Morgunblaðið - 19.05.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 134. TBL. 91. ÁRG. MÁNUDAGUR 19. MAÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Foreldrar í
leikskóla
Á námskeiði á Akureyri mátti
kynnast dygðakennslu 16
Kvikmyndamiðstöðin kynnir
sig í Cannes Fólk 30
Augu Sjóns
til Finnlands
Sagan fær góða dóma í
Danmörku Listir 14
Glatt á hjalla
við strandgötuna
LAUNAÞRÓUN einstakra laun-
þegahópa innan Alþýðusambands
Íslands hefur verið með nokkuð
mismunandi hætti á undanförnum
árum ef marka má tölur Kjararann-
sóknarnefndar aðila vinnumarkað-
arins. Þannig kemur fram að á und-
anförnum tæpum fimm árum hafa
regluleg laun afgreiðslufólks hækk-
að að meðaltali rúmum tíu pró-
sentustigum meira en laun sérfræð-
inga. Laun afgreiðslufólks hafa
hækkað um 45,2% og sérfræðinga
um 34,9%.
Ennþá meiru munar þegar þróun
heildarlauna á tímabilinu er skoðuð,
því heildarlaun skrifstofufólks hafa
hækkað um 19 prósentustigum
meira en laun iðnaðarmanna. Þann-
ig hafa laun skrifstofufólks hækkað
um rúm 45% frá því í ársbyrjun
1998 til ársloka 2002, en iðnaðar-
menn hafa hækkað um rúm 26% á
sama tímabili. Að hluta til skýrist
það af verulegri styttingu vinnu-
tíma iðnaðarmanna. Vikulegur
vinnutími iðnaðarmanna að meðal-
tali styttist um rúmar þjár klukku-
stundir á þessum tíma úr 50,1 stund
á fyrsta ársfjórðungi 1998 í 46,9 í
árslok í fyrra. Vikulegur vinnutími
skrifstofufólks styttist einnig á
tímabilinu en talsvert minna eða úr
42,6 stundum í 40,9 stundir.
Starfsstéttunum er skipt í verka-
fólk, iðnaðarmenn, afgreiðslufólk,
skrifstofufólk, tækna, sérfræðinga
og stjórnendur. Frá árinu 1998 til
ársloka 2002 hafa regluleg laun
allra þessara starfshópa hækkað að
meðaltali úr 132.400 kr. á mánuði í
186.200 kr. eða um 40,6%. Heild-
arlaun á sama tímabili hafa hins
vegar hækkað hlutfallslega nokkru
minna eða um 34,6% úr 177.500 kr.
í ársbyrjun 1998 í 239.000 kr. í árs-
lok 2002. Á sama tíma hefur vísitala
neysluverðs hækkað um tæp 23%
þannig að kaupmáttur hefur vaxið
umtalsvert á tímabilinu.
Þegar einstakar starfsstéttir eru
skoðaðar kemur í ljós að regluleg
laun verkafólks hafa hækkað um
36,6% á tímabilinu, laun iðnaðar-
manna um 41,5%, afgreiðslufólks
um 45,2%, skrifstofufólks um
42,3%, tækna um 42,6%, sérfræð-
inga um 34,9% og stjórnenda um
39,1%.
Þegar heildarlaunin eru hins veg-
ar skoðuð kemur í ljós að þau hafa í
öllum tilvikum nema tveimur, hjá
skrifstofufólki og sérfræðingum,
hækkað minna en reglulegu launin.
Þannig hafa heildarlaun verkafólks
hækkað um 30,9%, iðnaðarmanna
um 26,5%, afgreiðslufólks um
38,7%, skrifstofufólks um 45,6%,
tækna um 36,6%, sérfræðinga um
41,4% og stjórnenda um 35,6%.
Mismunandi launaþróun
starfsstétta innan ASÍ
Sérfræðingar hækka um 34,9%
en afgreiðslufólk um 45,2%
!
"! !
#!
"!!
$
%$
&
'%
&
&$'
&
&$
$$'
%$
&$
'
!)*
+, niður í áföngum og sjálfstætt ríki Palestínu-
manna stofnað árið 2005. Enginn áþreifanlegur
árangur náðist á fundinum annar en sá að leið-
togarnir skiptust á skoðunum.
Á ríkisstjórnarfundinum í gær, sem stóð í
fjóra tíma, lýstu nokkrir ráðherrar þeirri skoð-
un sinni að gera skyldi Yasser Arafat, leiðtoga
Palestínumanna, útlægan. Sharon sagði hins
vegar að öryggi Ísraels væri betur tryggt með
Arafat þar sem hann væri, frekar en á stöðugu
ferðalagi milli höfuðborga heimsins. Ísraels-
stjórn sakar Arafat um að bera ábyrgð á að
ARIEL Sharon, forsætisráðherra Ísraels, lýsti
því yfir í gærkvöldi að hann héldi áfram að
reyna að ná sanngjarnri lausn á deilunni við
Palestínumenn, þrátt fyrir tvær sjálfsmorðs-
sprengjuárásir í Jerúsalem um helgina sem
bönuðu sjö manns auk tilræðismannanna
tveggja.
