjast í júlí. Hönnun
hótelsins er á lokastigi, það verður
um 3.800 fermetrar að stærð en
kostnaður er áætlaður um 600–800
milljónir, að sögn Jónasar Þorvalds-
sonar, framkvæmdastjóra fasteigna-
félagsins Stoða.
Byrjað verður á framkvæmdum
við 1.200 fermetra sýningarskála
Reykjavíkurborgar sem verður í
kjallara en bygging hans var ákveðin
eftir að fornleifar fundust á lóðinni.
Framkvæmdir við hótelbygginguna
sjálfa hefjast í desember en áætlað
er að opna hótelið 1. apríl 2005.
Tveir
Íslendingar
eru í Bagdad
SIGRÚN Árnadóttir, fram-
kvæmdastjóri Rauða kross Ís-
lands, og Þorkell Þorkelsson
ljósmyndari eru nú á vegum
Rauða krossins í Bagdad í
Írak. Sigrún er væntanleg til
Íslands fyrir helgi en gert er
ráð fyrir að Þorkell verði ytra
mánuð til viðbótar til að
mynda hjálparstarfið fyrir Al-
þjóða Rauða krossinn.
♦ ♦ ♦