Morgunblaðið - 19.05.2003, Síða 6
FRÉTTIR
6 MÁNUDAGUR 19. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
VERULEGA hefur dregið
úr útflutningi íslenska hests-
ins á liðnum árum. Árið 1995
voru samtals flutt út 2.609
hross en í fyrra 1.507 hross.
Útflutningsverðmæti hrossa
var í fyrra rúmar 318 millj-
ónir króna skv. útflutnings-
tölum frá Hagstofunni og
hefur haldist nokkuð óbreytt
undanfarin ár.
Ágúst Sigurðsson, hrossa-
ræktarráðunautur, segir
ýmsar ástæður fyrir þessu,
gæði hrossa sem flutt séu úr landi
hafi til að mynda aukist verulega frá
því sem áður var enda mun meiri eft-
irspurn eftir keppnishestum og veru-
lega góðum reiðhestum en ódýrari
fjölskylduhestum. Hann spáir því að
verðmætasköpun í greininni muni
breytast frá því að snúast fyrst og
fremst um fjölda seldra hrossa yfir í
aukinn útflutning á þekkingu og þjón-
ustu á öllu sem tengist hrossum,
tamningu, þjálfun, ræktun, fóðrun og
fleiru. „Það má kannski segja að hest-
urinn, skepnan sjálf, hún er fjöreggið,
en svo er allt hitt sem mun skapa
miklu meiri tekjur.“
Hann er ekki sammála því sem
bent hefur verið á að áhersla hafi
fyrst og fremst verið lögð á að selja
íslenska hestinn sem keppnishest.
„Eftirspurnin er hreinlega eftir
keppnishestum og kynbótahrossum
um þessar mundir og þar eru miklu
dýrari gripir á ferðinni en fjöl-
skylduhrossin. Við viljum selja sem
mest af góðum hrossum úr landi,
hvort sem það er fyrir fjölskyldur, til
almennra hópútreiða, í keppnir eða til
kynbóta. Hið opinbera er ekkert að
skipta sér af því hvers konar hross
eru til sölu.“
Sumarexem hefur um margra ára
skeið verið viðvarandi hjá íslenska
hestinum og sumir gagnrýnt að ekki
sé nóg að gert í rannsóknum á exemi.
Ágúst tekur undir það að sumarexem
sé helsta heilsufarsvandamál íslenska
hestsins um þessar mundir en bendir
á að rannsóknir standi yfir á til-
raunastöðinni á Keldum í samvinnu
við erlendar háskólastofnanir sem
miði að því að finna bóluefni við sum-
arexemi. Verulegir fjármunir hafi
verið settir í rannsóknina og m.a. hafi
Framleiðnisjóður landbúnaðarins
sett tíu milljónir króna á ári til
þriggja ára í verkefnið. „Hitt er ann-
að að betur má ef duga skal og það er
alveg ljóst að við þurfum að efla þess-
ar rannsóknir enn frekar.“
Viktoría krónprinsessa fær
íslenskan hest að gjöf
Hann segir langt frá því að búið sé
að eyðileggja ímynd íslenska hestsins
á erlendri grund eins og einhverjir
hafi haldið fram. Íslenski hesturinn
eigi mikla framtíð fyrir sér og nóg sé
að líta til nágrannalandanna í þeim
efnum. Töluvert hefur verið flutt út af
íslenska hestinum það sem af er
þessu ári og á dögunum voru 84 hross
flutt í einu lagi til Svíþjóðar. Eitt
hrossanna verður fært Viktoríu krón-
prinsessu að gjöf frá íslensku þjóðinni
á Íslandsdeginum í Stokkhólmi 28.
maí næstkomandi.
Þegar mest var flutt út af hrossum
skömmu upp úr aldamótunum 1900, í
kringum 6-7 þúsund hross á ári, voru
íslenskir hestar gjarnan notaðir í
kolanámum erlendis. Eftir að farið
var að huga að útflutningi á reiðhest-
um hefur útflutningurinn mestur ver-
ið á þriðja þúsund hross á ári og náði
hámarki, að sögn Ágústs, í kringum
1994-1995 en hefur frá þeim tíma
minnkað. Í dag er útflutningurinn vel
innan við 2000 hross á ári. Ágúst
bendir á að samsetning hrossanna sé
allt önnur í dag en áður. Þegar mest
hafi verið flutt út hafi hross gjarnan
verið flutt út í hópum með 2-3 verð-
mætum hrossum í 20 hrossa hópi.
„Nú eru hrossin sem flutt eru úr landi
einfaldlega í hærri gæðaflokki en var
og þar af leiðandi hlutfallslega verð-
mætari. Þannig að verðmætið sem
slíkt hefur ekki minnkað þótt hrossa-
fjöldinn hafi minnkað.“
Þýskaland var lengi einn stærsti
kaupandi á íslenskum hrossum en út-
flutningur þangað hefur dregist veru-
lega saman á undanförnum árum.
Ágúst segir ástæðurnar marg-
víslegar. Meðal annars sé um að
kenna sumarexemi og áróðri gegn ís-
lenskum hrossum fæddum á Íslandi
auk þess sem tollarannsóknir þýskra
stjórnvalda hafi sett strik í reikning-
inn. Ákveðin vandamál hafi einnig
verið í ræktunarstarfi Þjóðverja
varðandi hvaða viðmiðunum skuli
fylgt auk þess sem Þjóðverjar fram-
leiði einfaldlega sjálfir mikið af ódýr-
ari hrossum nú orðið.
60 þúsund hross í Þýskalandi
Í Þýskalandi eru nú um 60 þúsund
íslensk hross en til samanburðar eru
þau 74 þúsund hér á landi. Ágúst seg-
ist vera bjartsýnn á að Þýskalands-
markaður taki við sér að nýju og
bendir á að ákveðin vakning sé að
verða þar varðandi ræktun hesta.