Eftir að hafa aflýst áformaðri för sinni til
Washington, þar sem til stóð að hann hitti
George W. Bush Bandaríkjaforseta á þriðju-
dag, kallaði Sharon ísraelsku ríkisstjórnina á
neyðarfund, sem lauk með ályktun þar sem lýst
var yfir einörðum vilja til að komast að frið-
arsamkomulagi við Palestínumenn, en jafn-
framt að einskis yrði látið ófreistað til að ráða
bug á hryðjuverkahættunni.
Forsætisráðherrann „er staðráðinn í að kom-
ast áleiðis og ná að lokum stöðugum og raun-
sönnum friði,“ segir í yfirlýsingu stjórnarinnar.
Sjálfsmorðssprengjuárásirnar áttu sér stað
síðla laugardags og snemma á sunnudagsmorg-
un og var augsýnilega ætlað að hindra að ár-
angur næðist í fyrstu beinu viðræðunum, sem
leiðtogar Palestínumanna og Ísraela hafa átt
frá því síðasta uppreisnarlota Palestínumanna
hófst í september 2000.
Beint gegn „Vegvísinum“
Fyrri árásin var gerð stundu eftir að
Mahmoud Abbas, nýr forsætisráðherra palest-
ínsku heimastjórnarinnar, hitti Sharon á laug-
ardag til að ræða um Vegvísinn svokallaða,
friðaráætlunina sem Bandaríkjamenn, Samein-
uðu þjóðirnar, Evrópusambandið og Rússar
hafa lagt fram sameiginlega og miðast að því að
deilur Ísraela og Pelstínumanna verði settar
palestínsk yfirvöld geri ekki allt sem í þeirra
valdi standi til að hindra hryðjuverk palest-
ínskra öfgamanna. Hafa Ísraelar því reynt að
einangra Arafat og séð til þess að hann hefur í
meira en ár ekki getað farið út fyrir Ramallah
á Vesturbakkanum, þar sem höfuðstöðvar
heimastjórnarinnar eru til húsa.
Í gærkvöldi hafði þó ekki orðið vart við frek-
ari áþreifanleg viðbrögð af hálfu Ísraela við
hryðjuverkum helgarinnar en þau, að hert var
enn á ferðabanni yfir landamærin milli heima-
stjórnarsvæðanna og Ísraels.
Ísraelsstjórn segist áfram
reyna samningaleiðina
Sharon aflýsir Banda-
ríkjaför vegna hryðju-
verka í Jerúsalem
Reuters
Frá vettvangi sjálfsmorðssprengjutilræðis í Jerúsalem í gær. Maður dulbúinn sem strangtrúaður
gyðingur steig um borð í strætisvagninn og sprengdi sig í loft upp. Sjö farþegar dóu og 20 særðust.
Jerúsalem. AP, AFP.
GUY Verhofstadt, forsætisráðherra
Belgíu, lýsti fyrir hönd samsteypu-
stjórnar sinnar yfir sigri í þingkosn-
ingunum sem fram fóru í landinu í
gær.
Samkvæmt bráðabirgðaúrslitum
virtist hinn frjálslyndi demókrata-
flokkur Verhofstadts og þrír aðrir
flokkar sem að stjórninni standa ætla
að ná samtals 93 þingsætum, af 150
alls. Græningjar, sem einnig áttu að-
ild að stjórninni en gengu klofnir til
kosninga, töpuðu stórt. Hins vegar
vann Vlaams Blok, flokkur þjóðernis-
sinnaðra Flæmingja yzt á hægri
vængnum, sinn stærsta kosningasig-
ur til þessa, með um 19% atkvæða.
♦ ♦ ♦
Verhof-
stadt
lýsir sigri
Brussel. AFP, AP.
MEGAWATI Sukarnoputri, forseti
Indónesíu, undirritaði í gær tilskipun
um að herlög væru sett í Aceh-héraði
og að beita mætti hervaldi gegn að-
skilnaðarsinnum þar. Gerði forsetinn
þetta eftir að sáttaviðræður, sem fóru
fram í Tókýó um helgina, runnu út í
sandinn í gær.
Tilskipunin tók gildi á miðnætti í
gærkvöldi að staðartíma. Herlög
verða í gildi í Aceh næsta hálfa árið að
minnsta kosti. Herskip, orrustuþotur
og þúsundir hermanna Indónesíuhers
eru í viðbragðsstöðu.
Talsmenn Hreyfingarinnar fyrir
frjálst Aceh (GAM) sögðu fyrir sitt
leyti að allir vopnfærir menn hreyf-
ingarinnar hefðu fengið fyrirmæli um
að vera við öllu búnir.
Bráðabirgðafriðarsamkomulag,
sem gert var í desember og vakti von-
ir um að endi yrði bundinn á þetta 27
ára gamla stríð, er þar með brostið.
Stefnir í
stríð í Aceh
Jakarta. AP, AFP.