Morgunblaðið - 19.05.2003, Qupperneq 15
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MAÍ 2003 15
UM 1.200 börn heimsækja Borg-
arleikhúsið þessa dagana en það
er liður í barnastarfinu sem boðið
hefur verið uppá í húsinu undan-
farin átta ár.
„Þessi hópur kom í heimsókn í
Borgarleikhúsið í fyrra og kynnt-
ist þá starfseminni í ýmsum deild-
um hússins,“ segir Sigrún Val-
bergsdóttir kynningarstjóri
Borgarleikhússins. „Núna fá þau
að kynnast starfi leikaranna og að
þessu sinni er bryddað uppá ný-
breytni sem er spunavinna í sam-
vinnu við börnin. Þau segja frá
draumum sem þau hefur dreymt
og síðan taka leikararnir við og
sýna þeim drauminn með tilheyr-
andi leikhljóðum og ljósagangi.
Draumurinn er jafnvel endurtek-
inn ef börnin vilja leiðrétta eitt-
hvað í útfærslunni. Framboð á
draumum er takmarkalaust og
reynt að sýna eins marga drauma
og hægt er að komast yfir.“
Það er stór leikarahópur Leik-
félags Reykjavíkur sem kemur að
þessari vinnu.
Morgunblaðið/Kristinn
Leikarar Borgarleikhússins leika drauma barnanna.
Börnin segja
leikurum frá
draumum sínum
GUNNLAÐARSAGA eftir Svövu
Jakobsdóttur var nýverið gefin út í
Frakklandi á vegum bókaútgáf-
unnar José Corti. Bókmenntatíma-
ritið Le matric-
ule des Anges
fjallaði á dögun-
um um bókina
undir fyrirsögn-
inni Norrænn
lífsmjöður þar
sem sagði meðal
annars: „Falleg-
asti kostur
Gunnlaðar sögu
er hversu marg-
hliða hún er. Hún er skáldsaga um
vitfirringu, einsemd, útskúfun og
um það hversu lífseig goðsögnin
getur verið.“
Gunnlaðarsaga kom upphaflega
út hjá Forlaginu árið 1987 en hefur
einnig verið gefin út á ítölsku,
litháísku, dönsku, sænsku, finnsku
og norsku, auk frönsku. Sagan var
tilnefnd af Íslands hálfu til bók-
menntaverðlauna Norðurlandaráðs
og hlaut ennfremur Henrik Steff-
ens-verðlaunin árið 1997.
Þýðandi frönsku útgáfunnar er
Régis Boyer, prófessor emerítus
við Sorbonne-háskóla í París og
einn helsti sérfræðingur Frakka í
norrænni menningu. Hann hefur
þýtt stóran hluta íslenskra forn-
sagna auk þess að þýða mörg
skáldverk eftir íslenska samtíma-
höfunda.
Gunnlaðar-
saga á
frönsku
Svava
Jakobsdóttir