Sem stendur eru Danmörk og Sví-
þjóð tveir stærstu kaupendur ís-
lenska hestsins og uppgangur hans
sýnu meiri í Danmörku. Þangað hef-
ur töluvert verið flutt út af stóðhest-
um og verulega góðum hrossum síð-
ustu misseri. Auk annarra
viðskiptalanda sem þegar hafa fest
sig í sessi, einkum á Norðurlönd-
unum og Mið-Evrópu, hafa hrossa-
ræktendur lengi horft vestur um haf,
til Bandaríkjanna og Kanada. Ágúst
segir útflutning þangað hafa gengið
hægar fyrir sig en þó frekar upp á
við. Þar, sem og annars staðar, snúist
útflutningur ekki eingöngu um hross-
in heldur útflutning á almennri þekk-
ingu á íslenska hestinum. Þörf sé á að
efla hana enn frekar svo hægt sé að
auka útflutning á hrossum. „Sala á
hrossum til útlanda er og verður al-
gjörlega í höndum ræktenda og
hestamanna sjálfra, hið opinbera þarf
hins vegar að sjá um almenna kynn-
ingu á hestinum og íslenskri hesta-
mennsku og þar þarf verulega að
taka til hendinni.“
Útflutningur á hrossum hefur dregist verulega saman á undanförnum árum
Auka þarf útflutn-
ing á þekkingu
tengdri hestinum
!"
#"
$"
$ % &
'()
(
%%%% *+
!!"
#
$
%&$
#'%%
'&
#
(
$
%
#
#
'
#'(
#
'&
&' (
$
&
%
('
'
'
'
'
) ) $ ) & ) % ) ) ) )
Morgunblaðið/RAX
Hestur og ís í Breiðafirði.
ÍSLENSKI Evróvisjón-hópurinn kom til Riga í Lett-
landi síðdegis í gær og snemma í morgun átti að vera
fyrsta æfing Birgittu Haukdal og hljómsveitar fyrir
Evrópusöngvakeppnina sem fram fer næsta laugardag.
Strax á flugvellinum biðu sjónvarpsfréttamenn frá
Lettlandi og tóku Birgittu tali.
Að sögn Gísla Marteins Baldurssonar, sem verður
kynnir í útsendingu sjónvarpsins og talsmaður hópsins,
er Birgitta Haukdal meðal þeirra fimm söngvara sem
mestur spenningur virðist vera kringum í keppninni.
Segir hann að strax hafi fréttamenn og ljósmyndarar
viljað fá við hana viðtöl og myndir og á hótelinu í gær-
kvöldi voru ýmsir að fá hana til að vera með sér á
myndum. Íslenska lagið verður það fyrsta á æfingu í
dag og verður rennt nokkrum sinnum yfir lagið og
kannað hvernig búningar og annað fer við ljós og bak-
grunn sviðsins. Á dagskrá strax eftir æfingu er síðan
fyrsti blaðamannafundurinn. Í kvöld eru fulltrúar allra
keppnisþjóðanna boðnir í kvöldverð hjá borgarstjóra
Riga.
Birgitta Haukdal strax í viðtölum
SIGURJÓN Einarsson var kjör-
inn formaður Blindrafélagsins á
aðalfundi félagsins á laugardag-
inn. Sigurjón var einn þriggja
sem buðu sig fram til formanns
en aðrir voru Gísli Helgason, for-
maður félagsins um tveggja ára
skeið, og Einar Lee. Sigurjón
hlaut 48 atkvæði, Gísli 43 og Ein-
ar 12.
Sigurjón segir að nýrri stjórn
félagsins muni fylgja einhverjar
nýjar áherslur. Hann segist meðal
annars vilja auka upplýsingagjöf
til félagsmanna og taka á fjár-
hagsvanda Blindrastofunnar. Sig-
urjón hefur setið í stjórn Blindra-
félagsins í þrjú ár, þar af tvö sem
varamaður en var nú síðast ritari
stjórnar. Aðrir sem kjörnir voru í
stjórn félagsins eru Halldór Sæv-
ar Guðbergsson, Einar Lee, Pálmi
Stefánsson og Friðgeir Jóhann-
esson en varamenn eru Ágústa
Eir Gunnarsdóttir, Lilja Sveins-
dóttir og Rut Sveinsdóttir.
Nýr formað-
ur Blindra-
félagsins
ELSA B. Friðfinnsdóttir, hjúkrunar-
fræðingur og aðstoðarmaður heil-
brigðisráðherra, tók við formennsku í
Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga á
fulltrúaþingi félagsins í síðustu viku,
af Herdísi Sveinsdóttur. Að sögn Elsu
mun hún láta af störfum sem aðstoð-
armaður ráðherra á næstunni.
Innt eftir því hvort með nýjum for-
manni fylgi nýjar áherslur segir Elsa
að auðvitað breytist alltaf eitthvað
með nýju fólki. „Ég hef reynslu víða
að úr heilbrigðiskerfinu og reynsla
mín sem aðstoðarmaður heilbrigðis-
ráðherra hefur sýnt mér öðru fremur
að hjúkrunarfræðingar eigi að geta
verið sterk rödd í umræðu um stefnu í
heilbrigðismálum.“ Elsa segir m.a. að
hún myndi vilja vinna að því að
styrkja aðkomu hjúkrunarfræðinga
að allri umræðu um þróun heilbrigð-
ismála.
Nýr formað-
ur Félags ísl.
hjúkrunar-
fræðinga
♦ ♦ ♦